Morgunblaðið - 09.03.1976, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1976
Mvnd þessi sýnir Dennis Tueart skora sigurmark Manchester City I úrslitaleik við Newcastle United um
fvrri helgi. A laugardaginn var Newcastle slegið út úr bikarkeppninni ensku, en Manchester City
burstaði botnliðið Sheffield United í 1. deildar keppninni.
Crystal Palace
í undanúrslitin!
A LAUGARDAGINN tryggðu
þrjú lið sér rétt til þess að leika í
undanúrslitum ensku bikar-
keppninnar í knattspvrnu, og eitt
þessara liða er úr þriðju deild,
Crvstal Palace sem vann nokkuð
óvæntan sigur yfir Sunderland
1—0. Er þetta í fvrsta sinn síðan
árið 1959 að lið úr 3. deild kemst í
undanúrslit ensku bikarkeppn-
innar, en Crvstal Palace hefur
verið sannkallað spútniklið í
keppninni og lagt hvert liðið af
öðru af velli. Hin liðin tvö sem
komin eru í undanúrslitin eru
Derbv sem sigraði Newcastle
4—2 og Southampton sem sigraði
Bradford Citv 1—0. Jafntefli varð
hins vegar I leik Manchester
United og Wolverhampton
Wanderes á Old Trafford í
Manchester, 1—1, þannig að liðin
verða að leika að nýju og þá á
heimavelli Ulfanna.
Þeir munu hafa verið fáir sem
spáðu því að Cyrstal Palace
myndi sækja gull í greipar
Sunderland á laugardaginn, enda
hefur það sýnt sig að Sunderland-
liðið er ekkert lamb að leika við á
heimavelli og hafði ekki tapað þar
leik í um það bil ár, er flautað var
til leiksins á laugardaginn. Áhorf-
endur fjölmenntu mjög á leikinn,
þar sem þeir voru samtals 50.850,
eða fleiri en verið hafa á
nokkrum leik hjá Sunderland í
vetur. Voru heimamenn ákaft
hvattir, og til að byrja með höfðu
þeir góð tök á leiknum. Þeir
höfðu þó ekki heppnina með sér
sem meðal annars má sjá af því að
í fyrri hálfleik átti Sunderland
tvö stangarskot. Crystal Palace
gaf aldrei upp baráttuna í þessum
leik, þótt við ofurefli virtist að
etja, og öðru hverju átti liðið
ágætar sóknir, þótt megin áherzl-
an væri reyndar lögð á varnar-
leikinn. Þar kom, á 76. mínútu, að
góð sókn Lundúnaliðsins bar
árangur og Peter Taylor skoraði.
Reyndist þetta vera sigurmark
leiksins, og má með sanni segja að
Crystal Palace sé komið lengra í
keppninni en nokkurn hafði órað
fyrir og hefur á leið sinni til
undanúrslitanna lagt að velli ekki
slakari lið en Chelsea á útivelli og
sjálft meistaraliðið Leeds United.
Sunderland situr nú eftir með
sárt ennið, en bæði leikmenn, for-
ráðamenn og áhangendur liðsins
höfðu gert sér vonir um að
Sunderland tækist nú að leika
sama leikinn og árið 1973 er liðið
sigraði i bikarkeppninni.
Derby County hefur góða mögu-
leika á að hreppa bæði bikar-
meistaratitilinn og enska meist-
aratitilinn i ár, eftir 4—2 sigur
yfir Newcastle á Baseball Ground.
Þarna var um mjög fjörugan og
skemmtilegan leik að ræða, þar
sem Derby var betri aðilinn og
sýndi oft ljómandi góða knatt-
spyrnu. Mörk Derby í leiknum
skoruðu Bruce Rioch tvö og
Charlie George tvö, en Alan
Gowling skoraði mörk Newcastle.
Rúmlega 59.000 áhorfendur
voru að ^leik Manchester United
og Ulfanna og komu þeir flestir
til þess að sjá heimaliðið mala
gestina, en sem kunnugt er þá
hafa Ulfarnir átt i miklum erfið-
leikum að undanförnu og eru í
mikilli fallhættu í 1. deildar
keppninni. En áhorfendurnir á
Old Trafford urðu fyrir miklum
vonbrigðum. Manchester United
átti reyndar miklu meira í leikn-
um, en Ulfarnir börðust mjög vel
og markvörður þeirra stóð sig frá-
bærlega. Kom þar á 58. minútu að
Ulfarnir náðu forystu með marki
John Richards, en Gerry Daly
tókst að jafna fyrir United
skömmu síðar. Róðurinn verður
því þyngri en ætlað var hjá
Framhald á bls. 23
Q.P.R. á toppinn
QUEENS Park Rangers náði forystunni í ensku 1. deildar keppninni í
knattspyrnu á laugardaginn er liðið lék Coventry sundur og saman og sigraði
4—1. Þótt Queens Park hafi nú tveggja stiga forystu í deildinni er sagan
ekki fullsögð, þar sem liðið hefur leikið einum leik meira en Liverpool, sem er
i öðru sæti og tveimur leikjum meira en Manchester United sem er í þriðja
sæti. Eigi að síður er staða Queens Park Rangers góð, og liðið sem er
greinilega að ná sér mjög vel á strik að nýju á að eiga fulla möguleika á að
hreppa titilinn i ár.
