Morgunblaðið - 19.12.1976, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19.DESEMBER 1976
Jólasöngvar í
Bústaðakirkju
1 DAG, síðasta sunnudag fyrir jól,
verður að venju efnt til sérstakr-
ar guðþjónustu i Bústaðakirkju,
þar sem höfuð áherzlan er lögð á
vinsæla jólasöngva og framlag
barna og unglinga. Verður engin
sérstök barijasamkoma, en for-
eldrar hvattir til að koma með
börnum sínum til þessarar fjöl-
skyldusamveru I kirkjunni.
B :rnaskólarnir i sókninni,
Breiðagerðis og Fossvogsskólar,
leggja til bæði söng og leikþætti.
Mun kór Breiðagerðisskóla
syngja undir stjórn Þorvarðs
Björnssonar, söngkennara, en
börn úr Fossvogsskóla flytja leik-
þátt undir stjórn kennara sinna.
En ung stúlka úr Fossvogsskóla,
Björk Guðmundsdóttir, mun einn-
ig syngja einsöng. Ur Réttarholts-
skóla koma ungmenni, sem mynd-
að hafa strengjasveit, og flytja
þau nokkur lög. Og Ingólfur
Jónsson frá Prestbakka leggúr
einnig til jólasögu til flutnings, og
er hún lesin af nemanda úr skól-
anum. En Ingólfur hefur samið
jólasögu til flutnings á slíkum
samkomum nú árum saman.
Jólasöngvarnir hefjast kl. 2 sfð-
degis og eru eins og fyrr segir
ætlaðir allri fjölskyldunni, og er
ekki að efa, að hinn rétti undir-
búningur hátfðarinnar mótast við
söng og flutning vekjandi efnis á
þessum fjórða sunnudegi í að
ventu.
Frá Bústaðasöfnuði
— Feginn að
vera laus
Framhald af bls. 1.
mikilvægu hlutverki í því að
koma fangaskiptunum til leiðar,
voru saman komnir til að fagna
Bukovsky á flugvellinum f Genf,
en fyrir fram var ekki vitað með
vissu hvar sovézka þotan mundi
lenda.
Bukovsky hefur fengið leyfi til
að setjast að i Bretlandi en sótt
var um landvistarleyfi þar fyrir
hann fyrir nokkru, að þvf er full-
trúi ráðuneytisins greindi frá í
dag. Enn er ekki vitað hvort
Bukovsky flyzt til Bretlands, en
rithöfundurinn Olive Penn, sem
ásamt manni sinum, leikaranum
David Markham, hefur tekið
mikinn þátt f baráttunni fyrir þvf
að fá Bukovsky sleppt úr haldi,
kvaðst i dag búast við þvf að hann
kæmi til að búa hjá þeim hjónum
á búgarði þeirra á Suðaustur-
Englandi. Þar hefði herbergi
staðið honum reiðubúið í nokkurn
tima. David Markham er nú í
Sviss til að taka á móti Bukovsky
og fjölskyldu hans.
Bukovsky var meðal þeirra
fyrstu, sem lýstu þvf yfir á opin-
berum vettvangi, að sovézk yfir-
völd héldu andófsmönnum f geð-
veikrahælum, en undanfarin þrjú
ár hefur hann verið f Vladimir-
fangelsinu utan við Moskvu.
Luis Corvalan hefur verið í
ýmsum fangelsum í Chile sfðan
herforingjaklfkan þar velti
Allende og stjórn hans af stóli
fyrir þremur árum. Nóbels-
verðlaunahafinn Andrei
Sakharov og 20 aðrir þekktir
andófsmenn í Moskvu höfðu talið
að flugvélin með Bukovsky innan-
borðs legði upp frá alþjóðaflug-
vellinum Sheremetyeve, og voru
þar samankomnir um það leyti,
sem ráðgert hafði verið að flug-
vélin legði af stað.
Sakharov sagði við erlenda
fréttamenn, að fangaskiptin bæru
vott um raunsæi og mannúð, og
vonir stæðu til að þetta væri fyrir-
boði náðana allra pólitískra
fanga, — hvar sem væri f
heiminum. Sakharov kvaðst hafa
áhuga á því að hitta Corvalan að
máli f Moskvu. „Sem fyrrverandi
pólitfskur fangi ættum við að hafa
margt um að tala,“ sagði friðar-
verðlaunahafinn.
