Morgunblaðið - 09.03.1976, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1976
23
Trukknrinn á fullii - skoraði
42 aí 100 stigum KR gegn 11MF\
KR-INGAR með „Trukk“ f broddi fylkingar unnu
góðan sigur yfir UMFN um helgina þegar liðin
léku sfðari leik sinn. Tókst KR-ingum þar með að
hefna fyrir ósigurinn í fyrri leik liðanna en þá
töpuðu „Trukklausir" KR-ingar f Njarðvík.
En nú var „Trukkurinn" mættur til leiks og var f
miklum ham. Hann lofaði 40 stiga leik áður en
hann hófst og við það stóð kappinn. Voru taktar
hans f þessum leik oft með þvf betra sem hann
hefur sýnt hér f vetur, og átti það ekki hvað sfst við
um varnarleikinn. Það er ekkert grfn að fá þetta
ferlfki á móti sér f vörninni, og þótt hann nái ekki
alltaf að verja skotin þá truflar það mikið þegar
hann reynir að ná þeim og brenna menn þá gjarnan
af.
Trukkurinn var aðgangsharður f leiknum, en þarna hefur þó tekizt að
stöðva hann á sfðustu stundu.
Fyrri hálfleikurinn var jafn og
liðin skiptust á um að hafa
forystu. HvorugB liðinu tókst þó
að gera neitt afgerandi í þeim
efnum, mesta forskot KR var 7
stig um miðjan hálfleikinn, en
UMFN náði eitt sinn 4 stiga for-
skoti. Staðan í hálfleik 52:48 fyrir
KR.
Fram eftir siðari hálfleik var
sami barningurinn hjá liðunum,
en þá náði KR mjög góðum kafla
og skoraði 17 stig i röð án svars og
staðan breyttist úr 68:66 í 85:66.
Þar með voru KR-ingr búnir að
veita Njarðvíkingunum rothöggið
og úrslitin urðu síðan 100:90.
„Trukkur" Carter var hinn
sterki maður í þessum leik sem
fyrr sagði, en aðrir sem stóðu sig
vel hjá KR voru Eiríkur
Jóhannesson og Gunnar Jóakim
Jóakimsson. — I liði Njarðvik-
inga bar Kári Marísson af öðrum,
en Brynjar Sigmundsson var
einnig góður. Lítið bar á þeim
Gunnari Þorvarðssyni og Stefáni
Bjarkasyni en Þorsteinn Bjarna-
son átti mjög þokkalegan leik.
Stighæstir hjá KR: „Trukkur"
42, Eiríkur Jóhannesson 16,
Gunnar Jóakim Jóakimsson 14,
Bjarni Jóhannesson 10.
Hjá UMFN: Kári Marísson 25,
Brynjar Sigmundsson 24, Jónas
Jóhannesson 10, Stefán Bjarka-
son 9. gk-.
ÍS marði
fáliðaða
Hólmara
Valur raufl 00
stiga múrinn
VALSMENN rufu „100 stiga múrinn" í fyrsta skipti í yfirstandandi
fslandsmóti um helgina þegar þeir sigruðu Snæfell með 105 stigum
gegn 65 f leik liðanna á Akranesi.
Valsmenn höfðu yfirhöndina í leiknum frá upphafi og staðan f
hálfleik var 47:35 þeim í vil. t sfðari hálfleiknum kepptu Valsmenn
einungis að því að komast f 100 stigin og það tókst þeim rétt fyrir
leikslok.
Þeir Torfi Magnússon og Rík-
harður Hrafnkelsson voru bestu
menn Vals í þessum leik, og Þórir
Magnússon var góður meðan hans
naut við en i siðari hálfleik yfir-
gaf hann völlinn fljótlega með 5
villur.
Kristján Agústsson var að
venju atkvæðamestur „Hólmar-
anna“ og oft í vetur hefur hann
bjargað Snæfelli frá stórum ósigr-
um með frammistöðu sinni. Þá
var Lárus Svanlaugsson góður og
lék sinn besta leik með liðinu til
þessa.
Stighæstir hjá Val: Torfi
Magnússon 33, Ríkharður Hrafn-
kelsson 22, Þórir Magnússon 18.
Hjá Snæfelli: Kristján Agústs-
son 32, Lárus Svanlaugsson 15.
gk-.
HELDUR þótti leikur IS og Snæ-
fells vera þunn skemmtun. Þeir
áhorfendur sem lögðu leið sfna f
Iþróttahús Kennaraskólans yfir-
gáfu flestir húsið að leik loknum
heldur vonsviknir og hnussandi
og einum þeirra varð að orði að
flest væri nú hægt að bjóða upp á
í 1. deild.
Þrátt fyrir að Steinn Sveinsson
léki ekki með IS og Bjarni
Gunnar léki þennan leik veikur
kom það ekki í veg fyrir að IS
næði öruggri forustu i fyrri hálf-
leik, en staðan að honum loknum
var 44:30. En það segir sfna sögu
um leik stúdentanna i síðari hálf-
leik að „Hólmararnir“ sem þó
voru með aðeins tvo skiptimenn
unnu þann hálfleik með 46:42.
