Morgunblaðið - 09.03.1976, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1976
19
Þrjn nj íslandsmet
og það fjoröa jafnað
ÞRJU ný Islandsmet litu dagsins
ljós á innanhússmeistaramóti
Isiands í frjálsum fþróttum sem
fram fór í Laugardalshöllinni og
Baldurshaga á laugardag og
sunnudag. Tvö þessara meta setti
Ingunn Einarsdóttir, I 50 metra
hlaupi og í 50 metra grinda-
hlaupi, en þriðja metið setti
Friðrik Þór Öskarsson, í lang-
stökki, stökk 7,10 metra. Eitt
Islandsmet var svo jafnað.
Sigurður Sigurðsson hljóp 50
metra hlaup á 5,8 sek. Þá var og
sett sveinamet í kúluvarpi er
Öskar Revkdalsson úr HSK
varpaði 11,35 metra og Iris Jóns-
dóttir úr UBK jafnaði telpnamet
sitt í hástökki með því að stökkva
1,58 metra.
Þegar á heildina er litið verður
ekki annað sagt en að þetta innan-
hússmeistaramót hafi heppnast
með miklum ágætum, og árangur
frjálsíþróttafólksins bendir
ótvirætt til þess að það flest er i
góðri æfingu um þessar mundir
og liklegt til afreka á næsta
keppnistímabili.
Fjarvera nokkurra beztu frjáls-
íþróttamanna landsins setti vitan-
lega svip sinn á mótið, en um
þessar mundir eru við nám, störf
og æfingar erlendis margt af
fremsta frjálsiþróttafólki
landsins. Má þar nefna kúluvarp-
arana Hrein Halldórsson og
Guðna Halldórsson, hlauparana
Sigfús Jónsson, Agúst Ásgeirsson
og Vilmund Vilhjálmsson svo og
Lilju Guðmundsdóttur. Fleira
frjálsíþróttafólk hyggur á utan-
ferðir á næstunni til æfinga, í
þeim tilgangi fyrst og fremst að
freista þess að ná Olympíulág-
mörkunum og búa sig sem bezt
undir leikana f Montreal.
Ingunn Einarsdóttir sem átti
við þrálát meiðsli að stríða á síð-
asta keppnistímabili virðist nú
vera að ná sér fullkomlega á strik
og náði þeim árangri í mótinu að
hann verður tvímælalaust að telj-
ast visbending þess að henni
takist að ná Olympíulágmarkinu
næsta sumar. Bætti Ingunn met
sitt og Ernu Guðmundsdóttur í 50
metra hlaupinu um 1/10 úr sek.
með þvi að hlaupa á 6,4 sek. og
metið í 50 metra grindahlaupi
bætti hún um 1/10 úr sek, með
því að hlaupa á 7,3 sek., en eldra
metið átti hún sjálf.
Friðrik Þór bætti langstökks-
metið á laugardaginn svo um
munaði er hann stökk 7,10 metra.
Gamla metið átti Olafur
Guðmundsson, KR og var það
6,88 metrar sett árið 1973.
Eftir þetta ágæta afrek áttu flest-
ir von á því að Friðrik myndi
einnig bæta þrístökksmetið sem
er 14,46 metrar, en það tókst ekki
að þessu sinni.
Bjarni Stefánsson gat ekki
mætt til leiks í 50 metra hlaupið
vegna veikinda og í forföllum
hans sigraði Sigurður Sigurðsson
á 5,8 sek. Hefði Bjarni verið
þarna með i fullu fjöri hefði mátt
búast við hörkukeppni og líklega
nýju Islandsmeti. I 50 metra
hlaupinu vakti árangur Björns
Blöndals og Magnúsar Jónassonar
einnig athygli, en báðir hlupu
þeir þrívegis á 6,0 sek. og bendir
það til þess að þeir eigi möguleika
á að fara vel undir 11 sek. i
sumar, sérstaklega þó Björn sem
er dálítið þungur i startinu en
harður þegar hann er kominn á
sprettinn.
1 millivegalengdahlaupunun-
um, 800 metra og 1500 metra
hlaupunum báru, Hafnfirðingarn-
ir Gunnar Þ. Sigurðsson og Sig-
urður P. Sigmundsson sigur úr
býtum og kom það nokkuð á óvirt
hversu öruggur sigur Sigurðar
yfir Júlíusi Hjörleifssyni var í
1500 metra hlaupinu. Hljóp
Sigurður það hlaup með ágætum
og fór hinar erfiðu beygjuröðrum
keppendum betur. Gunnar Þ. er
líka mikill efnismaður.
Valbjörn Þorláksson lætur ekki
deigan síga og vann Islands-
meistaratitill í 50 metra grinda-
hlaupi næsta örugglega og
vippaði sér vel yfir 4,20 metra í
stangarstökki. Það nægði honum
þó ekki til sigurs þar, þar sem
hinn nýi félagi hans i KR, Elías
Sveinsson stökk 4,30 metra. Er
Elías greinilega í góðri æfingu og
má ætla að hann nái góðum tug-
þrautarárangri næstasumar.
