Morgunblaðið - 03.12.1976, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1976
— Fiskverð
Framhald af bls. 1.
kröfum verði haldið i skefjum
fram á mitt næsta ár geti enn
dregið úr verðbólgu hjá Is-
lendingum og framleiðsla
aukizt nokkuð.
En ráðuneytið segir að draga
verði úr lánum og vafasamt sé
hvort það sé hægt að gera
gagnvart einkafyrirtækjum
sem hafi búið við fjárhags-
erfiðleika sfðari ár og þvf
verði stjórnin að draga úr
rfkisútgjöldum. Aðallega
verði að draga úr opinberum
framkvæmdum og
fjárfestingum.
— Jakubovsky
Framhald af bls. 19
árum sfðar tók hann þar við
allri stjórn. Hann varð sfðan
yfirmaður herafla Varsjár-
bandalagsins árið 1967 og
fyrsta meiriháttar verk hans
var sfðan að stjórna
Tékkóslóvakfuinnrásinni eins
og fyrr segir.
Marskálkurinn var tvívegis
sæmdur nafnbótinni Hetja
Sovétrfkjanna og var maður
sómi sýndur. Búizt er við að
útför hans verði gerð með
mikilli viðhöfn einhvern
næstu daga.
— Aðeins tveir...
Framhald af bls. 2
væru ekki vinsælustu menn á
jarðrfki f þeirra augum — sagði
Gunnar H. Ólafsson skipherra f
viðtali við Mbl. í gær. Þá voru
þeir og mjög þungir í garð Efna-
hagsbandalags Evrópu og brezku
ríkisstjórnarinnar.
Vestur-þýskir togarar hér við
land voru 15 að tölu í gær. Voru
þeir allir að veiðum á svæðum,
sem fiskveiðisamningur Islend-
inga og Þjóðverja heimilar þeim.
Einn þýzkur togari var á heim-
leið.
Flestir Þjóðverjanna voru á
Reykjaneshryggnum og nokkrir
voru djúpt suður af Hvalbak. Þá
voru í fiskveiðilögsögunni 2 belg-
ískir togarar, annar á Reykjanes-
hryggnum, en hinn djúpt suður af
Ingólfshöfða.
Þá voru loks 3 færeyskir
togarar að veiðum hér við land og
5 færeyskir fiskibátar. Allir voru
þeir að löglegum veiðum.
— Gegn kvóta
Framhald af bls. 1.
Starfsmenn EBE segja að til-
lögurnar séu til bráðabirgða og
muni I mesta lagi gilda í eitt ár
meðan gengið sé frá endanlegu
fyrirkomulagi.
Bretar eru ekki eins andvfg-
ir kvótaskiptingunni og trar,
en þeim finnst hún ekki rétt-
lát. I aðalatriðum er gert ráð
fyrir óbreyttri kvótaskiptingu
frá 1976. en kvótarnir eru
heldur minni vegna fiskvernd-
unarsjónarmiða.
Hvert aðildarrfki heldur sfn-
um hlut f aðalatriðum, En írar
og Skotar fá heldur rfflegri
skerf en áður þar sem þeir eru
mjög háðir t;veíðum. Hins
vegar finnst etum að meira
tillit hefði á
þar sem þe
veiðum vió
missa mei’
ildarrfki.
Tillögurr
lega rædda
og landb
13. desen
til þeirra
draga úr
Noreg og
nrrur að-
væntan-
itanríkis-
'BE
— Bretar náðu
FrambaM ■
sagðist ekki ■■f að
heildaraflinn á 12 mánaða tfma-
bili yrði nema 55 til 56 þúsund
tonn, þótt Þjóðverjar ættu f raun
að geta náð leyfii ■: hámarki
afla, ef gæftir verða góðar.
