Morgunblaðið - 03.10.1976, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 03.10.1976, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1976 46 Fjalakötturinn II — Sýningar í nóvember 26. sept. síðastliöinn fjallaði ég nokkuð um sýningar Fjala- kattarins út októbermánuð, en hér verður fjallað um þær myndir sem sýna á í kiúbbnum í nóvember. 4., 6. og 7. nóv.: L’Avventura, 1960, (Ævintýr- ið) eftir ítalska leikstjórann Michelangelo Antnioni var sýnd í Bæjarbíói fyrir einum 10 eða 12 árum síðan, og eflaust muna ýmsir eftir henni frá þeim tíma. L’Avventura var sýnd á kvikmyndahátíðinni i Cannes 1960 en vann ekki til 1. verðlauna, (hún hlaut hins veg- ar sérstök verðlaun) þar sem mynd Fellinis, La Dolce Vita, vakti meiri athygli áhorfenda og dómenda. Það er athyglis- vert, að báðar þessar merku myndir fjalla i grundvallar- atriðum um sama efnið um, sið- fræði, tilfinningar og hugmynd- ir nýs tíma um nýtt gildismat á gömlum hefðum og hindurvitn- um. I stað þess að rekja efni L’Avventura, sem fjallar um óstýrilátar tilfinningar ófull- kominna mannvera, væri fróð- legt að vitna í nokkrar setning- ar í dreifibréfi, sem Antonioni skrifaði og lét dreifa fyrir sýn- inguna í Cannes 1960. Þar dreg- ur hann fram skarpan saman- burð á vísindum annars vegar, sem sífellt þreifa fyrir sér inn í framtíðina og ávallt eru tilbúin til að neita sannleika gærdags- ins, ef það yrði til þess að auka skilning þeirra á framtíðinni, þó ekki væri nema um smábrot, — milli visindanna annars veg- ar og rígbundinnar, stirðnaðrar siðfræði hins vegar, sem menn gera sér grein fyrir hvaða gall- ar eru á, en sem fá þó að standa óbreyttir. „Frá fæðingu er mað- urinn hlaðinn tilfinningum," segir Antonioni, „sem alls ekki henta þörfum hans. Þær móta hann án þess að hjálpa honum, fjötra hann án þess að vísa honum leið úr ógöngunum. Svo virðist, sem .nanninum hafi ekki enn tekist að losna undan þessu oki. þessari arfleifð. Hann starfar, hatar, þjáist, rek- inn áfram af siðfræði og goð- sögnum, sem þegar voru orðin úrelt á tímum Hómers. Þetta er fáránlegt, — i dag, þegar við erum um það bil að hefja ferðir til tunglsins. En svona er staða okkar nú samt!“ (Þetta minnir óneitanlega nokkuð á hug- myndir Kubricks í 2001). Antonioni segir síðan, að á síð- ustu árum hafi tilfinningar ver- ið grandskoðaðar en án nokk- urs árangurs, ekki hafi verið hægt að finna neinar nýjar til- finningar, né heldur að ráða nokkra bót á þessu vandamáli. „Ég ætla mér ekki þá dul, mér væri það ómögulegt, að þykjast geta fundið lausnina. Ég er ekki siðapostuli. Mynd min, L’Avventura, er hvorki ákæra né prédikun. Hún er saga, sögð í myndum og ég vona, að fólk sjái ekki í henni nýja, blekkj- andi tilfinningu, heldur geti það séð með hvaða hætti það er mögulegt að blekkja sínar eigin tilfinningar.” — „Lokaniður- staðan, sem persónur minar komast að, er ekki siðferðilegt stjórnleysi. Þær öðlast, þegar best tekst til, einskonar gagn- kvæma meðaumkun. Þið mun- uð segja mér, að einnig þessi niðurstaða sé gömul. En hvaða möguleikum öðrum er til að dreifa?” Með þessari yfirlýsingu fyrir sýningu myndarinnar hefur Antonioni vafalítið viljað vekja athygli áhorfenda á þvi, að þrátt fyrir stöðugar nýjungar og framfarir í heiminum og nýj- ar hugmyndir, sem krefjast breyttrar hegðunar, þá stendur tiifinningalif mannsins I stað. Þar af leiðandi á hann í árekstr- um við umhverfið, honum verð- ur fótaskortur á taflborðinu, þar sem stöðugt er breytt um leikreglur og eina lausnin í augnablikinu er að hann viður- kenni auðmjúklega takmörk sín og vanmátt. 