Morgunblaðið - 28.09.1975, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1975
35
1976 árgerðin af Jeep Cherokee Chief.
Jeep CJ—7, árgerð 1976.
Bílasýning í Frankfurt
og nokkrir ngir bílar
Opel sýndi Manta og Asc
ona en bílar frá Opel líkj-
ast nú meir bilum „móð-
urfyrirtækisins“, Gener-
al Motors í Bandaríkjun-
um. Mantan líkist nokk-
uð Chevrolet Monza 2+2.
Renaultinn franski,
sem er vinsælasti inn-
flutti bíll Þýzkalands
heldur nú innreið sína til
Þýzkalands með nýjustu
gerðina 30TS Peugeot
604 var .þarna líka, en
hann er með sömu V—6
vélinni og Renaultinn,
en að auki með rafknún-
ar rúðuvindur og sólþak.
Simca kynnti þarna
splúnkunýja gerð, 1307
og 1308.
Tiltölulega litlar breyt-
ingar eru á japönsku bíl-
Framhald á bls. 31
1 Frankfurt stóð nýlega
yfir bílasýning, en Þjóð-
verjar hafa ekki haldið
bílasýningu síðan olíu-
kreppan varð 1973. Á
þeim tveim árum sem sið-
an eru liðin hafa Volks-
wagen-verksmiðjurnar,
og reyndar flestar aðrar
bílaverksmiðjur í Vestur-
Þýzkalandi og víðar átt I
sívaxandi fjárhagserfið-
leikum. Þróunin síðustu
vikur bendir hins vegar
til að bjartara sé fram-
undan. Þjóðverjar búast
við mikilli söluaukningu
innanlands, en eru ekki
eins bjartsýnir með utan-
landsmarkaðinn. Erfið-
leikar utanríkisverzlun-
arinnar i bílasölu var höf-
uðorsökin fyrir erfiðleik-
unum hjá Volkswagen.
Japanar hafa farið fram
úr Vestur-Þjóðverjum í
bílaútflutningi, en bar-
áttan um annað sætið er
við Frakka.
Nú er ekki eins mikil
áherzla lögð á sparneytna
bíla og gert var strax í
kjölfar óvissunnar í olíu-
málunum. VW og Audi
sýndu GT gerðir af
minnstu bílunum sínum,
Golf og Audi 80. Þessir
bílar eru með 110 hest-
afla vélar og hámarks-
hraða yfir 180 km/klst.
AMC Gremlln X
Kistan áður en hún var flutt á enda suðurgarðsins.
Hafnarframkvæmdir í Þorlákshöfn:
Suðurgarðurinn hef-
ur náð fullri lengd
Þorlákshöfn, 26. septemb-
er.—
HAFNARFRAMKVÆMDUM
hér í Þorlákshöfn miðar nokk-
uð vel áfram. Föstudaginn 12.
september var lokið við útsetn-
ingu á endanum á suðurgarð-
inn og er hann nú kominn í
fulla lengd, sem er um 400
metrar. Hann hefur sem sagt
lengzt um 200 metra í þessum
síðasta áfanga.
Nokkur dráttur hefur orðið á
því að koma fyrir timburkist-
unni, sem myndar endann á
grjótgarðinum, bæði vegna veð-
urs og eins vegna þess að frá-
gangi var ekki alveg lokið. Síð-
an var þessari 11 metra háu
timburkistu fleytt út á flottönk-
um, sem lyftu henni á flóðinu
og hún þá staðsett nákvæmlega.
Fjaraði síðan undan henni og
hún fór í sinn endanlega stað.
Kistan settist á aðra timbur-
kistu, sem var 7 metra há, en
hún mun vera um það bil 60
Framhald á bls. 47.
Séð yfir höfnina f Þorlákshöfn — suðurgarðurinn kominn f fulla
lengd og kistan við enda hans.
Við höfum opnað nýja og fullkomna bensínstöð og smávöruverslun við Mýrarveg á
Akureyri. Það er von félagsins að Akureyringar jafnt sem gestkomandi megi þar
njóta góðrar fyrirgreiðslu og þjónustu og að fyrirkomulag allt á stöðinni eigi eftir að
falla væntanlegum viðskiptavinum okkar vel í geð.
Olíufélagið Skeljungur hf
Shell