Már Elísson rnnM að í ljósi
þessa gizkaði hann á að heildar-
þorskaflinn, •sem tekinn sé af
tslandsmiðum til áramóta eða á
sfðasta 12 mánaða tfmabili, geti
nálgast það að verða 340 þúsund
lestir eða þar um bil. Þar af veiða
tslendingar um 272 þúsund tonn.
Þar að auki veiddu tslendingar
um 3 þúsund tonn af þorski við
Austur-Grænland og um 8 þúsund
tonn af öðrum fiski eða samtals
um 11 þúsund tonn.
Þá sagði Már Elfsson, að hann
hefði áhyggjur út af veiðum
Færeyinga, þar sem svo virtist
sem þeir myndu fylla sinn
árskvóta um áramót á tslandsmið-
um, sem er 17 þúsund tonn.
Samningsár þeirra nær þó til
marzloka. Allt virðist þvf benda
til þess að Færeyingar þurfi að
hætta veiðum á íslandsmiðum um
áramótin.
— Umferðarljós
Framhald af bls. 2
lega við skólana Þá bentu bæjarfull-
trúar á að mikið öryggi hefði skapazt
með tilkomu gangbrautarljósanna
yfir Hafnarfjarðarveginn og það
hefði sýnt sig að þau tefja ekki
umferðina eins og gert var ráð fyrir,
enda þótt þetta sé aðalbraut. og
einnig að langt væri frá þvi að
gangandi vegfarendur misnotuðu
Ijósin.
[ þessu sambandi vildi Hilmar
Ingólfsson einn bæjarfulltrúa. benda
á. að það, hversu mikla baráttu það
hefði kostað að fá þessi Ijós sett
upp, væri gott dæmi um hve oft
væri erfitt að fást við rfkisvaldið. Þá
lagði hann einnig þunga áherzlu á
að þrátt fyrir að umferðarljós yrðu
sett upp I bænum væri brýn þörf á
að auka löggæzlu til muna. enda
væri eitt aðalvandamálið alltof
hraður akstur á Vifilsstaðaveginum
Að visu hefðu verið sett upp skilti
um hámarkshraða. en það væri ekki
nóg ef löggæzla yrði ekki aukin.
Tóku aðrir bæjarfulltrúar undir þá
skoðun.
Einnig var rætt um þörf á um-
ferðarfræðslu og kom fram I þeim
umræðum að stöðug umferðar-
fræðsla fer fram i skólunum og m.a.
hefði hún staðið yfir undanfarna
daga.
Eins og fram kom i Mbl. ! gær,
hefur bæjarstjórn Garðabæjar marg-
sinnis skrifað bæjarfógetanum i
Hafnarfirði og dómsmálaráðu-
neytinu og óskað eftir meiri lög-
gæzlu í bænum. en ekkert hefur
verið gert til bóta ivábl. reyndi i gær
að ná tali af þessum aðilum, en án
árangurs
— Kirkjuþing
Framhald af bls. 3
hefði honum fundizt þrjú mál
bera hæst, endurprentun Biblí-
unnar, kirkjuhús í Reykjavík og
aukið starf leikmanna innan
kirkjunnar.
Eitt af síðustu málefnum
kirkjuþings var að kjósa f Kirkju-
ráð og voru eftirtaldir menn kosn-
ir: sr. Pétur Sigurgeirsson vígslu-
biskup, sr. Eiríkur J. Eiríksson
porfastur, Gunnlaugur Finnsson
alþingismaður og Vilhjálmur
Hjálmarsson ráðherra. Biskup er
sjálfkjörinn forseti kirkjuráðs.
Á fundinum lýstu þeir yfir
ánægju sinni .með störf kirkju-
þings, þar hefði verið mikið unnið
og nýir fulltrúar hefðu átt góða
samvinnu við þá sem áður hefðu
setið kirkjuþing.
— Sunnlenzkir
bændur
Framhald af bls. 21
þeir þyrftu að leita eftir samstöðu við
aðra láglaunahópa.
Hrafnkell Karlsson Hrauni i Ölfusi
sagði bændaforystuna ekki hafa svarað
árásum á landbúnaðinn nógu hart.
