Morgunblaðið - 09.03.1976, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1976
Tillagalandbúnaðarráðherra:
Niðurgreiðslur á
kjöti lækkaðar en ull
verði niðurgreidd
Verð kindakjöts til neytenda hækkar ekki
Landbúnaðarráðherra, Halldór E.
Sigurðsson, hefur lagt fyrir ríkis-
stjórnina tillögu þess efnis að
niðurgreiðslur á dilkakjöti verði
lækkaðar og þeim fjármunum,
sem þannig fást, varið til að
greiða niður ull. Breyting þessi á
ekki að valda hækkun á verði
kjöts til nevtenda, því verð dilka-
Manns
saknað á
Akureyri
Akureyri H. marz.
GEIR Elvar Halldórsson Furu-
lundi 10 M, 24ra ára fór að
heiman frá sér klukkan 21.30 á
laugardagskvöld f bíl sínum
A-2602, sem er grænn Volks-
wagen. Síðan hefur ekkert til
hans spurzl og híllinn ekki
fundizt þrátt fyrir mikla leit.
Hjálparsveit skáta og Flug-
björgunarsveit Akureyrar leit-
uðu í gær bæði í bænum sjálf-
um og á öllum nærliggjandi
vegum. Auglýst var í útvarpi
eftir marninum, haft var sam-
band við lögreglu í næstu hér-
uðum og fleiri eftirgrennslan-
ir voru uppi hafðar, en allt var
það árangurslaust. — Sv.P.
kjöts lækkar til bænda en þá
lækkun eiga þeir hins vegar að fá
bætta með hækkuðu verði á ull. 1
samtali við Halldór E. Sigurðsson
kom fram, að sennilega þýddi
þessi brevting einhverja lækkun
á heildarupphæð niðurgreiðsln-
anna auk þess, sem hún hefði í
för með sér lækkun útflutnings-
bóta, því hagstæðara væri að
flvtjaút ullarvöruren kjöt.
A undanförnum árum hefur
þótt skorta mjög á að sú ull sem
til fellur í landinu skilaði sér til
vinnslu og telja menn að þar hafi
Framhald á bls. 39
Stjórnarfrumvarp:
Jafnstaða kvenna og karla
Jafnstöðuráð skal skipað 5
mönnum: einum skipuðum af
Hæstarétti, formaður ráðsins, ein-
um skipuðum af félagsmálaráð-
Freigátan Mermaid F 76
99
NV freigáta hefur bætzt f hóp
þeirra Sevllu, Bacchante og
Naiad, sem nú gæta 32ja brezkra
togara, sem í gær voru allir á
friðaða svæðinu úti fvrir Austur-
landi. Er það freigátan Mermaid
F 76, sem er nokkru minni en þær
freigátur, sem hér hafa verið við
iand, en þær hafa allflestar verið
af svokallaðri Leander-gerð.
Mermaid er 2.300 tonna skip og
kom á míðin f gærmorgun.
Freigátan Mermaid er
FRAM var lagt á Alþingi í gær stjórnarfrumvarp um jafnstöðu kvenna
og karla. Frumvarpið er samið að tilhlutan Gunnars Thoroddsen,
félagsmálaráðherra, af Guðrúnu Erlendsdóttur, hæstaréttarlögmanni,
sem jafnframt er formaður Kvennaársnefndar og Jafnlaunaráðs, og
Hallgrfmi Dalberg, ráðunevtisstjóra. Frumvarpinu er ætlað að stuðla
að jafnstöðu karla og kvenna, ef að lögum verður, og skal Jafnstöðuráð
annast framkvæmd laganna.
herra, einum af BSRB, einum af
ASI og einum af Vinnuveitenda-
sambandmu.
Frumvarpsgreinar fjalla um
jafna möguleika til atvinnu og
menntunar og jafna greiðslu
launa fyrir jafnverðmæt og sam-
bærileg störf. Skal atvinnu-
rekendum óheimilt að mismuna
starfsfólki eftir kynferði og gildir
það m.a. hvað varðar ráðningu og
skipan í starf, stöðuheiti, stöðu-
hækkun og veitingu hvers konar
hlunninda sem og almenn vinnu-
skilyrði.
Fyrsta grein frumvarpsins er
stefnuyfirlýsing löggjafans um
jafnstöðu kynjanna og útilokun
hvers kyns mismununar.