Á laugardaginn skoraði Queens Park Rangers þrjú mörk á 10 mínútna
leikkafla og gerði þar með út um leikinn. Fyrsta markið kom þegar á 6.
mínútu og var það Dave Thomas sem það skoraði. Skeði siðan ekkert fyrr en
á 62. minútu að Gerry Francis skoraði annað markið. Þriðja markið kom svo
á 70. mínútu og var það Don Givens sem það skoraði og á 72. minútu bætti
Don Masson fjórða markinu við. Dave Powell skoraði svo mark Coventry
City þegar aðeins 9 mínútur voru til leiksloka.
Rúmlega 41 þúsund áhorfendur fylgdust með viðureign Liverpool og
Middlesbrough, en með sigur i þeim leik hafði Liverpool bætt verulega stöðu
sina i deildinni. Leikmenn Middlesbrough voru ekki á þvi að gefa neitt og
skoruðu tvö mörk í fyrri hálfleiknum. í seinni hálfleiknum sótti Liverpool svo
án afláts, en Middlesbrough sem þekkt er fyrir góða vörn sina, gaf ekki
höggstað á sér og Liverpool varð að bíta i það súra epli að ganga stigalaust af
velli fyrir þennan leik.
Hinir nýbökuðu deildarbikarmeistarar, Manchester City, sigruðu botnliðið f
deildinni Sheffield United með yfirburðum, 4—0. Staðan í hálfleik var þó
þannig að ekkert mark hafði verið skorað. Fyrsta mark leiksins skoraði Asa
Hartford á 59. mfn. Dennis Tueart bætti öðru marki við á 67. mínútu og eftir
það var Manchesterliðið allsráðandi f leiknum. Boyle skoraði þriðja markið
með skalla á 71. mínútu og skömmu fyrir leikslok bætti Hartford öðru marki
sínu við.
Aston Villa og Ipswich Town deildu með sér stigum á laugardaginn, og þrátt
fyrir að ekkert mark væri skorað bauð leikurinn upp á mörg skemmtileg
augnablik við mörkin.
í leik Leicester og Everton var það Frank Worthington sem skoraði eina mark
leiksins tveimur mfnútum fyrir lok fyrri hálfleiksins. í seinni hálfleiknum var
svo oftast um að ræða stórsókn Leicester að marki Everton, en ekki tókst að
bæta um betur, þannig að úrslitin urðu 1 —0.
í leik Norwich og Tottenham virtist svo sem Lundúnaliðið myndi ganga með
sigur af hólmi, en það var mun betri aðili leiksins f fyrri hálfleiknum sem þó
lauk með því að ekkert mark var skorað. í seinni hálfleiknum náði Tottenham
svo snemma forystu með marki Martin Chivers. En hinn gamli Tottenham-
leikmaður sem nú leikur með Norwich Martin Peters, dreif félaga sfna áfram
og hann ásamt Colin Suggert tókst fljótlega að breyta stöðunni í 2—1 fyrir
Norwich með fallega undirbúnum mörkum. Skömmu fyrir lok leiksins bætti
svo Phil Boyer þriðja markinu við.
West Ham United virðist nú heillum horfið lið og færist stöðugt neðar í röð
liðanna f deildinni. Á laugardaginn varð liðið að gera sér það að góðu að tapa
fyrir einu af neðri liðunum f deildinni, Birmingham City, f fremur lélegum
leik. Með slakri frammistöðu félagsins að undanförnu hefur mjög dregið úr
aðsókn að leikjum þess á heimavelli, svo sem sjá má af þvf að aðeins 1 9.686
áhorfendur voru að leiknum á laugardaginn.
