Morgunblaðið - 09.03.1976, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1976
39
Mafía merkir klíka
Framhald af bls. 2
Föstudaginn 30 jan 1975 ritaði
Vilmundur grein I blaðið, þar sem
hann setti fram ásakanir á hendur
Ólafi Jóhannessyni dómsmálaráð-
herra vegna embættisfærslu hans.
Taldi Vilmundur ráðherrann hafa
haft óréttmæt afskipti af rannsókn
tiltekinna afbrotamála.
Ólafur Jóhannesson ráðherra,
sem jafnframt er formaður Fram-
sóknarflokksins kom fram I útvarps-
þættinum „Bein llna" sunnudags-
kvöldið 1. febrúar 1976. Þáttur
þessi er þannig upp byggður, að
ákveðinn aðili er fenginn til að sitja
fyrir svörum. Gefst hlustendum slð-
an færi á, að hringja I síma rlkisút-
varpsins og leggja fyrir gest þáttar-
ins spurningar, sem hann svarar
jafnharðan. Er þættinum útvarpað
beint.
Nokkrir hlustenda báru upp við
Ólaf Jóhannesson spurningar vegna
ofangreindra skrifa Vilmundar Gylfa-
sonar Áttu þá m.a eftirfarandi orða-
skipti sér stað:
Ólafur Jóhannesson:....Annars
er það ekki Vilmundur, sem þarna er
við að eiga, heldur auðvitað sú
Mafla, sem stendur ð bak við
þessi skrif, og henni mun ég svara
siðar "
Stjórnandi þáttarins: „Hvaða
Mafia er það?"
Ólafur Jóhannesson: „Það er
Visis Maflan."
Og siðar I þættinum:
Hlustandi: „Gott kvöld ráðherra,
þú ert búinn að segja tvisvar I kvöld
að Visismenn séu I Maflunni. Áttu
þá við þann alheims glæpahring
sem vaðið hefur uppi I Bandarikjun-
um og á ítallu, eða hvað áttu við
með þessu?"
Ólafur Jóhannesson: „Ætli það
séu ekki ýmiss konar tegundir til "
Hlustandi: „Nei, ég vil fá svar við
þessu sko. Þetta er svolitill ábyrgð-
arhlutur að segja að menn séu I
Mafiunni þvi allir vita, að Mafían er
einhver mesti glæpahringur, sem
um getur í sögu heimsins."
Ólafur Jóhannesson: „Ji það
horfir þannig fri mfnu sjónarmiði,
að það sé glæpahringur, sem æ
ofan I æ kemur með aðdróttanir,
rangar, I minn garð.
Hér hafa ummæli þau, sem krafizt
er ómerkingar á verið auðkennd.
Af öðrum orðum Ólafs Jóhannes-
sonar I útvarpsþætti þessum kemur
fram, að hann beinir ofangreindum
Mafiu- og glæpahringsummælum
slnum að ritstjóra dagblaðsins Vlsis,
sem er Þorsteinn Pálsson og að
meirihluta stjórnar útgáfufélags
dagblaðsins Vlsis, Reykjaprents hf.,
en þann meirihluta mynda þeir Guð-
mundur Guðmundsson, Ingimundur
Sigfússon og Þórir Jónsson.
Strax 2 febrúar 1976 ritaði Þor-
steinn Pálsson ritstjóri grein, sem
birtist á forsiðu Vísis, þar sem Ólafi
Jóhannessyni var gefinn kostur á að
draga ummæli sln til baka, ella yrði
ekki um annað að ræða en að fá
ummælin ómerkt með dómi Við
þessu brást ráðherrann þannig, að I
þingræðu slðar sama dag endurtók
hann ummæli sln, efnislega að
mestu óbreytt. Er þannig fullreynt,
að hann mun ekki sjálfviljugur draga
ummæli sin til baka Er málssókn
þessi því óumflýjanleg
Fyrir þvl stefnist hér með Ólafi
Jóhannessyni með vinnustað I
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
Arnarhvoli, Reykjavik til að mæta á
bæjarþingi Reykjavikur, sem haldið
verður I bæjarþingsstofunni að Tún-
götu 14 fimmtudaginn 4 marz
1976 kl 10 fyrir hádegi, til þess
þar og þá, ef ekki verður sátt I
málinu, að sjá skjöl og skilrlki I rétt
lögð, á sókn sakar og dómkröfur að
hlýða, til sakar að svara og dóm að
þola I ofangreinda átt '
Stefnufrestur skal vera 1 sólar-
hringur.
