Morgunblaðið - 03.10.1976, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. OKTÖBER 1976
36
TOYOTA SAUMAVELIN
cr óskadraumur kontinnar.
Toyota-saumavclin
cr mcsl sclda saumavclin á Islandi
XOYOTAvarahlutaumboðiö h.f
Ármúla 23, Reykjavík, sími 81733.
Einkaumboð á íslandi.
tTJ*
söfaseffió
hittir beint í mark
TODDÝ sófasettiö er sniðið
fyrir unga tolkið
Verð aðeins kr. 109.000,-
Góðir greiðsluskilmálar.
Sendum hvert á land sem er.
ST.
• AUÐBREKKU 63 KÓPAVOGI SÍMI 44600
— Hús með reisn
Framhald af bls.47
fasi I heimsóknir. Það var ekki
bankað, heldur opnaðist útidyra
hurðin hljóðlega, en I ganginum
heyrði maður tónað: ,,Hér sé Guð
og hér sé friður, er nokkuð að
borða."
Það komu líka margir gestir að
Ofanleiti og þá bauð frú Lára til
stofu og borð hlóðust krásum.
Eitt sinn komu tvö skáld I heim
sókn til séra Halldórs og frú Lára
hafði lagt á borð I stofu. Fínustu
stássdúkar voru á borði, silfur-
borðbúnaður, postulínsstell af
vönduðustu gerð og kristalsglös
fyrir utan allar þær tegundir af
meðlæti. Annað skáldið hóf að
lesa úr verkum sínum undir borð-
um, en til þess var leikurinn upp-
haflega gerður. Klerkurinn ætlaði
að láta álit sitt I Ijós að loknum
lestri.
En þar sem skáldskapurinn var
feikn leiðinlegur og Iftið
manneskjulegur þá fóru hitt
skáldið og séra Halldór að rabba
saman um þætti jarðlffsins. Sá er
las upp hækkaði smátt og smátt
róminn í upplestri sfnum án þess
að hika og sama gerðu hitt skáldið
og klerkurinn. Lfður svo unz upp-
lesarinn er orðinn fúll yfir móttök-
unum og f kafla f sögu sinni þar
sem hann vill leggja áherzlu á og
vekja athygli, tekur hann til þess
ráðs f bræði sinni að hrifsa f eitt
horn stássdúksins með heklverk-
inu og þrffa hann af borðinu með
öllu sem á þvf var og fór það
autvitað f einn graut og allsherjar
mask.
Um hæl veitti séra Halldór upp-
lesara sfnum þá athygli, sló á lær
sér og hrópaði upp yfir sig með
bros á vör: ,,Ho, ho, nú sé ég að
þú ert skáld, mikið skáld. Mamma
(frú Lára), meira postulfn á borðið
kona, súkkulaði og rjóma."
Nú er Ofanleiti horfið, vinur á
braut, en enn lúrir minning f
minni, gras í varpa. — á.j.
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
AKiLVSINCA
SÍMINN KK:
22480
Bergur með
100 tonn
af síld
til Eyja
I GÆRMORGUN var vitað um
einn bát með góðan síldarafla.
Var það Bergur VE með 100 tonn
og kom hann til Vestmannaeyja
skömmu eftir hádegi. Síldina
fékk Bergur á miðunum austan
við Ingólfshöfða. Tveir eða þrlr
aðrir bátar voru á sömu miðum,
en ekki er vitað um afla þeirra.
Brotizt
inn í Röðul
BROTIZT var inn í veitingahúsið
Röðul í fyrrinótt og þaðan stolið
skiptimynt og einhverju af
áfengi. Skiptimyntin, sem hvarf,
var talið hafa verið óvenjumikil,
en ekki var fullkannað hversu
mikið þýfið var, þar sem I gær
hafði ekki náðst í alla þjóna og
þjónustulið veitingahússins til
þess að fá nánari upplýsingar um
hvað var á staðnum.
Málið er í rannsókn hjá Rann-
sóknarlögreglunni.
— Geysimikil
ölvun
Framhald af bls. 48
komið fyrir á upptökuheimilinu í
Kópavogi. Að sögn Magnúsar
Einarssonar aðalvarðstjóra var
það áberandi í fyrrinótt hve
drykkjuskapur var mikill meðal
fullorðinna, en oftar eru það
unglingarnir, sem hafa verið f
fréttum eftir helgarnar vegna ölv-
unar.
Eins og undanfarnar vikur
safnaðist hópur unglinga á Hótel
íslandsplanið. Að sögn Erlends
Sveinssonar varðstjóra voru ungl-
ingarnir sem fyrr með ærsl og
töluvert bar á ölvun. Löggæzla
var með mesta móti, samtals 16
lögreglumenn á vakt í miðbæn-
um. Varð að taka nokkra unglinga
og færa þá heim til sín. „Við höf-
um orðið að hafa afskipti af
krökkum allt niður i 12 ára aldur
vegna ölvunar. Og það alvarleg-
asta er að mínum dómi, að oft
þegar við komum með unglingana
heim eru heimilin ekki undir það
búin að taka við þeim vegna ölv-
unar foreldra,“ sagði Erlendur
varðstjóri. Töluvert bar á flösku-
brotum eins og áður, en
skemmdarverk voru með minnsta
móti, líklega vegna öflugrar lög-
gæzlu.
Lögregluvarðstjórar, sem Mbl.
talaði við, voru sammála um að
ein helsta ástæðan fyrir mikilli
ölvun væri sú, að á föstudaginn
hefði farið saman útborgunardag-
ur mánaðar- og vikulauna.
TO°
Bezti pappírinn^"
kémur frá Finnlandi
Finnska skóglendið
er heimsins bezta hráefni.
Finnskar pappírsvörur eru
framleiddar af hinni alkunnu
finnsku smekkvísi og vandvirkni.
Aldagömul reynsla og háþróuð tækni
sameina úrvals gæði og lágt verð.