Morgunblaðið - 09.03.1976, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1976
Séra Kristinn Stefáns-
son — Minningarorð
Fæddur 22. nóvember 1900.
Dáinn 2. marz 1976
Hugur minn hverfur til liðinna
tima og nemur staðar við fyrstu
kynni okkar í Reykholti. Með
okkur tókst vinátta, einlæg og
sönn, sem ég held að hafi verið
okkur báðum nokkurs virði.
Þessi orð eru úr bréfi, sem séra
Kristinn skrifaði mér á ferm-
ingardegi minum. Þau gerí ég nú
af heilum hug að minum, i upp-
hafi þessarar kveðju til hans.
Séra Kristinn varð fyrsti skóla-
stjóri hins nýstofnaða Héraðs-
skóla í Reykholti árið 1931. Þá
hófst vinátta okkar, svo og ævi-
löng vinátta hans og foreldra
minna, en þau mátu séra Kristinn
meira en flesta menn. 1 hans hlut
féll að móta starf og leik i hinum
nýja skóla og samstarfið við kenn-
arana. Hvoru tveggja tókst séra
Kristni svo að til fyrirmyndar
varð öðrum skólasetrum. Nem-
endur hans og kennarar i Reyk-
holti virtu hann og dáðu. Auk
þess að vera mikilhæfur stjórn-
andi skölans var hann afburða
kennari. Reykholtsskóli mun enn
búa að verkum séra Kristins.
Þessa ágæta manns verður að
verðleikum lengi minnst í byggð-
um Borgarfjarðar.
Foreldrar mínir söknuðu hans
mikið eftir að hann fluttist frá
Reykholti. Þó samfundum fækk-
aði hélst vináttan óbreytt og hluta
af sjálfum sér, sonin Þráinn, fól
hann foreldrum minum til upp-
eldis um skeið. Hann varð foreldr-
um mínum jafn kær og faðirinn.
Leið séra Kristins lá til Reykja-
víkur. Þar biðu hans ný og fjöl-
breytt störf og hamingja, en sá
þáttur ævi hans mun vafalítið
verða rakinn af öðrum.
En á öllum vegum þinum óska
ég þér góðs farnaðar og að ávalt
megir þú geta sagt, eins og
skáldið: „Himneskt er að lifa.“ I
þeirri ósk minni felst meðal
annars það, að þú eigir jafnan þá
bjartsýni, sem horfir kvíðalaust
til framtíðarinnar, að þú verðir
dugmikill og sterkur, þegar á
móti blæs og að þú vaxir af hverju
því verkefni, sem þú tekur þér
fyrir hendur að leysa.
Þetta eru lokaorðin úr bréfi
Séra Kristins, sem ég vitnaði til i
upphafi þessarar kveðju. Ferm-
ingardrengurinn geymir ennþá
bréfið þitt góða og drýpur höfði f
virðingu og þakklæti fyrir heil-
ræðum þinum og vináttu. Þú
varst einn af dýrmætustu horn-
steinum bernsku minnar.
Frú Dagbjörtu og börnum séra
Kristins Stefánssonar votta ég
dýpstu samúð.
Birgir Þorgilsson.
„Hann veit þótt sjálfur
hnigi hann f val
að hugsjónin hans fagra
lifaskal."
Guðm. Guðm.
Merku lífsstarfi er lokið. Mikill
öldungur er í val fallinn. Foringi
er hniginn en merki hans skal
standa.
Séra Kristinn Stefánsson var
kjörinn í Afengisvarnaráð við
stofnun þess árið 1954. Hann var
áfengisvarnaráðunautur og for-
maður Afengisvarnaráðs frá 1958
til miðsumars 1971 er hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir. Séra
Kristinn tók við starfi eftir svip-
legt andlát brautryðjandans,
Brynleifs Tobíassonar. Hann
reyndist farsæll leiðtogi og var
hlýr vinur samstarfsmanna sinna
sem margt eiga að þakka og
margra góðra stunda að minnast.
