Morgunblaðið - 19.12.1976, Blaðsíða 40
munið trúlofunarhringa
litmvndalistann ýfflh
#uU $c !§>tlfur
Laugavegi 35
SUNNUDAGUR 19.DESEMBER 1976
Landskeppni
í skák tefld í
gegnum telex
lestir
— ÞAÐ eina, sem vantar nú á
loðnumiðin NA af Horni, er fleiri
skip, því um leið og þau koma á
miðin er mjög góð veiði, sagði
starfsmaður Loðnunefndar í sam-
tali við Morgunblaðið í gær-
morgun. Loðnuskipin sex, sem
enn eru á veiðum, komu á miðin i
fyrradag eftir að hafa landað
fullfermi. Skipin munu öll hafa
Framhald á bls. 34
Verðlítill tíkall veld-
ur tapi á stöðumælum
tJTLIT ER fyrir, að f fyrsta
skipti sfðan stöðumælar voru
settir upp I Reykjavfk fyrir
tæpum 20 árum geri þeir ekki
meira en að standa undir sér.
Það er, að innkomin stöðu-
mælagjöld og aukaleigugjöld
dugi til að greiða eftirlit, taln-
ingu og leigu af lóðum, en hins
vegar verði ekkert fé afgangs
til kaupa á nýjum stöðumælum
og til framkvæmda á bflastæð-
um. Ástæðan fyrir þessum
versnandi hag er sú að tfu-
krónapeningurinn dugar ekki
legnur f vaxandi verðbólgu
stöðumælagjöldin hafa ekki
fylgt hækkandi verðlagi.
Er stöðumælar voru fyrst
settir upp í Reykjavík í byrjun
árs 1958 var notazt við krónu-
peninginn. Hann varð fljótfega
of lítill og tveggja-
krónupeningurinn leysti hann
af hólmi. Sfðan kom fimm-
krónupeningurinn, en einnig
hann varð of lítill og nú er sú
staða komin upp að „tfkallinn"
gerir ekki meira en rétt að
duga. Með óbreyttum myntteg-
undum yrði næsta skref að nota
50-krónupeninginn, en stærð
hans er mjög óhentug fyrir
stöðumælana og þyrfti að gera
á þeim verulegar breytingar áð-
ur en hægt yrði að nota hann.
Að sögn Guttorms Þormar
verkfræðings hjá Reykjavíkur-
borg hefur þess verið óskað við
Seðlabankann að tillit verði
tekið til stöðumæla, er næsta
Framhald á bls. 34
Tfu-krónapeningurinn er orð-
inn f mínnsta lagi. (ljósm.
RAX).
Mamma, mig langar í þetta og þetta og þetta og þetta. . . Ljósm. Ól.K.M.
EFTIR áramótin hefst nýstárleg
landskeppni f skák, sem tsland
verður þátttakandi f. Er þetta
landskeppni, sem fer fram í gegn-
um telex. Keppnin er á vegum
Alþjóðaskáksambandsins og er
hún með útsláttarfyrirkomulagi.
Búið er að draga saman lönd, og
mætir Island Skotlandi I 1.
umferð.
Að sögn Einars S. Einarssonar,
forseta Skáksambands Islands, á
1. umferðinni að vera lokið fyrir
Jólatréð
í Garðabæ,
30. apríl n.k. Hver sveit verður
skipuð 8 mönnum, 6 karlmönnum,
einni konu og einum unglingi.
Keppt verður eitt kvöld og
leikirnir sendir með telex milli
landa en sveitirnar verða f sfnu
hvoru landinu, sfnu heimalandi.
Fulltrúi frá hvoru landi verður
viðstaddur í hinu landinu, svo að
tryggt sé að allt fari fram eftir
settum reglum. Sagði Einar S.
Einarsson, að hann gerði sér von-
ir um að fsland gæti teflt fram
sínu bezta liði í keppninni.