Stoke City virðist hins vegar í ham um þessar mundir og burstaði Burnley,
4—1, eftir að staðan hafði verið 3—1 í hálfleik. Dennis Smith skoraði tvö
marka Stoke f leiknum á 1 7. mín. og 30. mínútu, en hin mörk Stoke skoruðu
Greenhoff á 24. mín. og John Mahoney á 75. mín. Ray Hankin skoraði mark
Burnley. Áhorfendur voru 1 6.019.
í 2. deild hefur nú Bristol City forystu eftir 3—0 sigur sinn yfir Luton Town,
en baráttan um 1. deildar sætin þrjú verður greinilega gífurlega hörð. í 3.
deild hefur svo Hereford forystu með 45 stig eftir 32 leiki, Brighton er í öðru
sæti með 41 stig eftir 34 leiki, en næstu lið eru Crystal Palace og
Shrewsbury sem bæði eru með 39 stig. Crystal Palace eftir 33 leiki og
Shrewsbury eftir 32 leiki.
I 1
1. DEILD
L HEIMA UTI STIG I
Queens Park Rangers 34 13 4 0 33—10 4 7 6 18—6 45
Liverpool 33 10 5 2 32—18 5 8 3 17—9 43
Manchester United 32 12 4 0 30—9 5 5 6 21—20 43
Derby County 33 13 1 2 34—21 4 8 5 19—21 43
Leeds United 31 10 2 4 29—15 6 5 4 19—17 39
Middlesbrough 33 7 7 2 18—7 6 3 8 19—22 36
Manchester City 31 11 5 1 36—9 2 4 8 15—19 35
Ipswich Town 31 7 5 3 23—15 3 8 5 14—17 33
Stoke Citv 31 7 4 5 24—20 6 3 6 16—17 33
Everton 32 7 6 2 29—17 4 5 8 19—37 33
Leicester City 33 7 7 3 23—20 2 8 6 12—2 33
West Ham United 33 10 3 5 24—20 3 4 8 17—30 33
Norwich City 31 8 4 4 27—19 3 4 8 20—28 30
Aston Villa 33 9 6 2 29—16 0 6 10 10—29 30
Tottenham Hotspur 33 3 9 4 19—26 5 5 7 24—27 30
Coventrv City 33 5 6 5 16—16 5 4 8 19—29 30
Newcasle United 30 8 4 2 37—14 3 3 10 16—29 29
Arsenal 32 9 3 4 24—13 2 4 10 11—25 29
Birmingham Citu 32 8 4 4 26—21 2 1 13 18—38 25
Burniey 34 5 5 6 20—20 2 4 12 18—36 23
Wolverhampton
Wanderes 32 5 5 6 18—19 2 3 11 16—34 22
Sheffield United 33 2 6 8 12—23 0 3 14 10—41 13
2. DEILD
L HEIMA UTI STIG I
Bristol City 32 10 5 2 30—10 6 5 4 19—16 42
Bolton Wanderes 31 9 3 2 26—9 7 6 4 23—20 41
Sunderland 30 14 1 0 36—8 3 4 8 11—21 39
Notts County 32 9 4 3 26—11 7 3 6 20—20 39
West Bromwich Albion > 31 6 7 1 17—8 8 3 6 18—19 38
Southampton 31 14 1 1 39—11 2 4 9 18—27 37
Luton Town 33 10 4 2 27—12 5 3 9 18—27 37
Oldham Athletic 33 10 6 1 29—18 2 4 10 19—33 34
Chelsea 33 7 5 4 22—15 5 4 8 22—27 33
Bristol Rovers 32 6 7 3 17—12 4 6 6 13—23 33
Notthingham Forrest 32 7 1 7 22—17 4 9 4 19—17 32
Charlton Athletic 31 9 2 4 32—24 4 4 8 14—29 32
Fulham 32 7 5 4 23—12 4 4 8 17—25 31
Blackpoo! 32 6 8 3 21—20 4 3 8 10—17 31
Carlisle United 32 7 7 3 23—19 3 4 9 14—27 31
Orient 32 8 4 4 16—9 2 6 7 11—19 30
Plvmouth Argvle 34 11 3 4 32—18 0 5 11 11—29 30
IIull City 33 8 3 6 22—16 4 3 9 13—23 30
Blaekburn Rovers 32 4 6 7 17—21 3 6 6 13—19 26
Oxford United 33 3 7 6 17—21 3 4 10 13—26. 23
Portsmouth 33 2 5 9 9—18 5 1 11 14—30 20
York City 32 5 1 10 18—28 1 4 11 8—29 17
Knatls py rnufirsllt
^........- .............■ - .--J
