Morgunblaðið - 09.01.1977, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JANUAR 1977
xjomiopð
Spáin er fyrir daginn f dag
Hrúturinn
|l)| 21. marz — 19. aprfl
Þú ert fullur af nýjum hugmyndum, sem
munu koma sér vel, bæði fyrir þig og
aðra. Gefðu þér tíma til að sinna fjöl-
skyldunni (kvöld.
Nautið
20. aprfl -
- 20. maf
Rómantfkin stendur f miklum blóma
þessa dagana. Þú kynnist nýju og
skemmtilegu fólki í kvöld.
'k
Tvíburarnir
21. maf — 20. júnf
Góður dagur, eyddu honum heima með
fjölskyldu þinni. Fjármálin þarfnast
nokkurrar lagfæringar, ræddu málin.
-:m£)
m
Krabbinn
'M 21. júní — 22. júlí
Góður dagur til að fara út og skemmta
sér. Stutt ferðalag eða heimsókn mun
veita þér mikla gleði. Þú kannt að fá
mikiivægar upplýsingar.
Ljónið
23. júlí — 22. ágúst
Stutt ferðalag eða heimsókn mun verða
mjög ánægjuleg. Kvöldinu er best varið
heima f hópi góðra vina og kunningja.
Mærin
I/ 23. ágúst — 22. spet.
Þú kannt að fá vitneskju um mál, sem
lengi hefur vafist fyrir þér. Þú færð
óvænta, en ánægjulega heimsókn f kvöld.
Vogin
W/iS* 23. sept. — 22. okt.
Þú ættir að sinna yngri kynslóðínni
meira en þú hefur gert. Ljúktu verkefni,
sem þú ert byrjaður á. Kvöldinu er best
varið heima.
Drekinn
23. okt — 21. nóv.
Góður dagur til að gera smábreytingar á
hlutunum. Vinir þfnir eru fullir af hug-
myndum, hlustaðu á ráðleggingar þeirra.
Bogmaðurinn
22. nóv. — 21. des.
Þú kannt að fá mikilvægar upplýsingar
ef þú ferð f stutt ferðalag. Vinir þínir
veita þér mikínn stuðning f mikilvægu
máli.
Steingeitin
22. des. — 19. jan.
Þú munt geta komið hugmyndum þfnum
á framfæri og framkvæmt þær án nokk-
urra mótmæla. Farðu f kirkju.
|i
Vatnsberinn
20. jan. — 18. feb.
1 dag skaltu einbeita þér að náminu. Þú
kynnist nýju fólki, sem mun verða góðir
vinir þfnir.
^ Fiskarnir
19. feb. — 20. marz
tutt ferðalag á mannamót mun verða
njög ánægjulegt. f sambandi við atvinn-
na skaltu treysta nýtilkomið samband.
LJÓSKA
mmmw
SHERLOCK HOLMES
FERDINAND