Morgunblaðið - 03.12.1976, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.12.1976, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1976 Útgefandi Framk væmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla x Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavlk. Haraldur Sveinsson. Matthlas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn GuSmundsson. Björn Jóhannsson. Árni GarSar Kristinsson. Aðalstræti 6. sími 10100 ASalstræti 6, slmi 22480 Áskriftargjald 1100.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 60.00 kr. eintakiS. Fiskverndun Asíðustu tveimur árum hefur mikið starf verið unnið að verndun fiskstofn- anna við landið Er óhætt að fullyrða, að í tíð núverandi ríkisstjórnar og núverandi sjávarútvegsráðherra hafi meira verið framkvæmt á þessu sviði en nokkru sinni fyrr. Stærsta framlagið til fisk- verndar var að sjálfsögðu út- færsla fiskveiðilögsögunnar í 200 sjómílur hinn 15. október fyrir rúmu ári en Matthías Bjarnason sjávarútvegsráð- herra undirritaði reglugerð um þá útfærslu hinn 1 5 júlí 1 975. í kjölfarið á þessari útfærslu voru gerðir samningar um veiðiheimildir þýzkra togara hér við land, sem takmörkuðu mjög veiðar þeirra en þeir höfðu veitt hér að vild sinni frá því að fært var út í 50 sjómílur 1972. Með samningum þess- um var og tryggt að Þjóðverjar taka nánast engan þorskafla á íslandsmiðum. Eftir harðar sviptingar á fiskimiðunum við brezk herskip var Óslóar- samningurinn tryggður og hefur nú borið þann ávöxt að brezkir togarar eru horfnir úr íslenzkri fiskveiðilögsögu. Þegar hugsað er til þess geysi- lega aflamagns, sem bæði Bretar og Þjóðverjar tóku hér við land þegar núverandi rikis- stjórn tók við haustið 1974 er auðvitað alveg Ijóst, að meiri háttar afrek hefur verið unnið við að takmarka veiðar útlendinga við landið á þeim tveimur árum, sem liðin eru. í rauninni er árangurinn svo ótrúlega mikill, að þvi hefði enginn maður trúað, ef spáð hefði verið í upphafi núverandi stjórnarsamstarfs. Jafnframt því að þessi mikla verndun fyrir fiskstofnana, hefur hlutdeild íslendinga i hagnýtingu fiskstofnanna vaxið geysimikið Á árinu 1972 var hlutdeild okkar í botnfiskafla á miðunum við landið aðeins um 55% en á árinu 1975 var hún komin f 68,7% og miðað við 30. september í ár var hlut- deild okkar komin í 76,7% og í 82,3% af þorskaflanum. Þess- ar tölur sýna glögglega hve mikið starf og árangursríkt hefur verið unnið á þessu sviði. Það er hins vegar ekki nóg að takmarka fiskverndunar- aðgerðir við að útiloka út- lendinga frá fiskveiðum hér við land Við hljótum einnig að huga að okkar eigin veiðum. Þess vegna hefur Matthías Bjarnason sjávarútvegsráð- herra beitt sér fyrir margvísleg- um aðgerðum í því skyni í samráði við hagsmunasamtök sjávarútvegsins og Hafrann- sóknastofnun. Ákveðin hafa verið stór friðunarsvæði, þar sem allar veiðar hafa verið bannaðar. Svæði hafa verið friðuð fyrir botnvörpuveiðum og teknar hafa verið upp skyndifriðanir til verndar smá- fiski. Þá heíur möskvastærð í togveiðaifærum verið aukin tví- vegis, lágmarksstærðir fisk- tegunda verið auknar og komið upp kerfi eftirlitsmanna með