Reykjavlk, 26 febrúar 1 976
Jón Steinar Gunnlaugsson hdl.
Rós I hnappagatið
i upphafi greinar sinnar segir
Ólafur Jóhannesson m.a.:
Jæja, loksins er stefnan frá þér
komin. Eg ætla að geyma hana,
innramma og hengja upp á vegg I
heiðurssæti til minningar um mál-
frelsisáhuga og baráttuvilja islenzks
blaðstjóra á tuttugustu öld.
Það er sem létt af mér þungu
fargi. Ég átti von á reiðarslagi, reidd-
um refsibrandi, bótakröfum og
margskyns kárlnum öðrum, ekki
hvað sízt eftir hínar dramatizku lýs-
ingar Alþýðublaðsmanna á þvl, hver
örlög biðu mln, er sverði dóms og
laga yrði brugðið gegn mér, en I þvl
efni hafa þeir verið ærið óþolinmóð-
ir og eftirgangssamir, sbr hina
frægu vantraustsræðu dr. Gylfa. En
svo sendir þú mér, góður drengur,
stefnu, sem er eins og viðurkenning
eftir allt moldviðrið — eins konar
rós I hnappagatið
Eftir mánaðarleit margfróðra lög-
fræðinga og uppslátt Tynesar I
Webster er uppskeran borin á borð
Og hver er þá árangur erfiðismann-
anna? Látum stefnuna sjálfa tala.
Samkvæmt henni neyðist þú til að
höfða mál „til ómerkingar á eftirtöld-
um ummælum, sem Ólafur Jóhann-
esson viðhafði I þættinum „Bein
llna" þ. 1. febrúar 1 976:
1. „heldur auðvitað sú Mafla, sem
stendur á bak við þessi skrif"
2. „Það er Visismafian"
3. „Já, það horfir þannig við frá
mlnu sjónarmiði, að það sé
glæpahringur sem æ ofan I æ
kemur með aðdróttanir, rangar, I
minn garð."
Þetta er allt og sumt. Engar sak-
fellingarkröfur, engar refsikröfur,
engar bótakröfur, ekki neitt nema
ómerking og málflutningslaun. Já,
ekki er nú reisninni fyrír að fara. Þrjú
óskiljanleg setningaslitur rifin út úr
öllu samhengi. Þetta stendur þá eftir
af þeirri pólitisku aftöku, sem átti að
fara fram á mér. Það verður oft lltið
úr þvi högginu sem hátt er reitt Er
nú allur vindur úr Visismönnum, og
þú stendur uppi, eins og maðurinn,
sem missti glæpinn Varla getur þú
ætlazt til þess, að ég fari að standa I
pexi við þig fyrir dómstólum út af
fáeinum krónum upp I herkostnað,
fyrst þeir góðu drengir Ingimundur I
Heklu og Þórir bllakóngur þurfa á
aurum að halda
Menntaskólakennari
nokkur
Það segir Ólafur Jóhannesson:
f stefnunni segir svo:
„Málavextir eru þeir, að mennta-
skólakennari nokkur I Reykjavik
hefur á undanförnum mánuðum
skrifað vikulegar greinar I dagblaðið
Vlsi um margvisleg málefni". Að
réttu lagi hefði þarna átt að standa:
Menntaskólakennari nokkur I
Reykjavlk hefur á undanförnum
mánuðum skrifað vikulegar greinar I
dagblaðið Visi, sem geymt hafa
dylgjur og aðdróttanir I garð ýmissa
tiltekinna mann^ Alþýðuflokksmenn
þó undanskildir.
