Morgunblaðið - 28.09.1975, Page 36

Morgunblaðið - 28.09.1975, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1975 Nýja myndin hans Stanley Kubrick Kvikmyndasiðan er hreykin af því að koma á þrykk fyrstu myndunum hérlendis úr nýj- ustu mynd Kubricks, BARRY LYNDON. Verður hún frum- sýnd viða um heim næstu jól. Frumsýning nýrrar myndar meistarans hefur Iöngum verið talinn merkisatburður í kvik- myndaheiminum, enda er hann enginn afkastamaður, — rúm þrjú ár eru liðin síðan siðasta mynd hans, A CLOCKWORK ORANGE var frumsýnd, og ein sjö , átta síðan sú næsta á und- an, 2001 A SPACE ODDYSEY kom fyrir almannasjónir. Að öllu venjulegu verður þvi næsta mynd snillingsins vart frumsýnd fyrr en á því herrans ári 1978! Barry Lyndon er framagjarn en barnalegur, og ákveðinn í að ná langt í lífinu. Ævintýri hans hefjast eftir að hann leggur á flótta undan lögunum, vegna einvígis sem hann háði sökum ótryggðar ástmeyju hans. Hann skráir sig þá í breska herinn, en gerist liðhlaupi eftir fyrstu orr- ustuna. Barry er þá tekinn til fanga af prússum, sem knýja hann til að ganga til liðs við þá. Nú opnast honum nýr heimur, því hann er kynntur fyrir hin- um skemmtanasjúka og spillta háaðli Evrópu. I fyrstu er hann njósnari lögreglunnar, en síðar hefur hann ofanaf fyrir sér með því að hafa rangt við I spilum. Þá kemur velgengni hans í kvennamálum og fimi og snarræði í vopnaviðskiptum sér í góðar þarfir. Um síðir, þá er Barry hefur kastað á glæ öllum sínum fyrri hugmyndum um ást og róman- tfk, ákveður hann að auka gæfu sína með þvi að giftast greifynj- unni af Lyndon, sem hvoru- tveggja er, ægifögur og auðug. Þrátt fyrir að giftingin færi Barry son og mikla auðlegð, verður þetta upphaf ógæfu hans. Eins og sjá má af þessu efnis- ágripi, er myndin gjörólik fyrri myndum Kubricks, ævintýra- mynd, af þeirri gerð sem enskir kalla „swashbuckler", sem á auglýsingamáli kvikmyndahús- anna útleggst af mikilli anda- gift — skylmingamynd. Myndin er byggð á sögu eftir William Makepeace Thackeray, og er með þeim Ryan O’Neal og Marisu Berenson í aðalhlut- verkum. Sæbjörn Valdimarsson. Bréfa dálkur Heiðraða, háttvirta kvik- myndasíða. Ég vonast eftir svörum við eftirfarandi spurning- um: 1. Hvernig stendur á því að kvikmyndin NICHOLAS AND ALEXANDRA er auglýst sem OSCARsverðlauna þegi sem besta mynd árs- ins 1971, ég man ekki bet- ur en að THE FRENCH CONNECTION hafi hlotið þau? 2. Hvenær verður kvik- myndin EXECUTIVE ACTION sýnd hér? Hlaut hún mikla aðsókn í Banda- ríkjunum? 3. Hvað geturðu sagt mér um myndina „Voru guðirn- ir geimfarar”? 4. Verður þriðja bók Frederick Forsyth, The Dogs of War, kvikmynduð, og er bókin væntanleg á íslensku? 5. Hvað lfður undirbún- ingi kvikmyndunar Gfsla sögu Súrssonar, sem ein- hver norrænn sjóður á að fjármagna? 1. Þessari spurningu svar- aði SSP fyrir hálfum mán- uði. 2. Hafnarbíó hafði fyrir ári síðan tryggt sér sýning- arrétt hérlendis á mynd- inni EXCECUTIVE ACTION, en framleiðslu- fyrirtæki hennar, National General Pictures lognaðist skömmu síðar útaf. Eigur þess voru síðar keyptar af Warner Bros, og þeirra á meðal umrædd mynd, sem hafði gengið all vel i Bandarfkjunum. Umboðs- menn Warner hér á Iandi hafa ekki enn fengið nein gögn í hendur varðandi myndina svo framtfð henn- ar er ærið óljós i augna- blikinu. 3. Hún er byggð, likt og bókin, á umdeildum „forn- leifarannsóknum" þýzka hóteleigandans von Danik- en. Myndin gekk allbæri- lega viðast hvar á siðasta ári, og er væntanleg innan skamms í Tónabíó. 4. Kvikmyndarétturinn að bók Forsyth var keyptur skömmu eftir að hún kom út. Var þar að verki fram- leiðandi sem á undanförn- um árum hefur gert mynd- ir fyrir 20th Century-Fox og Columbia. Forleggjari Forsyth hérlendis er fsa- foldarprentsmiðja, og mun bókin vera væntanleg á ís- lensku nú fyrir jólin. 5. Norræni menningar- málasjóðurinn mun fjár- magna kvikmyndun Gísla sögu Súrssonar. Um gang mála tókst mér ekki að fá vitneskju og væri forvitni- legt að fá að vita um framvindu þess. SÆBJÓRN VALDIMARSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.