fiskveiðum. Einnig hefur verið beitt ákvæðum um hámarks- afla ýmissa tegunda svo sem á humri, rækju og skelfiski og síld. í því skyni að draga úr sókn í þorskstofninn hefur fyrir forgöngu sjávarútvegsráðherra verið veitt verulegu fjármagni til fiskleitar, rannsókna og markaðsleitar með umtalsverð- um árangri. Allar hafa þessar ráðstafanir stuðlað að því að friða og vernda fiskstofnana við ísland til þess að varðveita þessa mestu auðlind þjóðar- innar og leggja grundvöll að skipuiegri hagnýtingu þessara auðlinda en við eigum að venjast. Þegar allt þetta fisk- verndunarstarf er haft í huga, má furðu gegna að Matthías Bjarnason sjávarútvegsráð- herra hefur ítrekað sætt aðkasti á opinberum vettvangi fyrir að hafa ekki í einu og öllu farið að tillögum fiskifræðinga fyrir einu ári er hin svonefnda svarta skýrsla um ástand þorskstofns- ins kom fram. Raunar má segja, að flestar þær ráðstafan- ir til fiskverndunar, sem að framan greinir, hafa stefnt að því marki að takmarka svo sem kostur væri sóknina í þorskinn án þess að það skref væri stigið að leggja fiskiskipaflota lands- manna hluta úr ári. Hefði sú ákvörðun verið tekin hefði hún haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir efnahag þjóðarinnar, Þungbært atvinnuleysi hefði ráðið ríkjum í sjávarþorpunum f kringum landið. Ríkisstjórnin hefur hins vegar tekið þá stefnu að beita almennum, en víðtækum aðgerðum til þess að draga úr sókn okkar sjálfra í þorskinn, jafnframt því sem hún hefur náð ótrúlega góðum árangri við að takmarka veiðar útlendinga hér við land. Þess vegna er Ijóst, að þorskafli þeirra verður margfalt minni á næsta ári en i ár og gefur sú staðreynd okkur möguleika á að ná á tveggja ára tímabili, þegar litið er á það í heild sinni, svipuðu marki og fiskifræðing- ar töldu óhjákvæmilegt i skýrslu sinni í fyrrahaust. . Þeir, sem veitast að sjávarút- vegsráðherra, fyrir að hafa ekki lagt fiskiskipaflotanum hluta úr ári, verða að svara því, hvernig þeir hefðu viljað bregðast við þeim óskaplegu vandamálum, sem það hefði leitt til. Þeir verða einnig að horfast í augu við það, að þá hefðu íslenzk fiskiskip legið bundin við bryggju meðan erlend fiskiskip hefðu sópað upp fiskinum við landið. Þegar á þetta mál er litið í heild sinni er Ijóst, að rikis- stjórnin og Matthías Bjarnason sjávarútvegsráðherra hafa markað rétta stefnu i þessu 'vandasama máli og að allt bendir til þess að við munum á tveggja ára tímabili ná svipuðu marki og fiskifræðingar hafa talið æskilegt Menn aettu því að spara sér stóru orðin. Sunnlenzkir bændur ræða versnandi stöðu kjaramála HÁTT á þriSja hundrað sunnlenskir bnndur komu saman til almenns bœndafundar I Félagsheimilinu Hvoli siSastliðiS þriðjudagskvöld. Fundur þessi var boSaður til aS ræSa versn- andi stöSu kjaramála bœnda og greiSsluerfiSleika sölusamtaka bænda. i blaSinu I gær var greint frá samþykkt fundarins en hér verSur greint frá þvi helsta, sem fram kom i umræSum á fundinum. Fundarstjóri var Jón Egilsson á Selalæk og fundarritari SigurSur Haraldsson, Kirkjubæ. Magnús Finnbogason, Lágafelli., setti fundinn og rakti nokkuð þær ástæður. sem lægju að baki boðun