Morgunblaðið - 09.03.1976, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1976
Tjón bænda
Bændur urðu fyrir veru-
legu tjóni I verkfallinu á
dögunum og urðu að hella
niður miklu magni af
mjólk, sem þar af leiðandi
fór til spillis. Neytendur
hafa orðið fyrir miklum
óþægindum af þessu tjoni
bænda eins og allir vita,
sem búa á þéttbýlis-
svæðinu hér á suðvestur-
horni landsins og hafa
ýmist ekki fengið mjólk
og mjólkurvörur nú i heila
viku eða orðið að standa i
biðröðum i mjólkurbúðum
til þess að fá þessar
neyzluvörur. í Timanum
siðastliðinn föstudag
birtist viðtal við einn
stærsta kúabónda á
landinu, Hauk Halldórs-
son í Sveinbjarnargerði á
Svalbarðsströnd, en hann
er með 80—90 mjólkandi
kýr, auk um 50 kálfa og
geldneyta Mjólkur-
magníð úr kúnum er um
1000 lítrar á dag.
Mjólkurtankar eru fyrir
um 3600 litra, en að auki
reyndi bóndinn að geyma
4000 litra í plastpokum,
sem hann setti í plast-
tunnu og gróf í snjóskafl.
Allri þessari mjólk eða
tæplega 8000 litrum varð
Haukur i Sveinbjarnar-
gerði að hella niður, en
verðmæti mjókurinnar er
um hálf milljón króna. Um
þetta segir Haukur
Halldórsson i viðtali við
Tímann: „Verkföll eru að
mínum dómi öllum til
skaða. Bændur eru lág-
launastétt og við megum
illa við þeim búsifjum er
við höfum nú orðið fyrir.
Hjá okkur er þetta bein
kjaraskerðing. Við
verðum að gefa skepnum
sama magn af fóðri og
áður, þótt við losnum ekki
við afurðirnar. Tökum
sem dæmi, að stæði verk-
fall yfir í hálfan annan
mánuð og ég orðið að
hella niður allri mjólkinni
á þeim tíma hefðu svo að
segja allar mínar árstekjur
runnið út í sandinn. Er
slíkt forsvaranlegt? Það
má ef til vill segja, að
verkföll hafi verið nauð-
synleg aðgerð fyrir
30—40 árum, en undan-
farin ár hafa þau ekki
reynzt verkafólki það
vopn i kjarabaráttunni, að
dugað hafi til kjarabóta.
Kjarasamningar gerðir
undir verkfallsaðgerðum
eru alltaf nauðungar-
samningar, sem fólk telur
sér yfirleitt ekki skylt að
halda Sú er lika raunin,
að bæði atvinnurekendur
og verkalýðsforystan eru
pressuð til samninga eftir
að út í verkfall er komið. "
Launajöfnunar-
stefna
Siðar Í viðtalinu við
Timann fjallar Haukur
Halldórsson Í Svein-
bjarnargerði um launa-
jöfnunarstefnuna og
segir: „Stóran galla á
kerfinu tel ég vera, að
launþegasamtökin skuli
ekki öll vera með sama
samningstíma, því að
meðan svo er ekki geta
smáhópar launþega lamað
og jafnvel stöðvað stórar
atvinnu- og þjónustu-
greinar. ASÍ-forystan talar
mikið um láglaunastefnu
þ.e.a.s. að bæta hag
hinna lægst launuðu en
raunin er hins vegar sú,
að hún framfylgir alls ekki
láglaunastefnu ! reynd að
minum dómi. Hinar svo-
kölluðu launajöfnunar
bætur voru upphaflega
greiddar til að jafna launa-
misrétti en síðan gerist
það, að allir fá þessar
bætur. Svona aðgerðir álit
ég alls ekki launajöfn-
unarstefnu i framkvæmd.
^Bændur áttu einnig að fá
og fengu sumir hverjir
láglaunabætur, en fram-
kvæmd þeirra var hreint
út sagt skripaleikur. Ég
álit einnig, að launamis-
rétti sé allt of mikið.
Hvaða réttlæti er i þvi, að
vissir starfshópar hafi
margföld laun bænda og
verkamanna og hvaða rök
eru fyrir þvi, að t.d.
mjólkurfræðingar og kjöt-
iðnaðarmenn er vinna úr
afurðum bænda hafi
langtum hærri laun en
þeir? Og framhjá þeirri
staðreynd verður ekki
gengið, að fyrir erfiðustu
og sóðalegustu störfin
bera menn ævinlega
minnst úr býtum, þó svo
að þau störf séu jafn
nauðsynleg öðrum störf-
um þjóðfélagsins."
Hátíðleg
athöfn?
Loks segir þessi um-
svifamikli bóndi: „Verka-
lýðsleiðtogi nokkur lét
svo um mælt fyrir
skömmu, að samningarnir
og verkfallsaðgerðirnar
færu vel og hátíðlega
fram, en ég sé afar Iftið
hátíðlegt við það að þurfa
að hella niður verðmæt-
um fyrir mörg hundruð
þúsund krónur, en hátið-
leg verður hins vegar sú
stund er við íslendingar
losnum við verkföll og
vinnudeilur og það óbæt-
anlega tjón er það veldur
þjóðfélaginu i heild."
5 mínútup
Taflan sýnin ánlegt tjón fynintækis ef
FIMM MÍNÚTUR TAPAST
daglega af tima hvens stanfsmanns
VIKUKAUP FJÖLD 5 I STARFS 10 FÖLKS 30
Kr. 20.000 53.950 107.900 323.700
Kr. 25.000 6 7.600 135.200 405.600
Kr. 30.000 81.250 162.500 487.500
TÍÍMHNN ÍR RiNHNGAR
STIMPILKLUKKA
hvetur starfsfólk til stundvísi
5HII5TIHIEUI l.f.
c/a
------1#-----------
Nýkomin á ágætu veröi
ARMOR
handskriftarkalki
pappír — blár
Stærðir: DIN-4, DIN-5,
Ennfremur allar aðrar stærðir til afgreiðslu með
stuttum fyrirvara.
HEILDVERZLUN AGNAR K. HREINSSON HF.
Pósthólf 654, Sími: 16382, R.
Hverfisgötu 33 Sími 20560
ELDTRAUSTIR
SKJALASKÁPAR
3ja og 4ra skúffu.
SÆNSK
GÆÐAVARA
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGÖTU 1—3, HAFNARFIRÐI. — SÍMI 51919.
TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
Utip KARNABÆR ?
Útsölumarkaðurinn, <
Laugavegi 66, sími 28155