Önnur grein frumvarpsins
fjallar um jafnan rétt í menntun
og starfi og útrýmingu misréttis,
sem nú ríkir.
Þriðja greinin er í samræmi við
samþykkt Alþjóðavinnumála-
stofnunarinnar frá í júní 1958,
varðandi misrétti með tilliti til
atvinnu. Með fullgildingu þeirrar
samþykktar 1964 hefur íslenzka
ríkið skuldbundið sig til að fylgja
stefnu, er miði að því að koma á
jafnrétti um vinnumöguleika og
er frumvarpsgreinin árétting á
þessu.
Fjórða greinin fjallar um aug-
lýsingu starfa, sem þann veg
skulu orðaðar, að af taki öll tví-
mæli um, að auglýst störf skuli
vera „opin jafnt körlum og kon-
um“. Fimmta grein fjallar um
upplýsingaskyldu atvinnurek-
enda.
Sjötta grein frumvarpsins fjall-
ar um jafna menntunaraðstöðu,
eftir að í starf er komið, endur-
hæfingar- og starfsnámskeið. I
sjöundu grein er svo fjallað um
hluta menntastofnana og fræðslu-
kerfis til að tryggja jafnstöðu
kynjanna.
Áttunda grein bannar auglýs-
endum að birta þær auglýsingar í
orðum eða myndum sem „geti
orðið öðru kyninu til minnkunar
eða litilsvirðingar".
Níunda til þréttánda grein
fjalla um starfssvið Jafnlauna-
ráðs og upplýsingaskyldu opin-
berra stofnana og félagasamtaka
gagnvart ráðinu. Þær fjalla m.a.
um hvern veg skuli með farið ef
Jafnstöðuráð kemst að þeirri nið-
urstöðu að ákvæði laganna hafi
verið brotin. Einstaklingur, sem
leitar til Jafnstöðuráðs, á að geta
notið allrar lögfræðilegrar aðstoð-
ar, ef svo langt gengur, að málið
fari fyrir dómstóla. Mál af þessu
tagi eru i eðli sínu mannréttinda-
mál ekki síður en kjaramál og
þykir þvi eðlilegt, að almennir
dómstólar fjalli um slik málefni
en ekki Félagsdómur. Greinar
þessar fjalla og um sektarákvæði
gegn brotum á lögunum og hvern
veg skuli standa að uppkvaðningu
dóma i því efni.
Snekkja Nkrumah”
í þorskastríðið
Víkingi breytt
í loðnuskip
Tekur 1300 lestir eftir breytinguna
frábrugðin öðrum freigátum að
því leyti að hún á sér allsérstæða
sögu. Hún var eitt sinn kölluð
„hin fljótandi barhöll" (floating
Gin Palace) og var upphaflega
smíðuð fyrir forseta Ghana,
Kwame Nkrumah, sem ætlaði að
nota hana sem eins konar
skemmtisnekkju og um leið sem
flaggskip Ghanaflota. Atti freigát-
an að kosta 5 milljón sterlings-
pund, sem þá voru jafnvirði 14
Framhald á bls. 39
ÞEIR Guðbjartur Einarsson,
framkvæmdast jóri, og Hrólfur
Gunnarsson, skipstjóri, hafa
ákveðið að kaupa togarann
Víking frá Akranesi og breyta
skipinu þannig að það verði
heppilegt til nótaveiða. Meðal
annars ætla þeir sér að byggja
vfir þilfar togarans, breyta lest-
um og jafnvel setja í hann frysti-
tæki, þannig að unnt verði að
frysta loðuu og loðnuhrogn um
borð í skipinu. Söluverð skipsins
mun vera um 80 m. kr. Eftir
breytingarnar er gert ráð fyrir að
Vísismenn krefjast ómerkingar ummæla:
Mafía merkir á nútímamáli klíka
segir Ólafur Jóhannesson
HINN 4. marz sl. var lögð fram I
bæjarþingi Reykjavlkur stefna rit-
stjóra og þriggja stjórnarmanna
dagblaðsins Vlsis á hendur Ólafi
Jóhannessyni, dómsmálaráðherra.
vegna ummæla. er ráðherrann við-
hafði I útvarpsþætti hinn 1.
febrúar sl. I stefnu þessari er
krafizt ómerkingar á tilteknum
ummælum dómsmálaráðherra um
aðstandendur Vlsis og máls-
kostnaðar að skaðlausu. Þegar
mál þetta var tekið fyrir I bæjar-
þingi Reykjavlkur var ekki mætt I
þvl af hálfu ráðherrans.