Á Sheremetyevo var einnig
Grigorenko, fyrrverandi hers-
höfðingi, sem verið hefur f tvö ár
í prfsund á geðveikrahæli. Hann
sagði, að með þessum fangaskipt-
um hefðu sovézk yfirvöld viður-
kennt, að pólitískir fangar væru
til í Sovétrfkjunum, en hingað til
hefur slíkum ásökunum jafnan
verið vísað á bug.
Helzta málgagn kommúnista-
flokks Austur-Þýzkaland, Neues
Deutchalnd, nefndi ekki
Bukovsky á nafn í dag en segir
hins vegar að lausn Corvalans sé
árangurinn af starfi „öflugrar
samstöðuhreyfingar", sem teygi
anga sína um víða veröld. Blaðið
fagnar þvi ákaflega að Corvalan
hafi verið sleppt og segir meðal
annars: „Þessi barátta hefur ekki
verið til einskis. Luis Corvalan er
frjáls. Tímarnir hafa breytzt,
málstaður okkar hefur unnið
mjög á. Fastistar og aðrir óvinir
mannkynsins komast ekki lengur
upp með að gera allt sem þá
lystir."
Franski kommúnistaflokkurinn
hefur fangað því að Bukovsky
skuli hafa verið sleppt úr haldi og
fordæmir harðlega að fólk sé
svipt frelsi eða sent í útlegð vegna
skoðana sanna, og um leið og
fagnað er fangaskiptum stjórn-
anna f Chile og Sovétrfkjunum,
segir í yfirlýsingu flokksins, að
sósfalisminn eigi ekki aðeins að
tryggja frelsi heldur einnig að
stuðla að þróun þess.
— Ný rækjumið
Framhald af bls. 40
Þá sagði Sólmundur að þegar
gefið hefði hefðu þeir á Hafþór
athugað rækjumið að Austfjörð-
um, frá Seyðisfirði til Berufjarð-
ar. 1 Seyðisfirði fannst gott
rækjusvæði á móts við Brimnes
og þar fengust allt að 270 kg á
togtímann. Rækjan þar er mun
smærri en á djúpmiðunum og
fóru 252 stykki i kílóið að meðal-
tali. Tveir bátar á Seyðisfirði hafa
þegar sótt um að stunda tilrauna-
veiðar á þessum slóðum, en stærð
svæðisins er mjög takmörkuð.
Þá sagði Sólmundur, að í Reyð-
arfirði hefðu fundizt 2 rækju-
svæði, en óvíst væri um magnið
þar. Einn bátur frá Reyðarfirði
hefur þegar hafið tilraunaveiðar
á þessum svæðum.
— Jólasundmót
öryrkja
Framhald af bls. 26
tilbúnir að taka á móti stórum
hópi fatlaðra. En með aðstoð
margra sjálfboðaliða svo og
starfsfólks sundstaðanna tókst
að yfirstíga margan vanda, sem
leysa þarf I framtíðinni.
— Það var t.d. ánægjulegt að
sérstök lyfta var sett upp fyrir
fatlaða við sundlaug Árbæjar-
skólans meðan á mótinu stóð.
Slíku tæki þarf að koma upp
við fleiri sundstaði sem fyrst.
— Ástæðan fyrir þvf að þetta
fyrsta sundmót öryrkja á veg-
um ISI tókst svo vel, sem raun
varð á, má vafalaust þakka
þeim skrifum og auglýsingum,
sem birtust á hverjum degi I
Morgunblaðinu, og blaðið hét
þessu máli öllum þeim
stuðningi, sem það gæti látið I
té. Ber að fagna því að fjöl-
miðill hefur hér riðið á vaðið
með aðstoð við mikilvægt
málefni fyrir fatlaða og þar
með þjóðina.
— Efling íþróttastarfs fyrir
öryrkja á án efa eftir að skila
ríkulegum arbúið með aukinni
starfsorku og starfsgleði þeirra.
Mót þetta verður því sterkur
hvati fyrir ISI að halda áfram
að efla þennan þátt íþrótta-
starfsins, sagði Gisli Halldórs-
son að lokum.