Séra Kristinn Stefánsson var
um margt óvenjulegur maður.
Hann var hámenntaður og fjöl-
greindur. Hann var bundinn
tryggðaböndum hugsjónum þeim
sem kveiktu þann neista er varð
upphaf alls félagsmálastarfs
íslenskrar alþýðu. Hann var
frábær ræðusnillingur. Kjarngóð
íslenska hans var ekki af bók lærð
heldur var þar komið lifandi
t Móðir mín, tengdamóðir og amma, MARGRÉT í. GUÐMUNDSDÓTTIR, frá Vestmannaeyjum, Lönguhlíð 23, Reykjavík, lézt að Vifilsstöðum, sunnudaginn 7 marz Þorfinnur Óli Tryggvason, Alda Berg. Óskarsdóttir, og börn. t Maðurinn minn INGIMUNDUR BJARNASON járnsmiður Suðurgötu 5, Sauðárkróki lézt laugardaginn 6 marz Fyrir mina hönd og annarra vandamanna Sveinsina Bergsdóttir
t Eigmmaður minn ARNÓR ÞORVARÐARSON frá Jófrlðarstöðum Hringbraut 55, Hafnarfirði lést á St Jósepsspítala sunnudaginn 7 marz. Sólveig Sigurðardóttir t Eiginmaður minn og faðir, JÓN SVEINSSON. Hraunteigi 10, lézt laugardaginn 6 marz Halldóra Hafliðadóttir, Kristjana Jónsdóttir.
t Eiginmaður minn, faðir okkar og sonur minn, ÓLAFUR NICOLAISON bifvélavirki, Yrsufelli 3, Reykjavlk, andaðist 5 mars Guðrún Frimannsdóttir og börn. Sigríður Ólafsdóttir. t Útför eiginmanns mins, sonar, föður okkar og afa, PÁLS s. pálssonar, Geitlandi 39, fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 10 marz kl 13:30 Sigrún Eliasdóttir. Páll Ásmundsson, börn og barnabörn.
t Maðurmn minn, STEINN ÁRNASON Hjarðarhaga 64, lést á Landspítalanum að kvöldi 7. þ m F h aðstandenda Guðrún R. Guðmundsdóttir. t Eiginkona min og móðir STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR, Hvassaleiti 22, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikúdaginn 10 marz kl. 1.30 e.h Magnús Jónasson, Benedikt Bogason.
t Móðir okkar, GUÐLAUG BRYNJÓLFSDÓTTIR Miklubraut 1 3, lézt 7 marz s I Sigurður Guðmundsson, Baldur Guðmundsson. t Útför ÞÓRUNNAR GUÐLAUGSDÓTTUR, Frá Efra-Hofi GarSi sem andaðist 23 febrúar, að heimili sínu Rauðalæk 7, verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 10 marz kl 10 30 Fyrir mina hönd og barna hennar GuSjón GuSmundsson.
Fósturmóðir mín og systir okkar, RAKEL SIGURÐARDÓTTIR, frá Klukkulandi, til heimilis að Fjarðargötu 32, Þingeyri, lézt í Borgarspítalanum 16 febrúar Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu Þökkum mnilega sýnda samúð og vinarhug og sérstakar þakkir til Jens Guðmundssonar, læknis og starfrfólks sjúkrahússins á Þingeyri Þórdís Garðarsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Aðalheiður Sigurðardóttir. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu RÍTU STEINSSON, Búðargerði 1, Þorkell Steinsson, Eric Steinsson, Sigríður Oddgeirsdóttir, Steinn Steinsson, Þorgerður Friðriksdóttir, Reymond Steinsson, Anna Kjaran. og barnabörn
tungutak þeirra forfeðra hans,
frænda og vina, sem bjuggu í
Fljótum, snjóþungum en sumar-
grænum, yrktu jörð og veiddu
hákarl. — Honum var lagið að
laða menn til samstarfs. Hann var
samvinnuþýður en þó ákveðinn
og brást aldrei því sem hann vissi
sannast og réttast. Hann sam-
einaði á sérstæðan hátt mildi og
ósveigjanleik sem var þó jafnan
grundvallaður á þeirri siðgæðis-
vitund sem hefur einstaklinga og
þjóðir af stigi blindrar og sérgóðr-
ar villimennsku. — Hann var
raunsæismaður en átti sér þó
draum um þá tíð þegar „stökkt er
hverju böli á bug og börn vor
frjáls og góð“.