Mér finnst ekki laust við litils-
virðingu eða vanþóknun I þessu
orðalagi: Menntaskólakennari
nokkur i Reykjavtk.
Þvl spyr ég þig. Þorsteinn Páls-
son Vilt þú lýsa þvi yfir, að þú hafir
andstyggð á skrifum margnefnds
menntaskólakennara? Vilt þú biðjast
afsökunar á þeim og þvl, sem blað
þitt hefur frá eigin brjósti lagt til
málanna? Vonandi vilt þú ekki lýsa
þig sammála dylgjum menntaskóla-
kennarans og gera hans málstað að
þlnum.
Mafía og klíkur
Ólafur Jóhannesson segir
ennfremur:
Þú hefur sent Tynes til að fletta
upp I Webster. Þar hefur hann fund-
ið að mafla þýði bófafélag Já ekki
er nú fallegur félagsskapurinn, og
varla við þvl að búast, að þér sé glatt
I geði. En þetta er nú heldur þröng
skýring á orðinu mafía, eins og það
er notað nú til dags. Ætli Tynes hafi
ekki lent á skakkri bók? Þú manst
nú, hvernig fór fyrir honum I Brússel
forðum?
Orðið mafla er nú alþjóðlegt orð,
sem notað er I allt annarri og vlð-
tækari merkingu en Tynes og
Webster vilja vera láta Mafla er
eiginlega orð eins og inflúensa In-
flúensa er a.m.k. I daglegu máli,
notað um margs konar sjúkdóma,
allt frá vægu kvefi og upp i llfs-
hættuleg veikindatilfelli
Það er eins um mafiu, svo sem ég
og sagði I „Beinni línu", að af henni
eru til margvislegar tegundir, bæði
tiltölulega meinlausar og illkynjaðar
Þetta ber ekki svo að skilja, að ég llki
V'sismafiu við magaplnu. Mafla
merkir I máli nútlmamanna nánast
það sama og orðið klika, og er
þannig notað um viða veröld, bæðí I
daglegu tali og rituðu máli
Nú skal ég netna þér nokkur
sýnishorn.
Lest þú ekki amerlsk blöð?
Kannski ekki nógu gömul? Þar mátti
æði oft sjá talað um Irsku mafluna,
en með þvl var átt við Kennedyana
Sem sagt Irska maflan = Kennedy-
klikan, en engum myndi hafa dottið
I hug bófafélag I þvi sambandi.
Mætti ég benda þér á að lesa
tlmaritið Time frá 2. febrúar 1976,
bls 29 Þar er rætt um, hve mörg
ung gáfnaljós Roosevelt hafi á
slnum tlma fengið til starfa I
Washington frá háskólunum
Harvard, Yale og Princeton. Ennþá
sé þar hópur þeirra, en eftir sjö ára
stjórn Republicana I Hvita húsinu
séu svo margir komnir til Washing-
ton til stjórnarstarfa frá Chicago-
háskóla, að I höfuðstaðnum séu
menn farnir að tala um Chicago-
háskóla mafiuna (that Washington
has begun to talk about „a
University of Chicago Mafia"). Þú
skalt lesa þessa grein. Eftir það
muntu llta maflu öðrum augum en
áður.
Næst vil ég nefna Morgunblaðið
25, febrúar sl. Þar er á 11. síðu
viðtal við sænska leikstjórann Vilgot
Sjöman. Þar talar hann I 3. dálki um
kvennamafiu Tæplega bófafélag
það. _______, , ,------
— Hvað fellst
Framhald'af bls. 3
eigi eftir að endurtaka sig í
dálitið breyttri mynd?
Ég vil leyfa mér að beina
þeim varnaðarorðum til hæstv.
utanrrh, að hann fari hér að
með fullri gát.“
I svari við þessari fyrirspurn
Gils Guðmundssonar sagði
Einar Ágústsson m.a.: „Um
landhelgisgæzluna er það að
segja, að ég fyrir mitt leyti
a.m.k. hef hug á þvi, að land-
helgisgæzlan taki að sér björg-
unar- og leitarflugið, sem
varnarliöið hefur nú með hönd-
um og það gæti orðið til mikill-
ar aðstoðar við framkvæmd
þess atriðis, ef gott og náið sam-
komulag og samstarf yrði við
varnarliðið að þessu leyti.“
— „Snekkja”
Framhald af bls. 2
milljón dollara eða 2,3 milljarða
islenzkra króna.
