Morgunblaðið - 19.12.1976, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.12.1976, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19.DESEMBER 1976 Franzisca Gunnarsson — Minning Gunnar Gunnarsson og frú Franzisca. Myndin er tekin i húsi Carls Nielsens tónskálds I Rungsted, en þar dvöldu þau hjónin iðulega að sumri til. Ég kynntist henni fyrst í Fjallkirkjunni. Þá hét hún Selja og kom á kvöldskemmtun í íslendingafélaginu í Kaup- mannahöfn. Við borðið sat Uggi Greipsson og kom lítið við sögu hennar það kvöld, að öðru leyti en því, að hann beitti öllum hugsanlegum brögðum til að afstýra því, að stóll hennar tepptist eða yrði fjarlægður meðan hún var að dansa, og það var hún lengst af. Engar sögur fara af því, hverja athygli hún veitti Ugga þetta kvöld, en af hans hálfu var þetta ást við fyrstu sýn, hugur hans veik ekki frá henni eftir þetta. „Hún minnti á skógarhind... það var i fari hennar eitthvað óflekkan- legt,“ skrifaði hann löngu síðar. Og það var kækur hennar, þeg- ar hún settist, að sveifla litið eitt léttum fæti á fagur- mótuðum ökkla. Síðan urðu þau hjón og lifðu saman langa ævi og stranga, stóðu ávallt hlið við hlið og dóu með fárra mánaða millibili. Frá hanabjálkanum I Nýju Austur- götu lá leiðin í Karlottulund, síðan á hefðarsetur dönsk og íslenzk og endaði i kirkju- garðinum í Viðey, þar sem þau hvíla saman við sjávarhljóðið. Og nöfn þeirra breyttust síðar i huga mínum. En það voru aðeins nafnbreytingar. Þau tvö voru hin sömu eftir sem áður — nema í Fjallkirkj- unni voru þau ung, nú voru þau roskin. Og hvort heldur ung eða roskin voru þau *mikil og ógleymanleg. Franzisca Gunnarsson var um sjötugt, þegar ég sá hana fyrst augliti til auglitis. Þá fann ég strax, að þetta var sama konan og ég hafði kynnzt ungri í Fjall- kirkjunni. Ég aðgætti meira að segja, hvort hún hefði ennþá sama kækinn og þá, að sveifla litið eitt fætinum, þegar hún settist, og ég sá ekki betur en svo væri. Og þarna sá ég sama brosið, sömu reisnina, sömu vingjarnlegu og óþvinguðu framkomuna og sömu umhyggj- una — í Fjallkirkjunni hafði hún verið um dálítið sér- lundaðan og undrastaðfastan ungling i nauðum staddan, nú hálfri öld síðar um aldraðan, frægan og mikinn mann, sem þurfti ekki siður á ástúð og umhyggju að halda en hinn ungi. Ætli hafi ekki í báðum tilfellum verið um líf eða dauða að tefla, — í æsku af því að ailar brýr höfðu verið brotnar að baki og engin leið fær nema ef sigurleiðin væri það. Fimmtíu árum síðar var heilsa Gunnars Gunnarssonar á þrot- um um skeið og þá ekki heldur nema um eina leið að velja — að geta haldið áfram að starfa. Jafnskjótt og skáldið yrði að leggja frá sér pennann hlaut lifinu að vera lokið. Það vissi Franzisca Gunnarsson vel og tók til sinna ráða — að búa honum sem ákjósanlegasta starfsmöguleika — og var hún þó sjálf orðin heilsutæp. Og þá unnu staðfestan og ástin I sam- einingu ennþá einn stórsigur- inn. Gunnar Gunnarsson bætti enn mikilsverðum þætti við sín bókmenntaafrek og dó með pennann í hendinni. Og þá kom í ljós, að baráttan við hlið hans og umhyggjan um hann var hennar líf. Hún lézt síðar en hann, eins og vera bar, en það var stutt á milli. Þannig hlaut sú saga að enda. Franzisca Gunnarsson var fædd 4. apríl 1891 í Frederica á Jótlandi. Faðir hennar var list- rænn handverksmaður, Carl Jörgensen að nafni, sonur Jörgensens járnsmiðs, þess list- ræna manns, sem skreytti ýmsa staði í Kaupmannahöfn með hagleiksverkum úr málmi, og eru þar frægust eirstiginn, sem snýr sig eins og gormur utan um turninn á Frúarkirkju, og járnhurðin fyrir Nationalbank- an öll i myndum. Móðir Franziscu var Mathilde Wenk, dóttir Hermanns Josephs Wenks bókbindara, en Wenk-ættin er austurrisk aðals- ætt. Ég efa ekki, að þessum foreldrum muni vera réttilega lýst I Fjallkirkjunni — móðirin, elskuleg og skildi vel dóttur sina og ást hennar til unga mannsins snauða með ótryggu framtíðina — líkt hafði nefni- lega hent hana sjálfa, þegar hún batt