Morgunblaðið - 03.12.1976, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1976
13
NDUR JÓNSSON skrifar um BÓKMENNTIR
Þögnin eft-
ir sönginn
Bðkmenntir
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
geðfelldustu. Ég nefni Gullastokk
um kistilinn sem enginn mátti
ljúka upp, en á botni hans fann
skáldið seinna „einn lftinn dúk —
og fyrstu/ nálarsporin þín“:
Ein barnsleg rós með rauðum krónublöðum,
fimm rósarblöð
í kyrfilegri röð,
og óljóst teiknuð áfram sex til nfu,
— þau áttu að verða tfu,
og út frá leggjum uxu prúð og vœn
með yndisþokka laufin fagurgræn,
og það átti eflaust þarna að koma fleira,
— en það varð aldrei meíra.
I Fuglinn trúr er ort um dauðan
fugl og sagt að fegursti tónninn sé
þögnin eftir sönginn. Sfðustu
bækur Guðmundar Böðvarssonar
eru merktar vitund hans um
dauðann, þar er feigðarhrollur
áberandi, en skáldið reynir að
sætta sig við hið óumflýjanlega.
Sumarið er liðið, ævintýraskipun-
um öllum lagt í naust. Það er viss
trúarkennd f þessum ljóðum, eins
og til dæmis Þjóðlagi úr álfhamri,
lokaljóði Blaðs úr vetrarskógi,
þar sem skáldið biður:
Vllt þú blðja fyrlr mér?
Ég skal biðja fyrir þér;
þó að bænir okkar heyri aldrei neínn.
En eigi að nefna það sem mestu
skipti jafnan f skáldskap
Guðmundar Böðvarssonar má aft-
ur vitna til ljóðsins um fuglinn
trúa og ávarpa hann sjálfan eins
og hann ávarpaði fuglinn:
„Árgali, það var undursamleg
tfð,/ ástrík og heit í gleði sinni og
trega".
1 ljóðum eins og Kominn heim
og Einmæli í Blaði úr vetrarskógi
er heimspekilegur tónn sem Guð-
mundur Böðvarsson átti líka til
þrátt fyrir hinn ljúfa söng sem
var svo einkennandi fyrir hann.
Þessi heimspekilegi tónn sem oft
birtist f ljóðum sem eru óhátt-
bundinn kemur fram frá upphafi
í skáldskap hans, en með hvað
glöggustum og eftirminnilegust-
um hætti í Innan hringsins sem er
bók sem vex eftir því sem á líður.
Ef gert væri dálftið úrval þessara
heimspekilegu ljóða sem ég hef
kallað svo, en vel mætti lfka
kenna við fhygli, yrði það til að
auðga þá mynd sem við gerum
okkur af skáldinu og mönnum
hættir oft til að einfalda.
I Ljóðasafni III eru fyrirferðar-
mestar bækurnar sem Guðmund-
ur kallaði Saltkorn f mold I og
Saltkorn f mold II. Saltkornin eru
um sveitunga hans, gamansöm
kvæði sem njóta kfmnigáfu
skáldsins. Fyrirmynd þeirra eru
ljóð bandarfska skáldsins Edgar
Lee Masters:
Kirkjugarðurinn f Skeiðarár-
þorpi sem Magnús Ásgeirsson
þýddi á sfnum tfma. Margir hafa
farið að dæmi Masters og rýrir
það síður en svo gildi kvæða
Framhald á bls. 28
Úr hugskoti
Bðkmenntlr
eftir ERLEND
JÓNSSON
ingar: skáldið hugleiðir gildi
kveðskapar, form hans og inni-
hald. Fyrsti þátturinn, Aftur fyrir
málið, eru þannig hugleiðingar
um þá skáldskaparstefnu eftir
strfð sem notaðist við orð en hafn-
aði röklegu samhengi eða merk-
ingu. Um það segir Hannes meðal
annars:
„Orðlistarverk án merkingar
geta í bráðabili haft heppileg
áhrif á skáldskapargildi með því
að róta til í því, ef og þegar það er
komið niður f skúffur í dauða röð
og reglu."