En þegar Nkrumah var steypt
var pöntunin afturkölluð og
konunglegi brezki flotinn keypti
freigátuna. Þá varð freigátan til-
efni umræðna í neðri málstofu
brezka þingsins og þar fékk hún
viðurnefnið sem hér er getið að
ofan. Henni var hleypt af
stokkunum 1966 eða sama ár og
Nkrumah féll. Lá hún nafnlaus i 7
ár, unz hún var seld 1973.
— Hrognkelsi
Framhald af bls. 38
þá, er stunda hrognkelsaveiðar að
halda um þær nákvæmar skýrslur,
sem þeir skulu senda Fiskifélagi
islands, sem leggur jafnframt til
skýrslueyðublöð i skýrslur þessar
skal færa netafjölda, sem vitjað er
um I veiðiferð, veiðimagn í hverri
veiðiferð, og veiðisvæði og skal þar
sérstaklega geta þess, hvort veitt er
innan eða utan netlaga og veiðitlma
Skýrslur þessar skulu sendast Fiski-
félagi íslands eigi siðar en einum
mánuði eftir að veiðum var hætt Að
lokum skal Itrekað, að þessi skýrslu-
skylda hvllir á öllum þeim er hrogn-
kelsaveiðar stunda, hvort sem þeir
stunda þær samkvæmt sérstökum
leyfum eða ekki.
— Stórslasaður
Framhald af bls. 40
átök eða hávaða, þannig að- svo
virðist sem þessi árás á piltinn
hafi verið gerð mjög skyndilega
og honum á óvörum. Virðist hon-
um hafa verið veitt mikið högg á
kviðinn.
Salernisvörðurinn man eftir
pilti sem hann sá hraða sér út úr
snyrtiherberginu. Vegna þess hve
pilturinn sjálfur er mikið slasað-
ur hefur ekki reynst unnt að yfir-
heyra hann ennþá. Rannsóknar-
lögreglan hefur beðið Morgun-
blaðið að koma því á framfæri,
að allir þeir sem telja sig geta
gefið einhverjar upplýsingar um
þetta mál hafi strax samband við
sig, svo finna megi árásarmann-
inn og komast megi að tilefni
þessarar fruntalegu árásar.
— Snjó-rall
Framhald af bls. 38
um. I öðru sæti varð Lárus
Halldórsson og þriðji varð Georg
Magnússon. Athygli vakti islenzki
sleðinn og er hann fyllilega sam-
bærilegur erlendu sleðunum.
Það voru lionsklúbbarnir
Njörður og Freyr sem stóðu að
mótinu og nutu aðstoðar
björgunarsveitanna Ingólfs,
Kyndils og flugbjörgunarsveitar-
innar. Mun ágóði af mótinu renna
til tækjakaupa fyrir þessar sveit-
ir.
Reykjavíkurmótið var eitt
svæðamótanna i vélsleðaakstri.
snjó-ralli, sem fram fara um
þessar mundir víða um land. Is-
landsmótið mun síðan fara fram í
nágrenni Reykjavikur á næstunni
á vegum sömu aðila og héldu
Reykjavíkurmótið.
r
— Attu að myrða
Framhald af bls. 1
á laugardag með byssur og hand-
sprengjur. Verkefni þeirra var að
leita uppi Honi majór sem fór frá
Kairó sama dág áleiðis til Parísar
með viðkomu í Róm að sögn sendi-
ráðsins.