tryggðir við sinn eigin- mann. Faðirinn vildi aftur á móti ekkert með tengdasoninn hafa, botnaði ekkert í, hvaða rauðhærða apakött Selja var komin með upp á arminn. Franzisca og Gunnar Gunnarsson gengu í hjónaband 20. ágúst 1912. Aðrir voru ekki staddir við það brúðkaup en Ib og Jóhann Sigurjónsson. Þá áttu þessir unglingar ekkert annað veraldlegra gæða en vilj- ann og trúna á sjálfa sig og framtíðina — þá trú hafði hún reyndar komið með í búið, því að hans lífstrú hafði þá beðið hnekki við vonbrigði á vonbrigði ofan. En fyrsti sigur- inn var skemmra undan en þau ef til vill hefur órað fyrir, og verður sú saga ekki rakin hér. Franzisca og Gunnar Gunnarsson eignuðust tvo syni, Gunnar listmálara og Ulf yfir- lækni á Isafirði. Franzisca Gunnarsson varð strax mikill unnandi Islands og síðan alger Islendingur. Énda var annað eigi hugsanlegt, því að í hennar augum var maður hennar og Island nánast eitt og hið sama — á Islandi var hugur hans allur alla tið. Þau fluttust út hingað eins og kunnugt er árið 1939 og hófu búskap að Skriðuklaustri. Ég spurði hana eitt sinn, hvort ekki hefði verið erfitt að yfirgefa hina frjóu og mjúklátu Danmörku og gerast húsfreyja í sveit á hinu hrjóstruga Islandi. Hún svaraði með einföldu nei-i og fannst spurningin augsýni- lega fjarstæða — sem hún reyndar var. Til tslands hlaut leiðin vitaskuld að liggja — ís- land hafði hún valið, þegar hún valdi sér manninn. Siðar komst ég að því, að þau höfðu verið búin að leita lengi eftir jörð á Islandi, sem þau gætu fellt sig við, og boðizt ýmsar góðar jarð- ir, meðal annarra Kollafjörður, en höfðu ekki verið ánægð með umhverfið. En svo þegar skeyti barst frá Benedikt Blöndal á Hallormsstað um, að Skriðu- klaustur væri til sölu, hikuðu þau ekki, þurftu ekki einu sinni að kanna málið, því að þau þekktu staðinn vel bæði. Og Franzisca Gunnarsson hugs- aði ávallt með mikilli ánægju til áranna á Skriðuklaustri. Ég geri ráð fyrir, að meðan þau Franzicka og Gunnar voru búsett í Danmörku hafi hún mótað heimili þeirra að dönsk- um hætti. Og hún unni Dan- mörku ávallt mjög og talaði um Dani með mikilli hlýju. En hún vildi ekki flytja danskt andrúmsloft með sér til Is- lands. Þegar Inngað kom, gerð- ist hún islenzk húsmóðir, mótaði heimilið á allan hátt að Islenzkum venjum, bjó til islenzkan mat, vann I slátrum I sláturtíðinni, gerði skyr og strokkaði og fórst þetta svo vel úr hendi að sögn þeirra sem til þekktu, að það var engu líkara en hún væri alin upp i íslenzkri sveit. Og islenzkt var heimilið eftir að þau fluttu til Reykjavíkur 1948. Sjálf var hún burðarás þess, mótandi og skipuleggj- andi. Það yfirbragð sem við blasti, þegar komið var þar inn fyrir dyr, var hennar mótun og einkenndist umfram allt af smekkvlsi og list. Ahrifin frá þessu heimili fögnuðu gestin- um við komuna og fylgdu honum eftir viðfelldin og þægi- leg meðan hann dvaldist þar og lengi utan dyra eftir að hann kvaddi. Vissulega settu verk eftir soninn Gunnar, óvenju- fágaðan listamann, sinn svip á veggina, en allt val og skipulag var móðurinnar á heimilinu. Er ekki að efa, að þarna sagði til sín arfurinn frá hinum list- rænu handverksmönnum í föðurætt frú Franziscu. Franzisca Gunnarsson helgaði manni.sínum og heimili alla umhyggju sina og starfs- krafta — lif sitt. Þetta lét hún sitja í fyrirrúmi fyrir öllu. Til þess var tekið, hve allt væri i mikilli röð og reglu hjá Gunnari Gunnarssyni, hve fljótlegt væri að fá þar flett upp í bókum og handritum allt frá upphafi ritferils hans. Það skipulag var hennar verk. Og í hennar hlut kom að tryggja manni sinum vinnufrið. Oft hefur þó þurft eigi litla stað- festu til, því að fast var á sótt að utan. En hún lét það ekki á sig fá, var föst fyrir og ákveðin og hirti ekki um, þó að þetta skaðaði ef til vill vinsældir hennar út i frá, þvi að þetta var nauðsyn. A meðan sat maður hennar og vann. Starf hans var kjarninn, hennar hlutverk var að vernda þann kjarna. Gunnar Gunnarsson fullyrti, að