Morgunblaðið - 17.02.1977, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1977
17
Tékkar átelja
gagnrýni Svía
16.
febrúar.
Stokkhólmi,
Reuter.
DUSAN Spacil, aðstoðarutan-
rlkisráðherra Tékkóslóvakíu,
sagði 1 gærkvöldi að rlkisstjórn
sfn gæti ekki sætt sig við gagn-
rýni Svfa á baráttuna gegn þeim
sem undirrituðu mannréttinda-
yfirlýsinguna f Tékkóslóvakfu.
Spacil er í tveggja daga opin-
berri heimsókn í Svíþjóð og sagði
þetta á blaðamannafundi að lokn-
um viðræðum við sænska utan-
ríkisráðherrann, frú Karin Söder.
í viðræðunum kvaðst hann hafa
lýst furðu og reiði vegna opin-
berrar gagnrýni sænsku stjórnar-
innar.
„Við erum fullfærir um að ráða
við vandamál okkar sjálfir og
sættum okkur ekki við afskipti af
innanlandsmálum okkar. Sænska
stjórnin verður að sætta sig við þá
staðreynd að þetta fólk (sem
undirritaði mannréttindayfirlýs-
inguna) er gagnbyltingarmenn."
„Satt að segja skiljum við ekki
hvers vegna ríkisstjórnir hlusta
heldur á þetta fólk en okkur, full-
trúa þjóðar Tékkóslóvakiu," sagði
ráðherrann.
Áður hafði talsmaður sænska
utanrikisráðuneytisins sagt að frú
Söder hefði sagt á fundinum með
dr. Spacil að með því að meina
þeim sem undirrituðu yfirlýsing-
una að taka þátt í umræðum um
ástandið í Tékkóslóvakíu gerði
stjórnin í Prag sig seka um órétt-
læti og bryti auk þess i bága við
mannréttindi.
Makaríos
vill segja
af sér
Aþenu, 16. febrúar. AP.
MAKARIOS erkibiskup segir að
hann ætli að segja af sér embætti
forseta Kýpur þegar samkomulag
takist um friðsamlega sambúð
milli Kýpurbúa af grfskum og
tyrkneskum ættum.
Hann sagði i viðtali í dag við
gríska blaðið Eleftherotypia að
slikt samkomulag yrði að tryggja
sameinaða og sjálfstæða Kýpur.
Blaðið hefur eftir Makariosi að
vissir aðilar í Bandarikjunum og
Evrópu vilji helzt að hann tak-
marki sig við kirkjustörf og hann
nefndi í þvi sambandi Helmut
Schmidt, kanslara Vestur-
Þýzkalands.
Makarios sagði að þessir menn
teldu að hann væri helzti þrándur
í götu samkomulags vegna ein-
strengingislegrar afstöðu. Hann
sagði að næstu kosningar i Tyrk-
landi yrðu lykill samkomulags.
Hann kvaðst ekki vilja útiloka að
samkomulag tækist fyrir lok
þessa árs eða snemma á næsta ári.
DANMÖRK — Raðherrar í stjórn Anker Jörgensens eftir að sigur jafnaðarmanna
í kosningunum lá fyrir.
Talið frá vinstri: Poul Dalsager, Orla Möller, Egon Jensen, Knud Heinsen,
Anker Jörgensen, Ivar Nörgaard, Eva Gredal, Svend Jakobsen, Niels Mathiasen,
K.B. Andersen og Jörgen Peter Hansen.
T*I
Símamynd AP.
Politiken vill fá
meirihlutastj ór n
Makarios
Sérlegur sendimaður Carters
forseta, Clark Clifford, er vænt-
anlegur til Nikosíu á morgun til
viðræðna við Kýpurmálið, og fer
seinna til Ankara. Viðræður eru
þegar hafnar milli Makariosar og
Rauf Denktash, leiðtoga tyrk-
neskumælandi Kýpurbúa.
Kaupmannahöfn, 16. febrúar.
NTB.
POLITIKEN hvetur í dag til
mvndunar meirihlutastjórnar
með þátttöku hægri- jafnt sem
vinstriflokka. Blaðið telur slfka
stjórn bezt þjóna þjóðarhagsmun-
um eins og nú sé ástatt en gerir
ekki tillögu um hvaða flokkar
skuli standa að slfkri stjórn.
Politiken hvetur til þess að
stjórnin verði stækkuð þannig að
einstakir ráðherrar fái afmark-
aðra starfssvið.
Aðalmálgagn sósíaldemókrata
er sigri hrósandi og kallar kosn-
ingaúrslitin sigur fyrir Anker
Jörgensen forsætisráðherra og
samstarfsstefnu hans.
Aktuelt segir að kosningarnar
hafi verið reiðarslag fyrir Vinstri
flokkinn. „Hartling vildi kosning-
ar og fékk þær. Vinstri flokkur-
inn fékk sinn dóm“, segir blaðið.
Jyllands-Posten varar borgara-
flokkana við því að láta blekkjast
af fagurgala Anker Jörgensens
um meirihlutastjórn, „Þinginu og
lýðræðinu er bezt þjónað með
minnihlutastjórn sem verður að
bera fram tillögur sinar fyrir opn-
um tjöldum," segir blaðið.