Egypsk yfirvöld segjast hafa
vitað allt um ferðir þessara
manna fyrirfram. Vart hafi orðið
ferða nokkurra hópa frá Líbíu að
undanförnu. Hver hópur hafi haft
2.000 dollara meðferðis og Libýu-
mennirnir hafi þótzt vera
skemmtiferðamenn. Vitað hafi
verið að ferðir þeirra stæðu í sam-
bandi við dvöl majóranna
Meheishi og Honi í Kaíró og þeir
því settir undir nákvæmt eftirlit.
Meheishi mun hafa verið viðrið-
inn tilraun til að steypa Gaddafi
ofursta í ágúst í fyrra og fékk
hæli sem pólitískur fréttamaður í
Egyptalandi í síðasta mánuði.
— Mestu verkföll
Framhald af bls. 1
Vitoria heldur verkfallið áfram
og þar sóttu nokkur þúsund
verkamenn minningarguðsþjón-
ustu um fjórða verkamanninn
sem beið bana í óeirðunum þar i
síðustu viku. Hann lézt af sárum á
sunnudag.
Níu spænskir liðsforingjar voru
leiddir fyrir rétt í dag, ákærðir
fyrir uppreisn gegn stjórninni.
Rannsóknardómarinn i málinu
sagði réttinum að við leit á heimil-
um þeirra hefðu fundizt til-
kynningar heraflahreyfingar-
innar í Portúgal og kommúnista-
rit.
Hann sagði að einnig hefðu
fundizt skjöl samin af leynifélagi
liðsforingja, UMD (félagi lýð-
ræðissinnaðra hermanna).
Dómarinn sagði að tveir hinna
ákærðu, Jesus Ruiz höfuðsmaður
úr flughernum og Antonio Garcia
höfuðsmaður úr stórskotaliðinu,
hefðu játað að þeir væru félagar í
UMD og hefðu haldið fundi með
hinum sakborningunum.
Hinir sakborningarnir, þar á
meðal Luis Otero, majór úr verk-
fræðisveitunum, sem er þeirra
háttsettastur, neituðu því að þeir
væru i tengslum við UMD. Sam-
tökin voru stofnuð fyrir tveimur
árum og þau halda því fram að
félagsmenn séu 500. Þau segja að
þar við bætist 500 stuðningsmenn
og að tilgangur þeirra sé að koma
á lýóræði.
— Pundið
Framhald af bls. 1
lokun á föstudag.
Við opnun kauphallarinnar
streymdu inn fyrirmæli frá Mið-
austurlöndum, Austur-Asíu og
Evrópu um að selja pund og svo
miklar voru gjaldeyrissveiflurnar
á timabili að menn áttu fullt i
fangi að fylgjast með við-
skiptunum.
Síðan á fimmtudag hefur pund-
ið lækkað um 8.25 cent gagn-
vart dollar og heildarlækkunin
gagnvart helztu gjaldmiðlum
nemur þremur af hundraði. I
kvöld hafði pundið lækkað um
33.1% gagnvart tiu helztu gjald-
miðlum heims siðan i desember
1971.
I Frankfurt lækkaði pundið í
fyrsta skipti niður fyrir fimm
mörk en stuðningur Englands-
banka treysti stöðu þess nokkuð.
Á Italiu lækkaði pundið um þrjá
af hundraði gagnvart lírunni, en
dregið hefur úr þrýstingnum á
hana i bili.
Franski frankinn lækkaði með
pundinu og Frakklandsbanki
varð að verja um 50 milljónum
dollara til að treysta stöðu hans.
Frankinn lækkaði þó niður að
neðstu leyfilegu mörkunum sem
gert er ráð fyrir i gjaldeyrissam-
vinnu Evrópuríkja og 176.425
frankar voru skráðir fyrir 100
mörk.
Margir furðuðu sig á þvi i dag
að Englandsbanki var tregur að
láta til skarar skriða en töldu að
hann gæti sætt sig við nokkra
lækkun þar sem hún gerði brezk-
an útflutning samkeppnishæfari.
Efnahags- og framfarastofnun-
in, OECD, segir í skýrslu í dag að
lækkun pundsins muni stuðla að
bata brezks útflutnings, OECD
segir að ef pundið lækki ekki mið-
að við skráninguna i árslok 1975
muni brezkur útflutningur
sennilega glata samkeppnisað-
stöðu sinni.
