Morgunblaðið - 28.09.1975, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1975
Portúgal:
„Þessi stjórn
er fyrsta skref
any
Eftir Jóhönnu
Kristjónsdóttur
Jose Pinheiro de Azevedo flotafor-
ingi og forsætisráðherra nýrrar
stjórnar i Portúgal er sagður maður
harðskeyttur og lengi hefur sögum
farið að þvl að hann hneigðist til
vinstri I stjórnmálaskoðunum Hann
er fimmtiu og átta ára að aldri. Það
tók Azevedo drjúgan tíma að bræða
stjórn sína saman áður en hún
reyndist starfhæf og þarf það ekki
að koma neinum á óvart sem reynt
hefur að fylgjast með ruglingslegri
framvindu mála í landinu. Augljóst
var strax og Azevedo tók að sér að
veita forystu nýrri stjórn að verkið
yrði ekki auðvelt. En hálfur sigur var
unnin þegar sósialistar og alþýðu-
demókratar sættu sig við hann I
forsætisráðherraembætti þrátt fyrir
þann vinstrilit sem á honum hafði
löngum verið Og þær vikur sem
stjórnarmyndunarþrasið stóð yfir
sýndi hann klókindi og hyggindi,
svo að hver þrautreyndur pólitikus
hefði getað verið hreykinn af
Azevedo tók þá afstöðu þegar
hann hafði fallist á að freista þess að
koma saman starfhæfri stjórn að
detta ekki í þá gryfju að tengjast
einum flokki framar öðrum. En sá
hafði verið mikill Ijóður á ráði fyrir-
rennara hans, Goncalves Hann fór
ekki I launkofa með að hann hneigð-
ist til vinstri en á hinn bóginn hafði
það heldur ekki farið á milli mála að
honum var umhugað um framþróun
byltingarinnar á mun hófsamari hátt
en Goncalves hafði hugsað sér Þvi
gátu fulltrúar þeirra sem við sögu
komu sætt sig við hann Sósíalistar
litu svo á að hann væri nægilega
hlutlaus og hófsamur til að þeír
gætu byrjað viðræður með það fyrir
augum að fara á ný inn i stjórn;
sama máli gegndi um alþýðudemó-
krata og þann hóp innan MFA —
hreyfingar hersins — undir forystu
Melo Antunes, fyrrverandi utanrlkis-
ráðherra en sá hópur hafði reynt að
vinna gegn áhrifum kommúnista og
var mikil óánægja meðal þeirra með
Goncalves og afstöðu hans Sér-
kennilegast kann að virðast að
kommúnistaflokkurinn skyldi tiltölu-
lega vandræðalaust sætta sig við
Azevedo En vegna þess mikla
stuðnings sem sýnt var að Azevedo
nyti innan hersins til að taka að sér
starf forsætisráðherra og vegna þess
að fátt eða ekkert hafði komið fram
sem veikt gæti trú kommúnista á þvi
að hann gætti fyllsta hófs, féllust
þeir á samningayiðræður. Azevedo
hafði til dæmis lýst stuðningi við
þær þjóðnýtingar sem gerðar höfðu
verið, svo og yfirráð Portúgala yfir
erlendum fjárfestingarfyrirtækjum
og landbúnaðaráætlun landsins
Azevedo er fæddur í Angola.
Hann gekk í flotann árið 1934 og
hann hefur farið á þjálfunarnám-
skeið i Bretlandi og viðar. Hann er
Upprisa f Portúgal.
Mario Soares, formaður portúgalskra sósialista sést hérfyrir miðju, en hjá
honum standa þeir Azevedo forsætisráðherra og Emidio Guerreiro, leið-
togi alþýðudemókrata, og virðist fara vel á með þeim á þeirri stundu sem
myndin var tekin.
sagður minna greindur en fráfarandi
forsætisráðherra, en traustari og
gæfulegri maður um flest
ALLIR ALLSHUGAR FEGNIR
AÐ GONCALVES FÓR
í símtali sem ég átti við vinafólk
mitt i Lissabon I fyrradag var auð-
heyrt að mikill léttir er flestum þar
að hafa losnað við Goncalves sem
forsætisráðherra. Eru verulegar von-
ir bundnar við nýju stjórnina og blða
menn óþreyjufullir eftir að hún birti
afgerandi áætlanir um efnahagsmál
landsins, sem lengi hafa verið látin
sitja á hakanum og hefur sigið jafnt
og þétt á ógæfuhliðina
Gagnrýni hefur komið fram á að
sumir ráðherranna séu i röngum
ráðherraembættum og er þar sér-
staklega vikið að Salgado Zenha
ráðherra sósialista Hann er nú fjár-
málaráðherra og þykir sumum sem
það hefði verið vitið meira að hann
hefði á ný tekið við dómsmálum
landsins, en þau hafði Zenha á sinni
könnu þar til i sumar er sósialistar
fóru úr stjórninni og siðan alþýðu-
demókratar til að sýna andstöðu við
vaxandi áhrif kommúnista
Einsýnt þykir fólki að með þessari
stjórnarmyndun hafi áhrif komm-
únista verið mjög verulega skert
miðað við þá þróun sem hafði orðið
i landinu mánuðina á undan „Þetta
er fyrsta skrefið til alvöru lýðræðis í
Portúgal", segir fólk I Lissabon.
