Morgunblaðið - 03.10.1976, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1976
22_______
DJÁSN OG DÝRIR STEINAR
Vinsamlegast
endursendid
Koh-i-Noor
KOH-I-NOOR er frægastur allra gim-
steina Viktoría Bretadrottnmg fékk
hann að gjöf frá brezka Austurindíu-
félaginu árið 1850 Átti gimsteinninn
að vera tákn undirgefni Indverja við
hátignina
Um KOH-I-NOOR var sagt, að sá
sem eignaðist hann, mundi ráða öllum
ríkjum Það var því ekki að ástæðu-
lausu, að Pakistanar rituðu Bretum
nýlega og báðu þá vinsamlega að skila
steininum Pakistanar eiga lika
nokkurn siðferðilegan rétt til hans
Austurindiufélag-
ið rændi hinum
nefnilega frá
Punjab á sínum
tíma og
Pakistanar ráða
nú á þeim
slóðum.
Bréfið frá
Pakistönum setti
Breta i tvennan
vanda. KOH-
l-NOO.R hefur
lengi verið aðal-
djásnið i brezku
kórónunni Og
hvar ættu Bretar
að fá hæfilegan
stein í stað hans,
ef þeir skiluðu
honum? Hinn
vandinn er þó
öllu meiri. Ef
Bretar skiluðu
KOH-I-NOOR er hætt við þvi að
margar þjóðir færu að dæmi Pakistana
Ótaldir dýrgripir eru samankomnir í
söfnum i Bretlandi — og þeir eru ekki
allir vel fengnir Það á reyndar við um
safngripi fleiri þjóða Frönsk söfn eru
full dýrmæta frá Egyptalandi og Ítalíu
frá því að Napóleon var þar á ferðinni
og lét greipar sópa Til skamms tíma
voru þýzkir fornleifafræðingar mjög illa
séðir í Egyptalandi fyrir gripdeildir og
var þeim lengi bönnuð landvist þar
Bandaríkjamenn eru ekki heldur sak-
lausir Margir dýrgripir bandarískra
safna eru sjaldan eða aldrei sýndir
vegna þess, að þeir eru i söfnin komnir
með vafasömum hætti
í British Museum er höggmynda-
safn, kennt við Elgin lávarð Mun það
vera dýrmætasta einstakt myndasafn á
Vesturlöndum En myndirnar urðu ekki
til í Englandi; þær eru frá Grikklandi
Grikkir spyrjast fyrir um myndirnar
sínar á reglulegum fresti en Bretar
svara ævinlega því sama til og þeir
svöruðu árið 1815, er Grikkir
heimtuðu myndirnar fyrst aftur. Segja
Bretar, að Elgin lávarður hafi bjargað
myndunum frá tortímingu; tyrkneskir
embættismenn hafi nefnilega ætlað að
mylja þær i steinlím og nota í íbúðar-
hús Þetta mun mega færa til sanns
vegar. Jafnan hefur farið afleitt orð af
Tyrkjum í þessum efnum En hitt er
svo annað, að nú er liðin hálf önnur
öld frá því að Grikkir endurheimtu
sjálfstæði sitt, svo
varla er stætt á þvi
að halda myndun-
um öllu lengur fyr-
ir þeim Og Grikkir
fyrir sitt leyti hata
Elgin sáluga lávarð
jafnmikið og þeir
dá Byron stéttar-
bróður hans.
Það hefur jafnan
verið gróðavegur
að ræna fornminj-
um, því kaupendur
hefur ekki skort
Sjaldan hefur ráns-
skapur þessi staðið
með meiri blóma
en á þessari öld.
Það er ekki heldur
von á góðu þegar
virt og mikils met-
m söfn kaupa þjóf-
stoina muni um-
yrðalaust Stórtækastir munu Banda-
rikjamenn Eru víst einhverjir illa
fengnir munir i flestum bandarískum
söfnum bæði almenningssöfnum og
einkasöfnum En ekki er gott við þessu
að gera Forstöðumenn almennings-
safna verða auðvitað að standa í
stykkinu og búa söfnin sem bezt, og
kaupi þeir ekki nema strangheiðarlega
fengna gripi er hætt við þvi að hægt
bætist i söfnin Þess vegna stilla jafn-
vel beztu safnverðir hnýsni sinni
stundum í hóf, þegar vafasamir menn
kom og bjóða þeim fornminjar til
kaups.
Viðskiptahættirnir á alþjóðlegum
listaverka- og fornleifamarkaði eru slík-
ir, að manni fer að finnast KOH-
l-NOOR tiltölulega vel fenginn, þegar
maður hugsar um þá Líklega megnar
þessi röksemd nú ekki að sefa
Pakistani
— MICHAEL MCNAY
Koh-i-Noor trónar fremst á kórónu
brezku drottingarmóðurinnar.
MYNDLIST
Einum of mikið ?
