Morgunblaðið - 11.01.1977, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANUAR 1977
David Harvey, markvörður Lceds, grfpur knöttinn við nefið á Malcolm McDonald, hinum marksækna
framherja Arsenal-liðsins. Á laugardaginn tökst báðum þessum 1. deildar liðum að komast áfram f
bikarkeppninni — Lees með miklum glæsibrag.
EINA ÁHUGAMANNALIÐIÐ
KOMST ÁFRAM í BIKARNUM
ENSKA bikarkeppnin var á dag-
skrá á laugardaginn. Þá var leikin
3. umferð þessarar miklu keppni
og voru leikirnir hvorki fleiri né
færri en 32 talsins, enda komu
liðin úr 1. og 2. deild nú fyrst inn
I keppnina. (Jrslit flestra leikj-
anna urðu eins og búist var við
fyrirfram, en eins og alltaf var
nokkuð um óvænt úrslit. Má þar
nefna, að eina áhugamannaliðið I
keppninni, Northwitch Victoria
sló út Watford I 4. deild, Cardiff
sló Tottenham út og Wimbledon,
sem ekki á sæti I ensku deildun-
um f jörum gerði markalaust jafn-
tefli við Middlesbrough á heima-
velli og sömuleiðis gerði Crystal
Palace úr 3. deild jafntefli við
Liverpool. 11 leikjum af 32 lauk
með jafntefli og verða liðin þvl að
berjast að nýju nú I vikunni. Eitt
þeirra liða sem gerði jafntefli
voru núverandi bikarmeistarar
Southampton. Þeir léku við
Chelsea á heimavelli og varð jafn-
tefli 1:1. Mætast liðin að nýju á
Stamford Bridge I Lundúnum,
heimavelli Chelsea.
Chelsea, sem nú hefur forystu í
2. deild, varð fyrra til að skora í
leiknum á laugardaginn og gerði
Gary Lock markið. En í seinni
hálfleik tókst Southampton að
jafna metin og markið gerði aðal
markaskorari liðsins á síðustu ár-
um, Mick Cannon. Meistararnir fá
þvi annað tækifæri til að komast í
4. umferð.
Northwitch Victoria var tvíveg-
is marki undir á móti Watford en
áhugamannaliðið átti frábæran
endasprett og tryggði sér sigurinn
undir lok leiksins. Þar með er
liðið komið í 4. umferð og hefur
möguleika á því að dragast á móti
einhverju þekktu liði úr deildun-
um. Wimbledon hefur þótt erfitt
heim að sækja, og er þess
skemmst að minnast að Leeds átti
í miklu basli með liðið fyrir
nokkrum árum. Leikmenn
Middlesbrough fundu ekki leið-
ina I gegnum vörn Wimbledon, og
markalaust jafntefli var stað-
reynd./
Tottenham hefur átt erfitt upp-
dráttar I vetur og félagið varð að
bíta I það súra epli að falla úr
bikarkeppninni I Cardiff. Eina
mark leiksins gerði Peter Sayer
strax á 7. mínútu. Mestan hluta
leiksins reyndu leikmenn Totten-
ham að brjóta niður vörn Cardiff,
en tókst ekki, og þar með komst 2.
deildar liðið áfram en 1. deildar
liðið var úr Ieik. Arsenal er I
miklu stuði um þessar mundir og
vann nú útisigur á móti Notts
County. Eina mark leiksins gerði
Trewor Ross á 77. minútu, en all-
an heiðurinn af markinu átti Alan
Hudson, sem Arsenal keypti ný-
lega frá Stoke. Miðlandsliðin
Leicester og Aston Villa börðust
hart á Filbert Street, velli
Leicester. Aston Villa hafði betur
I þeirri viðureign og eina mark
leiksins gerði markaskorarinn
mikli Andy Gray skömmu fyrir
leikslok. Gray lék hér á landi með
Dundee Utd. fyrir nokkrum ár-
um, þegar skozka liðið lék við ÍBK
I UEFA-keppninni.
Ensku meistararnir Liverpool
mættu Crystal Palace úr 3. deild á
heimavelli sínum. Palace, sem
komst I 4-liða úrslit keppninnar I
fyrra, ætlar sér greinilega stóra
hiuti, því liðið náði jöfnu, 0:0, á
móti meisturunum.