Sem fyrr greinir var það eink-
um Ingunn Einarsdóttir sem vann
athyglisverð afrek i kvenna-
keppninni, en stalla hennar úr IR,
Þórdís Gfsladóttir stóð einnig
fyrir sinu, og er það örugglega
aðeins tímaspursmál úr þessu
hvenær hún sigrast á Islands-
metí Láru Sveinsdóttur í há-
stökki, en það er 1,63 metrar. Þá
vakti hin unga Iris Jónsdóttir úr
UBK ekki síður athygli, en hún
hefur ágætan stökkstíl í hástökk-
inu og á örugglega eftir að láta að
sér kveða i framtiðinni. —stjl
Iris Jónsdóttir hin bráðefnilega stúlka úr Kópavogi jafnaði telpnametið f hástökki — stökk 1,58 metra.
Sigurður Sigurðsson sigrar i 50 metra hlaupinu á 5,8 sek., sem er
lslandsmetsjöfnun, en Elfas Sveinsson varð annar á 5,9 sek.
Sovétfólkið vann
það bandaríska
SOVÉTMENN sigruðu Banda-
rfkjamenn bæði f karla og
kvennagreinum í landskeppni í
frjálsum iþróttum sem fram fór í
Leningrad um helgina. I karla-
flokki hlutu Sovétmenn samtals
76 stig gegn 64 stigum Banda-
ríkjamanna og f kvennakeppn-
inni hlutu Sovétstúlkurnar 75
stig gegn 53 stigum bandarísku
stúlknanna.
Agætur árangur náðist í flest-
um keppnisgreinum í Leningrad,
en það þótti hins vegar skyggja
nokkuð á keppnina að Banda-
rikjamenn tefldu ekki fram sínu
sterkasta liði. Var allmargt frjáls-
íþróttafólk þar vestra sem ekki
gaf kost á sér til fararinnar á
þeim forsendum að hún truflaði
undirbúning þess fyrir Olympíu-
leikana í Montreal.
Sigurvegarar i einstökum
greinum í keppninni í Leningrad
urðu:
KARLAR:
800 metra hlaup: Viktor
Slonetsky, Sovétríkjunum 1:50,8
mín.
Kúluvarp: Anatoly Yarosh, Sovét-
rikjunum 20,18 metrar
5 kílómetra ganga: Yevgeny
Yevsyukov, Sovétrikjunum
20:21,8 mín. (heimsmet)
Fimmtarþraut: Viktor Gruzenkin,
Sovétríkjunum 4.083 stig.
60 metra hlaup: Nikolai
Kolesnikov, Sovétríkjunum 6,65
sek.
60 metra grindahlaup: Larry
Shipp, Bandaríkjunum 7,69 sek.
Langstökk: Larry Myricks,
Bandaríkjunum 7,76 metrar
400 metra hlaup: Dorel Watley,
Bandarikjunum 47,69 sek.
Stangarstökk: Yevgeni Tananika,
Sovétríkjunum 5,30 metrar
1500 metra hlaup: Anatoli
Mamontov, Sovétríkjunum 3:45,6
min.
Hástökk: Sergei Senyukov, Sovét-
ríkjunum 2,24 metrar
Þrístökk: Gennadi Bessonov,
Sovétríkjunum 16,25 metrar
5000 metra hlaup: Greg
Fredericks, Bandarikjunum
13:52,6 mín.
Urslit í Meistaramóti Islands
KARLAR:
HASTÖKK:
Elfas Sveinsson, KR 1,96
Hafsteinn Jóhannesson, UBK 1,90
Þráinn Hafsleinsson, HSK 1,90
Karl West, UBK 1,85
Guðmundur R. Guðm., FH 1,80
Jón & Þórðarsoni IR 1,80
ölafur öskarsson, A 1,75
Sigurður P. Guðj.s., FH 1,65
KtLUVARP:
öskar Jakobsson, iR 16,29
Stefán Hallgrfmsson, KR 14,70
Ellas Sveínsson, KR 14,44
Guðni Sigfússon, A 13,29
Karl West, UBK 11,58
Hafsteinn Jóhannesson, UBK 11,15
800 METRA HLAUP:
Gunnar Þ. Sigurðsson, FH 2:10,2
Sigurður P. Sigm.s., FH 2:10,6
Einar P. Guðmundsson, FH 2:13.0
Hafsteinn öskarsson, IR 2:13,1
Þorgeir öskarsson, IR 2:13,5
Magnús Markússon, HSK 2:18,3
Guðmundur Geirdal, UBK 2:19,0
Agúst Gunnarsson, UBK 2:19,2