Þátttökuþjóðir eru 14, Island,
Skotland, Finnland, Pólland,
Ástralía, Svíþjóð, Noregur, Dan-
mörk, Frakkland, Holland, Sovét-
rikin, V-Þýzkaland, A-Þýzkaland
og Guyana.
eyðilagt
I FYRRINÓTT gerðist sá
atburður, að stórt jólatré, sem
stendur í Garðabæ, nálægt
Hafnarfjarðarvegi, var brotið og
er það ónýtt talið. Tréð er vinar-
bæjargjöf og hefur verið sett upp
á þessum stað um áraraðir. Átti
að tendra ljósin á trénu nú um
helgina. Lögreglan í Hafnarfirði
vinnur að rannsókn þessa máls,
en talið er að hópur unglinga hafi
þarna verið að verki.
Mikil ölvun
og fanga-
geymslur
troðfylltust
MIKIL ölvun var f höfuðborginni
í fyrrinótt og annrfki lögreglunn-
ar mikið. Fangageymslurnar við
Hverfisgötu fylltust og voru t.d.
35 manns í fangaklefunum f gær-
morgun. Nokkuð bar á ryskingum
fyrir utan skemmtistaði og var
ástandið einna verst við unglinga-
skemmtistaðinn Tónabæ. Að sögn
lögreglunnar var ölvunin miklu
meiri um þessa helgi en venju-
lega er um helgar.
Handtökumálið:
Bæjarfóget-
inn fylgdist
med gangi
mála
jafnóðum
VEGNA brottvikningar Hauks
Guðmundssonar úr starfi
rannsóknarlögreglumanns f
Keflavík hafði Mbl. f gær sam-
band við Steingrím Gaut
Kristjánsson í Hafnarfirði,
sem er setudómari í kæru-
málinu vegna hinnar meintu
ólöglegu handtöku f
Guðbjartsmálinu og spurði
hann hvort einhverjar fréttir
væri hægt að segja um
rannsókn málsins.
Steingrímur kvaðst ekki
geta sagt annað en það, að
myndin væri farin að skýrast.
Hann staðfesti að fulltrúi sak-
sóknara hefði verið viðstaddur
allar yfirheyrslur í málinu. Þá
sagði Steingrimur ennfremur,
að Jón Eysteinsson, bæjar-
fógeti í Keflavfk, hefði fengið
jafnóðum upplýsingar um
gang mála með það í huga
hvort ástæða væri til að leysa
einhverja af mönnum hans frá
störfum um stundarsakir á
meðan rannsókn færi fram.
Ný rækjumið fínn-
ast á Austfjörðum
NV rækjumið fundust fyrir
nokkrum dögum f Seyðisfirði og f
Reyðarfirðl; ennfremur fundust
áður óþekkt rækjumið 60—70
mílur austur af Norðfjarðar-
horni. Það var rannsóknaskipið
Hafþór undir stjórn Sólmundar
Einarssonar fiskifræðings sem
fann þessi mið. Á meðan leiðang-
urinn stóð yfir, var mjög slæmt
veður á þessum slóðum, eða f 5
daga, og að sögn Sólmundar er
nauðsynlegt að rannsaka þessi
mið og fleiri Ifkleg rækjumið úti
fyrir Austfjörðum miklu betur á
næstunni, en allt að 270 kg feng-
ust á þessum slóðum á togtíma.
1 samtali við Morgunblaðið í
gær sagði Sólmundur að þeir
hefðu fundið rækju á stóru svæði
NA af Þórsbanka, sem væri
60—70 milur NA af Norðfjarðar-
horni. Ekki hefði verið hægt að
toga á þessu svæði sem skyldi, en
þarna væri góður togbotn og
50—120 kíló af rækju fengjust á
togtímann. Rækjan væri mjög
stór og hefðu farið 128—170
stykki í kílóið, sem væri álika og á
Kolbeinseyjarsvæðinu og norður
af Horni.
Framhald á bls. 34
Loónan:
5 skip
2300