I skýrslunni segir að Bretar
standi andspænis meiri verðbólgu
en flestar viðskiptaþjóðir þeirra
og hagvöxtur á þessu ári verði að
miklu leyti kominn undir eftir-
spurn eftir útflutningi.
— Frumvarpið
Framhald af bls. 2
hið lága ullarverð ráðið mestu.
Margir bændur telja það ekki
svara kostnaði að rýja fé sitt og
hefur i þessu sambandi verið bent
á að unnt væri án verulegrar
fyrirhafnar að auka magn
óþveginnar ullar úr 1,7 kg á kind
eins og nú er upp í 2,1 kg á kind af
ull. Landbúnaðarráðherra sagði
að ef þessi breyting á niður-
greiðslunum yrði tekin upp, væri
óhjákvæmilegt að taka upp
skráningu á verði ullar til ullar-
verksmiðjanna. Meginatriðið við
þessa breytingu sagði Halldór
vera að verðmæti sauðfjárafurða i
heild til bænda héldist óbreytt en
hlutfallinu milli kjöts og ullar og
gæra yrði breytt þannig að hlutur
ullar i afurðaverðinu hækkaði úr
3,5% i 8,5%.
— Stúdentaráðs-
kosningar
Framhald af bls. 3.
Stðdentaráð.
Vaka telur það ekki rétta stefnu
hjá Stúdentaráðsmeirihlutanum
að eyða dýrmætum fundartímum
sfnum í yfirborðslega vinnu við
úrlausn alþjóðamála. Það skal
gert á öðrum vettvangi.
Stúdentaráðsmeirihlutinr. er skip
aður vinstrimönnum sem er nú
einangraður pólitiskur sértrúar-
söfnuður sem svífur um I þoku-
kenndum draumi langt fjarri öll-
um hræringum þjóðlífsins og
Háskólans. Minnihlutanum, full-
trúum Vöku (um 45% stúd.), er
vandlega haldið utan við allar
ákvarðanir og þess er gætt að
Vökumenn fái sem allra minnst
að vita hvað er að gerast i starfi
ráðsins. Vökumenn flytja all oft
tillögur á ýmsum fundum sem
haldnir eru á vegum ráðsins, en
oftast „týnast" þær í meðferð
stjórnar S.H.I. Þessi þróun er for-
dæmanleg og ólýðræðisleg, en
henni er haldið við af gangandi
hópi atvinnustúdenta, sem þiggja
há laun fyrir.
Til úrbóta telur Vaka eftir-
farandi breytingar nauðsynlegar.
Að minnihluta stúdentaráðs hver
sem hann er, verði á hverjum
tíma sköpuð viðunandi starfsað-
staða og aðgangur að upplýsing-
um sem Stúdentaráð hefur yfir að
ráða verði opinn öllum meðlim-
um Stúdentaráðs. Þá telur Vaka
að kosningar til Háskólaráðs og
Stúdentaráðs skuli verða aðskild-
ar. Þá álítur Vaka að taka beri
upp póstkosningar meðal
stúdenta hið fyrsta og lýðræði þar
með aukið til muna.
Vaka átelur harðlega birtingar
á „fræðilegum" innbyrðis deilum
Maóista, Marxista, Lenínista og fl.
i Stúdentablaðinu. Stefna Vöku
er, að Stúdentablaðið verði
stúdentablað heilsteypt og heiðar-
legt en ekki ómerkilegur og ill-
málgur áróðurs- og óhróðurs-
snepill. Nú þykir Vökumönnum
mál til komið að Gestur
Guðmundsson og félagar hans,
afturhalds vinstri menn i H.I.,
verði stöðvaðir á eyðimerkur-
göngu Marxismans og nýju lífi
verði blásið i hagsmunabaráttu,
félagslif og menningarlif
stúdeuta við Háskóla Islands.
Fyrir þessu munu Vökumenn
beita sér nái þeir meirihluta i
komandi kosningum.
f.h. Vöku
Magnus Asgeirsson