Þessi orð eru dagsönn. Umrædd
skáldskaparstefna var skemmti-
leg tilbreyting í bókmenntunum
og — nauðsynleg, hygg ég, til að
róta til í þvf sem staðnað var orðið
og merkingarsnautt; ekki vegna
skorts á röklegu samhengi heldur
vegna þess að aðferðirnar voru
orðnar sjálfvirkar. Nú er tími
hins óræða og myrka ljóðs að
renna skeið sitt á enda. Komnar
eru til sögunnar nýjar stefnur,
óræði skáldskapurinn verður
brátt að baki og biður síns dóms,
en skáldin eru aftur tekin að opna
hugskot sfn og bjóða lesendum
þar inn á innsta gafl.
En hvernig skal þá að öðru leyti
kveða? Hannes endar bók sína á
ljóðabréfi til lesandans, Bréfi um
ljóðstafi. Þar minnir hann á að
ljóðstafir séu eldri en rfm f ís-
lenskum og norrænum kveðskap,
svo gamlir að ekki verði komist
fyrir upptök þeirra, þar sem rfm
sé aftur á móti miðaldalegt
kirkjuskraut, eins konar tónlist;
ljóðstafirnir séu úti en rímið inni.
Sú var tíðin að deilt var hér
harkalega um ljóðform, mest
hygg ég á árunum frá ’50 til ’55.
Siðustu árin hafa þær deilur mátt
heita hjaðnaðar. Þó formbreyt-
ingar muni nú að öllum lfkindum
vera framundan í ljóðlistinni
þurfa þær ekki að valda neinum
slíkum úlfaþyt. Fyrir aldarfjórð-
ungi voru menn ekki búnir að
týna þvf niður að hneykslast. Nú
eru lesendur orðnir ónæmir fyrir
óvæntum hlutum. Og verði kom-
andi formbreytingar afturhvarf
til einhvers eldra eru enn nógu
margir fyrir til að fagna því. Ann-
ars er þetta allt á spurningarstigi
enn sem komið er; tíminn mun
svara.
í þættinum Ándi á skrifborðinu
hugleiðir Hannes myndrænar lík-
ingar i skáldskap sem eiga sér
fornan uppruna og langa hefð en
hafa verið f tfsku undanfarin ár
og af mörgum bæði misnotaðar og
ofnotaðar. Svo mjög hafa sumir
höfundar ofhlaðið texta sína með
líkingum að Hannes jafnar til
ósjálfráðrar skriftar. Og „þegar
ósjálfráð skrift má sín mest, virð-
ist ekki halda um pennan höfund-
ur með fullu ráði, heldur andi
(„Poltergeist”) f skrifborinu.”
En fleira er birt f þessari bók en
hugleiðingar um skáldskap.
Skáldið lætur hugann reika í
áföngum um landið, einkum átt-
hagana, staldrar við eins og at-
hugull ferðamaður, rifjar upp
hvað gerst hefur hér og þar og
leggur síðan út af því á ýmsa
vegu. Stundum dregur Hannes
stórar ályktanir af smáum dæm-
Framhald á bls. 22
Þetta eru tilvaldar
jólagjafir
Nýkomið glæsilegt úrval af
töskum fyrir kassettur og átta
rása spólur. Einnig fyrirliggj-
andi glæsilegt úrval af ódýr-
um og góðum stereo heyrnar-
tækium.
;.;sís
:
l' " Hljómplötur og
kassettur nýkomnar
Njálsgötu 22 sími 21377
Ármúla 38, sími 31133
Nódiöoær
BING & GRÖNDAL
JÓLAPLATTINN 1976
í ár myndskreytti
listamaðurinn Henry Thelander
jólaplatta Bing & Gröndal.
Fyrsti plattinn kom út
árið 1895, — en síðan má
segja að þeir hafi árlega selst
upp um leið og þeir hafa komið á
markaðinn.
TOLEDO borðbúnaður
Sex gerðir. Þýzk gæðavara. Stál með 23
karata harðgljáa og gyllingu. Falleg oq
nytsöm gjöf. Gott verö. bARNASETT.Ð
FRÁ MAX & MORITZ
Skemmtileg gjöf.Barnaskeið og barnagaffall.Stálsett með 100 g. silfur áferð.
Lítið við í verzlun okkar. Gjafaúrvalið hefur aldrei verið failegra.
RAMMAGERÐIN
Hafnarstræti 19
E231