ENGLAND 1. DEILD: SKOTLAND 2. DEILI):
Aston Villa — Ipswich Lefccster — Everton 0—0 1—0 Stirling— Raith Rovers 0—1
Liverpoo! — Middlcsbrough Manchester Citv — 0—2 VESTIJR-ÞVZKALAND 1. DEILD: Ilertha BSC Berlín —
Sheffield lltd. 4—0 Fortuna Diisseldorf 2—2
Norwich — Tottenham 3—1 Hamburgcr SV — FC Köln 2—1
QI*R —Coventry 4—1
Stoke — Burnley 4—1 Eintracht Braunswick —
West Ham — Birmingham 1—2 Bayern Uerdingen 1—0
ENGLAND 2. DEILD: Blackhurn — W’erder Bremen 2—0
Bristol Hovers 1—2 Borussia Mönchengladbach 2—0
Blackpool — Bolton 1—1 Bavern Munchen —Chalke04 3—2
Bristol City — Luton 3—0 Rotweiss Essen —HannoverOO 1—0
Carlisle — Nott hinj'ham 1—1
Fulham — Porlsmouth 0—1 1—0
IIull —öxford 2—0 MSV Duishurg —
NottsCounty — W.B.A. Oldham — Orient 0—2 1—1 FC Kaiserslautcm 1—2
Plymouth —Chelsea 0—3 ACSTCRRiKI 1. DCILD:
Southampton —Charlton frestað Austria Klagenfurt —
Sundcrland — York frestað SW’ Innsbruck 0—1
ENGLAND 3. DEILD: Austri W’AC — Sturm (írax 3—1
Brighton — Peterboroush 5—0 Linzer — Vo<*st Linz 2—0
Burv — Grimsbv 1—1 Grazer — Admira Wacker 2—0
Chester — Shrewsbury Chesterfield — Cardiff 1—0 1—1 Rapid — Austria Salzburg 0—1
Gillingham — Aldershot 1—1 AUSTUR-ÞVZKALAND 1. DEILD
Mansfield — Wrexham 0—0 BFC Dynamo Berlin —
Rothcrham — Port Vale 1—2 FC Magdeburg 4—0
Sheffield Wed. — Walsall 2—1 Energie Cottbus —
Swindon — Southend 0—0 Chemie Leipzig 1—1
Colchester — Millwall frestað \orwaerts Frankfurt —
Hereford — Preston frestað Dynamo Dresden 2—3
Crystal Palace — Halifax frestað Sachsenring Zwickau — W ismut Aue Rot W eiss Erfurt — 1—2
ENGLAND 4. DEILD: Karl Marx Stadt 0—0
Cambridj'e — Bournemouth 0—1 FC Ia>k. Leipzig —
IIartlep<H>l — Huddersfield 1—1 Chemie Halle 3—1
Lincoln — Crewe 2—0 Stahl Riesa —
Reading — Doncaster Scunthorpe —Brentfod 0—1 2 — 1 Carl Zeiss Jena 3—4
Tranmere — Rochdale 0—1 TÉKKÖSLÓ VAKlA 1. DEILD:
Watford — Northampton 0—1 Lokomotiva Kosice — Slavía Praga 4 — 1
SKOTLAND Jednota — Banik Ostrava 0—0
CNDANÚRSLIT BIKARKEPPNINNAR: Bohemiane Prag —
Dumharton — Kilmarnock 2—1 Spartak Trnava 2—0
Montrose — Hearts 2—2 Skoda Pizen — VSS Kosice 2—1
Motherwell — Hihcrnian 2—2 Sklounion Teplice —
Queen of the south — Rangers 0—5 Zhrojovak Brno Z VL Zilina — Liaz Jablonec Inter Bratislava — Dukla Prag I—0 I —1 1—0
SKOTLAND 1. DEILD: Aírdrionians — Berchin 2—1 TZ Trined —Slovan Bratislava 1—0
Alloa — Falkirk 3—1 UNG VERJALAND 1. DEILI):
Clvde — C'lvdebank 1—3 Ferencvaros —Tatabanya 4—1
(;owenbeath — Ilamilton 3—0 Ujpest Doza — Kaposvar 4—0
East St irling — Morton 1—2 Zalaegerzeg —Honved 1—0
Forfar — Partick 0—1 Diosgyor —Vasas 1—0
Meadowbank — St. Mirren 0—4 Bekescsaba — Csepcl 2—1
Quecns Park — Dunfermline 1—1 Videoton — llaladas 3—0
Stenhousemuir — Arbroath 0—2 RabaEto — MTK VM 0—0
Stranraer — East Fife 1—0 Szeged — Salgotarjan 1 — 1