Morgunblaðið - 09.03.1976, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1976
17
ííþrðwrl
Eddi þjálfar
Sandgerðinga
HINN góð- og gamalkunni
þjálfari Eggert Jóhannesson
hefur nú verió ráðinn þjáifari
knattspyrnumanna i Sandgerði
næsta keppnistimabil. Eggert
hefur undanfarin tvö ár starfað
hjá færeyska féiaginu B—36 og
einnig haft afskipti af þjálfun
færeyskra landsliðsmanna. Áð-
(ir þjálfaði hann m.a. hjá Ar-
manni og Vfkingi í mörg ár.
Eggert er enn i Færeyjum og
þar til hann kemur hingað til
lands munu Sandgerðingar æfa
eftir æfingaprógrammi frá
honum.
Erlendur með
Skallagrím
Ungmennafélagið Skaila-
grímur í Borgarnesi hefur nú
ráðið sér þjálfara fyrir kom-
andi keppnistímabil í knatt-
spyrnu, en sem kunnugt er
leikur lið félagsins í þriðju
deild. Er það Erlendur örn
Magnússon sem tekið hefur að
sér þjálfun hjá félaginu, en Er-
iendur starfaði sem þjálfari i
Færeyjum f fyrrasumar við
góðan orðstfr. Mun Erlendur
þjáifa meistaraflokk Skalla-
gríms og auk þess vngri flokka
félagsins, en ætlun Skalla-
grfmsmanna er sú að revna að
leggja aukna rækt við þá
KR-þjálfararnir Guðmundur Pétursson og Olafur Lárusson ásamt
Heimi Guðjónssyni fyrrum markverði KR.
„Tveir ÍMingar
befri en einn Breti”
FYRIR nokkru tóku þeir Guðmundur Pétursson og
Ólafur Lárusson við þjálfun meistaraflokks KR.
Munu þeir í sameiningu sjá um liðið og stjórna því í
baráttunni í 1. deildinni í sumar. Höfðu KR-ingar
hug á að fá jafnvel erlendan þjálfara um mitt
sumar, en munu nú vera hættir við það, sannfærðir
um að tveir sæmilega klárir Islendingar geti þjálfað
eins vel og atvinnulaus Breti, eins og góður KR-
ingur orðaði það á dögunum.
KR lék við Víking á laugardaginn og vann 2:1 þá
lék Valur æfingaleik við Breiðablik og vann 6:0.
Átti sízt von á þessu núna
— Ég var satt að segja alveg hissa á hvað mér tókst vel upp. Ég átti sízt von á
þessu núna, sagði Friðrik Þór Öskarsson, sem á laugardaginn bætti Islandsmetið í
langstökki innanhúss um hvorki meira né minna en 22 sentimetra, en það heyrir
líklega til undantekninga að frjálsíþróttamet sé bætt svo rösklega. Stökk Friðrik
Þór 7,10 metra og átti flest sín stökk, gild og ógild yfir 7 metra. Verður þetta að
teljast ágætur árangur hjá Friðrik, ekki sízt þegar tekið er tillit til þess að ekki
eru aðstæðurnar í Baldurshaga alltof góðar.
— Ég hef æft mjög vel i
vetur, sagði Friðrik Þór, —
enda stefni ég að því að kom-
ast á Ölympíuleikana í
Montreal. M^ð tilliti til þess
að ég tel mig eiga meiri mögu-
leika á að ná lágmarkinu
í þrístökki en í langstökki
hefi ég mest búið mig
undir þrístökk i vetur og
aldrei stökkið langstökk með
fullri atrennu fyrr en nú á mót-
inu. Eg hef heldur ekki miðað
undirbúning minn við að ná
árangri núna og kom þetta því
verulega á óvart. Má vel vera að
aðalskýringin sé sú, að ég hef
æft lyftingar töluvert í vetur og
tel mig vera sterkari í fótunum
en ég var áður.
Ölympíulágmarkið i þrí-
stökki er 15,90 metrar og er alls
ekki ólíklegt að Friðrik Þór nái
því. Hann ætlar sér til Þýzka-
lands innan tíðar, þar sem
hann mun dvelja við æfingar
um tíma og þá einkum æfa á
tartanbrautum, en þeim sagðist
hann vera svo óvanur, að hann
næði venjulega ekki eins góð-
um árangri þegar hann keppti á
slikri braut eins og venjulega.
Friðrik Þór kvaðst einnig
vongóður um að sér tækist að
slá Islandsmet Vilhjálms Ein- inu á laugardaginn bendir
arssonar i langstökki í sumar og sannarlega til þess að svo geti
hinn góði árangur hans í mót- orðið. —stjl.
Ingi sigraði í bikarglímnnni
INGI Yngvason, HSÞ, varð sigur-
vegari i bikarglímu Islands sem
fram fór á Húsavík á sunnudag-
inn. Lagði Ingi alla keppinauta
sina í gifmunni og hlaut 7 vinn-
inga. Kom þessi sigur hans
nokkuð á óvart, því þótt Ingi hafi
verið í fremstu röð glimumanna
hérlendis undanfarin ár hefur
hann sjaldan sigrað á stórmótum.
Meðal þeirra sem Ingi lagði í
keppninni var glímukóngur
Islands, Pétur bróðir hans, en
Pétur var ekki f essinu sfnu að
þessu sinni og varð að gera sér
f jórða sætið að góðu.
Guðmundur Olafsson úr Ár-
manni varð í öðru sæti í keppn-
inni með 6 vinninga, tapaði aðeins
fyrir Inga. Þorsteinn Sigurjóns-
son, sá er sigraði í skjaldarglímu
Ármanns á dögunum, varð í
þriðja sæti með 5 vinninga og
Pétur hlaut 4 vinninga.