Hann spurði hvort fulltrúar neytenda i
Sexmannanefnd teldu það ekki vega
þungt á metunum i samningum um
búvöruverð að bændur hefðu á siðustu
árum ekki fengið nema um 70% af
umsömdum launum. Sagði hann rétt
að semja beint við ríkisstjórnina um
búvöruverð Hrafnkell gagnrýndi rekst-
ur Sláturfélagsins og sagði að mikið fé
værí bundið i verslunarrekstri félagsins
í Reykjavík og sá rekstur væri látinn
sitja fyrir greiðslum til bænda Vakti
hann athygli á því að ekki mætti ein-
blina um of á þær sláturaðferðir. sem
nú væri notaðar. Þá sagði Hrafnkell að
aðalvandamálið væri baráttan við rikis-
stjórnina og nú hefði hún frestað
ákvörðun um verðhækkun búvöru. Að
síðustu ræddi Hrafnkell um lánamál
þeirra. sem eru að hefja búskap og
hvatti til skjótra aðgerða á þvi sviði,
ætti að tryggja eðliiega endurnýjun
bændastéttarinnar i landinu.
Hermann Guðmundsson á Blesa-
stöðum sagði sunnlenska bændur hafa
farið mjög illa út úr óþurrkunum tvö
siðustu sumur. Um 1 5000 færri dilk-
um væri slátrað á Suðurlandi i haust
en I fyrra og það þýddi 100 milljón
króna tap fyrir bændur. Eftir væri að
greiða um 400 milljónir vegna mjólk-
urinnleggsins i ár og það fengju bænd-
ur sennilega ekki fyrr en i vor. Ekki
mætti gleyma þvi að sá hluti afurða-
verðsins sem eftir væri að greiða væri í
raun mestur hluti launa bóndans, þvi
allan kostnað yrði að greiða jafnóðum.
Árni Jónsson svaraði ýmsum spurn-
ingum, sem til hans hafði verið beint
og kom þar meðal annars fram að
afurðalán i haust nema alls 5.7 millj-
örðum króna en voru I fyrra á sama
tlma 4,1 milljarður Lánin eiga þó eftir
að hækka i desember, þvi nú er dregin
frá ákveðinn prósentuhluti vegna sölu i
nóvembermánuði. Árni minnti á að
söluskattur væri nú jafnhár niður-
greiðslum en óskum Stéttarsambands-
ins um að fella niður niðurgreiðslur og
söluskatt hefði ekki verið sinnt. S gði
Árni sláturkostnað vera orðinn alltof
háan og leita yrði nýrra leiða i sláturað-
ferðum.
Eggert Ólafsson á Þorvaldseyri
sagðist ekki kunna skil á þvi hvers
vegna kaupfélögin gætu greitt bænd-
um meira af innlegginu fyrir áramót en
Sláturfélagið. en hins vegar tæki Kaup-
félag Rangæinga við ull af bændum og
nú væri eftir að greiða 26% af verði
ullarinnar. Sagði Eggert að ekki væri
verra að fá þetta inn á reikning fyrst
staða kaupfélaganna væri eins góð og
Kaupfélagsstjórinn hefði lýst. Visaði
Eggert á bug orðum Ólafs kaupfélags-
stjóra um stefnu Sláturfélagsins. Hvað
það snerti að nota aðeins helming
leyfilegra afskrifta, hefði það aðeins
haft í för með sér lækkun á mjólkur-
verðinu árið eftir. Sagðist Eggert ekki
sjá ástæðu til að myndaðar yrðu bak-
nefndir hjá sölusamtökunum. þvi þau
hefðu sina aðalfundi og fulltrúaráð
væri hjá Mjólkurbúi Flóamanna. Hann
lýsti sig ósammála þvi að semja beint
við rikisstjórnina.