Lokatölur þvi 86:76 IS i vil.
Ingi D. Stefánsson var stighæst-
ur stúdentanna með 20 stig, Jón
B. Indriðason var með 18 stig,
Bjarni Gunnar 14.
Hjá Snæfelli var Kristján
Agústsson stighæstur með 26 stig,
Gunnar Svanlaugsson með 19 og
Lárus bróðir hans með 14 gk-.
Ármann 11—11—0 1032:834 22
ÍR 11—9—2 990:845 18
KR 10—7—3 889:790 14
UMFN 11—6—5 888:871 12
iS 11—5—6 790:899 10
Valur 12—4—8 1114:1017 8
Fram 11—2—9 744:868 4
Snæfell 11—0-11 648 951 0
Stighæstir:
„Trukkur" Carter KR 313
Jimmy Rogers Á 286
Kristján Ágústss. Snæf. 251
Torfi Magnússon Val 250
Bjarni Gunnar ÍS 237
Þórir Magnússon Val 230
Jón SigurSsson Á 214
Kristinn Jörundsson ÍR 212
Kolbeinn Kristinsson ÍR 201
STAÐAN
Fleiri leikmenn ná ekki 200 stig-
um.
Vltaskotanýting: MiSað viS 32
skot sem lágmark:
RikharSur Hrafnkelsson Val
51:40 = 78%
Jón Jörundsson ÍR
52:40 = 77%
Kári Marlsson UMFN
50:37 = 74%
Steinn Sveinsson ÍS
61:43 = 70%
Kristinn Jörundsson ÍR
50:35 = 70%
Jón Sigurðsson Á
44:30 = 68%
Jón Héðinsson ÍS
32:21 = 66%
Kristján Ágústsson Snæf.
55:35 = 64%
Þorvaldur Geirsson Fram
33:21 = 64%
Torfi Magnússon Val
77:48 = 62%
Jimmy Rogers Á
52:32 = 62%
Þórir Magnússon Val
36:22 = 61%
Fleiri leikmenn sem hafa tekið
fleiri en 32 skot ná ekki 60%
nýtingu úr skotum slnum. gk —.
BLAK
Þróttarar nál
sigri gegn Langdælnm
ÞRÓTTARAR komu heldur betur á óvart á sunnudagskvöldið er þeir
léku gegn UMFL I 1. deild íslandsmótsins I blaki. Á laugardagskvöld
léku'þeir gegn ÍMA og sigruðu 3—0 I frekar daufum leik en þarna
sýndu þeir þrumuleik og komust I 2—0 og burstuðu þeir Laugdæli I
fyrstu hrinunni, en síðan unnu Laugdælir næstu þrjár hrinur og þar með
leikinn 3—2.
Þessi leikur var einn sá alskemmtilegasti f langan tfma og blakið
sem liðin sýndu var á köflum mjög gott og margir Þróttarar léku þarna
sinn besta leik í vetur.
í lið Laugdæla vantaði einn aðal skellarann Harald Geir, sem skrópaði
á leiknum, og hafði það sitt að segja f leik liðsins, enda var hann ekki
upp á marga fiskana í fyrstu hrinu. Þróttarar léku mjög vel og sigruðu
15—3. Framspil og uppspil var nú það besta sem sést hefur til
Þróttarliðsins í vetur og Guðmundur Pálsson með skelli sfna samsfða
hliðarlfnu, og Jason Ivarsson, Valdemar Jónasson og Leifur Harðarson
voru mjög ákveðnir f sókninni og sprengdu Laugdæli hreinlega. — í
annarri hrinu náðu Laugdælir sér á strik og leiddu 7—6, en Þróttur
jafnar 11—11 og sfðan komast Laugdælir f 13—12. Lok hrinunnar
voru æsispennandi og boltinn gekk oft lengi lengi, því menn voru að
redda út um ailt hús og oft var fallega bjargað í lágvörn. Þróttur hafði
betur á endanum og marði sigur 16—14. — Þessir sigrar Þróttar í
tveimur fyrstu hrinunum komu mjög á óvart og nú tóku Laugdælir á sig
rögg, en þeir byrjuðu þriðju hrinuna ekki vel, 2—5, en minnkuðu
muninn í 7—8 og leikurinn hélst jafn áfram 11 —12 fyrir Þrótt og nú
fór fyrst að verða spennandi. Enginn hefði trúað því fyrirfram að
Þróttur hefði getað unnið þennan leik 3—0, en það hefðu þeir svo
sannarlega getað gert. Af einskærri óheppni töpuðu þeir hrinunni
15—12. Laugdælir voru nú komnir í stuð, Tómas Jónsson og Anton
Bjarnason voru drjúgir, en skelltu oft út fyrir. Hjörtur Einarsson komst
mjög vel frá leiknum, og eftir þvf sem leið á leikinn óx honum kjarkur,
en hann, eins og flestir hinna klikkuðu oft og það gerði þennan
barning. Laugdælir unnu fjórðu hrinuna 15—6 og voru Þróttarar alveg
búnir. Þeir fóru þó vel af stað i úrslitahrinunni, en Laugdælir tóku brátt
forystu 11 —5 og 1 2 — 9, en þrátt fyrir að Þrótturum tækist að minnka
muninn í tvö stig, 11—13, þá náðu þeir ekki að jafna og sigur
Laugdæla15—12 var staðreynd. PÓL.
