Morgunblaðið - 09.03.1976, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1976
83000
Okkur vantar allar stærðir af
íbúðum og einbýlishúsum.
Verðmetum samdægurs.
Við Kópavogsbraut Kóp,
vönduð og falleg 5 herb. sérhæð
um 146 fm á 2. hæð í 6 ára
húsi, sem er aðeins tvær hæðir.
íbúðin skiptist í stóra stofu,
borðstofu, sjónvarpsskála, eld-
hús með 1. flokks innréttingum
og tækjum. Hægt að afgreiða úr
eldhúsi gegnum lúgu inn í borð-
stofu. í svefnálmu fallegt rúm-
gott baðherbergi, flísalagt, 3
svefnherbergi, stórar svalir. I
fremri forstofu rúmgott þvotta-
hús, stórt búr með glugga og
flísalagður sturtuklefi. Ennfrem-
ur gestasnyrting, sérhiti (hita-
veita). Sérmngangur, stór bíl-
skúr, ásamt geymslu. Lóð rækt-
uð, fjölærum gróðri Laus eftir
samkomulagi.
Við Grænuhlíð
góð 5 herb. íbúð um 119 fm á
2 hæð i fjórbýlishúsi. Sam-
liggjandi stofur 3 svefnherbergi,
flísalagt baðherbergi, eldhús og
rúmgóður skáli. í kjallara þvotta-
hús og geymsla. Sérhiti. Bíl-
skúrsréttur.
Við Skipasund
góð 4ra herb. íbúð efri hæð
(portbyggð) i tvíbýlishúsi um
100 fm. Stofa, 3 svefnherbergi,
eldhús og bað. Er í góðu standi.
Sérhiti.
Jörð til sölu
góð jörð sem er um 100 km frá
Reykjavík fyrir austan fjall.
Jörðin er um 200 hektarar að
stærð og hefur mikla möguleika
á búfjárrækt og garðrækt. í
byggingu nýtt 1 70 fm íbúðarhús
á emum grunni. Rúmlega fok-
helt. Loftplata steypt. Eldra hús á
tveimur hæðum (steinhús) Marg-
ar aðrar byggingar eru á jörðinni
svo sem gripahús ofl. Mikið af
allslags vélum bæði nýjum og
öðrum flestum frá 1970. Jörðin
selst með öllum mannvirkjum og
tækjum, en án búpenings. Skipti
á fasteign í Reykjavík og
nágrenni, kemur til greina.
Nánari upplýsingar á skrifstof-
unni.
Einbýlishús við Framnes-
veg
Einbýlishús steypt sem er um
rúmlega 70 fm grunnflötur.
Hæð og kjallari á hæðinni 4
herbergi og eldhús, þvottahús
geymslur ofl. í kjallara. Áður
samþykkt stækkun á húsinu,
sem yrði ýfið stærri að flatarmáli.
í garðinum er góður verkstæðis-
skúr. Laust eftir samkomulagi.
Við Barónsstíg
góð 2ja herb. íbúð á jarðhæð
(gengið beint inn í íbúðina).
Rúmgóð stofa, svefnherbergi,
baðherbergi, innbyggt eldhús í
stofu. Sérinngangur, sérhiti.
Hagstætt verð.
Við Ægissiðu
4ra herb. íbúð á 1. hæð í góðu
standi. Þar af eitt forstofuher-
bergi. í kjallara góð geymsla
aðild að þvottahúsi og annarri
sameign. Bílskúrsréttur. Ibúðin
getur losnað fljótlega.
Byggingarlóð
undir einbýlishús á einum bezta
stað í Seljahverfi úr erfðafestu-
landi.
Byggingarlóð í Mosfells-
sveit.
Byggingarlóð sem er um 1250
fm undir einbýlishús (í Helga-
fellslandi). Lóðin er hornlóð innst
í lokaðri götu (botnlanga).
Einbýlishús við Dranga-
götu Hafn.
eínbýlishús sem er vandað og
fallegt og er hæð, ris og jarðhæð
með innbyggðum rúmgóðum
bílskúr. í eldhúsi, nýlegar
vandaðar innréttingar, stofur
með teppum. Góður frágangur á
öllum herbergjum. Möguleg
skipti á 5—6 herb. ibúð. Falleg
lóð.
Við Álfaskeið, Hafn
vönduð 4ra herb. endaíbúð á 4.
hæð í blokk. Parket á gólfum.
