Morgunblaðið - 02.11.1976, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1976
37
Heildarsöltun
Sudurlandssíld-
ar 65.883 tunnur
SAMKVÆMT söltunarskýrslum
Slldarútvegsnefndar nam
heildarsöltun Suðurlandssfldar á
miðnætti aðfararnðtt 24. október
samtals 65.883 tunnum. Á sama
tfma f fyrra nam heildarsöltunin
35.422 tunnum. Mest hefur verið
saltað á Hornafirði, 13.688 tunn-
ur, þá koma Vestmannaeyjar með
12.285 tunnur, Revkjavfk með
6.752, Keflavfk 6.425. í Grindavfk
var söltuð 5.551 tunna, 3.937 á
Akranesi, 3.542 á Eskifirði og
2.215 á Seyðisfirði. 1 þessum töl-
um er bæði rekneta- og hringnóta-
sfld.
1 næstu viku mun hefjast lestun
á fyrstu Suðurlandssíldinni, sem
er framleidd á yfirstandandi
vertfð. Hafa verið leigð tvö skip
til flutninganna og munu þau
lesta á 6—7 þöfnum á svæðinu frá
Fáskrúðsfirði til Akraness. Er hér
um að ræða 7*150 tunnur af
venjulegri saltsíld og 2.200 tunn-
ur af sérverkaðri sáld, eða samtals
9.350 tunnur af fyrstu síldinni
sem verkuð var af þessum teg-
undum á vertíðinni.
Samkvæmt mælingum sem
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
hefir gert fyrir SUN hefur komið
í ljós að fituinnihald síldarinnar
hefir farið heldur minnkandi síð-
ustu dagana og er nú um
16—17% í fyrsta og öðrum
stærðarflokki, en yfir 20% i
þriðja stærðarflokki, en mjög lítið
hefir veiðzt af síðastnefnda
flokknum undanfarið.
Mikil byggingarstarfs-
semi á Egilsstöðum
ÖVENJU miklar byggingarfram-
kvæmdir eiga sér nú stað á Egils-
stöðum að sögn Guðmundar
Magnússonar, sveitarstjóra Egils-
staðahrepps. Það munu vera á
milli 30 og 40 einbýlishús sem
eru f smíðum, á öllum byggingar-
stigum. Auk þess eru svo f smfð-
um byggingar vegna iðnaðar,
skólamála, mjólkurvinnslu, gisti-
móttöku o.s.frv. A vegum hrepps-
ins er nýlokið byggingu 16 leigu-
fbúða, fvrri hluti stækkunar
Hættu að reykja
DAGANA 7. — 11. nóvember
mun íslenzka bindindisfélagið
halda námskeið fyrir fólk i
Reykjavik og nágrenni, sem vill
hætta reykingum. Hefur félagið
haldið mörg slfk námskeið vfða
um landið og hefur fengizt mjög
góður árangur.
Námskeiðið, sem nú er fyrir-
hugað, hefst kl. 20.30 sunnudag-
inn 7. nóvember og mun standa f
5 kvöld. Það verður haldið f Lög-
bergi við Háskóla Islands. Innrit-
un fer fram í sfma 13899 á skrif-
stofutíma næstu daga. Þátttöku-
gjald er ekkert, aðeins greitt fyrir
handbók námskeiðsins.
(Fréttatilkynning)
grunnskólans er á sfðasta snún-
ingi, og viðbyggingu við félags-
heimilið Valaskjálf er að ljúka,
en þar er verið að gera gistiað-
stöðu, kaffiterfu og litla sali fyrir
ýmiss konar félagsstarfsemi.
A allra næstu dögum verður
hafinn uppsláttur fyrir Mennta-
skóla Austurlands, en hann mun
rfsa á Egilsstöðum. Það húsnæði
hefur verið hannað samkvæmt
bandarískum hugmyndum, og það
er Byggingarfélagið Brúnás sem
sér um byggingu fyrsta hluta hús-
næðisins, sem áætlað er að verði
fokheldur á næsta sumri.
Þá hefur f sumar verið unnið að
undirbúningi gatna fyrir varan-
legt slitlag, og mun þar vera um
að ræða um 2 km kafla. Nú þegar
er varanlegt slitlag á um 3 km
gatna á Egilsstöðum. Að sögn
Guðmundar Magnússonar, eru
bygging dagvistunarheimilis fyrir
börn og fþróttahús ein mestu
hjartansmál hreppsnefndarinnar,
en Guðmundur sagði okkur að
varðandi þau mál, ætti bæjar-
félagið f útistöðum við fjár-
veitingavaldið. Auk þessa sagði
Guðmundur að nýjar tilraunir að
borunum eftir heitu vatni væru
ofarlega á baugi hjá hreppsnefnd-
inni, og vonast væri til að þær
boranir færu fram hið bráðasta.
Lokaðu
glugganum
5»
Þegar kalt er orðið í húsinu,
— rigning úti eða frost og
stormur, lokarðu glugganum, þá
þarf glugginn að vera það
þéttur að hann haldi vatni, vindi
og ryki utandyra.
