Morgunblaðið - 03.10.1976, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. OKTÖBER 1976
15
þarna töldu þeir vissulega ástæðu
til að ná í lækni.
KEMUR ÚTLITIÐ
HEIM VIÐ
ANASTASIU?
Hvað er þá að segja um lýsingu
Utkins læknis á útliti stulkunnar.
Hann hafði lýst sjúklingi slnum
dökkeygðum. Anastasia hafði grá-
blá augu. Hári hinnar leyndar-
dómsfullu stúlku er ýmist lýst
brúnu eða dökku. Hin rétta
Anastasia hafði brúnt hár, eða
kannski öllu heldur jarpt.
Nákvæmni um hár og augu virðist
töluvert undir birtu komið. Það er
athyglisvert að hár dularfullu
stúlkunnar var klippt á svipaðan
hátt og Natalya Mytnyhk lýsti að
hefði verið á að minnsta kosti
tveimur keisaradætranna þegar
hún sá þær. /
Utkin talar um þrýstinn vöxt
og kemur það heim við vaxtarlag
hinnar réttu Anastasiu. Spaugað
var með hvolpafitu hennar innan
fjölskyldunnar. Utkin læknir
veitti og eftirtekt sérstaklega fall-
egum fingrum stúlkunnar.
Romanovkonurnar voru orðlagð-
ar fyrir fallegar hendur.
Eitt kemur fram sem má teljast
að sé ekki vafa undirorpið. Bolsé-
vikkar voru að herða leitina hvar-
vetna og leituðu af kappi að ein-
hverjum og það hlýtur að hafa
verið mikilsháttar manneskja.
Kommúnistar í þessari borg
hefðu varla varið tíma og kröftum
til að leita að þeim sem engu máli
skiptu, né heldur hefðu þeir
leitað hertogaynju, sem þeir vissu
að hefði verið drepin mörgum
vikum áður í Ekaterineburg. Því
að bolsévikkarnir, sem höfðu
stjórnina í Perm voru hinir sömu
og höfðu farið með tjórn mála I
Ekaterineburg.
Bezta staðfestingin á því að
bolsévikkar hafi beinlinis verið
að leita að Anastasiu Nikolayevnu
kemur frá hcimild sem verður að
teljast óháð og traust. Fulltrúi
sænska Rauða krossins i Rúss-
landi, Carl Bonde greifi, ferðaðist
um þetta landsvæði í járnbrautar-
lest. Nokkrum árum siðar skrifaði
hann bréf um truflun sem hefði
orðið á ferðalaginu:
„1 krafti stöðu minnar ferðaðist
ég í einkajárnbrautarvagni. Á
stað sem ég hef nú gleymt hvað
heitir var numið staðar án þess
það væri á áætlun og leitað vand-
lega i vögnunum til að ganga úr
skugga um hvort Anastasia
Nikoayevna hertogaynja, dóttir
keisarans, kynni að vera með lest-
inni. Svo reyndist ekki vera.
Enginn vissi hvað af henni hafði
orðið.“
GÁTAN UM
ROMANOVKONURNAR
Hvað varð um Romanovkon-
urnar eftir að þær höfðu verið í
varðhaldi í Perm? Harvardskjölin
leiða söguna ögn lengra. Vitni
segja þar að „keisarafrúin og
þrjár dætur hennar" hafi verið
fluttar úr bænum þremur vikum
áður en hann féll í hendur hvít-
liða um jólaleyti 1918. Þær voru
fluttar með lest til þorpsins
Glazov, sem er I 150 km fjarlægð
og að því er síðast er vitað eru
þær á leið til Moskvu. En síðan
hverfur slóðin gersamlega og
kemur hvergi upp framar.
Hafi Lenin haldið í fyrstu lifi í
fjölskyldunni til að eiga hægara
með að gera samninga við Þjóð-
verja, hefur sú forsenda nú verið
með öllu horfin, þegar hér er
komið. Þjóðverjar höfðu beðið
ósigur og Vilhjálmur keisari er
oltinn úr sessi. Við getum því
gizkað á að Lenin hafi nú annað-
hvort þvegið hendur sínar af allri
ábyrgð á Romanovkonunum eða
einfaldlega falið þær forlögunum
á vald. En af öllu er ljóst að þær
mættu ekki örlögum sínum í
Framhald á bls. 18
—Lesum Biblíuna
Framhald af bls. 19
hjálpa heiðingjum til trúar. Verst
eru þeir þeiðingjar staddir, sem
heyrt hafa fagnaðarerindið, eru
frjálsir að valinu, en setja sig
sjálfir í gapastokkinn. Þeir þurfa
vissulega hjálpar með, Guð hefir
alltaf og enn I dag, beint samband
við einstaka „innblásna menn“.