Gisli Andrésson sagði að bygging
sláturhúss á Hvolsvelli hefði verið á
áætlun 1973 en sú áætlun hefði farið
á ýmsan hátt úr skorðum en nú væri
búið að gefa grænt Ijós á að haldið yrði
áfram viðbótarbyggingu við frystihús
fyrir sláturhúsið. en það yrði fyrsti
áfangi f byggingu nýs sláturhúss Varð-
andi spurningu Jóns i Lambey. sagði
hann afurðalán nú á 1 3 kilóa dilk vera
4056 krónur og þegar búið væri að
greiða sláturkostnað væru eftir 1885
krónur en bændur hefðu nú fengið
2100 krónur fyrir hvern innlagðan
dilk
Þá gerði Gisli að umræðuefni tilgang
sláturfélagsins og vitnaði til laga þess
en þar er tekið fram að félagið skuli
reka verslanir á þeim stöðum. sem
félagsstjórninni þykir henta Gisli lagði
á það áherslu að verlanirnar væru
trygging fyrir þvi að framleiðsluvörur
félagsmanna seldust enda hefðu borist
af þvi fréttir að kaupfélagsstjórar hefðu
á nýafstöðnum kaupfélagsstjórafundi
haft á orði að Sláturfélagið einokaði
kjötmarkaðinn i Reykjavik.
Jón Þorgilsson á Hellu spurði hvort
aldrei hefði komið til greína og borga
hærra verð fyrir mjólkina en aðrar
landbúnaðarvörur vegna mikillar vinnu
við framleiðslu hennar. Þá gagnrýndi
hann stefnuna i uppbyggingu slátur-
húsanna.
Sigurður Jórsson á Kastalabrekku
sagði að 2100 krónur, sem bændur
hefðu nú fengið fyrir hvern dilk væri of
litið Sagði Sigurður að greinilega
þyrfti að leita svara við því hvers vegna
misræmi væri á milli afurðalánanna og
þess sem bændur fá Talað væri um að
afurðasölufélögin ættu að fá 75% af
láni. Sláturfélagið greiddi 68% af sögn
stjórnarformannsins. en bændur héldu
þvi fram að þeir fengju aðeins 63%.
Þá mótmælti Sigurður þeim ummæl-
um Jóns Bergs, forstjóra Sláturfélags-
ins, sem komið höfðu fram i samtali
við hann i Morgunblaðinu að — það
væri aðeins fámennur hópur bænda.
sem ekki vildi að hann væri formaður
vinnuveitendasambandsins.
Ólafur Ólafsson. kaupfélagsstjóri á
Hvolsvelli. itrekaði að kaupfélögin
væru búin að lána bændum út mest af
innlegginu áður en það kæmi til
greiðslu og sagði kaupfélagið á Hvols-
velli nú eiga útistandandi um 100
milljónir hjá bændum Þá vakti hann
athygli á þvi að bændur ættu ekki að
þurfa að borga söluskatt af gripum.
sem þeir láta lóga fyrir sig til heimilis-
nota.
Að siðustu tóku þeir aftur til máls
Halldór Gunnarsson i Holti, Árni Jóns-
son. Sigurjón á Galtalæk og að lokum
tók Magnús á Lágafelli til máls og
þakkaði mönnum komuna og góða
fundarsetu, enda hafði fundurinn þá
staðið i nær 7 klukkustundir og alltaf
fyrir fullu húsi.
— Úrsögn
úr NATO . . .
Framhald af bls. 40
Flutningsmenn viðaukatil-
lagnanna voru sex þeirra, sem
sæti áttu f stefnuskrárnefnd,
en munu tilheyra þeim hópi,
sem kallaður er „órólega deild-
in“ á ASÍ-þinginu.
Drög þau að stefnuskrá ASt,
sem lágu fyrir þinginu, voru
samþykkt óbreytt. Hefur ASI
því f fyrsta skipti í 36 ár eign-
ast stefnuskrá, en frá þvf er
nánar skýrt á bls. 18 f blaðinu í
dag.