11., 13. og 14 nóv.: Rashomon, gerð 1950. 18., 20. og 21. nóv.: Að lifa.(Ikiru), gerð 1952. Báðar þessar japönsku mynd- Takashi Shimura, einn af helstu leikurum Kurosawa I mynd hans Ikiru. Toshiro Mifune, sem leikið hefur 1 flestum myndum Kurosawa f Rashomon. Kvikmyndasýnmgar í Menn- ingarstofnun Bandaríkjanna Menningarstofnun Banda- ríkjanna hefur sent frá sér dagskrá um kvikmyndasýn- ingar, sem haldnar verða í húsakynnum stofnunarinnar að Neshaga 16, á hverjum þriðjudegi kl 17:30 og 20:30 fram til áramóta Öll- um er heimill ókeypis að- gangur. Dagskránni er skipt nokkuð niður, þannig að í október eru sýndar myndir, sem tengdar eru við tónlist og dans, bæði heimildar— og fræðslumyndir (um Alvin Ailey og Alwin Nikolais, um klassískan ballett o fI ) og skemmtimyndir eins og Top Hat, með Fred Astaire og Ginger Rogers, og The Wisard of Oz með Judy Gar- land. í nóvember er yfirskrift- in „kvikmyndir" og meðal efnis má nefna Nanook of the North, hina klassísku heimildarmynd Robert Flahertys um líf eskimóanna, sem hann gerði 1920 — '21 Þá verða sýndar fjórar stuttar myndir eftir og með Chaplin, en þær nefnast The Tramp, The Woman, The Bank og Police. Chaplin gerði þessar myndir 1 91 5 og '16, þegar hann var á samningi við Essanay- fyrirtækið, en sá samningur kvað á um, að Chaplin skyldi gera 35 myndir á ári, en hann gerði hins vegar 14 á jafnmörgum mánuðum. Þá er einnig á dagskrá myndin The Hustler eftir Robert Rossen, með þeim Paul Newman, Jackie Gleason og George C. Scott í aðalhlutverkum, og einnig vérða sýndar ýmsar stuttar myndir. í desefnber, sem ber yfirskriftina „Staðir, USA", verða sýndar nokkrar heimildarmyndir og auk þess kvikmyndin Those Magnificent Men in Their Flying Machines, með stjörnuleikara í hverju hlut- verki. Nánari upplýsingar um þessar sýningar er hægt að fá í Menningarstofnuninni að Neshaga 1 6 ir eu eftir meistarann Kuro- sawa, sem óþarfi er að kynna hér. Rashomon er í rauninni ein saga, sögð fjórum sinnum. Ung hjón eru á ferð i skógi og hitta þar ræningja einn. Hann platar eiginmanninn afsíðis og bindur hann, og svivirðir síðan konuna fyrir framan hann. Um þetta ber framburði vitna saman, þegar þau eru yfirheyrð, en um það hvernig dauða eiginmanns- ins bar að höndum eftir þennan atburð er framburður ósam- hljóða. Ræninginn segist hafa drepið eiginmanninn í heiðar- legu einvigi, eiginkonan segist hafa drepið hann vegna þess að hann hataði hana eftir þetta, og eiginmaðurinn, sem talar í gegnum miðil, segist hafa fram- ið sjálfsmorð. Eina vitnið að atburðinum segir svipaða sögu og ræninginn, en honum er var- lega trúað, þar sem hann hefur orðið uppvís