Hins vegar birtir Ólafur Jó-
hannesson opið bréf til Þorsteins
Pálssonar, ritstjóra Vlsis, I Ttman-
um sl. sunnudag og er grein sú
nefnd fyrsti hluti. f grein þessari
leitast dómsmálaráðherra við að
leiða rök að þvl, að orðið mafla
„merkir I máli nútlmamanna
nánast það sama og orðið kllka og
er þannig notað um vlða veröld.
bæði I daglegu tali og rituðu
máli". Nefnir Ólafur Jóhannesson
ýmis dæmi um þetta. í lok þessa
fyrsta hluta boðar ráðherrann aðra
grein til að „rifja upp aftökutil-
raunina á Alþingi, sem fór nú eins
og alþjóð veit", segir Ólafur Jó-
hannesson I lok greinar sinnar.
Hér fer á eftir stefna að-
standenda Vlsis og kafli úr grein
Ólafs Jóhannessonar:
STEFNAN
Gerir kunnugt: að hann þurfi f.h
Þorsteins Pálssonar, ritstjóra, Háa-
leitisbraut 43, Rvík, Guðmundar
Guðmundssonar, forstjóra, Víðivöll-
um, Rvik, Ingimundar Sigfússonar,
forstjóra, Grenimel 45, Rvlk og Þór-
is Jónssonar, framkvæmdastjóa
Blikanesi 23 Garðahreppi að höfða
mál fyrir bæjarþingi Reykjavikur á
hendur Ólafi Jóhannessyni, ráð-
herra, Aragötu 13, Reykjavik til
ómerkingar á eftirtöldum ummæl-
um, sem Ólaíur Jóhannesson við-
hafði i útvarpsþættinum „Bein lína"
þ. 1. febrúar 1976.
1......heldur auðvitað sú Mafia,
sem stendur á bak við þessi skrif . . .
2. ,,Það er Visis Mafian"
3. „Já, það horfir þannig frá minu
sjónarmiði, að það sé glæpahringur,
sem æ ofaní æ kemur með aðdrótt-
anir, rangar, i minn garð."
Þá er einnig krafizt málskostnaðar
að skaðlausu
Málavextir eru þeir, að mennta-
skólakennari nokkur i Reykjavik, Vil-
mundur Gylfason, hefur á undan-
förnum mánuðum skrifað vikulegar
greinar i dagblaðið Visi um margvis-
leg málefni. Hafa greinar þessar
birzt i blaðinu á föstudögum og
ævinlega undir fullu nafni höfundar.
Framhald á bls. 39
Víkingur beri 1300—1400 lestir
af loðnu eða 400 lestum meira en
Sigurður, sem er systurskip
Vfkings. Þess má geta að ekki
hefur verið bvggt yfir þilfar
Sigurðar.
Guðbjartur Einarsson sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær,
að ekki þyrfti að breyta Víkingi
mjög mikið. Á sínum tíma hefði
togarinn verið gerður út á sfld-
veiðar og þá verið brevtt. M.a. var
settur stðr nótapallur á skipið,
stórt stýri og asdic-tæki. Einnig
væru hliðarskrúfur í skipinu.
Enn er ekki ákveðið hvar byggt
verður yfir skipið, en til greina
getur komið að Véltak byggi yfir
þilfarið. Fyrirtækið er nú búið að
fá nýtt húsnæðí i Hafnarfirði og
er öll aðstaða þar mjög góð.
Guðbjartur sagði, að ef allt
gengi að óskum hæfust breyt-
ingar á skipinu i maímánuði n.k.
og tækju þær eflaust nokkurn
tíma. Auðvelt væri að koma fyrir
loðnufrystingartækjum í skipinu
og ýmsu öðru en hvað hægt yrði
að gera réðist af f jármagni.
Valdimar Indriðason á
Akranesi sagði í gærkvöldi, að
ekki væri búið að ganga að fullu
frá samningum en það yrði senni-
lega gert á næstu dögum.
Nafnlaust Rabb
I Lesbók Morgunblaðsins, sem
út kom um helgina, féll niður
nafn höfundar að Rabbi. Höfund-
ur Rabbsins er Áslaug Ragnars og
eru þessi mistök hér með leiðrétt.