LISTIN hefur oft átt erfitt uppdráttar á umliðnum
öldum og er svo enn. Enskur listamaður tók sig til og
málaði heljarmikla veggmynd, 13 m á hæð og 20 á
breidd, á gafl húss eins f Voelasstræti í Toxteth í
Liverpool. Myndin var af Guðsmóður með Jesúbarnið.
Var hún svo stór, að listamaðurinn treystist ekki til að
mála hana einn, heldur fékk hann með sér átta
atvinnulaus ungmenni og gekk verkið bæði fljótt og
vel. Áður en byrjað var á myndinni fékk listamaðurinn
blessun borgarráðsins í Liverpool og ótalinna um-
hverfis-, skipulags og fegrunarnefnda. Leizt þeim
ollum vel á fyrirætlunina. Aftur á móti gleymdist að
spyrja ibúana I Voelasstræti um hana. En nú eru þeir
búnir að láta álit sitt I Ijós. Hafa þeir ritað borgaryfir-
völdum, allir sem einn, og krefjast þess, að „allt
draslið", þ.e. veggmyndin, verði rifin niður umsvifa-
laust. Frú Olwen Moran, sem stóð fyrir undirskrifta-
söfnuninni, komst svo að orði við blaðamenn: „Emb-
ættismenn geta svo sem sagt, að þetta sé frábært
listaverk. Ekki þurfa þeir að búa við það. En min
skoðun er sú, að „listaverkið" sé blettur á hverfinu.
Það hefði verið nær að nota alla þessa málningu á
dyrnar og gluggakarmana hjá gamla fólkinu hérna í
götunni!" Og hananú. Ritari fegrunarnefndar, frú
Betty McGorry, varðist hins vegar eftir megni; kvaðst
hún vita, að mörgum hefði fallið myndin illa — en sér
heyrðist, að dregið hefði úr óánægju sumra, enda ynni
myndin ábyggilega á við kynningu. Menn þyrftu oft
tima til að venjast listaverkum. . .
Listamaðurinn sjálfur, David Vaughan, brást illur
við hinni neikvæðu gagnrýni. „Ég hef málað fleiri en
100 veggmyndir, bæði í Evrópu og Bandarlkjunum,"
sagði hann. „Og þetta er þjóðþrifaverk i fleiri en
einum skilningi. Ég hef atvinnulausa unglinga mér til
aðstoðar, borga þeim sæmilega og kenni þeim jafn-
framt sitthvað nýtilegt um myndlist. Yfirvöldin eru
farin að skilja og meta þessa viðleitni mína og styrkja
mig til dáða. Mér finnst fólk furðu ósvifið að kvarta
yfir þessu. í þessari mynd f Voelasstræti eru margvís-
legur fróðleikur um Ifffærafræði, byggingarlist og
sögu og gætu sumir margt af henni lært, ef þeir hefðu
áhuga á þvf. En það er bersýnilegt, að þeir eru til, sem
geta ekki hugsað sér neitt fegurra en gráa múrveggi f
endalausum röðum. . ."
Frú Moran, sú mikla baráttukona, lét þó ekki
segjast. „Þetta á bara ekki við hér," sagði hún
fastmælt. „Það má vel vera, að þurfi að Iffga hverfið
svolítið — en þetta er nú einum of mikið. . ." Og aðrir
fbúar við Voelasstræti standa ótrauðir með henni. Er
nú verið að velja menn f sendinefnd á fund þingmanns
hverfisins. Aldregi víkja. . .
— THE GUARDIAN.
Rosalynn ög Jimmy Carter: Kynntust í æsku. Verða þau nú samferða inn
í Hvíta húsið?
Konan
hans
Carters
VERÐI Jimmy Carter, fram-
bjóðandi demókrata forseti
Bandarfkjanna verður Rosalynn,
eiginkona hans, Ifklega áhrifa-
mesta forsetafrú frá þvf að
Eleanor Roosevelt var á dögum.
Þá fá bandarfskar góðan
málsvara. Rósalynn er kona vel
gefin og aðlaðandi, góð eiginkona
og móðir, og jafnframt sjálfstæð
og einbeitt.
Þau Jimmy og Rosalynn hafa
þekkzt frá því í æsku. Þau gengu í
hjónaband skömmu eftir að
Jimmy lauk prófi frá liðsforingja-
skóla sjóhersins. Rosalynn var þá
19 ára og hafa þau nú verið gift f
30 ár. Au hjón eignuðust þrjá syni
á sjö fyrstu hjónabandsárunum. Á
þeim árum stjórnaði Jimmy kaf-
báti og var oft langdvölum að
heiman. Það kom þvf a ð mestu á
Rosalynn að ala drengina upp.
Auk þess varð hún sífellt að stofna
heimili á nýjum stöðum þar sem
Jimmy hafði bækistöðvar hverju
sinni.