— Fjárhags-
áætlun
Framhald af bls. 40
þau muni nema á næsta ári 5,1
milljarði króna, sem er 27,3%
hækkun frá fjárhagsáætlun þessa
árs. Borgarstjóri sagði í ræðu
sinni að gert væri ráð fyrir að
hagnýta heimild til 10% álags á
útsvör eins og venja hefur verið
og verður þvf fylgt sömu
álagningarreglum og undanfarin
ár. Verður þvf ekki um hlutfalls-
lega hækkun útsvara f Reykjavfk
að ræða.
Áætlun þessi um tekjur af út-
svörum er byggð á spá um, að
hækkun á brúttótekjum gjald-
enda f Reykjavfk milli ára muni
nema 27% og gjaldendum muni
fjölga um 1%.
Áætlað er, að fasteignagjöld
muni nema 1,3 milljörðum króna
og hækki um 36,5%. Borgarstjóri
sagði, að þessi áætlunartala væri
við það miðuð, að aðalmat fast-
eigna frá áramótum 1969/1970
verði framreiknað um 336% i stað
273% eins og var á þessu ári en
það jafngildir 23,1 % hækkun. Þá
gerir fjárhagsáætlun ráð fyrir, að
notuð verði heimild til 40% álags
f stað 30% á þessu ári og 50% á
árunum 1972—1975. Með þvf að
nota fullt álag eins og þá var gert
hefðu fasteignagjöld orðið um 96
milljónum króna hærri. Borgar-
stjóri sagði að áfram yrði fylgt
þeirri stefnu að veita tekju- eða
efnalitlum elli- og örorkulffeyris-
þegum undanþágu að verulegu
eða öllu leyti frá greiðslu fast-
eignagjalda.
Borgarstjóri sagði í ræðu sinni,
að á sfðustu dögum liöins
mánaðar hefði verið upplýst, að
yfirfasteignamatsnefnd mundi
ákveða framreikningsstuðul fyrir
skráð matsverð fasteigna f
Reykjavfk sem að meðaltali
mundi þýða hækkun, sem nemi
5.9 földun frá matsgrunninum
1970. Þetta nýja matsverð mundi
að öðru óbreyttu þýða 55—57%
hækkun fasteignagjalda á næsta
ári. Sagði borgarstjóri, að enginn
léti sér til hugar koma að standa
að slfkri hækkun fasteignagjalda.
Nauðsynlegt væri þvf að gera
lagabreytingar á næstu einni til
tveimur vikum f þessu sambandi
og hefði félagsmálaráðuheytinu
verið bent á nauðsyn þess.
Áætlað er að aðstöðugjöld muni
gefa borgarsjóði f tekjur nær 1500
milljónir króna sem er 31%
hækkun. I ræðu borgarstjóra kom
fram að hlutfallsleg nýting
aðstöðugjalda er meiri f Reykja-
vfk en í öðrum sveitarfélögum og
væri þetta athyglisvert f ljósi
þeirra ásakana, sem minnihluta-
flokkarnir hefðu sett fram, að
borgarstjórnarmeirihlutann viidi
hygla atvinnurekendum sérstak-
lega.
IIELZTU (JTGJÖLD
Af helztu útgjaldaliðum borgar-
sjóðs má nefna að varið verður til
fræðslumála tæpum 1500
milljónum króna, til heilbrigðis-
og hreinlætismála nær 780
milljónum, til félagsmála nær 2
milljörðum. Nánar verður skýrt
frá ýmsum þáttum fjárhags-
áætlunar sfðar svo og umræðum f
borgarstjórn um hana.
— Líbanon
Framhald af bls. 1.
hann bera ábyrgð á fhlutun
Sýrlendinga.