Bílskúrsréttur.
Einbýlishús
við Marargrund
Garðabæ
Einbýlishús sem er um 1 50 ferm
að mestu fullbyggt. Húsið
skiptist í samliggjandi stofur sem
eru um 50 ferm, stórt eldhús,
skáli úr skála gengið upp í svefn-
álmu sem er hjónaherb. tvö
barnaherb. og baðherb. úr skála
gengið niður í kjallara, þar er 3ja
herb. íbúð, eldhús og bað, og
með sérinngangi. Bílskúrsréttur.
Stór lóð. Skipti á 4ra—5 herb.
íbúð koma til greina. Teikningar
á skrifstofunni.
Við Kapalaskjólsveg
Stór og vönduð 2ja herb. íbúð á
3. hæð í nýlegri blokk. íbúðin er
stór stofa rúmgott eldhús með
borðkrók, hægt að hafa þvotta-
vél í eldhúsi. Stór svefnherbergi,
fallegt baðherb. og skáli. í
kjallara góð geymsla ásamt sam-
eign í þvottahúsi.
Við Hrísateig
Góð 3ja herb. íbúð á efri hæð í
tvíbýlishúsi. Stofa tvö svefn-
herb , eldhús með borðkrók,
baðherb. með sturtu. Stór
garður. Bílskúrsréttur. Getur
losnað fljótlega.
Við Nýbýlaveg Kóp
Vönduð og falleg 2ja herb. íbúð
um 60 ferm. íbúðin er stór stofa
með útsýni yfir Fossvogsdalinn
rúmgott svefnherb. fallegt bað-
herb. með vönduðum tækjum,
eldhús með fallegum innrétting-
um, rúmgóður skáli, ný teppi,
suðursvalir. Á jarðhæð stór
geymsla með glugga, Innbyggð-
ur bílskúr. Sameign í þvottahúsi.
Skipti á 4ra herb. íbúð kemur til
greina.
Við Álfhólsveg Kóp.
Vönduð 4ra herb. íbúð um 100
ferm. á jarðhæð. Með sér
inngangi og sér hita. íbúðin er
stofa, 3 svefnherb. stórt eldhús
með borðkrók, lagt fyrir þvotta-
vél í eldhúsi. Baðherbergi með
sturtu, búr, sameign í þvotta-
húsi, hitaveita. Laus í maí—júní.
Við írabakka neðra-
Breiðholti
sem ný 3ja herb. íbúð um 90
ferm. á 1. hæð. Verð rúmar 6
millj.
Við Skipasund
3ja herb. íbúð í kjallara með sér
inngangi og sér hita. Laus eftir
samkomulagi.
Við Einarsnes Skerjafirði
4ra—5 herb. íbúð um 100
ferm. í jarnvörðu timburhúsi. Bíl-
skúr um 25 — 30 ferm. upp-
hitaður. Sérinngangur í íbúðina.
Stór eignarlóð. Laus eftir sam-
komulagi.
Okkur vantar góða 2ja herb. ibúð þarf að vera stór
stofa, ekki í kjallara eða risi. Mikil útborgun.
Okkur vantar 2ja og 3ja herb. íbúðir i Norðurbæ,
Hafnarfjarðar. Mikil eftirspurn.
Gpið alia daga til kl. 10 e.h.
Geymið auglýsinguna.
FASTEIGNAÚRVALIÐ
QIIV/II Q7nnn SHfurteigii Sölustjön
11V11 O O\J \J\J Auöunn Hermannsson
Sveinn Benediktsson:
Markaðsmál
í deiglunni
Úr dreifibréfi Félags íslenzkra
fiskmjölsframleiðenda, nr. 2/1976
ATVINNUVEGIR
ISLENDINGA
Island er harðbýlt land og
hafa landsmenn oft mátt á því
kenna. Sjávaraflinn við strend-
ur landsins og lax- og silungs-
veiði í ám og vötnum hafa gert
landið byggilegt. Landbúnaður-
inn einn hefði ekki megnað að
halda við byggð landsins í 11
hundruð ár. Hvorttveggja þarf
að haldast í hendur, ásamt
nýtísku iðnaði, fiskvernd og
fiskrækt.