Ég nefni hér aðeins einn sem Guð
hefir látið gera „kraftaverk",
Bandaríkjamanninn William
Branham. Hann er fæddur 1909.
Honum birtist fyrst engill Guðs
— 1 skinandi klæðum — að kvöldi
dags 7. maí 1946 og flutti William
Branham skilaboð frá Guði. Þessi
atburður endurtók sig. Á nefndu
kvöldi var William á bæn, áður en
hann samdi trúboðsræðu. Eftir
þennan atburð gerði hann mörg
kraftaverk í bæn til Guðs og Jesú
Krist og i Hans nafni.
Kæru lesendur!Ég hvet okkur
öll, til athafna og ástundunar i
þessu máli allra mála.
Enda svo þessar fáu línur með
setningu Páls Postula, í bréfi
hans til Fillipimanna (4.8.): Allt
sem er satt, allt sem er sómasam-
legt, allt sem er rétt, allt sem er
hreint, allt sem er elskuvert, allt
sem er gott afspurnar, hvað sem
er dyggð og hvað sem er lofsvert.
Drottinn hjálpa oss að hugfesta
það.“
— Útvarp
Framhald af bls. 5
20.30 Dulskynjanir
Ævar R. Kvaran flytur
sjöunda og síðasta erindi
sitt: Vfsindaleg rannsókn.
21.10 Svíta nr. 2 f c-moll eftir
Bach
Julian Bream leikur á gftar.
21.30 Utvarpssagan:
„Breyskar ástir“ eftir Óskar
Aðalstein Erlingur Gfslason
leikari les (2).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Búnaðarþáttur
Matthfas Eggertsson bænda-
skólakennari talar um kjara-
mál bænda f Noregi o.fl.
22.35 Kvöldtónleikar
Fflharmonfusveitin f Berlín
leikur Sinfónfu nr. 7 f e-moll
eftir Anton Bruckner; Eugen
Jochum stjórnar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Haustlaukakynning%
sunnudag k/. 2-7
50 tegundir
tú/ípana
ÍÉeA. Ék 131
Látið
fagmenn
aðstoða
við val
haustlauka
Jólahýasyntur
Jólatúlípanar
sími, 36770
— 86340
— Minning Inga
Framhald af bls. 38
hans dó og varð þvi að hætta
námi.
Hann er póstfulltrúi við póst-
húsið hér í Reykjavík.
Þau hjón hafa orðið fyrir djúp-
um sorgum, en þar sem ég er Ingu
náskyld þótt hún hafi allt mitt líf
verið mín bezta vinkona get ég
með engu móti fest allar þær
hörmungar á blað, það má telja
undrun að hennar sálarlíf skyldi
vera heilbrigt eftir allt það sem
þau hjónin hafa liðið.
Ásgeir er mesta ljúfmenni og
stóðu þau hjón saman sem ein
persóna i öllum sorgum — og
gleði, — fram til hennar hinztu
stundar reyndist hann henni sem
einstakt göfugmenni og vil ég
votta honum og hans skylduliði
mína dýpstu samúðð.
Vegna skyldleika hennar við
mig langar mig til þess að þakka
presti hennar, öllu tónlistarfólki
og söngfólki sem fram kom bæði
við kistulagningu hennar og i
Fossvogskapellu við minningarat-
höfn hennar þar og einnig vil ég
þakka„ hinar höfðinglegu móttök-
ur að Melgraseyri.
Það sýnir hve marga vini Inga
átti að kapellan var full til dyra.
Hún var til moldar borin að Mel-
graseyri við Isafjarðardjúp við
hlið þriggja sona sinna og tengda-
foreldra.
Aldrei heyrði maður æðruorð
frá hennar vörum meðan hún
barðist við hinn banvæna sjúk-
dóm.
Svo vil ég kveðja hana með
þeim orðum sem við heyrum svo
oft en fela svo mikið í sér ef að er
gáð: Drottinn gef dánum ró hin-
um líkn er lifa.
Vinkona.
'Allsherjar
AIISI
\ rýmmgar- og
bútasala
afs/áttur.
einstakt tækifæri
Opió til hádegis á laugardag.
vegna fyrirhugaðs flutnings
verzlunarinnar bjóðum við nú margar
gerðir gólfteppa á stórlækkuðu verði.
Gólfteppabútar á gjafverdi.
Allt á að seljast.