Morgunblaðið - 02.11.1976, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÖVEMBER 1976
33
Fyrirlestrar
um nútímalist
að Kjarvals-
stöðum
HAFINN er að Kjarvalsstöðum
flutningur á fyrirlestrum um nú-
tfmalist. Flytjandi þeirra er Aðal-
steinn Ingðlfsson, listfræðingur,
og fara þeir fram I fundarsal
Kjarvalsstaða. Aðgangur er öllum
heimill meðan húsrúm leyfir og
hefjast þeir kl. 17.30 hvern
fimmtudag. Tveir þeirra hafa
þegar verið fluttir og fjölluðu
þeir um forvera, þá Van Gogh,
Gaugin og Cézanne og um fau-
visma. Fyrirlestrarnir sem eftir
eru eru þessir:
Expressjónismi í Þýzkalandi 4.
nóv.; Kúbismi: Píkassó, Braque,
Gris og Léger 11. nóv.; Fútúrismi
og Vortex 18. nóv.; Dada 25. nóv.;
Súrrealismi 2. des.; Ný plastík:
Mondrian, van Doesburg 9. des.;
Amerískur afstrakt-
expressjónismi 16. des.; Amerísk
list 1950—65 13. jan.; Minimal og
Concept 20. jan.; Skúlptúr á 20.
öld 27. jan.
(Fréttatilkynning).
Gítar stolid
frá Stuðmanni
STUÐMAÐURINN Tómas Tóm-
asson varð fyrir þvi óláni í Stykk-
ishólmi nýverið að gleyma for-
látum bassagítar þegar hann var
þar að spila. Forráðamenn dans-
hússins á staðnum ætluðu að
senda honum gltarinn en áður en
það tókst, var búið að stela gripn-
um. Hefur lögreglan I Stykkis-
hólmi ekki náð að upplýsa málið,
þrátt fyrir miklar yfirheyrslur.
Þetta er Fender Precison bassa-
gitar, en slíkir gripir kosta I dag
150—200 þúsund krónur. Sérein-
kenni: Gitarinn er merktur núm-
erinu 61991 á málmplötu, og milli
3. og 4. band á hálsi hefur kvarn-
ast uppúr plötu. Þeir sem geta
veitt upplýsingar um það hvar
gítarinn er niðurkominn, eru
beðnir að snúa sér til næstu lög-
reglustöðvar. Á myndinni sést
Tómas suðmaður með gítarinn
sinn.
StSMoUmagjMir
Vesturgötu 16,
sími 1 3280.
Hjónín Magnús Kjartansson og Kolbrún Björgólfsdóttir við eitt
verka Magnúsar.
Málverk og leirker
að Kjarvalsstöðum
Magnús Kjartansson opnaði I
gær sýningu á verkum sfnum á
Kjarvalsstöðum. Á sýningunni
eru um 70 verk og sagði Magn-
ús að þau hefðu veríð gerð á
sfðustu þremur árum, og flest
þeirra væru tvfmáluð. Þetta er
fyrsta einkasýning Magnúsar
Kjartanssonar en árið 1972
sýndi hann ásamt Sigurði ör-
lygssyni f Norræna húsinu.
Magnús stundaði nám f Mynd-
lista- og handfðaskóla tslands f
þrjú ár, en fór svo til Danmerk-
ur til framhaldsnáms. Þar nam
hann við listaakademfuna f
Kaupmannahöfn og sagði
Magnús að kennari hans hafi
verið einn frægasti myndlistar-
maður Norðurlanda,
Mortensen. Sýning Magnúsar
verður opnuð kl. 15 f dag.
Kolbrún Björgólfsdóttir, sem
er eiginkona Magnúsar, sýnir
um þessar mundir hluti úr leir f
veitingasal Kjarvalsstaða. Kol-
brún, sem er leirkerasmiður,
nam árin 1969—73 við Mynd-
lista- og handiðaskólann og
stundaði framhaldsnám i
Kunsthandverker og Kunst-
industriskolen í Kaupmanna-
höfn 1973—75. Hún er nú kenn-
ari við Myndlista- og handfða-
skólann. Um sýningu sína segir
Kolbrún m.a.: Ég bý til margs
konar hluti úr leir, bæði hreina
og beina notahluti, svo sem sett
Verk Kolbrúnar eru til sýnis f
skápnum f veitingasal Kjar-
valsstaða.
af skálum, sykur- og rjómasett
svo og lokkrúsir af mörgum
stærðum, einnig skálar og diska
sem hafa notagildi en eru þó
hugsuð sem sjálfstæð mynd-
verk. Einnig má hér sjá stakar
tilraunir með glerung og hug-
myndir að skreytingum á blaut-
an, þurran og brenndan leir. Ég
nota japanska brennslutækni,
sem nefnist Raku, á fjórum litl-
um skálum á þessari sýningu og
sömuleiðis sýni ég diska með
lituðum leir, þ.e. postulinsleir
sem litaður er með málmoxíð-
efnablöndu.
Sýningin á verkum Kolbrún-
ar, sem hefur staðið yfir f
nokkra daga, mun standa til 13.
nóvember.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al'GLYSINGA-
SÍMINN KR:
22480
e
Morgunblaðið
óskar eftir
blaðburðarfólki,
Austurbær Uthverfi
Skiphölt 2 — 50 Blesugróf
Uppiýsingar í síma 35408
Bæjarstjórn Eskifjarðan
Mótmælir rafmagnslokun
Eskifirði, 29. okt.
BÆJARSTJÓRN Eskifjarðar
mótmælir harðlega þeirri ákvörð-
un stjórnar RARIK að loka fyrir
sölu á raforku til upphitunar
íbúðarhúsnæðis á samveitusvæði
Lagarfossvirkjunar. Bæjarstjórn-
in skorar á þingmenn kjördæmis-
ins að hlutazt til um afturköllun á
sölubanni þessu og að settar verði
nú þegar upp díselstöðvar til
tryggingar meiri raforkufram-
leiðslu yfir veturinn. Þá væntir
bæjarstjórnin þess að þingmenn
kjördæmisans láti ekki í annað
sinn samþykkja fjárlög án veru-
legs framlags til orkuöflunar fyr-
ir Austurland.
— Ævar.
Breytt símanúmer
Frá og með mánudeginum 1. nóvember verð-
ur símanúmer
SKRIFSTOFU RÍKISSPÍTALANNA
24160
Gjaldkeri, launadeild og innkaupastjóri
verða þó áfram með síma
11765
Skrifstofa ríkisspítalanna
IFORMICA
. BRAND
laminated plastic
Aukið vellíðan á heimilinu með
FORMICA
T.d. í eldhúsið, baðið, sólbekki og skápa. Ávallt
fjölbreytt litaúrval.
Fæst einnig í marmara, leður og viðarmynstr-
um. Það kostar lítið meira að nota það besta.
FORMICA
G. Þorsteinsson og Johnson hf.
Ármúla 1. sími 85533.