Morgunblaðið - 17.02.1977, Page 24

Morgunblaðið - 17.02.1977, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. FEBRIJAR 1977 Heimdallingar á fundi með þáverandi borgarstjóra, Geir Hallgrímssyni og formanni Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktssyni végna borgarstjórnarkosninganna I Reykjavlk i maí 1962. Félagsdeildir stofnaðar í Árbœjar- og Breiðholtshverfi • A AÐALFUNDI Heimdall- ar 28. október 1971 var sam- höfum lýðræðisins hverju sinni og gagnrýna þegar nauðsyn ber. Gagnrýni þessi hefur aukist hin síðustu ár, samfara aukinni sjálfs- gagnrýni félagsins. Breyttir tímar Sú starfsemi er einkennt hefur félagið hin síðustu ár er fjöl- breytni stjórnmálastarfsins. Með sérhæfingu nútímans hafa hinir ýmsu hópar tekið við öðrúm verk- éfnum en hinum beinu afskiptum af stjórnmálum þjóðarinnar. Þannig hefur Heimdallur getað einbeitt sér betur að stjórnmála- starfi og seilst til aukinnar áhrifa innan Sjálfstæðisflokksins. Út- gáfustarfsemi hefur verið mikil og 1975 hóf Gjallarhorn, málgagn Heimdellinga, göngu sína að nýju en það hafði fyrst komið út 1972. Siðan hefur blaðið komið út með nokkuð jöfnu m'illibili en fjárhag- ur félagsins. hefur staðið því nokkuð fyrir þrifum. Nú er áætl- að að blaðið komi út mánaðarlega yfir vetrartímann. , Nýjar deildir Með hinni öru íbúafjölgun Reykjavíkur og hinum nýju hverfum borgarinnar hefur stjórn Heimdallar þótt nauðsyn á breyttu skipulagi til eflingar félagsins í úthverfum. Því hafa verið stofnaðar deildir í Breið- holti fyrir jól 76, og í Árbæjar- hverfi í byrjun þessa árs. Deild í Langholtshverfi var þegar stofn- uð. Eflist því starfið í úthverfum til muna og um leið hafa fleiri tekið ábyrga afstöðu í stjórnmál- um, til farsældar þjóð okkar, þótt enn vanti mikið á að ungt fólk hér á landi taki nægan þátt í starf- semi, er vill vernda lýðræðið og glæða það þrótti til aukinna fram- fara og réttlætis. þykkt skipulagsbreyting á lög- um félagsins sem fól það f sér að Heimdallur yrði ekki lengur félag heldur kjördæmissamtök. 1 samræmi við þessi nýju lög var fyrsta félagsdeildin, Loki f Langholti, stofnuð árið 1973. 1 vetur hefur ötullega verið unnið að frekari framkvæmd á lögum þessum. Tfunda nóvem- ber 1976 var gengist fyrir stofn- un Þórs FUS í Breiðholti sem sfðan hefur starfað af miklum krafti. Félagar f Þór FUS hafa gengist fyrir viðtalstfmum borgarstjórnarmanna og þing- manna við íbúa hverfisins, fé- lagsmála- og stjórnmálafræðsla var haldin f janúar, einnig fjöl- sóttur fundur um byggingamál ungs fólks, skemmtikvöld og bréf var sent öllu ungu fólki f Breiðholti á aldrinum 16—35 ára til kynningar á félaginu og baráttumálum þess. Formaður Þórs FUS er Er- lendur Kristjánsson; bflstjóri. 1 janúarlok var síðan gengist fyrir stofnun Dags FUS í Ár- bæjar- og Seláshverfi og þó að skammt sé um liðið frá stofnun þess félags þá hefur þegar ver- ið dreift í hverfinu bréfi til auglýsingar á féiaginu og markmiðum þess. Á döfinni eru viðtalstímar við kjörna fulltrúa fólksins í hverfinu bæði á þingi og f borgarstjórn og efnt verður til kynningar- funda um ýms málefni og fé- lags- og stjórnmálafræðsla verður haldin f febrúarlok. Formaður Dags FUS er Gfsli B:ldvinsson, kennari. Aðkallandi málefni ungs fólks STJÓRN ÞÓRS í BREIÐHOLTSHVERFI — Neðri röð f.v.: Ragn- heiður D. Gfsladóttir, Jóna Rún Gunnarsdóttir og Halldóra Björk Jónsdóttir, varaformaður. Efri röð f.v.: Þorsteinn S. Mckinstry, Sigurður I. Steinþórsson* Haukur Þ. Hauksson, Erlendur Kristjánsson, formaður, Bárður Steingrímsson og Atli Þór Símonarson. STJÓRN DAGS 1 ÁRBÆJARHVERFI — Fremri röð frá vinstri: Jóhanna Scheving, Gísli Baldvinsson form., og Ingibjörg