Morgunblaðið - 28.09.1975, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 28.09.1975, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1975 Árni Hinriksson forstjóri—Kveöja i. Nokkur kveðjuorð langar mig til að senda þegar kvaddur er Arni Hinriksson framkvæmda- stjóri Laugarásbíós, sem lézt skyndilega að morgni hins 18. sept. s.l. úti í London. Hann var við skyldustörf, sem voru að velja myndir til sýningar fyrir Laugarásbfó, sem ekki er vandalaust, svo mikil uppeldis- áhrif sem það hefur fyrir ungling- ana. Við vorum þarna nokkrir Is- lendingar á sömu hæð. Sum okkar í skemmtiferð en aðrir við skyldu- störf. Og við sem ekkí þekktum aðstæður mjög vel bjuggumst við + Dóttir mín, systir okkar og fóstur- systir GUÐRÚN LENAHAN (fædd Jónsdóttir) lést á sjúkrahúsi í Arizona 8 júní 1975 Eggertína Sigurðardóttir, Sigrún Jónsdóttir, Ólafía Kr. Jónsdóttir, Þorsteinn S. Jónsson, Pétur Einarsson. að hægt væri að blanda saman skyldustörfum og skemmtun. Þó átti þessi hópur saman gleði- stundir. En hvernig ferðin endar er ekki ávallt á okkar valdi. Þegar heim var haldið vantaði eitt lff í hópinn. Þetta kom sem reiðarslag yfir okkur öll. Sorgin þrýsti okkur saman og við urðum sem ein fjöl- skylda á erlendri grund. Okkur fannst sem hefðum við misst bróður. Kynni þurfa ekki að vera löng til að þú finnir hvern mann þau hafa að geyma. Mestur var þó missirinn hjá konu hans Helgu Henrýsdóttur sem sá á bak manni sinum á bezta aldri og börnunum 6 og aldraðri móður. Þó Helgu hefði verið kunnugt um að heilsa manns hennar var í hættu og hún latt hann til ferðar- innar tók hún þvi sem að höndum bar með þeirri stillingu og festu sem mæðrum er oft gefið á örlaga- stund — vitandi það að merkið stendur þó maðurinn falli. — Enda var hún ekki ein. Móðir hennar stóð henni við hlið, frú Kristín, ekkja Henry Hálfdánar- sonar, fyrrverandi forstjóra Slysavarnafélags íslands, og hafði hún einnig misst mann sinn svip- lega 3 árum áður. Einnig var vin- ur hans, Pétur Sigurðsson alþing- ismaður, með í för og létti af Helgu öllu sem hann gat. Yfir fagurlega búnum líkbörum manns síns þakkaði hún honum hamingjuríkt samlíf þeirra og barnanna, sem voru hennar fyrsta huggun er frá leið. Enda hafði Arni ótvírætt hvatt tengdamóður sína til fararinnar og gert margvíslegar ráðstafanir heimili sfnu og starfi til handa. Kannski grunaði hann að þessi ferð mundi hans síðasta. Megi umhyggja hans og gæzka verða þeim styrkur og stoð. Guðs blessun fylgi honum yfir landamærin, sem við öll verðum að stíga yfir. Björg Thoroddsen. + Útför móður minnar og systur UNNAR MAGNÚSDÓTTUR, Stigahllð 4, ferframfrá Fossvogskirkju, mánudaginn 29. sept. kl. 3e.h. Magnús Kolbeinsson, Sigríður Magnúsdóttir. + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, KARLG.PÁLSSON Grettisgötu 48b, lézt I Landakotsspítala 26 september Jóna Guðjónsdóttir, Ólafur G. Karlsson, Guðrún A. Árnadóttir og barnabörn. + Ástkær móðirokkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA PÉTURSDÓTTIR, frá Sólvöllum, Rauðarárstíg 34, andaðist á Landspítalanum 25. sept. Fyrír hönd systkina minna og annarra vandamanna, Þóra Magnúsdóttir. + Útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa, ERLENDAR SIGURÐSSONAR, skipstjóra, Hverfisgötu 98, fer fram frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 30. september kl. 3. e.h. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim, sem vildu minnast hans er bent á Slysavarnafélag íslands. Fyrír hönd aðstandenda. Guðrún Hálfdánardóttir. Jón Þórarinsson, lyfsali HIÐ fyrsta sem mér flaug í hug við andlátsfregn vinar míns, Jóns Þórarinssonar lyfsala, var fyrsta erindið í einu kvæði afa hans, Hannesar Hafstein, svohljóðandi: Strikum yfir stóru orðin, standa við þau minni reynum, skjöllum ekki skrílsins vammir, skiljum sjálfir, hvað við meinum. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Ég fór að þrasa við gamlan vin minn um smámuni, og sfðan talár hann ekki við mig. Mér lfður ilfa út af þessu og vil bæta úr þvf og biðjast afsökunar á mfnum þætti deilunnar. Haldið þér, að við getum aftur orðið vinir? Auðvitað er hægt að koma á sáttum, ef báðir aðilar eru einlægir og vilja raunverulega semja frið. Samt er erfitt að endurheimta djúpa vináttu, eftir að árekstur hefur orðið. Kunningsskapur ristir ekki eins djúpt, og auðveldara er að endur- nýja hann, þó að upp úr hafi slitnað. Biblían segir okkur, að okkur beri að fyrirgefa án alls fyrir- vara, jafnvel sjötíu sinnum sjö, hafi einhver gert á okkar hlut og biður fyrirgefningar. En þér segið, að vinur yðar fyrrverandi vilji ekki leyfa yður að viðurkenna yðar þátt í deilunni og vilji ekki tala við yður. Þér ættuð I fyrsta lagi að hugsa hlýtt til hans. Því næst skuluð þér tala vel um hann. Verið ekki áleitinn, en bíðið í vinsemd og þolinmæði. Reynið að sýna honum góðan hug yðar, og forðizt allt stærilæti. Ef yður tekst að bindast einlægum vináttuböndum við hann að nýju, munu hin nýju tengsl breiða yfir allt hið gamla. Ég er þess fulíviss, að vinarsambandið verður enn nánara en áður, þegar tímar líða. Biðjið nú fyrir þessu máli. Guð mun hjálpa yður. Ég þakka Jóni Þórarinssyni og allri hans ætt allan mér veittan trúnaö. Guö Ieggi sína mildu hönd á syrgjendur. Bjarni Kr. Björnsson. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á f mið- vikudagsblaði, að berast f sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera f sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu Ifnubili. íminningu Unnar H. Magnúsdóttur Unnur H. Magnúsdóttir lézt hér f bæ hinn 21. september s.I. Viö störfuðum saman hjá Steypustöðinni hf í áratug. Á því tímabili áttum vió náið og ánægjulegt samstarf. Unnur var bókhaldari fyrirtækisins og hliö- arfyrirtækja þess. Með auknum umsvifum jókst starf hennar stöð- ugt, en samt komst hún alltaf yfir verkefnið einhvern veginn. En ég veit, að hún fór oft með verkefnin með sér heim til þess að klára þau þegar svo stóð á, fremur en að kvarta yfir álaginu eða láta vinnu- tímann skammta afköstin. Ég held að slík afstaða gagnvart Eiginmaður minn. + JÓN DIÐRIK HANNESSON, fyrrverandi múrari. Barmahlíð 52, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 30. september kl. 1 30. e.h. Jónína M. Jónsdóttir. + EINAR GUÐNASON bifreiðastjóri, Reykjavikurvegi 22, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 30. september kl. 2e.h Blómafbeðin Benedikt Guðnason, Sigurður M. Jóhannsson. Laufey Guðnadóttir, + Bróðir okkar, FRIÐJÓN ÞORLÁKSSON, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 29 september kl 10.30 árdegis. Sigrlður Þorláksdóttir, Sólborg Þorláksdóttir. + Fóstri minn, TORFI HERMANNSSON, trésmiður, Flókagötu 3, verður jarðsunginn I Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. september kl. 10 30. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans^ er bent á Minningarsjóð Reglunnar, Bókabúð Æskunnar, Lauga- vegi 56 Halldór Tjörvi Einarsson. vinnunni sé orðin næsta fátfð meðal fólks, sem hjá öðrum vinn- ur. Unnur var með afbrigðum ná- kvæm og samvizkusöm. Hún gafst aldrei upp fyrr en allt stemmdi upp á síðasta eyri. Undraði mig oft þrautseigja hennar og fyrir- varð mig um leið fyrir eigin óþol- inmæði. Dagfarslega var hún létt í lund og skemmtileg i umgengni og viðræðu. Alltaf var hún reiðu- búin að sjá björtu hliðarnar á hlutunum og kíma góðlátlega að mannlífinu. Unnur hélt um púls- inn á fyrirtækinu, gladdist og hryggðist með því. Ég held að það séu einu skiptin sem mér fannst hún daprast, þegar hún sá af töl- unum, að ekki gengi reksturinn sem bezt þá stundina. Hún var vakandi í starfinu og ekkert fór framhjá henni. Árvekni hennar sparaði oft miklar fjárhæðir. Hún var fljót að taka til hönd- unum ef hún sá eitthvað sem bet- ur mátt fara, hvort sem það var að þvo upp eða ræsta til á skrifstof- unni, þó utan hennar venjulega verkahrings væri. Leyndi þá myndarskapurinn sér ekki. Starfsorka hennar, eða „energíið“ ens og hún kallaði það stundum var með afbrigðum. Um síðustu jól veiktist Unnur af þeim sjúkdómi, sem hún hafði áður kennt, en vonir höfðu staðið til að komizt hefði verið fyrir. Þá sagði hún við mig, að sér fyndist hún vera „energílaus" í fyrsta sinn á ævinni. Við vonuðum öll að hún fengi það aftur hið fyrsta. Oft taldi hún sig vera að hressast og vildi þá óðar fara að vinna sem fyrst, nú siðast fyrir örskömmu síðan. En þær vonir urðu að engu. Syni hennar og nánustu ætt- ingjum færi ég samúðarkveðjur frá okkur samstarfsfólkinu og við þökkum Unni fyrir samferðina og ógleymanleg kynni. Halldór Jónsson verkfr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.