hans. Landbúnaðurinn og bændur hefðu á siðustu árum sætt gagnrýni. sem byggð hefði verið á ósannindum. Bændur gætu ekki lengur setið hjá og látið ganga á rétt sinn Nú væri svo komið að bændur fengju ekki umsamdar greiðslur fyrir afurðir sínar, þó tvö ár væru siðan til þeirra hefði verið stofnað. Lagði Magnús áherslu á að bændur um allt land yrðu að rísa upp og mótmæla Jafnframt þvi, sem bændur krefðust örari skila frá fyrir- tækjum sinum fyrir afurðir, þyrftu bændur að standa þétt að baki fyrir- tækjum sínum í baráttu þeirra við að fá greiðslur og aðra fyrirgreiðslu hjá rikis- stjórn og Seðlabanka. Magnús gerði athugasemdir við fjármagnsliði verð- lagsgrundvallarins og ræddi um skil á greiðslum til mjólkurframleiðenda og sagði ekki eðlilegt hversu miklu væri þar haldið eftir. Að siðustu gerði Magnús athuga- semdir við greiðslur fyrir folaldakjöt og sagði að á sama tima og bændur fengju 600 krónur fyrir folaldahúðina væri hún seld sútuð frá verksmiðju á 7 800 krónur. Afurðalánin eiga að vera 75% af afurðaverðinu Ámi Jónasson, erindreki Stéttar- sambands bænda. flutti þessu næst framsöguerindi og stöðuna i verðlags- og kjaramálum bænda. Sagði hann ánægjulegt að sjá jafn marga bændur samankomna á fundi sem þessum enda ekki að ástæðulausu að bændur kæmu saman til að ræða kjaramál sin um þessar mundir. Rakti Árni i upphafi erindis sins þær breytingar, sem gerð- ar voru á verðlagsgrundvelli land- búnaðarafurða I fyrra og minnti á að miklu skipti fyrir bændur :ð þeir skiluðu ullinni, þvi að öðrum kosti kæmi það glöggt fram i minni tekjum bóndans. Varðandi uppgjör fyrir mjólkurinnlegg 1975 sagði Árni að á sölusvæði Mjólkursamsölunnar hefði að meðaltali vantað 68 aura upp á fullt grundvallarverð fyrir hvern litra en hjá Flóabúinu 73 aura. Sagði hann að nokkuð erfitt væri að bera saman upp- gjör mjólkurbúanna, þvi mjólkurbúin á sölusvæði Mjólkursamsölunnar reiknuðu bændum vexti frá innleggs- degi til útborgunar en önnur ekki Þá gerði Árni að umræðuefni upp- gjör fyrir sauðfjárinnlegg 1975 og sagði að einkum væri þrjár ástæður fyrir því hversu illa hefði gengið að gera upp við bændur. Togstreita hefði verið um gæruverðið I fyrra en nú virtist lausn á þeim vanda vera i nánd og bændur fengju fullt verð fyrir gærurnar Sláturkostnaður hefði farið fram úr þeim áætlun. sem lögð hefði verið til grundvallar við ákvarðanatöku um sláturkostnað og að síðustu hefðu greiðslur útflutningsbóta dregist á langinn. Árni tók fram að bændur væru nú að miklum hluta búnir að taka vörur í slnum verslunarfyrirtækjum út á inn- legg sitt frá haustinu 1975 og þvi væri nú mjög alvarlegt ástand i verslunar- málum bænda og lausaskuldir miklar. Fram kom hjá Árna að til þess er ætlast að sláturleyfishafar geti greitt innleggj- endum 75% af innlegginu, þegar þeir fá afurðalánin i lok nóvembermánaðar ár hvert Seðlabankinn lánar i afurða- lánum um 55% af afurðaverðinu og viðskiptabanki sláturleyfishafans á að lána um 15% þar ofan á. Á vorin fá sláturleyfishafar svokölluð uppgjörslán og eiga þau að nema 20% af afurða- verðinu. þannig að þá eiga aðeins 5% af afurðaverðinu að vera ógreidd. Árni