Þannig eru gluggarnir okkar,
með innfræsta TE-TU þétti-
listanum og þannig eru einnig
svalahurðirnar frá okkur.
Við framleiðum einnig
útidyra- og bílskúrshurðir af
ýmsum gerðum. Þeir sem hafa
reynt þær, gefa þeim einnig
1. ágætiseinkunn.
Það getur borgað sig fyrir þig
— ef þú ert að byggja einbýlis-
hús eða fjölbýlishús, að senda
teikningu eða koma og skoða
framleiðsluna, athuga
afgreiðslutíma og fá verðtilboð.
hilrðaverksmiðja
YTRI-NJARÐVÍK Sími 92-1601 PósthóH 14 Keftavik
Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson verður sýnd f hundraðasta
sinn um miðjan þennan mánuð. Leikurinn var frumsýndur 1 Iðnó
fyrir réttu ári. I sumar og haust var hann sýndur alls 32 sinnum úti
um land. Leikurinn fjallar um hversdagslega hluti úr Iffi alþýðu-
fólks og f þvf felast trúlega vinsældir hans en kannska ekki sfður f
þvf, að þetta efni er túlkað á mjög Ifflegan hátt f söng og leik.
Fræðslu- og aðalfund-
m* kennara á NV-landi
FRÆÐSLUFUNDUR og aðal-
fundur kennarafélags Landsam-
bands framhaldsskólakennara og
Sambands fslenzkra barna-
kennara á Norðvesturlandi var
haldinn dagana 8. 9. október s.l. f
Varmahlfð f Skagafirði. Viðfangs-
efni fundarins var m.a. markmið
grunnskólans og tengsl hans við
framhaldsnám og hélt Ólafur
Proppé einn af gestum fundarins,
famsöguerindi. Hrólfur Kjartans-
son og Reynir Bjarnason, einnig
gestir fundarins héldu framsögu-
erindi um Nýjar hugmyndir um
vinnutilhögun f kennslustofunni.
Miklar umræður urðu á fund-
unum um þessi málfni.
Aðalfundur félaganna var hald-
inn sameiginlega. Á fundinum
var m.a. samþykkt tillga um stofn-
un eins kennarafélags allra
þeirra sem starfa að kennslumál-
um á NV-landi. Þá var einnig sam-
þykkt tillaga sem lýsti yfir
ánægju fundarins með skipan
fræðslustjóra og fræðsluráða og
reynslu af starfi þeirra í um-
dæminu. Var skorað á rikisstjórn-
ina, Alþingi og sveitarstjórnir að
koma fjármálum fræðsluskrif-
stofunnar á öruggan grundvöll.
Fékk nótina
í skrúfuna
og var dreg-
inn til lands
ÞAÐ ÓHAPP henti loðnubátinn
Arsæl Sigurðsson GK á loðnumið-
unum út af Straumnesi, að hann
fékk nótina f skrúfuna. Varðskip
kom bátnum til aðstoðar og hélt
með hann f togi til lands. Hálf-
gerð bræla var á miðunum í fyrri-
nótt og lentu bátarnir i vandræð-
um með næturnar.
Engin veiði var í fyrrinótt.
Nóttina áður tilkynntu tveir bátar
um afla, Hrafn GK 400 lestir og
Helga Guðmundsdóttir BA 450
lestir. Fóru þeir með aflann til
Bolungarvikur. Fjórir bátar eru
nú á mióunum. Rannsóknarskipið
Bjarni Sæmundsson hefur verið
þar við loðnuleit og fundið stórar
og góðar torfur.
Fékk
ekki
hæli
Moskvu, 28. okt. — AP
YFIRVÖLD I Iran hafa nú sent
heim sovézka flugmanninn Val-
entin Ivanovich Zosimoff liðsfor-
ingja, sem rændi litilli flugvél i
Sovétrikjunum 25. fyrra mánaðar
og flaug henni til Irans þar sem
hann baðst hælis sem pólitískur
flóttamaður. Óskaði flugmaður-
inn eftir því að fá að flytjast til
Bandaríkjanna.
írönsk yfirvöld neituðu Zosi-
moff um dvalarleyfi á þeim
grundvelli að með því brytu þau
gagnkvæman samning þeirra við
Sovétríkin varðandi flugrán.
Utvarpið í Moskvu skýrði frá
þvi að Zosimoff hefði komið aftur
heim til Sovétríkjanna á mánu-
dag. Var tekið fram i frétt út-
varpsins að hann hefði framið af-
brot með flugvélarráninu, og að
flugvélinni yrði einnig skilað.
Al'ia.VslNÍÍASÍMINN KK:
2248D (0>)
JR*r0tmbI«bib
Vantar ykkur útihurð... ?
Teak útihurðir fást hjá Pouisen
Sænsku
útihurðirnar
frá
Bor dörrenA.B.
hafa
sannað ágæti
sitt í íslenzkri
veðráttu.
Margar gerðir fvrirliggjandi.
Mjög hagstætt verð. Greiðsluskilmálar.
Gerið verðsamanburð.
VALD. P0ULSEN H.F. Suðurlandsbraut 10
_____________________- Simi 38520-3114*