Morgunblaðið - 03.10.1976, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. OKT0BER 1976
38
t
Systir okkar
PÁLFRÍÐUR HELGADÓTTIR
andaðist að Hrafnistu 1 okt
Þorsteinn B. Helgason og systur.
t
Útför föður mins og tengdaföður okkar
JÓHANNS GRÍMS GUÐMUNDSSONAR
Faxaskjóli 1 8
fer fram mánudaginn 4 okt frá Fossvogskirkju, kl 1 30
Þeim, sem vildu minnast hins látna, vinsamlegast láti Slysavarnafélag
íslands njóta þess .. ... ., .
Verna Jóhannsdóttir
Halldór Auðunsson
Sesselja Stefánsdóttir
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður
okkar
GUÐRÚNAR FILIPPUSDÓTTUR
Reynimel 76
Guðbjörg Einarsdóttir
Jakobfna Björg Einarsdóttir
Þórunn Einarsdóttir
t
Eigmmaður minn
TRYGGVI SALOMONSSON
fyrrv. fangavörður
Meltröð 10, Kópavogi
sem lézt 24 sept sl verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudag
inn 5 okt kl 3
Bjarney Holm Sigurgarðsdóttir
t
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og vmarhug við
andlát og útför
JÓHANNS HANNESSONAR
Norðurbrún 26
Astrid Skarpaas Hannesson
Gunnhild og Sigurvin Ólafsson
Hannes og Kristln Einarsdóttir
t
Við þökkum mnilega öllum er sýndu samúð og vinarhug við fráfall
systur okkar
KATRÍNAR SIGURJÓNSDÓTTUR
Hellisgötu 22,
Hafnarfirði
Sérstakar kveðjur sendum við vinum hennar og samferðarfólki og
biðjum því Guðsblessunar
Soffia Sigurjónsdóttir Jónína Sigurjónsdóttir
Kristinn Sigurjónsson Einar Sigurjónsson
t
Þokkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför konu minnar, móður
og ömmu
SIGRÍÐAR ELÍSABETAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Sigurður Hólmsteinn Jónsson
Baldur Sigurðsson Hulda Þorláksdóttir
Magnús Sigurðsson Kristjana Karlsdóttir
Ólöf Helga Sigurðardóttir Ásmundur F. Brekkan
Hólmsteinn Sigurðsson Guðný Pétursdóttir
og barnaborn
t
Alúðarþakkir til allra nær og fjær, sem sýndu okkur hlýhug og samúð
við andlát og útför
EINARS J. EINARSSONAR
verkstjóra
Bergþórugötu 9
Ásta Guðjónsdóttir Anna Hjálmarsdóttir
Kristleifur Einarsson Jón Árnason
Margrét Einarsdóttir
og barnabörn
Inga Markúsdótt-
ir — Minning
Fædd 23. aprll 1918.
Dáin 8. ágúst 1976.
Ilátl ég kalla, hæðir fjalla,
hrópið með til Drottins halla.
Mínum rómi, Ijóssins Ijómi,
lyft þú upp að llerrans dómi.
Fr vil kvaka, óg vil vaka,
allt til þess þú vilt mig taka.
Til þfn hljóður, (*uð minn góður,
Kræt ég eins og barn til móður.
M.Joeh.
Ég stóð við iítið rúm sem venju-
lega er kallað líkkista, litlum lin-
dúk var svipt frá, ég sá silfurgrátt
hár liðast í fögrum bylgjum yfir
hvitann koddann og fagurlega
skapað hátt kúpt enni — en aug-
un voru lokuð.
Nú sá ég hreinleikann og þá ró
sem yfir öllu hvilir þegar lífs-
stríði og baráttu þessa jarðlífs er
lokið.
Ung vann ég við slík störf sem
kistulagningu, stundum tvær á
morgni, líklega er það þess vegna
sem mér finnst ég verða alltaf að
sjá undir líndúkinn. Þar er feg-
urð að sjá. Þessi lýsing hér að
ofan er af vinkonu minni elsku-
legri. hún hét Ingileif Guðbjörg
Markúsdóttir fædd 23. april 1918 í
Skáladal í Sléttuhreppi, foreldrar
hennar voru Herborg Arnadóttir
Sigurðssonar bónda í Skáladal og
Markús Finnbjörnsson frá Sæbóli
Áðalvík í sama hreppi.
