Morgunblaðið - 24.02.1977, Page 22
22 MOKti'uNBLAÐIÐ, KIMMTL'DAOLR 24. KEBKÚAK 1977
Hreinsitæki
í Straumsvík
Gunnar Thoroddsen, iðnaðarráðherra, átti fyrir
nokkrum dögum viðrajður við forráðamenn sviss-
neska álfélagsins um uppsetningu hreinsitækja í ál-
bræðslunni í Straumsvík og samkvæmt fréttatilkynn-
ingu frá iðnaðarráðuneytinu, sem birt var í gær, hefur
svissneska álfélagið nú skuldbundið sig til að setja upp í
Straumsvík mjög fullkomin hreinsitæki sem kosta munu
um 4700 milljónir króna. Hins vegar liggja ekki fyrir
endanlegar upplýsingar um það á hvað löngum tíma
þessi hreinsitæki verða sett upp, en þær upplýsingar
munu liggja fyrir hjá ríkisstjórninni um næstu mánaða-
mót.
Sérstök ástæða er til að fagna þessari niðurstöðu. Það
hefur verið ljóst um nokkurt skeið, að óhjákvæmilegt
væri að komið yrði upp fullkomnum hreinsitækjum í
álbræðslunni í Straumsvík. Sveitarstjórnir á höfuð-
borgarsvæðinu, bæjarstjórn Hafnarfjarðar og borgar-
stjórn Reykjavíkur, hafa gert sérstakar ályktanir um að
leggja beri áherzlu á, að slíkum tækjabúnaði yrði komið
upp. Það hefur einnig komið fram hjá iðnaöarráðherra,
að hann hefur í þeim viðræðum, sem fram hafa farið
undanfarna mánuði við forráðamenn svissneska álfélags-
ins, lagt áherzlu á aðeins eitt atriði, uppsetningu
hreinsitækjanna í Straumsvík.
Nú hefur grundvallarákvörðun verið tekin um, að
þessi tæki verði sett upp. Hins vegar liggur ekki enn
fyrir á hve löngum tíma það verður gert. í Reykjavíkur-
bréfi Morgunblaðsins fyrir skömmu var það sjónarmið
sett fram, að nauðsynlegt væri að hreinsitækin yrðu sett
upp á sem skemmstum tíma. Það er auðvitað ljóst, að hér
er um mikla fjárfestingu að ræða. En af hálfu íslenzkra
stjórnvalda ber að leggja áherzlu á, að þessu verki verði
hraðað eins og kostur er.
Ein af þeim auðlindum, sem við íslendingar höfum yfir
að ráða umfram margar aðrar þjóðir, er hreint og
ómengað andrúmsloft. Við hljótum að leggja ríka áherzlu
á að eyðileggja ekki þá auðlind og í sambandi við
stóriðjuver, sem hér kunna að rísa í framtíðinni, hlýtur
það að verða fyrsta skilyrði að fullkomnum mengunar-
vörnum verði fyrir komið. á þetta sjónarmið hefur
svissneska álfélagiö nú fallizt í megin efnum og verður
það væntanlega til þess að hér eftir sem hingað til verði
jafn gott samstarf við þetta erlenda stórfyrirtæki og
verið hefur fram að þessu.
Áróður kommúnista
Undanfarnar vikur hefur kommúnistamálgagnið hvað
eftir annað haldið því fram, að Gunnar Thoroddsen,
iðnaðarráðherra, hafi staðið i leynimakki við forsvars-
menn svissneska álfélagsins um aðild þess fyrirtækis að
orkurannsóknum á Austurlandi og um súrálsframleiðslu
á íslandi og hafa stóru oróin ekki verið spöruð í þeim
áróðri, sem haldið hefur verið uppi í þessum efnum.
í fréttatilkynningu, sem iðnaóarráðuneytið sendi frá
sér í fyrradag eftir viðræður iðnaðarráðherra við for-
svarsmenn svissneska álfélagsins, kemur fram, aö Gunn-
ar Thoroddsen hefur skýrt þeim frá því, að ríkisstjórnin
mundi á eigin spýtur halda áfram orkuranpsóknum á
Austurlandi og að frekari athuganir á súrálsframleiðslu
væru ekki tímabærar fyrr en umhverfisvandamál sam-
fara þeirri framleiðslu hefðu verið leyst á viöunandi
hátt. Væntanlega tekur þessi yfirlýsing iðnaðarráðherra
af öll tvímæli um það, aó hér hefur enn einu sinni af
kommúnista hálfu verið þyrlað upp moldviðri, sem eng-.
inn fótur hefur verið fyrir.