ekkert hefði úr sér orðið hefði ekki frú Franziscu notið við. Ekki er auðvelt að skera úr um það, hverja afstöðu við, sem fyrir utan stöndum, eigum að takatil slíkrar fullyrðingar. Við vitum, að.Gunnar Gunnarsson lagði ekki fleipur I vana sinn, en minnumst þess um leið, að menn með skapfestu og vilja eins og hann er örðugt að brjóta. En harðar geta kring- umstæðurnar orðið, og útlitið var ískyggilegt hjá Ugga, þegar sjálf lifstrúin var á þrotum. En þá kom Selja hin unga með nýja lifstrú og fögnuð og breytti öllu. Og hvort sem nafnið er Selja eða Franzisca mun hún meðan við, lesum bókmenntir lifa áfram í hugum tslendinga — stúlkan sem lagði allt í sölurnar fyrir stórskáldið okkar, ást sina, stóð við hlið þess í striðinu og færði okkur það heim, ekki aðeins heilt á húfi, heldur mikinn sigurvegara. Við skulum ekki tala um erfiðleika í því sambandi, því að allt er auðvelt, ef ástin ræður ferð- inni, að minnsta kosti ef hún er endurgoldin, og það var hún í sögu Franziscu í rikum mæli. Franzisca Gunnarsson lézt hinn 22. okt. s.l. Hún var kaþólskrar trúar, en Gunnar skáld ekki. En það olli þeim engum erfiðleikum hvorki, I lifi né dauða. Þau fundu kirkju- garð á tslandi, sem bæði var fyrir kaþólska og mötmælendur — kirkjugarðurinn í Viðey. Eirlkur Hreinn Finnbogason Verulegur gjaldeyrissparnaður af innlendri lyf jaframleiðslu „TILGANGURINN með stofn- un þessa fyrirtækis fyrir 20 ár- um var að leys aðkallandi vandamál varðandi útvegun á lyfjum og hjúkrunarvörum,“ sagði Sverrir Magnússon stjórnarformaður Pharmaco hf., á funda með fréttamönnum fyrir skömmu. „Sameiningin strandaði í kerfinu“ Snemma hóf fyrirtækið fram- leiðslu á töflum og stungu- lyfjum i smáum stíl. Um það leyti var mikið rætt um fram- tiðarskipan lyfjaframleiðslu hér á landi, en fram til þess tíma höfðu ýmsir aðilar annazt lyfjaframleiðslu og innflutning, m.a. stærstu apótekin. Flestir fagmenn hölluðust að því að einhvers konar miðskipun framleiðsl- unnar væri æskilegust og jafn- vel nauðsynleg til að spara ónauðsynlega fjárfestingu í dýrum tækjum í mörgum verk- smiðjum og lækka framleiðslu- kostnað. Leitaði Pharmaco þá eftir samstarfi við stærsta lyfja- framleiðandann, þ.e. Lyfja- verksmiðju nkisins, „en sú málaleitan strandaði einhvers staðar í kerfinu". Lyf jaframleiðslan Þegar ljóst var að um sam- vinnu yrði ekki að ræða stefndi Pharmaco að þvi að byggja upp fullkomna lyfjaverksmiðju, en auk þess flytur fyrirtækið einnig talsvert inn af lyfjum. Innlenda framleiðslan hefur þó vaxið mikið á undanförnum árum og er nú að magni til tvöföld á við innflutninginn, en hins vegar aðeins ‘4 hluti inn- flutningsins að útsöluverð- mæti. Fyrirtækið framleiðir um átta lyfjaflokka og margar tegundir innan hvers flokks. Má þar nefna töflur (130 teg.) stungulyf (29 teg.), smyrsl (19 Forráðamenn fyrirtækisins: F.v. Steinar Berg Björnsson, fram- kvæmdastjóri, Sverrir Magnússon stjórnarformaður og Werner Rasmusson, fyrrv. framkvæmdastjóri. Ljósm. RAX- teg.), lyfjahylki (4 teg.), stílar (15 teg.), augndropar (12 teg.), og hvít magamixtúra (2 teg.). Til októberloka á þessu ári framleiddi verksmiðjan rúm- lega 20 milljón töflur. Mest eru það vitamín og magnyltöflur og einnig taugalyfi- Diazepam. Sem fyrr segir hafa umsvif fyrirtækisins aukizt jafnt og þétt og í ár er veltan-áætluð 300 milljónir. Fullkomin rannsóknarstofa I árslok 1971 tók til starfa fullkomin rannsóknarstofa vel búin tækjum og þar er fylgzt með framleiðslunni daglega á öllum stigum, allt frá hráefni til fullunnins lyfs komnu í sölu- umbúðir. Rannsóknarstofan, sem þá var sú eina sinnar tegundar I landinu, kostaði full- búin rúmar 5 milljónir, en þess má geta að það var þá 1/7 af veltunni og því mikið átak,. Það kom einnig fram á fund- inum að með óverulegri viðbót við vélakost fyrirtækisins, einkum á sviði pökkunar lyfja I staðlaðar umbúðir, getur hún fullnægt þörfum landsmanna Framhald á bls. 34

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.