Ekki komst verulegur
skriður á efnahagsframfarir
landsins fyrr en sjávarútvegur-
inn færðist í nýtísku horf fyrir
atbeina framfaramanna, sem
brutu ísinn, i skjóli þess tak-
markaða stjórnfrelsis, sem
þjóðin hafði fengið fyrir
atbeina Jóns Sigurðssonar,
forseta og fleiri stjórnmála-
skörunga.
A fyrsta áratug 20. aldar-
innar gerðist allt í senn, að Is-
lendingar hófu síldveiðar með
reknetum og herpinótum.
Hafin var útgerð nýtízku togara
og smárra vélbáta.
Islenzkur sjávarútvegur var í
örri þróun, þegar fyrri heims-
styrjöldin braust út.
Þrátt fyrir eyðileggingar
styrjaldarinnar og kreppu, sem
henni fylgdi, reis sjávarút-
vegurinn upp með miklum
blóma 1924, þegar Halamiðin
fundust út af Isafjarðardjúpi.
Saman fór mokafli hjátogurum
og ágætt verð á saltfiski.
Verzlunareinokunin, sem
stofnsett var árið 1602, hafði
ásamt siglingabanninu, er
henni fylgdi, komið Islend-
ingum á nátrén.
Verzlunin var ekki gefin
frjáls að fullu og öllu fyrr en
árið 1854. Varð það landi og lýð
til heilla. Jón Sigurðsson var
aðal baráttumaðurinn fyrir
verzlunarfrelsinu.
Svipull er sjávarafli. Er þess
skemmst að minnast, þegar
algjörlega tók fyrir veiði
vorgotssíldarínnar, sem veiðst
hafði fyrir Norður- og Austur-
landi um langt skeið í þeim
mun ríkari mæli sem veiði-
tækni óx, eftir því sem lengra
leið fram á20. öldina.
Arið 1966 námu útfluttar
sildarafurðir um 44% af verð-
mæti heildarútflutnings lands-
ins.
Síldveiðarnar brugðust 1967
og 1968 hrapalega bæði á fjar-
lægum miðum að sumrinu og
heimamiðum fyrir Austurlandi
að hausti. Síldveiðarnar fyrir
Suðurlandi fóru sömu leiðina á
næstu tveim árum. Á árunum
1967 — 68 féll verðlag á hrað-
frystum fiski og fleiri útflutn-
ingsvörum stórkostlega. Jafn-
framt varð mikil hækkun á
framleiðslukostnaði vegna dýr-
tíðar þeirrar, er fylgdi í kjölfar
FASTEIGN ER FRAMTÍÐ
2-88-88
Parhús Kópavogur
ca 150 fm hús á glæsilegum
útsýnisstað 4 svefnherb., stór
stofa, góðar geymslur, arinn i
tofu.
Raðhús Garðabær
150 fm raðhús á einni hæð.
Bilskúr.
Við Háaleitisbraut
4ra til 5 herb. glæsileg ibúð.
Sérhiti Bilskúr.
Við Álfheima
4ra til 5 herb. íbúð að auki eitt
herb. í kjallara.
Við Seljaland
4ra herb. íbúð á 1. hæð. Einnig
einstaklingsibúð á jarðhæð.
Við Fögrubrekku
125 fm 5 herb. ibúð i fjórbýlis-
húsi.
Við Þverbrekku
5 herb. rúmgóð endaibúð. Gott
útsýni.
Við Búðagerði
4ra til 5 herb. ibúð á 2. hæð.
Sérinngangur.
Við Grettisgötu
3ja herb. snyrtileg ibúð í stein-
húsi. Ný innrétting og tæki i
eldhúsi. Nýtt parket.
Við Skólagerði
3ja herb. íbúð á jarðhæð. Sér-
inngangur.
3ja herb. íbúðir
við Asparfell, Dúfnahóla, Kríu-
hóla, Bröttukinn og Öldutún.
2ja herb. ibúðir
við Hrisateig og Þverbrekku.
AÐALFASTEIGNASALAN
Vesturgötu 17, 3. hæð
sími 28888 kvöld- og
helgarsími 82219.
28444
Öldugata
4ra herb. 1 06 fm íbúð á 2. hæð.
íbúðin er 2 stofur, 2 sve iher-
bergi, eldhús og bað. Ibúð í
góðu ástandi.
Kóngsbakki
2ja herb. 76 fm íbúð á 1. hæð.
íbúðin er stofa, skáli, svefnher-
bergi eldhús og bað. Sérþvotta-
hús. Mjög vönduð íbúð.