fellur um sjálfan sig
Jóhann
Hjálmarsson
VETUR I STOKKHOLMI
Kettir, tré, börn
og ný kynslóð
Eftir stjórnarskiptin í Sviþjóð er
m a spurt um afstöðu nýju stjórnar-
innar til menningarmála Rithöfund-
urinn Bernt Rosengren sagði að það
myndi koma i Ijós bráðlega að
stjórnin væri ekki hlynnt fjárveiting-
um til menningarmála, ástæða væri
til að vera á verði gegn hvers kyns
menningarfjandsamlegum öflum
Bernt Rosengren er jafnaðarmaður,
ef til vill i hópi þeirra róttækustu, og
skrifar í Aftonbladet sem hann sagði
mér að væri helsta blað stjórnarand-
stöðunnar Ýmsir frjálslyndir rithöf-
undar sem ég hitti í Stokkhólmi
sögðu að Aftonbladet væri það blað
þar sem best væri fjallað um menn-
ingarmál, ekki sist bókmenntir. En
fáir tóku undir orð Bernt Rosen-
grens um breytta stefnu í menning-
armálum Per Olof Sundman sagði
að stjórnin gerði sér grein fyrir mikil-
vægi menningar Formaður Rithöf-
undasambandsins sænska, Jan
Gehlin, sagði að það væri fráleitt að
menningin yrði látin gjalda þess að
breytt hefði verið um stjórn Hann
kvaðst vænta sér góðs af stjórninni í
framtíðinni og taldi að rithöfundar
mættu vel við una Jan Gehlin hefur
unnið mikið og árangursrikt starf
fyrir sænska og norræna rithöfunda
Hann sagði að sumir vildu losna við
sig úr formannssætinu og líklega
væri hann búinn að vera of lengi i
því Hann hefur áður starfað sem
dómari og hefur nú i hyggju að hefja
dómarastörf aftur Það er merkilegt
hvað Jan Gehlin getur talað mikið
Það er alltaf eins og hann sé að
halda ræðu
Fyrsta bók Bernts Rosengrens
var skáldsaga og kom út 1963.
Siðan hafa korhið frá honum skáld-
sögur og Ijóðabækur, barnabækur,
ritgerðasöfn og útvarps- og sjón-
varpsleikrit Viðfangsefni hans er sá
hluti Stokkhólms sem nefnist Söder,
en þar er hann alinn upp. í Ijóðabók-
inni Bevápningar (1970) yrkir Bernt
Rosengren um bernsku sína og
æsku, um það hvernig strákana
dreymdi um að taka Brigitte Bardot
(þá var hún fegurst) aftan frá í stiga-
gangi á Söder og hvernig fátæktin
gerði hann róttækan i skoðunum.
Þetta er beinn og. opmskár skáld-
skapur, eiginlega stefnuskrá þar
sem skáldið hvetur til samstöðu og
stéttabaráttu Þetta kemur enn betur
í Ijós í skáldsögunni Jobbarkompis-
ar (1975) pólitiskri skáldsögu með
mottóinu: Þú ert ekki hættulaus,
hvernig þú lifir lífi þinu er vopn þitt.
Skoðunum Bernts Rosengrens
kynnist lesandinn best með þvi að
lesa ritgerðasafnið Jámlikhet ár fri-
het (1976) Þar er meðal annars
bent á dapurleik. þess að uppgötva
ekki hið ævintýralega í hversdags-
leikanam Bernt Rosengren fer ekki i
felur með skoðanir sínar, en hann er
ekki einstrengingslegur Hann á
auðvelt með að gagnrýna sjálfan sig
og bendir hiklaust á hinar veiku
hliðar hugsjónamennskunnar Hon-
um er mikið í mun að boða samein-
ingu manna, en ef til vill tekst hon-
um hvað best að segja það sem
honum býr í brjósti i stuttu Ijóði eins
og Kötturinn tréð og barnið:
Það er ekki hægt að eiga
kött
(Þeir eru til
sem halda það)
Það er ekki hægt að eiga
tré
(Þeir eru til
sem halda það)
Það er ekki hægt að eiga
ba rn
(Þeir eru til
sem halda það)
Það skiptir miklu
að vita þetta
um ketti,
tré og börn!
Christer Eriksson
Wu
.