I unglingaflokki urðu Þing-
eyingarnir Hjörleifur Sigurðsson
og Eyþór Pétursson jafnir með 4'/b
vinning. Urðu þeir að glíma til
úrslita og sigraði Eyþór i þeirri
viðureign. Þriðji varð svo Jón
Magnússon, KR, með 3 vinninga
og fjórði Árni Unnsteinsson, Vík-
verja, með 2 vinninga.
Ingi Yngvason, HSÞ
0 ly mp íumeis tararni r
urðu heimsmeistarar
BANDARÍSKA stúlkan Dorothy
Hamill, sú er hlaut gullverðlaun I
listhlaupi kvenna á skautum á
Olympluleikunum I Innsbruck
hreppti heimsmeistaratitilinn I þess-
ari grein, en heimsmeistarakeppnin
fór fram I Gautaborg I Sviþjóð og
lauk nú um helgina. Keppnisgreinar
þar voru listhlaup karla og kvenna,
paralisthlaup og listdans og fór svo
að allir Olympiusigurvegararnir urðu
jafnframt heimsmeistarar.
Keppni kvenna þótti taka öðru fram I
Gautaborg og var lengi vel um tvlsýna
viðureign að ræða milli Hamill og
Austurþýzku stúlkunnar Christine
Errath, en sú varð heimsmeistari í
listhlaupi kvenna árið 1974. Var það
ekki fyrr en i siðustu keppnisgreininni
sem Dorothy Hamill tókst að tryggja
sér endanlega sigurinn, en þá æfingu
gerði hún nánast gallalaust Hlaut
Hamill samtals 192,66 stig i keppn-
inni, Christine Errath varð önnur með
190,04 stig og þriðja varð kanadiska
stúlkan Dianne de Leeuw sem nú kepp-
ir fyrir Holland, en hún hlaut 189,94
stig. Næstar urðu svo Anett Potzsch frá
Austur-Þýzkalandi sem hlaut 185,16
stig og Linda Sratianne frá Banda-
rikjunum sem hlaut einnig 185,16
stig.
í listdansinum höfðu þau Ludmila
Pakhomova og Alexander Gorshkov
umtalsverða yfirburði Náðu þau
forystu þegar i fyrstu greininni og
héldu henni til loka. Þar urðu i öðru
sæti Irina Mpiseeva 0g Andrei
Minekov frá Sovétrikjunum og i þriðja
sæti urðu þau Jim Mills og Colleen
O'Connor frá Bandarikjunum
f listhlaupi karla sigraði Bretinn
John Curry eftir harða keppni við
Sovétmanninn Vladimk Kovalev Hafði
Kovalev forystu i keppninni fram til
slðustu greinarinnar, en þá varð hann
fyrir þvl óhappi að detta og kostaði það
hann sigurinn. Þetta var siðasta keppni
Curry sem áhugamanns, en framvegis
mun hann taka þátt i sirkussýningum
og leika I kvikmyndum.
IJrslitw
NÚ FER senn aö liða að loktint tslands-
mótsins I körfuknattleik, og er keppn-
in viða vel á veg komin þótt mörgum
leikjttm hafi orðið að fresta vegna sam-
gönguerfíðieika. Verður hér getið um
stöðuna i deildununt og öðrum
flokkunt fullorðinna.
1 2. deild er allt útlit fvrir óvenju-
jafna keppni. Þar er UBK í efsta sæti
þessa stundina með 12 stig, hefur tapað
6 stigum. ÚMFG er í öðru sæti með 10
stig, hefur tapað 4 stigum. Staða Þórs-
ara er einnig góð, þeir hafa 8 stig, en
nálgast í
hafa aðeins tapað einunt leik. Það var í
leiknunt gegn Haukunt um helgina, en
Ilaukar eru I harðri botnbaráttu ásamt
l.B.I. og ÚMFS. Haukar og IBl eru
neðst með 4 stig — Ilaukar eftir 8
leiki, en IBl eftir 6 leiki. Um helgina
fékk lBt tvö stig gegn ÚMFS á
Akranesi vegna þess að Borgnesingar
mættu of seint. ÚMFS er með 6 stig —
hefur tapað 12 stigum sem kemur mjög
á óvart.
t 3. deild eru úrslit fengin f riðla-
keppninni. Tindastóll bar sigur úr
býtum f Norðurlandsriðli eftir harða
keppni við KA og spila þurfti aukaleik
til að fá úrslit. Úr Suðurlandsriðli
koma lið ÚMFL (Laugdælir) og tV
(Iþróttafélag Vestm.evja), og i þriðja
riðlinum sigraði lið ÚtA lið Patreks-
firðinga tvivegis og kemur þvi i úrslita-
keppnina sem fram fer um naslu
helgi.
t m.fl. kvenna stefnir i keppni ntilli
Þórs og KR sem bæði eru taplaus.
Lslandsmeistarar IR hafa aftur á nióti
tapað tvívegis.
t 2. fl. karla urðu lið ÚMFN og Fram
efst og jöfn, og Valur getur náð þeim
að stigum ef þeir sigra IBK f leik sem
er eftir. t 1. fl. karla fær okkert stöðvað
sigurgöngu KR sem skorar yfir 100 stig
í hverjum leik og hefur sigrað alla
leiki með yfirburðum. úm stöðuna f 3.
og 4. fl. karla hefur verið skrifað hér f
blaðið, en úrslit í þeint flokkum fara
fram uni næstu helgi. gk-.