— Tíkall
Framhald af bls. 40
mynt verður selgin. En hún
mun varla komast í umferð og
notkun við stöðumælana fyrr
en í byrjun árs 1978. Eins og
verðbólgan hefur verið hér á
landi undanfarin ár leiðir það
af sjálfu sér, að þar sem stöðu-
mælagjöld hafa ekki fhækkað
lengi, verður um stórt stökk að
ræða er þau hækka næst. Þó
fólki finnist hækkun stöðu-
mælagjalda mikil þegar hún
verður, þá er hún f rauninni
ekki mikil miðað við verðlags-
þróun alménnt.
Rætt hefur verið um, að svo-
nefnd aukaleigugjöld, þ.e.
stöðumælasektir, sem greiddar
eru innan viku frá broti, verði
hækkaður úr 100 krónum i 500
krónur á næsta ári. Myndi þessi
hækkun gera það að verkum að
halli yrði ekki á rekstri stöðu-
mælanna á næsta ári, en hins
vegar ekki fé til framkvæmda
frekar en ætlar að verða f ár, að
þvf að Guttormur Þormar hefur
áætlað.
I þau tæplega 20 ár sem
stöðumælar hafa verið notaðir
á bílastæðum í Reykjavík,
hefur alltaf verið einhver
rekstrarafgangur af stöðu-
mælunum, þar til nú að dæmið
virðist rétt ætla að sleppa. Af
stöðumælagjöldum og auka-
leigugjöldum fyrir sfðasta ár,
1975 varð rúmlega tveggja
milljón króna afgangur til
framkvæmda. Hver stöðumælir
kostar um 30 þúsund krónur
uppsettur og f ár hafa verið
settir upp 229 mælar. I borg-
inni er því nú 891 mælir.
Árið 1975 fækkaði stöðumæl-
um hins vegar í borginni og var
það mest vegna mikilla
skemmdarverka, en Reykja-
víkurborg keypti 250 nýja
stöðumæla og hafa flestir
þeirra verið settir upp f ár, eins
og áður sagði.
Rætt hefur verið um það að
stytta tímann fyrir hverjar 10
krónur, en fallið frá þeirri hug-
mynd. Breytingar á stöðumæl-
unum myndu kosta drjúgan
pening og taka tíma, þannig að
það þykir ekki borga sig. Auk
þess sem 15 mánútur þykja ekki
langur tfmi en hver stundar-
fjórðungur kostar þá upphæð á
þeim bílastæðum, sem mest eru
notuð.
— Loðnan
Framhald af bls. 40
fengið fullfermi og fóru a.m.k.
þrjú þeirra til Siglufjarðar með
aflann.
Skipin sem voru búin að
tilkynna um afla í gærmorgun
voru þessi: Pétur Jónsson RE, 550
lestir, Sæbjörg VE 300, lestir,
Súlan EA, 650 lestir, Grind-
vfkingur GK, 580 lestir, og Ársæll
GK, 200 lestir. Þá er Mbl. kunnugt
um að Rauðsey AK var á leað til
lands en skipið hafði ekki
tilkynnt um aflamagn.
— Gjaldeyrir
Framhald af bls. 18
um nokkra framtíð á þeim
tegundum, sem þegar eru fram-
leiddar, að viðbættum ýmsum
tegundum, sem þegar eru í
undirbúningi, eftir þvf sem
leyfi heilbrigðisyfirvalda gera
kleift.
Gjaldeyris-
sparnaður
Það hefur sýnt sig að lyfja-
Verksmiðjan hefur fyllilega
valdið sínu hlutverki, auk þess
sem gjaldeyrissparnaður er
mikill. Er hann fyrst og fremst
fólginn f þvf að nýta innlenda
fagvinnu I stað erlendrar, en
við Islendingar eigum á að
skipa ágætlega menntuðum
lyfjafræðingum, sem fyllilega
standast samjöfnuð við það sem
bezt gerist meðal nágranna-
þjóða okkar., Einnig er gjald-
eyrissparnaður fólginn i að
greiða sjálfum sér framleiðslu-
kostnað og ágóða.
Iðnaðarhúsinu
v/ Ingólfstræti
sími 16 2 59.
Nýkomið mikið úrval af þýzkum velour sloppum, kjólavelour,
ennfremur handklæði, baðmottur, kaffidúkar, jóladúkar, púða-
borð og fyllingar, að ógleymdri finnsku glervörunni.
(mnmcfínwHwh&ið
Iðnaðarhúsinu
v/ Ingólfstræti
sími 16 2 59.