Morgunblaðið - 24.02.1977, Side 13
Reykingar
og megrun
i Stykkishólmi
Stykkishólmi, 20. febrúar.
30 MANNA hópur sótti hér nám-
skeiðið fyrir fólk sem vildi hætta
reykingum í lok nóvember. Nám-
skeiðið var haldið á vegum
Krabbameinsfélags Snæfellinga
og veittu héraðslæknarnir hér
fræðslu um tóbak og skaðsemi
þess og gáfu góð ráð og hvöttu
þátttakendur. Þessi hópur hefir
nú sparað sér rúmlega 400 þús-
und kr. sem annars hefðu farið í
tóbakskaup. Samt eru aðeins 13
sem ekki hafa byrjað aftur að
reykja nú eftir um 2.5 mánaða
skeið. En hver þeirra hefir sparað
sér 23 þúsund. Hins vegar undir-
strikar þetta þá alkunnu stað-
reynd að reykingavaninn er mjög
sterkur og þótt flestir reykinga-
menn óski eftir að hætta reyking-
um eru það tiltölulega fáir sem
reyna það og miklu færri sem
geta það. Þess vegna er langbest
að byrja aldrei.
Fyrir rúmum 3 vikum hóf 60
manna hópur í Stykkishólmi
megrun. Fólkið kemur saman
vikulega og er þá vigtað og árang-
ur hvers og eins kynntur hópnum.
Einnig er veitt fræðsla um offitu
og gefnar leiðbeiningar og ráð um
mataræði og aukna hreyfingu.
Engin lyf eða hjálpartæki eru not-
uð.
Á fjórum fyrstu vikunum hefir
hópurinn lést um 200 kg. Ein
kona hefir lést t.d. um 8.5 kg á
fjórum vikum og aðrir fylgja fast
á eftir. Áætlað er að halda þessu
áfram mánuðum saman. Pálmi
Frimannsson héraðslæknir
stjórnar námskeiðinu af mestu
röggsemi. — Fréttaritari
Á myndinni eru Saga Jónsdóttir I
hlutverki Dlsar og Hreiðar Ingi
Júlíusson I hlutverki lærisveins-
ins I göldrum.
••
Oskubuska
I EINN og hálfan mánuð
hefur Leikfélag Akureyrar
staðið fyrir sýningu á
Öskubusku eftir Schwarz,
nær alltaf fyrir fullu húsi.
Nú hefur verið ákveðið að
síðasta sýning á þessu vin-
sæla leikriti verði laugar-
daginn 26. febrúar. Það
eru því eindregin tilmæli
Leikfélags Akureyrar að
það fólk, sem einhverra
hluta vegna hefur ekki
komizt enn til að sjá sýn-
inguna, bíði nú ekki eftir
að auglýst verði í allra síð-
asta sinn. Ef uppselt
verður á sýninguna á
laugardaginn kemur kl. 2
þá verður höfð aukasýning
kl. 5 sama dag.
Hreyfilömuð börn úr
Reykjavík ásamt aðstand-
endum verða gestir Leik-
félags Akureyrar á sýning-
unni á laugardaginn. Börn-
in koma að nokkru leyti í
boði skóla síns, Flugfélags
íslands og njóta fyrir-
greiðslu ýmissa aðila á
Akureyri.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. FEBRUAR 1977
13
Klipptu auglýsinguna út.
hana sem eyðublaö undir svör þín.
þau þegar þú hefur leyst alla (3) hluta
verkefnisins. Skilafrestur til 15. mars 1977.
Viðfangsefhi tjölskyldunnar:
198 cm akstur
í keppni um Kanaríe^jaferð
Nú hefst síðasti áfangi 198 sm langrar öku-
ferðar „Katrínar hans Jóns granna“ á umferðar-
kortinu.
Þegar þú hefur svarað öllum spurningunum
merkir þú þér þennan seðil og sendir þá alla
þrjá strax til Samvinnurtygginga í einu umslagi
árituðu: Samvinnurtyggingar g.t. Ármúla 3,
Reykjavík. (Æfing í umferðarreglum).
SKILAFRESTUR ER TIL 15. MARS N.K.
STÓRA LITPRENTAÐA UMFERÐAR-
KORTIÐ hans Jóns granna þarft þú að hafa til
að geta svarað spurningunum. Það færðu gegn
200 króna gjaldi í næstu afgreiðslu Samvinnu-
trygginga. í Reykjavík fæst það einnig á bensín-
stöðvum Esso.
VERKEFNIÐ:
Katrín ekur manni sínum í vinnuna (Merkt: C).
Þau leggja lykkju á leið sína og koma jafnframt
við í pósthúsinu (Merkt:B). Síðan fer Katrín
aftur heim (Merkt:A). Atriði eru hverju sinni
talin upp í þeirri röð sem þau koma fyrir á leið
Katrínar.
AthugiÖ að svara ávallt öllum liöurn spurninganna.
NAFN ÞÁTTTAKANDA:
HEIMILI:
SiMI
Verðlaunasamkeppnin: Fylgjum reglum, forðumst slys.
S\MVI\\lTRY(í(il\(iAK GT
ÁRMÚLA3 SÍMI 38500
Á leið frá 6 til 6a.
Já Nei
6, 1 Hvort er réttara að Katrín gefi stefnumerki: —
a) Einni bíllengd áður en hún ekur til vinstri?
b) 5-6 bíllengdum áður en hún ekur til vinstri?
Á leið frá 7 til 7a.
Já Nei
7, 1 Er biðskyldumerkið:
a) Aðvörunarmerki?
b) Bannmerki?
7, 2 Hvora akreinina ætti Katrín að velja, miðað við
leið hennar um hringtorgið:
a) Hægri akrein?
b) Vinstri akrein?
7, 3 Hvaða greinar umferðarlaga væri gott að hafa í
huga þegar ekið er út úr hringtorgi og Z bíllinn
er á hægri akrein:
a) 26. gr. og 37. gr.?
b) 4. gr. og 28. gr.?
SB
BB
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
Al (iLÝSINfíA-
SÍMINN ER:
22480