Afengisvarnaráð þakkar störf
séra Kristins Stefánssonar, mikil
og merk, og sendir eiginkonu
hans og öðru skylduliði hugheilar
samúðarkveðjur.
F.h. Afengisvarnaráðs,
Olafur Haukur Arnason
1 dag er borinn til moldar frá
Dómkirkjunni f Reykjavík einn
þeirra manna, sem markað hafa
djúp spor og heillavænleg í þró-
unarsögu íslenzkra félagsmála á
þessari öld. Það er séra Kristinn
Stefánsson, fyrrum áfengisvarna-
ráðunautur.
Kristinn Stefánsson var fæddur
22. nóvember 1900 á Brúna-
stöðum í Fljótum og var því á 76.
aldursári er hann lézt 2. marz sl.
Foreldrar hans. Stefán Pétursson
og Guðrún Hafliðadóttir, voru
bæði ættuð úr Fljótum. Hafði sá
ætthringur um langan aldur tekið
drjúgan þátt í harðri lífsbaráttu
fólksins þar i sveit. Stefán faðir
Kristins var sjómaður og settust
þau hjón að á Akureyri, en Krist-
inn ólst upp í Fljótum. Hann lauk
gagnfræðaprófi á Akureyri 1921
og stúdentsprófi í Reykjavík 1924
með 1. einkunn og guðfræðiprófi
frá Háskóla Islands 1928, einnig
með 1. einkunn. Veturinn
1929—30 var hann við framhalds-
nám í félagssiðfræði.við háskól-
ann í Marburg í Þýzkalandi.
Það var ríkt í fari þeirra félaga
Kristins i guðfræðideild að þeir
vildu leggja fram lið sitt til þess
að gera islenzkt mannfélag betra.
Hafa margir þeirra látið mikið að
sér kveða á vettvangi félagsmála
og menningarmála, Kristinn ekki
siður en aðrir. Þeir gáfu í fjögur
ár út rit um trúmál og skyld efni
(1927—30). Það hét Straumar,
djarfmannlegt rit i frjálslynda
stefnu og vakti mikla eftirtekt.
Kristinn var meðal útgefendanna
og skrifaði í ritið, enda snemma
prýðilega ritfær. Hann var einnig
meðritstjóri Stúdentablaðsins
árið 1927.
Ekki sneri Kristinn sér að
prestsstörfum að sinni. Hann var
einn vetur að loknu guðfræði-
prófi stundakennari við skóla í
Reykjavik, og veturinn 1930—31
var hann kennari við héraðsskól-
ann á Laugarvatni. Haustið 1931
gerðist hann skólastjóri við hinn
nýreista héraðsskóla Borgfirð-
inga i Reykholti og gegndi því
starfi til 1939. Það féll þvi i hans
t
Faðir minn, bróðir okkar og
stjópsonur minn
JAKOB ZÓPHANÍASSON,
lést af slysförum 3 marz s I
Fyrir hönd aðstandenda
Björgvin Þorsteinsson.
t
INGIBJÖRG
GUÐLAUGSDÓTTIR
Grettisgötu 33 b, Reykjavík
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 10. marz,
kl 3 e.h.
Ágústa Guðmundsdóttir
Guðlaugur Davíðsson
börn, barnabörn, tengdasynir,
bræður og mágkonur.