ENSKA BIKARKEPPNIN, 3. UMFERÐ:
Birmingham —Portsmouth
Blackpool — Derby
Cardiff — Tottenham
Carlisle — Matlock Town
Charlton —Blackburn
Coventry —Milwall
Darlington —Orient
Fulham — Swindon
Halifax —Luton
Hereford — Reading
Hull — Port Vale
Ipswich — Bristol City
Kettering Town — Colchester
Leeds United — Norwich
Leicester City — Aston Villa
Liverpool — Crystal Palace
Mancester City — West Bromwich
Manchester United — Walsall
Northwich Victoria — Watford
Notthingham Forest — Bristol Rovers
Notts County — Arsenal
Oldham — Plymouth
Queens Park Rangers — Shrewsbury
Sheffield United — Newcastle 0:0
Southhamton —Chelsea
Southend — Chester
Sunderland — Wrexham
Eest Ham — Bolton
Wimbledon —Middlesbrough
Wolverhamton — Rotherham
ENGLAND, 3. DEILD:
Northamton —Tranmere
Oxford — Chesterfield
Sheffield Wed —Brighton
York — Gillingham
ENGLAND, 4. DEILD:
Stockport — Workington
Bournemouth — Huddersfiedl
Crewe Alexandra — Brentford
Doncaster — Cambridge
Exeter — Barnsley
Hartlepool —Torquay
Rochdale— Swansea
Scunthorpe — Bradford
SKOTLAND, URVALSDEILD:
Ayr Utd — Aberdeen
Dundee Utd — Celtic
Hearts — Pattick Thistle
Motherwell — Hibernian
Rangers Kilmarnock
1:0
0:0
1:0
5:1
1:1
1:0
2:2
3:3
0:1
1:0
1:1
4:1
2:3
5:2
0:1
0:0
1:1
1:0
3:2
1:1
0:1
3:0
2:1
1:1
0:4
2:2
2:1
0:0
3:2
3:4
3:2
0:0
2:2
1:0
1:0
3:2
1:0
4:0
1:0
2:1
0:0
1:2
SKOTLAND, 1. DEILD:
Abroth — Hamilton
Dumbarton — Montrose
East Fife — Queen of the South
Falktik — St. Mirren
Morton — Dundee
2:1
2:2
1:1
Barcelona er
efst á Spáni
AÐ 17 umferðum loknum I
spænsku deildarkeppninni, hefur
Barcelona forystu með 25 stig.
Athletico Madrid hefur 23 stig,
Real Sociedad og Valencia hafa 21
stig og Real Madrid, sem hefur átt
misjöfnu gengi að fagna i síðustu
leikjum, hefur hrapað úr toppsæt-
inu niður í 5. sæti með 19 stig.
Úrslit í 17. umferð á sunnudag-
inn urðu þessi:
Real Madrid — Málaga
Real Betis — Barcelona
Elchc — Hercules
Espanol — Sevilla
Real Sociedad — Burgos
1:0 Celta — Real Zaragosa
1:1 Valencia — Atlethici Madrid
3:0 Las Palmas — Atletici Bilbao
4:1
1:3
2:1
0:0
4:1
0:0
2:3
2:1
NYR BILL SIGRAÐI I FYRSTA
GRAND PRIX KAPPAKSTRIÁRSINS
ARGENTlNSKI Grand Prix
formulu I kappaksturinn fór
fram í Buenos Aires á sunnudag-
inn, en það er fyrsta keppnin af
mörgum, sem gefur stig i heims-
meistarakeppninni f kappakstri.
Þau övæntu úrslit urðu að Jody
Scheckter frá Suður-Afrfku bar
sigur úr býtum á glænýjum bíl,
sem ber heitið Wolf Ford. Bíll
þessi, sem er frá Kanada, hefur
ekki áður verið á kappaksturs-
brautinni, svo að segja má að
hann hafi þarna fengið „drauma-
start“.
Á ýmsu gekk i þessum 317 kiló-
metra langa akstri. ökuþórarnir
þurftu að fara 53 hringi á braut-
inni og heltust ýmsir úr lestinni,
svo sem heimsmeistarinn James
Hunt frá Bretlandi, sem ók utan í
grindverk og varð að hætta, Niki
Lauda, fyrrverandi heimsmeist-
ari, sem varð fyrir vélarbilun og
Svíinn Ronnie Petersson. Lengst
af hafði Norður-Irinn Jonh
Watson forystuna á Braham, en á
48. hring náói Scheckter for-
ystunni og hélt henni til loka og
krækti sér þar með í 9 stig i
keppninhi um heimsmeistaratign-
ina. Meðalhraði. hans var tæpir
190 kílómetrar. Annar í röðinni
varð Carols Pace, Brasilíu á
Braham, þriðji Carlos Raute-
mann, Argentinu á Ferrari, fjórði
Emerson Fittipaldi, Brasilíu á
Copersucar, fimmti Mario
Andretti, Bandaríkjunum á Lotus
og sjötti Glay Reggazzoni, Sviss á
Ensign.