50METRA HLAUP:
Sigurður Sigurðsson, A 5,8
Elfas Sveinsson, KR 5.9
BJöm Blöndal. KR 6.0
Magnús Jónsson, A 6,1
LANGSTÖKK:
Friðrik Þór óskarsson, 1R 7,10
Siguróur Jónsson, HSK 6,74
Stefán Hallgrfmsson, KR 6,74
llilmar Pálsson, HVl 6,14
Jón Þ. Sverrisson, Afture. 6,12
Karl West, UBK 6,08
1500 METRA IILAUP:
Siguróur P. Sigmundsson, FII 4:26,4
Júllus Hjörleifsson, IR 4:33,2
Guómundur Geirdal, UBK 4:34,7
AgústGunnarsson, UBK 4:44,3
Magnús Haraidsson, FII 5:09,3
Finnbogi Marinósson, Leikni 5:15,8
Sigurður Haraldsson, FII 5:21,0
STANGARSTÖKK:
Elfas Sveinsson, KR 4,30
Valbjöm Þorláksson, KR 4,20
Stefán Hallgrfmsson, KR 4,10
4x3 HRINGJA BOÐHLAUP
Sveit KR 3:28,0
Sveit Armanns 3:29,1
SveitlR 3:30,1
50 METRA GRINDAIILAUP:
Valbjörn Þorláksson, KR 6,9
Elías Sveinsson, KR 7,0
Guðmundur R. Gudmundsson, FII 8,7
ÞRlSTÖKK:
Friðrik Þór óskarsson, IR 14,36
Jóhann Pétursson, UMSS 13,76
Hilmar Pálsson, IIVl 12,44
KONUR:
KÓLUVARP:
Asa Ilalldórsdóttir, A 10,73
Kristln Björnsdóttir, UBK 8,90
Sigrún Sveinsdóttir, A 8,63
Katrln Atladóttir, KR 7,22
800 METRA HLAUP:
Ragnhildur Pálsdóttir, KR 2:31,0
Ingunn L. Bjarnadóttir, IR 2:38,8
Anna Ilaraldsdóttir, FH 2:42,9
IngibjörgGuðbrandsd., A 2:44,9
Brynja Bjarnadóttir, Leikni 2:46,0
Guðbjörg Eirlksdóttir, HSK 2:53,0
50METRA HLAUP:
Ingunn Einarsdóttir, iR 6,4
ErnaGuðmundsdóttir, KR 6,6
Asta B. Gunnlaugsdóttir, tR 6,9
Kristfn Jónsdóttir, UBK 7,2
4x3 HRINGJA BÖÐHLAUP:
Sveit Armanns 4:01,6
SveitKR 4:09,1
Sveit Ir 4:09,2
HASTÖKK:
ÞórdlsGfsladóttir, IR 1,61
lris Jónsdóttir, UBK 1,58
Hrafnhildur Valbjörnsd., A 1,50
Kristln Bjömsdóttir, UBK 1,50
Björk Eirfksdóttir, lR 1,45
Lára Halldórsdóttir. FH 1,45
Anna Alfreðsdóttir, IR 1,45
Anna Haraldsdóttir, FH 1,45
50 METRA GRINDAHLAUP:
Ingunn Einarsdóttir, IR 7,3
ErnaGuðmundsdóttir, KR 7,4
Lára Sveinsdóttir. A 7,6
Sigrún Sveinsdóttir, A 8,1
LANGSTÖKK:
EmaGuðmundsdóttir, KR 5,32
Lára Sveinsdóttir, A 5,23
Hafdfs Ingimarsdóttir, UBK 5,15
Ingibjörg Ivarsdóttir, HSK 4,98
KtJLUVARP drengja.
Asgeir Þ. Eirfksson, IR 12,77
öskar Reykdalsson, HSK 11,35
Vesteinn Hafsteinsson, HSK 11,20
STANGARSTÖKK DRENGJA:
Eggert Guðmundsson. HSK 3,30
Asgeir Þ. Eirfksson, IR 3,10
Þorsteinn Aðalsteinsson, FH 3,10
Boðhlaup: Sveit Bandaríkjanna
4:19,6 min.
KONUR:
800 metra hlaup: Tatiana
Providokhina, Sovétríkjunum
2:09,8 mín.
300 metra hlaup: Irina
Bondarchuk, Sovétrikjunum:
9:05,0 min.
Kúluvarp: Nadezhda Chizhova,
Sovétríkjunum 20,56 metrar
F’immtarþraut: Lyudmila
Popvskaya, Sovétrikjunum 2.651
stig
60 metra grindahlaup: Natalya
Lebedeva, Sovétrikjunum 8,14
sek.
60 metra hlaup: Lyudmila
Storozhkova, Sovétríkjunum 7,37
sek.
Langstökk: Galina Gopchenko,
Sovétríkjunum 6,39 metrar
Hástökk: Nadezhda Oskolok,
Sovétríkjunum 1,81 metri
400 metra hlaup: Sharon Dabney,
Bandaríkjunum 54,75 sek.
600 metra hlaup: Wendy
Knudson, Bandaríkjunum 1:29,38
min.
1500 metra hlaup: Jan Mérrill,
Bandaríkjunum 4:16,0 mín.
Boðhlaup: Sveit Bandarikjanna
4:53,8 mín.