Foreldrar Ingu eins og hún var
jafnan kölluð, eignuðust ellefu
börn, en fjögur dóu i æsku. Árið
1928 dró dimmt ský yfir æsku-
heimili Ingu þá voru aðeins tvö
börn fermd, hinn hvíti dauði,
berklarnir heltóku heimili
hennar svo vaTt var foreldrum
hennar hugað líf, móður sina
missti hún eftir fjögurra ára
sjúkrahúsvist á sjúkrahúsi tsa-
fjarðar.
Faðir Ingu komst til nokkurrar
heilsu eftir fimm ár og dó hann í
hárri elli, þá var ekkert sjúkra-
samlag i þessu blessaða landi,
hvað þá tryggingar. Faðir Ingu
varð því að koma börnunum öll-
um fyrir hingað og þangað, hann
var maður stoltur og átti sjálfur
útgerð og útvegaði mörgum at-
vinnu í Aðalvík en litla hjálp var
þar að fá. Hann seldi því allt sitt
til þess að geta borgað þann
kostnað sem af þessum veikind-
um stafaði. Inga hafði þvi láni að
fagna að komast til góðs fólks
eftir nokkurra ára vinnu í vistum.
Þetta góða fólk voru hjónin frú
Petra Guðmundsdóttir og
Höskuldur Jónsson bóndi í Tungu
í Nauteyrarhreppi, þau tóku hana
sem dóttur sína í orðsins fyllstu
merkingu.
Frú Petra sem fann fljótt að
Inga hafði músíkgáfu og góða
rödd kom henni því til náms til
Sigvalda Kaldalóns, læknis og
tónskálds, sem þá var fluttur til
Grindavíkur, en eflaust hafa þau
þekkst frú Petra og hann því
hann gegndi læknisþjónustu i tsa-
fjarðardjúpi en hún var ljósmóð-
ir.
Meiningin var að Inga lærði að
spila á orgel en Sigvaldi sá að
rödd hennar var góð og lét hana
syngja þegar hann samdi sin
yndislegu sönglög og oftar.
Inga var Iíka kostuð af þeim
hjónum í Tungu i húsmæðraskóla
ísafjarðar.
Frú Petra var mjög dugleg kona
og hjálpfús, það þekki ég af eigin
reynslu.
Inga vildi heldur syngja en
spila og söng hún í öllum óperett-
um og óperum sem hér hafa verið
fluttar þar til hún kenndi þess
sjúkdóms er leiddi hana til hinztu
hvílu.
Hún var í Tónlistarkórnum,
þjóðleikhúskórnum og fleiri kór-
um hér í borg en kirkjukórar
voru henni hjartfólgnastir, þar
söng hún einnig með sinni björtu
sópranrödd.
Inga giftist Ásgeiri Höskulds-
syni, elzta syni hjónanna í Tungu,
hann var í fjórða bekk mennta-
skólans á Akureyri þegar faðir
Framhald á bls. 15
P VESTUR ÞÝZK GÆÐAVARA
LT-SENDIBÍLLINN
er nýjasti vöruflutningabíllinn
LT-SENDIBÍLLINN er með vatns-
kælda fjögurra strokka benzinvél, 75 ha., —
stóra rennihurð á hlið og tvöfalda vængjahurc
að aftan.
LT-SENDIBÍLLINN er hagkvæmur,
rúmgóður og auðveldur í hleðslu og afhleðslu.
Lipur og léttur í borgarumferð og rásfastur úti á
góðum vegum.
Kynnið yður kosti nýja
LT-sendibílsins.
VW LT SENDIBÍLLINN er fáan
legur af ýmsum gerðum til þess
að uppfylla hinar margvíslegu
vöruflutningaþarfir mismunandi
fyrirtækja.
HEKLA hf.
Laugavegi 170—172 — Sími 21240