" ■
Bernt Rosengren
Til er lag við þetta Ijóð eftir Thor
Bergner
Eg yrki um það sem er eilíft og
um rykkorn á augabrún hennar,
stendur í þriðju Ijóðabók Gunnars
Lundin Ögonblick. dagar (1976)
Um þessa bók má segja að hún er
ólik bókum Bernts Rosengrens og
þeirra skálda sem hvað mest fást við
félagsleg efni í verkum sinum
Ögonblick, dagar er eins konar aft-
urhvarf til klasssisks módernisma
Gunnar Lundin hefur verið kallaður
lærisveinn finnska skáldsins Gunn-
ars Björlings Það er Ijóst að hann
hefur ýmislegt lært af Björling, eink
um stílbrögð. en ósanngjarnt væri
að halda þvi fram að hann hefði lítið
að segja frá eigin brjósti Gunnar
Lundin sagði mér að forn íslenskur
skáldskapur hefði haft gildi fyrir sig
sem skáld í háskóla hefði hann lært
norrænu og hann gæti án mikilla
ertiðleika lesið fornan norrænar
skáldskap Hann dáðist aðformfestu
og hnitmiðun islenskra Ijóða.
G unnar Lundin býr í Upplands
Vásby. Smedsbygget nefnist húsið
sem hann býr i og það stendur við
Edsjön. Annað sænskt skáld bjó
forðum við Edsjön: Carl Jonas Love
Almqvist. Hann var eitt af höfuð-
skáldum sænskrar tungu í einu
Ijóða sinna spyr hann: Var finns en
sjö. dár man í frid och lugn kan
drukna. Finni hann hreint vatn vill
hann fá að drukkna i því Sennilega
er Edsjön ekki nógu hreinn, en um-
hverfið er einstaklega fagurt svo að
auðvelt er að skilja dálæti Gunnar
Lundins á þvi Sjálfur er hann uppla-
inn í Bromma í Stokkhólmi, en kýs
friðsæld sveitarinnar Á gönguferð
um nágrennið fræddi hann okkur
Christer Eriksson, sem er einn af
nánustu vinum hans, um tré og
gróður, fugla og fólk Þekking
Gunnars Lundins á náttúrunni kem-
ur fram i Ijóðum hans Næmt auga
fyrir hinu smágerða lífi i kringum
okkur er leiðarljós þessa fágaða
skáldskapar Hann getur eflaust tek-
ið undir þau orð Almqvists að þeir
sem ekki vilji skilja hið smáa í heim-
inum skilji áreiðanlega ekki mikið af
hinu stóra
H já skáldum eins og Gunnar
Lundin og Christer Eriksson verður
maður ekki var við hinn félagslega
tón sem er svo áberandi í sænskum
skáldskap. Þeir eru báðir ungir
menn og Ijóð þeirra ef til vill vis-
bending um nýjan tima i bókmennt-
um Fyrsta bók Erikssons Observa-
törens dagbok kemur út i vor, en
hann hefur vakið athygli fyrir bók
menntagagnrýni í Bonniers Litterára
Magasin og þýðingar sínar á Ijóðum
norska skáldsins Roberts
Jacobsens
C hrister Eriksson er sonur hins
kunna myndhöggvara og tilrauna-
manns i myndlist, Elis Erikssons, og
hefur líklega lært sitthvað af föður
sinum. Hann vinnur nú að löngum
Ijóðaflokki og styðst við gamlar Ijós-
myndir Vinnubrögð hans eru sér-
stæð. Fyrst málar hann smámynd af
þeim áhrifum sem Ijósmyndin vek-
ur, siðan yrkir hann út frá þvi sem
hann hefur málað Ljóðið er til í
mörgum útgáfum áður en það er
fullnumið Christer Eriksson sagði
að sumir vinir sínir og skáldbræður
beindu skáldskap sinum inn á
ákveðnar pólitískar brautir, til dæm-
is Per Helge En hann kvaðst ekki
hafa neina pólitíska sannfærmgu og
gæti þess vegna ekki ort pólitísk
Ijóð Hann sagði að bókmennta-
mönnunum í Svíþjóð hætti til að
hugsa of kerfisbundið Persónulég
reynsla, persónulegt mat yrði þess
vegna oft hornreka
S skáld eins og Gunnar Lundin og
Christer Eriksson eru fulltrúar nýrrar
kynslóðar í sænskum bókmenntum.
Áhugi þeirra á gömlum skáldskap
gæti m.a bent til þess að einhverra
breytinga sé að vænta í sænskri
Ijóðlist.
|lliH30pintir(ftfeifr
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarf ulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingasjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Arvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson
Þorbjorn Guðmundsson.
Bjorn Jóhannsson.
Arni Garðar Kristinsson
Aðalstræti 6, sími 10100
Aðalstræti 6, simi 22480
Askriftargjald 1 1 00 00 kr á mánuði innanlands.
j lausasolu 60 00 kr. eintakið