„Það er Ijós punktur sem gefur fyrir-
heit, að alþýðudemókratar og
sósialistar skyldu standa fast á þvi
að fara ekki I rikisstjórn sem skipuð
væri að meirihluta kommúniskum
öflum. Það var og sigur fyrir
lýðræðisöflin að Azevedo skyldi
viðurkenna þetta sjónarmið "
Aftur á móti hafa fylgismenn
kommúnista nú uppi mikil mótmæli
viða Á fimmtudag héldu hermenn
útifund í Lissabon þar sem þeir
mótmæltu handtöku tveggja félaga
þeirra sem höfðu verið staðnir að
því að dreifa rógsbréfi um núverandi
stjórn. Mótmæli hermannanna
höfðu hins vegar þau áhrif að
ákveðið var að sleppa hermönnun-
um og hefur sú linkind mælzt ákaf-
lega illa fyrir I röðum margra. Er
ekki ósennilegt að þetta mál kunni
að draga einhvern dilk á eftir sér.
Eftir Ingva Hrafn Jónsson
Hafa grisjað
Meðalfellsvatn
um 40—50 þús,
fiska en varla
sér högg á
Gfsli Ellertsson bóndi á Meðalfelli og Kristinn Morth-
ens þeytast eftir spegilsléttu vatninu út að gildrunni.
„FRÁ ÞVl að við hófum
grisjunaraðgerðir f Með-
alfellsvatni haustið 1972
höfum við tekið úr því
40—50 þúsund fiska, að-
allega bleikjur, en það
sér varla högg á vatni og
við höfum enn ekki náð
þeim árangri að bleikjan
stækki,“ segir Jón Krist-
jánsson fiskifræðingur
hjá Veiðimálastofnun í
samtali við þáttinn.
„Ástæðan fyrir grisjuninni
er eins og oft áður hefur komið
fram, að stofninn í vatninu
er alltof stór miðað við fæðu-
framboð og því nær fiskur-
inn ekki að vaxa neitt að
ráði. T.d. er bleikjan í Með-
alfellsvatni yfirleitt aðeins
um 22 cm löng og vegur um 100
g. Nú höfum við byrjað tilraun-
ir með nýja veiðitækni í vatn-
inu, sem er einskonar föst
veiðivél. Þéttriðið net er
strengt frá landi út í gildru, likt
og álagildru en stærri. Netið
virkar eins og veggur og er sil-
ungurinn kemur að því syndir
hann með því unz að gildruop-
inu kemur og hann syndir inn í
hana. Þetta hefur gefist mjög
vel það sem af er og við erum
búnir að fá um 5000 fiska á
einni viku. Það er mikið vinnu-
hagræði að þessari aðferð, það
tekur ekki nema um hálfa klst.
að vitja um hana og losa fisk-
inn. Fram til þessa höfum við
notað venjuleg fyrirdráttarnet
við grisjunina en sú aðferð er
ákaflega' tímafrek og hefur auk
þess ekki gefið nógu góðan ár-
angur. Það er erfitt að segja
fyrir um hversu mikinn fisk við
þurfum að taka úr vatninu til
þess að koma á jafnvægi með
stofninum og fæðuframboði, en
ég er að láta mér detta í hug
20—30 þúsund fiska. Með þvi
móti ættum við að geta náð
fiskinum upp í 30—35 cm og
200—300 g og þannig gert hann
að miklu betri og verðmætari
matarfiski. Við gerðum grisjun-
artilraunir í Djúpavatni á
Jón Kristjánsson fiski-
fræðingur.
Reykjanesi og hafa þær borið
mjög góðan árangur. Fiskurinn
þar náði almennt um 24 cm
stærð og 100 g þunga á fjórum
árum, en eftir grisjunina náði
hann að vaxa í 30 cm og 250 g á
þremur árum.
Aðspurður sagðist Jón vonast
til að grisjunin nú i Með-
alfellsvatni bæri tilætlaðan ár-
angur þannig að takast mætti
að koma upp góðri matar-
bleikju i vatninu.
Jón sagði að svipað ástand
væri viða í íslenzkum stöðu-
vötnum en þó væri offjölgunin
á misjafnlega háu stigi. Ymsar
rannsóknir hefðu verið gerðar
á þessu stigi og með skipuleg-
um aðgerðum væri væntanlega
hægt að stækka almennt silung-
inn i vötnunum og gera hann að
betri matarfiski og eftirsóknar-
verðari bráð fyrir veiðimenn.
Fiskinum mokað um borð. Um 1000 fiskar fengust úr
gildrunni þennan dag. Ljósmyndir Sv. Þorm.