R. Ólafsdóttir. Aftari röð f.v.: Ólafur H. Bergsson, Reynir Karlsson, varaformaður, Kristjón Örn Kristjónsson og Einar Atlason. Af skiljanlegum ástæðum hefur •imdallur látið sér annt um mál- ni skóla og menntunar. Eins og ur segir setti félagið sér nemrna markmið um jafnan rétt 1 náms og því nauðsyn námslána g styrkja, svo og atvinnuaðstöðu kólafólks. _ , . .... Ennfremur beitti leimdallur sér gegn hækkun kyldusparnaðar. Þá hefur fé' igið beitt sér fyrir húsnæðis- íálum ungs fólks og má þar efna Byggung, byggingarfélag r stofnað var á vegum Heim- allar 1974 en hefur nú hafið jálfstæða starfsemi. Þá má ekki leyma þeim þætti sem nauðsyn- egur er í öllum stjórnmálum, þ.e. ð hafa vakandi auga fyrir hand- Ranða bókin Þegar Morgunblaðið hóf birtingu á leyniskýrslum SÍA (Sósialistafélags Islendinga austantjalds) í lok april 1962, vissu kommúnistar ekkert, hvaðan á þá stóð veðrið. 1 fyrstu var aðeins birt ein skýrsla, skýrsla SÍA-manna til Einars Olgeirssonar um ástand mála i Austur-Þýzkalandi, og ekkert um það getið, að blaðið hefði fleiri skýrslur undir höndum. Það olli því kommúnistum méstu hugar- angrinu í byrjun, að þeir höfðu ekki hugmynd um, hverjar eða hversu mikið af þessum skýrslum Morgunblaðið hafði fengið. Einari Olgeirssyni varð svo mikið um birtingu skýrslnanna að hann krafðist þess af SlA-mönnum að þeir eyðileggðu þau eintök af skýrslunum, sem til voru. Þetta kom fram í samtali blaðs- ins við Hörð Einarsson hrl., en hann starfaði sem blaðamaður á Morgunblaðinu á þessum tíma og sá síðan árið eftir um útgáfu SÍA- skýrslnanna í bókarformi á veg- um Heimdallar, Rauðu bókar- innar sem svo.var kölluð. Svo vildi til, heldur Hörður Einarsson áfram, að sveitar- stjórnarkosningar voru á næsta leiti, þegar skýrslurnar voru birtar. Kommúnistar voru þvi að vonum dauðhræddir um, að birting þeirra hefði áhrif á kjör- fylgið. Þó að alltaf sé að sjálf- sögðu erfitt að segja um það, hvað ræður kosningaúrslitum hverju sinni, er ég ekki í neinum vafa um það, aó ótti kommúnista reyndist á rökum reistur og að birting SÍA- skýrslnanna hafi spillt fyrir kommúnistum i kosningunum 1962, a.m.k. töpuðu þeir verulega frá næstu kosningum á undan. SÍA-skýrslurnar voru á sínum tíma náma af upplýsingum um starfsemi kommúnista og eru enn i dag mikilsverð heimild um málefni þeirra. Þær voru skrif- aðar af mönnum, sem Sósíalista- flokkurinn hafði komið til náms í kommúnistaríkjunum, — og var i skýrslunum fjallað mjög opin- skátt um ástandið í þessum löndum og afstöðu hinna ungu, íslenzku kommúnista til þeirra. Sumar lýsingarnar voru næsta óhugnanlegar, sérstaklega lýs- ingar Skúla Magnússonar á ástandinu i Rauða-Kína, en hann dvaldist í Kína á miklum um- brotatíma. Frásagnir Skúla af framkvæmd kommúnismans í Rauða-Kína eru meðal átakan- legustu lýsinga af kommúnisman- um i framkvæmd, sem ég hefi nokkurn tíma lesið, og mjög vel skrifaðar. Þá veittu sumar skýrslnanna mjög góða innsýn í innanflokks- málefni kommúnista hér á landi, í þeim voru svo miklar upplýsingar um innri mál þeirra að það var eins og íslenzkir kommúnistar stæðu hálfnaktir eftir. Nákvæm grein var gerð fyrir skiptingu kommúnista í fjölmargar klíkur, skoðanaágreiningi meðal þeirra og valdabaráttu. Eftir að Heimdallur gaf út Rauðu bókina hófu svo nokkrir SlA-mannanna málaferli á hendur félaginu og kröfðust höfundarlauna og bóta fyrir birtinguna á ritverkum þeirra. Að sjálfsögðu voru þeim á endanum tildæmdar einhverjar fjárhæðir, eins og sanngjarnt var, því að hafi einhverjir íslendingar átt skilið fjárgreiðslur fyrir skrif sin um kommúnismann, voru sumir SÍA- mannanna vissulega vel að þeim komnir. dagur í stjórnmálasögu okkar