Pierre Gemayel, leiðtogi
falangistaflokksins, sagði að
tilræðið sannaði að erlendir
aðilar vildu viðhalda öngþveiti
f Lfbanon og öðrum Araba-
löndum. Camille Chamoun,
leiðtogi annars stærsta flokks
kristinna manna, kvað tilræðið
ögrun til þess ætlaða að koma
til leiðar nýrri árás
Sýrlendinga á Palestínumenn f
Lfbanon og aðstoð annarra
Arabarfkja við Palestínu-
menn.
Árásin á Khaddam kann að
hafa verið gerð til að mótmæla
fhlutun Sýrlendinga en talið er
að hún verði til þess að
Sýrlendingar verði ennþá
ákveðnari f að halda áfram
friðararaðgerðum. Næsta
skrefið verður að fá deiluaðila
til að láta vopn af hendi. Sam-
kvæmt áreiðanlegum heimild-
um hafa Sýrlendingar veitt
þeim frest til sunnudags og
hótað að beita valdi ef vopnun-
um verður ekki skilað.
Bashir Gemayel, yfirmaður
herráðs falangista, sagði f dag
að menn sfnir mundu ekki sila
vopnum sfnum fyrr en þeir
væri vissir um að vopnahléð
yrði varanlegt og um þetta yrði
að semja. Talið er að tilræðið
við Khaddam hafi bundið enda
á hik Sýrlendinga f þessu máli.
— Úr hugskoti
Framhald af bls. 13.
um og þykja mér þeir þættirnir að
sfnu leyti minnisstæðastir eins og
t.d. Gleðskapur f Mikley — þar
sem sögð er saga af augnabliks
mikilmennskukasti fátæks bónda
endur fyrir löngu og sfðan lfkt við
ástand það sem nú rfki með þjóð-
inni: „Við erum aldagamall
sveitamaður í mjög lfflegri kaup-
staðarferð...“
Eins og fyrr segir eru allir þætt-
ir þessarar bókar stuttir og minn-
ir hún þvf að sumu leyti á bókina
Ljóðabréf (1973). Lengri ritgerð-
ir eða erindi, sem Hannes hefur
birt eða flutt við ólfkustu tæki-
færi og af ýmiss konar tilefni,
hefur hann ekki kosið að hafa
með að þessu sinni, ef til vill
samræmisins vegna. Vonandi
safnar hann því efni í aðra bók þó
síðar verði.
tTr hugskoti er ekki stór bók, en
eigi að siður mikilla sanda og
sæva. Það, sem i henni stendur,
hefur að vfsu mátt lesa áður — í
kvæðum skáldsins. En hér birtist
það allt í skæru ljósi og milliliða-
laust.
Erlendur Jónsson
— Eignarráð
Framhald af bls. 23
um það, að hann gangi ekki
slyppur og snauður frá henni.
Akvæðið um veiðirétt er á þann
veg hugsaö, að bóndi, sem hefur
keypt jörð vegna veiðiréttar m.a.,
verði gefinn kostur á að eiga og
nýta veiðiréttinn f allt að 20 ár.
Eftir það verði veiðirétturinn
rfkiseign. Um bótareglur verði
haft hliðsjón af framtölum
viðkomenda, þegar um hann er að
ræða.
I frumvarpi Alþýðu-
bandalagsins er gert ráð fyir því
sem heildartakmarki að allt land
verði rfkiseign, en hins vegar
vilja þeir halda veiðirétti hjá
bændum (bújörðum), þótt hann
sé ótvfrætt braskvaldur og geti
reynzt hættulegur á ýmsa lund i
þróun eða tilfærslu eignar á
jörðum. — Við erum til viðtals
um hugsanlegar lagfæringar á
frumvarpinu, sagði Bragi að
lokum en ég undirstrika þá sann-
færingu okkar, að landið allt og
miðin umhverfis það eigi að vera
alþjóðareign (ríkiseign) með
gögnum og gæðum.
(Rétt er að árétta að hér er
aðeins stiklað á stöku efnis-
atriðum úr ræðum þingmanna,
mörgu sleppt og ekki um beina
endursögn að ræða).