Rosalynn vandist því snemma
að hafa nokkuð fyrir Iffinu. Faðir
hennar lézt, þegr hún var 13 ára.
Móðir hennar framfleytti svo fjöl-
skyldunni með kjólasaumi, en
Rosalynn hjálpaði henni og vann
jafnframt f snyrtistofu. Hún stóð
straum af námi sfnu f gagnfræða-
og menntaskóla og utskrifaðist frá
menntaskólanum f Americus, sem
er skammt frá heimabæ hennar,
Plains f Georgfufylki.
Rosalynn kom fyrst fram opin-
berlega að marki í annarri
kosningaherferð Jimmys; hann
var þá f kjöri til rfkisstjóra-
embættis. Rosalynn gerði sérfljót-
lega grein fyrir því, að betra væri a
ð hún færi ein á atkvæðaveiðar
fremur en að fylgja eiginmanni
sfnum. Nú var hún heldur feimin
og hlédræg, en lét þó til skarar
skrfða og áður en varði var hún
farin að halda ræður, ræða við
blaðamenn og hrista hendur blá-
ókunnugra manna f stórum stfl um
allar trissur. Þar með var hún
komin f slaginn. Nú f for-
kosningunum fór hún kosninga
herferðir um 34 fylki. Um þessar
mundir er hún f kosningaleiðangri
fyrir mann sinn um allt land og
flykkist fólk að hvarvetna þar sem
hún kemur. Hún fellur mönnum
vel í geð, er lagleg kona og ung-
leg, hárið brúnt og augun skær og
Ijós og brosið hlýlegt og heillandi.
Helztu áhugamál hennar eru
hagsmunir hugfatlaðra og
aldraðra. Hún fékk áhuga á þeim
efnum, þegar hún var að berjast
fyrir Jimmy f rfkisstjóra-
kosningunum í Georgfu. „Fólk
kom oft til mín og rakti raunir
sinar fyrir mér," segir hún. „Eg
hitti margar mæður þroskaheftra
barna, eiginkonur drykkjumanna
og fjölskyldur fatlaðra eða
aldraðra og fæst þetta fólk átti
kost á nokkurri aðstoð f vanda
sínum. Dag nokkurn var ég
snemma á ferli og ræddi við fólk,
sem var að koma af vakt f
baðmullarverksmiðju. Meðal þess
var kona ein, sem sagði mér að
eiginmaður hennar hefði svo lág
laun að þau nægðu fjölskyldunni
ekki til lífsviðurværis. Þau hjónin
áttu þroskaheft barn. Gætti konan
þess þangað til maður hennar kom
heim á kvöldin, en þá tók hann við
og hún fór á næturvakt.
Það vildi svo til að Jimmy átti
að halda ræðu þarna f borginni um
kvöldið eftir. Ég slóst f hóp
áheyrenda og lét berast með
straumnum, þegar fólkið ruddist
að til þess að heilsa Jimmy með
handabandi. Þegar hann kom að
mér spurði hann forviða: „Hvað f
ósköpunum ert þú að gera hér?"
„Ég ætlaði að spyrjast fyrir um
það, hvað þú hygðist gera fyrir
hugfatlað fólk, þegar ef þú yrðir
kjörinn rfkisstjóri," svaraði ég, en
hann sagði að bragði: „Ég ætla að
búa svo vel að þvf, að til þess
verði tekið um allt land. Og ég
ætla að setja þig yfir þau mál." í
stjómartfð Carters varð geysileg
framför í málum hugfatlaðra og
aldraðra f Georgíu og átti Rosa-
lynn ekki sfztan þáttinn f því. Var
hún óþreytandi að leggja til breyt-
ingar á lögum um þessi efni, virkja
starfskrafta manna og vinna
almenning til fylgis við ýmsar um-
bætur.
Hún er fyrst og fremst fram-
kvæmdamanneskja eins og maður
hennar. Hún er vön þvf að treysta
helzt á sjálfa sig og hefur tamið
sér ýmsa mannkosti sem oft koma
í góðar þarfir, þegar áætlanir fara
úr skorðum eins og oft verður f
stjórnmálum. Hún lætur ekki
bugast þótt blási á moti.
Til skamms tfma var mikil
fátækt í sveitum í Suðurríkjunum.
Fólk þar um slóðir þurfti jafnan að
vinna hörðum höndum fyrir
brýnustu nauðsynjum, enda varð
þarna til seigur, hagsýnn og dug-
mikill stofn. Rosalynn Carter er
komin af slfku fólki. Aðal hennar
er styrkur og samúð. Sigri þau
Carterhjón f þessum kosningaslag
verður það m.a. vegna þess, að
þau eru búin „gömlum og góðum"
eiginleikum, sem almenningur
kann nú vel að meta, orðinn lang-
þreyttur á stjórnmálamönnum,
sem skeyta ekki um almennt
siðgæði og fornar dyggðir.
— WILLIAM W. SHANNON
VANGASVIPUR