Is- lendinga. Fullveldisviðurkenning Íslands miðast við gerð sambands- lagasamningsins við Dani frá 1918, er gildi tók hinn 1. desember. Þá var haldin hátið við Stjórnarráðshúsið, þegar íslenzki fullveldisfáninn var í fyrsta sinni dreginn að hún. Síðan hefur 1. desember jafnan verið sérstæður minningardagur, en það féll þó einkum i hlut stúdenta að gera daginn hátíðlegan, og var þá jafn- an m.a. leitazt við að minnast merkra viðburða úr sögu sjálf- stæðisbaráttu þjóðarinnar og sigra á þeim vettvangi. Eftir lýðveldisstofnunina 17. júni 1944 verður hlutskipti dagsins nokkuð annað, en hans er að sjálfsögðu jafnan virðulega minnzt. Þó verður að segja, að á þessu hafi orðið veruleg breyting hin siðustu ár, eftir að kommúnistar fóru að hafa forgöngu um hátíðahald dagsins í Háskóla Islands. Skal ekki frekar að því vikið, en þó vil ég minna á að er íslendingar » höfðu náð hinum glæsilega loka- sigri i baráttu fyrir útfærslu land- helginnar í 200 milur, þótti eigi ástæða til að minnast þess sigurs einu orði í Háskóla íslands 1. desember, og má það furðu gegna. En á þessu sviði hafa Islendingar haft hina merkustu forgöngu og mikil áhrif á hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, svo að nú má vænta þess, að skammt sé að bíða, þar til 200 milna fiskveiði- lögsaga verði almennt viður- kenndur þjóðarréttur. En vegna hvers minnist ég sér- staklega á 1. desember 1939? Þá felldu íslehdingar almennt niður öll hátíðahöld, — og hvers vegna? Rauði her kommúnista i Sovét- ríkjunum hafði þá hafið innrás í Finnland, eitt Norðurlandanna, smáríki fimmtiu sinnum mannfærra en Sovétríkin, og árásin var gerð í blekkingarskyni algjörlega að tilefnislausu. Sovét- stjórnin lét á sér skilja, að hún kynni að vilja taka upp samninga við Finr.a, ef þáverandi stjórn í Finnlandi færi frá völdum. Finnar voru snöggir að forða því að þetta gæti orðið að haldi. Þeir kölluðu saman þing sitt. Þar fékk stjórn Cajanders traustsyfir- lýsingu og sagði síðan af sér. Ný stjórn var mynduð í skyndi en ekki eftir neinni útnefningu Sovétmanna. Þegar Sovétmenn sáu að hér var ekki lengur um neina átyllu að ræða mynduðu þeir sjálfir finnska stjórn. Finnskir kommúnistar voru kallaðir saman í þorpi einu við landamærin og þeir látnir kalla sig stjórn Finnlands, bráðabirgða- stjórn, sem ákallaði síðan Moskva- valdið um hjálp til þess að eyði- leggja finnska herinn. Allir íslendingar, að kommúnistum undanskildum voru fullir samúðar i garð þessarar litlu vinaþjóðar, en samúðin með henni birtist alls staðar í hinum vestræna heimi. Forsetar Alþingis fluttu ávörp i ríkisútvarpið í tilefni af fullveldisafmælinu. í upphafi ávarps sins mælti Pétur Ottesen, fyrri varaforseti sameinaðs þings, á þessa leið: „Áður en ég vik að máli mínu, vil ég fyrir hönd forseta Alþingis og lýðræðisflokkanna á Alþingi, út af fregnum þeim, sem hingað hafa borizt nú um þá hörmulegu atburði, sem eru að gerast með bræðraþjóð vorri í einu Norður- landarikjanna, Finnlandi, lýsa hryggð okkar og láta í ljós inni- lega samúð með finnsku þjóðinni. Við biðjum þess af heilum hug, að þessari kjarkmiklu menningar- þjóð megi auðnast að komast sem fyrst út úr þessari eldraun með óskertu frelsi sínu og manntaki. Við vonum i lengstu lög, og stingum þar hendinni í barm okkar eigin fámennu þjóðar, að réttlæti en ekki aflsmunur fari lies.1939 1. desember hefur um langan aldur verið merkur minningar- sigri hrósandi að lokum.“ Stúdentar sýndu finnsku þjóðinni sérstakan samúðarvott þennan dag. Hópganga stúdenta stefndi til finnska aðalræðis- mannsins, þar sem finnsku þjóðinni var vottuð innileg samúð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.