að lygum. Rashomon er ein þekktasta mynd Kurosawa en það er I rauninni aðeins tilviljun að svo er. Myndin var gerð fyrir Dahei-fyrirtækið í Japan, sem hafði aldrei trú á myndinni, hvorki á meðan hún var i vinnslu eða eftir að þeir fóru að sýna hana. Þá barst sú beiðni frá kvikmyndahátíðinni i Fen- eyjum að japanir veldu ein- hverja mynd til sýningar þar og japanir, sem voru allsendis óvanir að taka þátt I vestrænum kvikmyndahátíðum, höfðu ekki hugmynd um, um, hvaða mynd þeir gætu sent. Rashomon kom ekki einu sinni til álita. Beiðnin frá Feneyjum hafði hins vegar einnig komið til konu nokkurr- ar, sem stjórnaði Italiafilm í Japan og þegar hún hafði skoð- að nokkrar myndir stakk hún upp á Rashomon, en það vakti mikla andstöðu, og sérstaklega hjá Dahei, og það var með mestu tregðu, að þeir sendu myndina. Þegar Rashomon vann síðan fyrstu verðlaun í Feneyjum 1951, rak japana í rogastans. Þeir höfðu ekki trú- að því, að vesturlandabúar kynnu að meta japanska leiktil- burðu og frásagnarmáta. Ef ekki hefði komið til þrákelni þessarar konu og kvikmyndahá- tíðin í Feneyjum, er ekkert lík- legra en Rashomon rykfélli nú á hillum Dahei-fyrirtækisins sem hver önnur meðalmynd. Ikiru merkir ,,að lifa“. Kuro- sawa hefur skrifað: „Stundum hugsa ég um minn eiginn dauða — ég hugsa um það að vera ekki lengur til, — og það voru þessar hugsanir, sem urðu kveikjan að Ikiru“.“ Sagan er um mann, sem veit að hann á aðeins hálft ár ólifað. Þegar gamli maðurinn, Watanabe, yf- irgefur lækninn með þessi tíð- indi, segir læknirinn við aðstoð- armann sinn: „Ef þú værir hann og ættir aðeins hálft ár ólifað, hvað mundir þú gera?” I myndinni reynir Kurosawa að svara þessari spurningu og svarið felst að nokkru i heiti myndarinnar að lifa, sú stað- reynd að vera til. Fyrstu við- brögð Watanabe er hræðsla, á næsta stigi reynir hann að halla sér að fjölskyldu sinni, en þar sem hann er ekkjumaður og sonur hans hefur nóg með sin vandamál og sinnar fjölskyldu, finnur hann enga huggun þar. Þá fyrst fer Watanabe að efast, sennilega í fyrsta sinn á ævinni um allt, sem hann hefur tekið sem sjálfsagða hluti hingað til. Að efast vekur tilfinningar, vekur lífskraft. Hann efast um skrifstofuna, sem hann vann á og þá tuttugu og fimm ára dyggu þjónustu, sem hann innti þar af höndum og — erfiðast af öllu — hann efast um son sinn. Þegar dauðinn nálgast, vaknar hann til vitundar um það, að hann er frjáls, að lífið er hans, og hefur alltaf verið það. Hann hefur bara ekki hugsað um áð- ur, meðan hann lifði eftir fast- mótuðum venjum, sem tóku af honum það ómak að efast. Eftir að hafa séð Ikiru fyrir einum niu árum minnist ég hennar enn sem stórkostlegar kvikmyndar, sem hafði óvenju- mikil áhrif á mig. Vonandi þurfa sem fæstir að missa af Ikiru, sem fjallar raunverulega um eina vandamálið, sem mannkynið á við að stríða, list- ina að lifa. Siðasta sýning i nóvember er á mynd Pietro Germis, Sedotta e Abbandonata (Fifluð og yfir- gefin), en um hana var fjallað 26. sept. sl. SSP Nanook, f samnefndri mynd eftir Robert Fiaherty.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.