ÍMA hafði ekki roð
við meisturum ÍS
SEINNI leikur ÍMA í íslandsmótinu f blaki um þessa helgi var gegn ÍS á
sunnudagskvöldið. ÍS sigraði auðveldlega 3—0. IMA menn voru mun
daufari en gegn Þrótti daginn áður og náðu aldrei upp baráttu og gekk
illa að sækja gegn stúdentum
Fyrsta hrinan fór 15—4, en r byrjun annariar hrinu náðu þeir að
halda í við ÍS og var jafnt 5—5, en sfðan ekki söguna meir og ÍS vann
1 5—7. Þriðja hrinan var líkt og hinar fyrri mjög dauf og engin spenna.
ÍS sigraði auðveldlega 15—2 en þrátt fyrir þennan mikla mun á
liðunum var spil stúdenta þunglamalegt og seinvirkt, en öruggt. —
Stúdentar eru nú öryggir með sigur í þessu móti, þó svo þeir eigi eftir
leik gegn UMFL fyrir austan.
ÍMA er ansi hætt komið oq verður að teliast Ifkleqt til að falla f 2.
deild. Þeir hafa ekki unnið hrinu f 6 leikjum en UMFB sem næst
neðstir eru i deildinni hafa unnið 7 hrinur. PÓL.
Víkingskonur
unnu Þrótt 3:0
EINN leikur fór fram I islandsmóti kvenna I blaki ð sunnudagskvöld.
Vikingur og Þróttur mættust og lauk leiknum me8 sigri Vikings 3—0.
Þessi leikur var i forkeppni islandsmótsins og var aSeins spurning um
hvort liðið hlyti efsta sætið I riðlinum, að visu á Vikingur eftir að leika
við UBK. en telst sigurstranglegri og kemst þvi sennilega ásamt Þrótti i
úrslitakeppnina um islandsmeistaratitilinn.
Heldur blés byrlega fyrir Þrótti i byrjun leiksins. Þær komust i 6—2
og siðan 12—5, enda voru Vikingar eins og statistar á vellinum en
Þróttararnir mjög friskir. Vikingsstúlkurnar tóku sig þó að lokum saman
i andlitinu og tóku að vinna upp forskotið og á endanum höfðu þær
jafnað og tókst siðan að merja sigur 16—14. Eftir þessar hrakfarir
náðu Þróttarstúlkurnar sér ekki upp og töpuðu næstu hrinu stórt,
3—15, og siðasta hrinan fór 15—8 fyrir Viking og var sigurinn
sanngjarn þvi Vikingsstúlkurnar voru mun ákveðnari og sóknin beittari
hjð þeim.
Þróttarlið átti frekar slæman dag en bestar i liðinu voru Sigurlin
Óskarsdóttir og Sigriður Þorsteinsdóttir. Hjá Vikingi var Anna Aradóttir
mjög góð og Karólina Guðmundsdóttir, Málfriður Pálsdóttir og Ágústa
Andrésdóttir stóðu sig einnig ágætlega. Dómararnir, Haukur Valtýsson
og Björgólfur Jóhannsson, voru vægast sagt mjög óákveðnir. PÓL.
— Enska
knattspyrnan
Framhald af bls. 24
United, þar sem Ulfarnir eru
jafnan nokkuð erfiðir heim að
sækja og sjálfsagt hefur þessi
ágæti árangur gefið liðinu byr
undir vængi.
Bradford City náði ekki þvi
markmiði sinu að verða fyrsta 4.
deildar liðið sem kæmist i undan-
úrslit ensku bikarkeppninnar.
Leikur liðsins við Southampton
var ekki ójafn, og munaði þar
mestu að leikmenn Bradford
börðust af miklum krafti frá upp-
hafi til enda. Það var Skotinn
Jimmy McCaliog sem skoraði
sigurmark Southampton i
leiknum við mikinn fögnuð fjöl-
margra áhangenda Southampton-
liðsins sem fylgt höfðu því til
Bradford. Þrátt fyrir þessi úrslit
niá Bradford vel við sinn hlut í
keppninni una, og komið hefur
meira í kassann hjá félaginu fyrir
þátttöku þess í bikarkeppninni en
samtals fyrir alla leikina i 4. deild
i vetur.