Um ósigur Venstre segir Jyll-
ands-Posten: „Illur fengur illa
forgengur."
Komúnistamálgangið Land og
Folk varar einnig sósíaldemó-
krata við meirihlutastjórn og seg-
ir að verkamenn muni líta for-
sætisráðherra slíkrar stjórnar
sömu augum og hvern annan for-
sætisráðherra borgaralegrar
stjórnar.
Sósíaldemókratablaðið Born-
holmeren segir aó ósigur Venstre
sé mikilvægari en sigur sósial-
demókrata. „Dómurinn yfir
Venstre er heilbrigðismerki sem
gefur ástæðu til að vona að sigrast
megi á hættunni sem lýðræðinu
er búin,“ segir blaðið.
Fv. CIA-manni aftur
synjað um landvist
Hnífjöfn barátta um
þingsæti Færeyinga
Frá Jogvan Arge,
Þórshöfn í Færeyjum í gær.
HÖRÐ barátta verður háð um
þingsætin 1 kosningunum 1 Fær-
eyjum sem fara ekki fram fyrr en
1. marz. 1 kvöld var samið um
framboð sameiginlegs lista Fólka-
flokksins og lista Zacharias
Wangs.
Þar með mun fyrst og fremst
þingsæti Erlendar Paturssonar
komast í hættu. Lýðveldisflokkur-
inn stendur einn að sínum lista,
en brot úr flokknum býður fram
með Fólkaflokknum og kunnugir
telja að ekki sé útilokað að
Sambandsflokkurinn hafi mögu-
leika í kosningunum.
Listaframboðin hafa þróazt
þannig að verið getur að þingsæti
sósíaldemókrata sé í nokkurri
hættu svo að ef á heildina er litið
er óhætt að segja að um verði að
ræða hnífjafna keppni en að listi
sósíaldemókrata annars vegar og
listi Fólkaflokksins og Zacharias
Wangs hins vegar standi bezt að
vígi.
Núverandi þingmenn eru
Erlendur Patursson úr Lýðveldis-
flokknum og Johan Nielsen úr
flokki sósíaldemókrata.
Á lista Fólkaflokksins er talið
að Jögvan Sundstein lögþings-
maóur geti fengið flest atkvæði og
á hinum sameiginlega lista
Zacharias Wang. Efstur á lista
Sambandsflokksins er Pauli
Ellefsen lögþingsmaður og efstir
á lista sósialdemókrata eru Atli
Dam lögmaður og Johan Nielsen.
Sjálfstjórnarflokkurinn og
Framfaraflokkurinn hafa venju-
lega svo litið fyigi að þeir koma
ekki til greina í kosningum til
danska þingsins, jafnvel þótt þeir
semji við aðra um sameiginlegan
framboðslista.
Kosningabaráttan er þegar
hafin. I gærkvöldi voru frambjóð-
endurnir á kosningafundi í
Sörvaag og í kvöld eru þeir í
Vestmannahavn.
London, 16. febrúar. Reuter.
TVEIR bandarfskir rithöfundar,
Philip Agee og Mark Hosenball,
hafa beðið ósigur f baráttu sinni
fyrir því að fá að vera um kyrrt í
Bretlandi og fengið skipun um að
fara úr landi að þvf er Merlyn
Rees innanrfkisráðherra til-
kynnti á þingi f dag.
Hróp voru gerð að Rees þegar
hann sagði að hann stæði við fyrri
ákvörðun sína um að vísa mönn-
unum úr landi af öryggisástæð-
um.
Agee er fyrrverandi starfsmað-
ur bandarfsku leyniþjónustunnar
CIA og Hosenball er blaðamaður
við Lundúnablaðið Evening
Standard. Þeir fengu að vera
áfram í Bretlandi þegar þeim
hafði verið visað úr landi meðan
fram færu leynileg réttarhöld til
að fjalla um áfrýjun þeirra gegn
brottvisuninni.
Rees sagði að undir venjulegum
kringumstæðum yrðu mennirnir
sendir til heimalands þeirra
Bandarikjanna, en hann kvaðst
fús að taka til greina beiðni sem
kynni að koma frá þeim um að
þeir yrðu sendir til einhvers ann-
ars lands ef þeir gætu sýnt fram á
fyrir marzbyrjun að það land vildi
taka við þeim.
Aðalásökunin gegn Agee var sú
að hann hefði haldið við sam-
bandi sínu við erlenda leyniþjón-
ustustarfsmenn og dreift upp-
lýsingum sem væru skaðlegar
brezku öryggi. Innanrikisráðu-
neytið sagði að Hosenball hefði
aflað til birtingar upplýsinga sem
væru skaðlegar brezku öryggi.
Os takynning, Ostak) í dag og á morgun frá kl. 14—18. rnning
Guðrún Hjaltadóttir, húsmæðrakennari kynnir Osta-pizzu
með nýrri kryddsósu (Pizza-Pronto) o.fl. ostarétti.
( Eigum til Nýjar úrvals uppskriftir
góóa riqta- nn Qmii irbúðin
Pizzuskera UOlll UU Ollijl Snorrabraut Jl UUUII1