Hraunbær
2ja herb. 60 fm íbúð á 1. hæð.
íbúðin er stofa, skáli, svefnher-
bergi, eldhús og bað. Góð íbúð.
Þverbrekka
2ja herb. 60 fm íbúð á 6. hæð í
fjölbýlishúsi. Laus fljótlega.
Mikið útsýni.
Kópavogur
raðhús fullfrágengið að utan en
fokhelt að innan í skiptum fyrir
4ra herb. íbúð tilbúin undir
tréverk.
Eignaskipti
hjá okkur er mikið spurt um
skiptamöguleika. Hafið sam-
band, ef þér hafið hug á að
skipta á stærri eða minni íbúð.
Fasteignir óskast á sölu-
skrá. Hafið samband
strax, ef þér hyggist
selja, því kaupendur eru
á skrá hjá okkur.
OPIÐ í DAG TIL KL. 17.
HÚSEIGNIR
VELTUSUND11
SlMI 28444 wlllr
Sveinn Benediktsson
hinnar miklu hækkunar á oliu,
sem varð haustið 1973, samfara
styrjöld Egypta og Arabaþjóða
við Israel.
A árunum 1967—68 gerði
ríkisstjórn og Alþingi ýmsar
efnahagsráðstafanir, sem mörg-
um þótti orka tvimælis, þegar
þær voru gerðar, en allir sáu
eftir á, að gert höfðu þessi
gífurlegu áföll, sem þjóðin varð
fyrir, bæði léttbærari og
skammvinnari en ella hefði
orðið.
BJARTARI HORFUR
I VIÐSKIPTA-
MÁLUM HEIMSINS.
Talið er að viðskipti í
veröldinni hafi dregist saman
um meira en 6% á árinu 1975,
Hinsvegar er því spáð, að
heimsviðskipti muni á þessu ári
aukast aftur um svipaðan
hundraðshluta og um nærri
10% á árinu 1977.
Heimsframleiðsla var talin
hafa minnkað á árinu 1975 um
2—3%, þegar talin er verg
framleiðsla einstakra landa. Er
samdrátturinn rakinn til fjár-
hagsörðugleika stórra iðnfyrir-
tækja. Gert er ráð fyrir, að
framleiðslan vaxi um 4% á
þessu ári og um 6% 1977.
A ráðstefnunni í Ram-
boulillet (sumarhöll forseta
Frakklands skammt frá Ver-
sailles), sem haldin var af
fremstu fjármálamönnum hins
vestræna heims og Japans, í
siðustu viku nóvembermánaðar
1975, var því lýst yfir og undir-
strikað, að náttúruhamfarir,
styrjaldir og harðir stjórnmála-
legir árekstrar þjóöa á milli,
geti gjörbreytt og spillt sam-
starfi iðnaðarþjóða á skömmum
tima.
Ef ekkert óvænt kemur fyrir,
er talið að verulegur bati verói í
efnahagsmálum hinna iðn-
væddu þjóða á árinu 1976, hlið-
stætt þvi sem orðið hefur í
Bandaríkjunum á s.l. ári.
ANSJÓVETUVEIÐAR
VIÐ PERÚ
STÖÐVAÐAR
Hinn 23. febrúar bárust þær
fréttir frá Perú, að heildar-
veiðarnar á bræðslufiski hafi
hinn 18. febrúar numið um
420.000 tonnum frá áramótum.
Svari þetta til um 90.000 tonna
af fiskmjöli og um 19.000 tonna
af lýsi.
Frá 1. febrúar hafa veiðar
verið bannaðar á öllum veiði-
svæðum nema Ilo, vegna þess
hve ansjóvetan hefur verið
blönduð kræðu (peladilles).
Ekki hefur verið ákveðið
hvenær veiðar verða leyfðar
aftur. Er tilkynningar um það
vart að vænta fyrr en um 15.
marz.
Margir telja að Perúmenn
hafi spillt framtíðarveiði síðar
á árinu og næsta ár með
kræðuveiðinni i janúarmánuði
s.l., og með ofveiði fyrri hluta
árs 1975.
Endanlegar tölur liggja nú
fyrir um það, hve Perúmenn
veiddu mikið af bræðslufiski á
s.l. ári. Nam aflinn alls um 3.1
milljón tonna og framleidd
voru á árinu 1975 um 686.000
tonn af fiskmjöli í stað 1.1—1.2
milljón tonna, sem áætlað hafði