tók fram að rekstrarlán landbúnaðarins hefðu á sínum tlma verið orðin góð en væru nú litils virði. Að síðustu gerði Árni að umræðu- efni greiðsluerfiðleika. sem steðjuðu að sölufélögunum á Suðurlandi og sagði Mjólkurbú Flóamanna ekki eiga við erfiðleika að strlða vegna nýrra bygginga heldur vegna sveiflna i fram- leiðslunni. Sláturfélag Suðurlands býr hins vegar við þá sérstöðu að þurfa að greiða öll innlegg i peningum en kaup- félögin geta hins vegar fært innleggin I reikning viðkomandi bónda, sem I mörgum tilvikum er þá búinn að taka út vörur fyrir innleggið Af þessu sök- um geta kaupfélögin yfirboðið eins og Árni orðaði það eða greitt hærra sinna prósenthlutfall af innlegginu strax fyrir áramót. Bændur búnir að fá 80% af mjólkurinnlegginu um áramót Eggert Ólafsson á Þorvaldseyri og stjórnarformaður Mjólkurbús Flóa- manna fagnaði þvi að til þessa fundar væri boðað Hvað mjólkurframleiðsl- una og afkomu Mjólkurbúsins snerti. sagði Eggert að tvö óþurrkasumur á Suðurlandi hefðu orðið þess valdandi að mjólkurframleiðslan hefði dregist stórlega saman Samdrátturinn hefði orðið 1,9 milljónir litra i fyrra og allt útlit væri fyrir að samdrátturinn yrði svipaður í ár. Eggert gerði þessu næst að umtalsefni greiðslur Mjólkurbúsins á þessu ári og sagði að grundvallar- verð fyrir hvern litra til bónda væri nú 64,05 krónur en ætti sjálfsagt eftir að hækka eitthvað. Það, sem af væri árinu hefðu mánaðargreiðslur numið 46.51 krónum á litra og er áætlað að um áramót verði bændur búnir að fá 80% af mjólkurverðinu. Þegar frá væru dregin sjóðagjöld ættu bændur að öll- um líkindum eftir að fá 17,23% af mjólkurinnlegginu 1 976 við áramót. Fram kom hjá Eggerti að miklar kostnaðarhækkanir hefðu orðið á rekstri mjólkurbúsins og t.d. hefði flutningskostnaður að mjólkurbúinu á árinu hækkað um 27% og væri nú 2,54 krónur á lltra. Grundvallarverð mjólkur hefði hækkað um 33.9% frá árinu áður Þá ræddi Eggert nokkuð afurðalán út á mjólkurvörubirgðir og sagði að þó gert væri ráð fyrir þvi að 75% af verðmæti birgða á hverjum llma fengist lánað vantaði jafnan stórar upphæðir til þess að endar næðu saman og hægt væri að gera að fullu upp við bændur. Fram kom hjá honum að þegar verið væri að bera saman útborgunarverð mjólkurbúanna gleymdist oft að taka það með i reikninginn að aðeins 6 mjólkurbú i landinu greiddu vexti á inneign. Benti hann á að til dæmis hefði útborgunar- verð Mjólkurbús KEA á Akureyri i fyrra verið 88 aurum lægra en Flóabúsins á hvern lltra ef KEA hefði greitt vexti eins og Flóabúið Sigurjón Pálsson á Galtalæk sagði að fundurinn væri fyrst og fremst kallaður saman og vel sóttur vegna þess að bændur væru i nauðvörn. Sagði ræðumaður það staðreynd að það verð, sem bændur ættu að fá samkvæmt verðlagningunni væri ekki Til fundarins var boðið fulltrúum sölusamtaka bænda á Suðurlandi Eggert Ólafssyni (t.v.j, formanni stjómar Mjólkurbús Flóamanna og Gisla Andréssyni, formanni stjómar Sláturfélags Suðurlands, Áma Jónassyni, erindreka Stéttarsambands bænda, og Agnari Guðnasyni, blaðafulltrúa bændasamtakanna. Ljósm. Mbl. t.g.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.