Sigurbifreiðin og liðið í kring-
um hana er gert út af kanadískum
milljónamæringi að hafni Walter
Wolf. Er þetta í fyrsta skipti, sem
hann teflir fram liði í Grand Prix
kappakstri. Scheckter, sem er 36
ára, gekk til liðs við Wolf í fyrra-
haust, en hann var áður hjá
Tyrrell. Það var því engin furða,
að hann segði eftir keppnina að
sigur hans væri kraftaverk. Allt
væri nýtt, bæði bíllinn og liðið, og
því væri sigur hans kraftaverk.
Wolf, 37 ára gamall olíu-
milljóneri, kostaði 13 milljónum
islenzkra króna til smíði nýja bíls-
ins.
66 DANIR ATVINNU-
MENN í KNATTSPYRNU
Klammer ósigrandi í bruni
AUSTURRlSKI Ólympíumeistar-
inn Franz Klammer sigraði í
bruni og landi hans Klaus
Heiddegger sigraði í stórsvigi I
mikilli skiðakeppni, sem fór fram
í Garmisch-Partenkirchen i Vest-
ur-Þýzkalandi um helgina, en
keppni þessi er liður í heimsbik-
arkeppninni.
Brunkeppnin fór fram á iaugar-
daginn og hafði Klammer tals-
verða yfirburði yfir keppinauta
sína. Virðist enginn geta skákað
Klammer í bruninu, en hann hef-
ur nú sigrað i sjö mótum i röð.
Meðalhraðinn hjá Klammer á
laugardaginn var rúmlega 120 km
á klukkustund og fór hann braut-
ina af miklu öryggi, en hún var
3220 metra löng og fallhæð 920
metrar. 1 öðru og þriðja sæti urðu
einnig Austurrikismenn, Ernst
Winkler og Peter Wirnsberger.
í stórsviginu á sunnudaginn
hafði Sviinn Ingimar Stenmark
nauma forystu eftir fyrri ferðina í
þeirri seinni féll hann í brautinni
og var þar með úr leik. I fyrsta
sæti varð Austurríkismaðurinn
Kiaus Heidegger, á aðeins einum
hundraðasta úr sekúndu betri
tíma en næsti maður, Ólympiu-
meistarinn Heini Hemmi frá
Swiss, Þriðji varð Willi Fromm-
ellt, Lictenstein.
Staðan í heimsbikarnum er nú
sú, að hinn 22 ára gamli Klammer
hefur forystu með 75 stig, Heini
Hemmi fylgir fast á eftir með 73
stig, Klaus Heiddegger hefur 70
stig, Italinn Piero Gros hefur 64
stig og í fimmta sæti er heims-
meistarinn Ingimar Stenmark
með 54 stig.
ALLS ERU nú 66 danskir knatt-
spyrnumenn atvinnumenn I knatt-
spyrnu og leika þeir F sjö löndum.
Langflestir eru í Vestur-Þýzkalandi
eða 23 og hafa margir þessara leik-
manna getið sér þar mjög gott orð.
Frægastur þeirra dönsku leikmanna
sem nú leika i Þýzkalandi er vafa-
laust hinn lágvaxni Allan Simonsen
sem leikur með Boroussia
Mönchengladbach, en hann hefur
verið einn af helztu máttarstólpum
liðsins allt frá þvi að hann kom til
þess. 13 danskir leikmenn eru at-
vinnumenn F Sviþjóð, 12 eru F Hol-
landi, 8 F BelgFu. 6 F Sviss, 2 F
Frakklandi og einn á Spáni og F
Austurriki.
Sá danskur knattspyrnumaður
sem hefur mestar tekjur er Henning
Jensen, sem spánska félagið Real
Madrid keypti nýlega af Bayern
Munchen. Greiddi Real Madrid svim-
andi upphæð fyrir Jensen. Hitt er
svo annað mál, að Jensen hefur átt
fremur erfitt uppdráttar slðan hann
kom til félagsins og hefur t.d. ekki
leikið með liðinu að undanförnu.
Frakkarnir kusu Juantorena
IÞRÓTTAFRÉTTAMENN
franska blaðsins L Equipe völdu
Alberto Junantorena frá Kúbu
Iþrótttamann ársins 1976 I hinu
árlega kjöri sfnu, en blaðið veitir
þeim fþróttamanni sem titilinn
hlýtur mjög vegleg verðlaun.
Hlaut Juantorena 149 stig í at-
kvæðagreiðslu blaðsins. 1 öðru
sæti varð rúmenska stúlkan
Nadia Comaneci með 121 stig, en
sfðan komu Kornelia Ender (A-
Þýzkalandi) 107 stig, Lasse
Viren, (Finnlandi) 69 stig, Irena
Szewinska (Pólandi) 38 stig,
Brian Godell (Bandaríkjunum)
34 stig, Eric Tabarly
(Frakklandi) 33 stig, John Naber
(Bandarfkjunum) 32 stig og
Jointy Skinner (S-Afríku) 31
stig.
Henning Jensen — tekju-
hæstur danskra atvinnu-
manna.