Morgunblaðið - 24.02.1977, Page 34

Morgunblaðið - 24.02.1977, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1977 Minning—Hafliði Jón Hafliðason Kveðja frá Sveinafélagi skipasmiða Hafliði J. Hafliðason fæddist að Dvergasteini í Hafnarfirði 3. októ- ber 1891. Hann hóf smíðanám hjá Sveini Magnússyni, bátasmiði i Hafnar- firði, í febrúar 1907, en lauk námi hjá Otta Guðmundssyni, skipa- smiði í Reykjavik, árið 1911. Hann sigldi síðan til Danmerk- ur, var í iðnskóla i Fredrikshavn og lauk þaðan námi Framhaldsnám stundaði hann við tækniskóla i Helsingör í Dan- mörku og lauk þar prófi i skipa- verkfræði i marz 1922. Hafliði var frá upphafi einn ágætasti félagi Sveinafélags skipasmiða. A undirbúningsfundi að stofnun félags fyrir skipasmiði sem haldinn var snemma árs 1934, var hann einn af þremur sem kosnir voru í nefnd til þess að undirbúa féiagsstofnunina og gera drög að lögum fyrir væntan- legt félag. Hann var I stjórn félagsins frá stofnun þess fram á árið 1945, er hann baðst undan endurkosningu egna breyttra atvinnuaðstæðna. Á þvi ári var hann kjörinn endur- skoðandi félagsins og gegndi því starfi í fjölda ára, en starf hans í stjórn félagsins hafði einmitt ver- ið gjaldkerastarfið. Vegna mannkosta sinna og hinnar miklu þekkingar sem hann hafði aflað sér, valdist Haf- liði til hinna margvíslegu starfa fyrir félagið, sem of langt mál yrði hér upp að telja. Sjálfsagt þótti að hafa Hafliða með i ráðum og þvi fremur sem viðfangsefnið var erfiðara eða flóknara og alltaf reyndist hann hinn trausti og ör- uggi félagi. Vandfundnir eru þeir menn sem vinna störf sin af sömu trú- mennsku, sömu einurð, sömu ósérhlifni og af sama heiðarleika og Hafliði J. Hafliðason gerði. Á félagsfundi i febrúar 1937 las formaður bréf til félagsins frá Hafliða J. Hafliðasyni þar sem hann skýrir frá peningagjöf tii félagsins, „sem nota skyldi sem vísi að sjóðsstofnun, sem geti orð- ið félagsmönnum til styrktar á einhvern hátt“. Fé það, sem Hafliði gaf félag- inu, var greiðsla sem hann hafði fengið fyrir teikningu af varðbát fyrir Skipaútgerð ríkisins. Þetta atvik lýsir Hafliða vel sem manni, þannig voru viðbrögð hans. Á grundvelli þessarar gjafar var strax næsta mánuð á eftir stofnaður Styrktarsjóður Sveina- félags skipasmiða og samþykkt reglugerð fyrir hann. Þessi sjóður hefur það hlutverk að greiða félagsmönnum styrk I slysa- og veikindatilfellum. Sveinafélag skipasmiða stendur ávallt í stórri þakkarskuld við Hafliða fyrir störf hans. Á aðalfundi 23. febrúar 1947 var Hafliði einróma kjörinn heiðursfélagi Sveinafélags skipa- smiða, með því vildu félagsmenn sýna skilning sinn á störfum hans og örlítinn þakklætisvott. Hafliði var fyrsti heiðursfélag- inn, síðar var Sigurður Þórðarson kjörinn heiðursfélagi, en þessir tveir menn voru burðarásar fél- agsins frá stofnun þess, og alla tíð meðan þeir störfuðu. Annar er sá þáttur Hafliða sem sennilega verður seint kannaður og aldrei þakkaður að verðleikum, en það er þáttur hans í menntun skipa- smiða hér í Reykjavik og Hafnar- firði. Frá því kennsla í skipa- teikningu var hafin við Iðnskól- ann i Reykjavík árið 1928, hafði Hafliði þessa kennslu með hönd- um. Hann kenndi ekki einungis skilateikningu, heldur einnig margvíslega og flókna útreikn- inga í sambandi við smíði skips- ins, stöðugleikaútreikninga og margt fleira. Hann gerði þetta allt á svo lifandi og eðlilegan hátt að þrátt fyrir, að nemendurnir hefðu því miður alltof litla möguleika á að vinna við nýsmiði jafnhliða náminu í skólanum, þá hélst þekking ótrúlega vel i hugum þeirra. Stóran þátt í því ftti auðvitað það mikla vald sem Hafliði hafði á viðfangsefninu, og þekking hans á eðli og eiginleikum efniviðarins sem unnið var úr, trénu, en það er eitt af grundvallaratriðum þess að kennsla komi að réttum notum. Auk þess að kenna í iðnskólan- um í Reykjavik og Hafnarfirði, undirbjó hann og þjálfaði enn frekar ófáa skipasmiði, sem ann- aðhvort ætluðu að taka að sér að sjá um smiði skipa eða fara í viðbótarnám erlendis, en Hafliði hvatti menn mjög til þess aó afla sér frekari menntunar. Með kennslunni ásamt félags- störfum hefur Hafliði manna mest unnið að þróun iðngreinar- innar áþessu tlmabili. Fyrir ailt þetta þakkar Sveina- I dag verður til moldar borinn frá Fossvogskirkju Þorlákur Guð- brandsson, einn ágætasti og alúð- legasti maður, er ég hefi fyrirhitt á lifsleið minni. „Eitt sinn skal hverr deyja,“ sagði Þórir Jökull Steinfinnsson, og það er vissulega það eina er við getum verið viss um I þessari tilveru okkar á móð- ur jörð. Þó er það alltaf svo, að maðurinn með ljáinn kemur okk- ur ætíð að óvörum, slær okkur þungum harmi, er við sjáum ást- vini okkar hverfa yfir móðuna miklu, jafnvel þótt við fylgjums með stríðinu mikla, um langan eða skamman tíma og vitum hvers sé að vænta. Þegar ég hef hlustað á konu mína segja börnum okkar frá afa, en svo var Þorlákur oft nefndur af skyldum sem óskyldum, þá held ég að ég hafi i hjarta minu fundið til minnimáttarkenndar gagnvart honum. Við sem í dag keppumst um gæði lifsins og fyll- umst streitu og öðrum fylgikvill- um nútíma þjóðfélags, hljótum að öfunda þá menn, er siglt geta, og hafa gert, I gegnum lífið með ró- semd, sem engu fær haggað, með brosi,fölskvalausu brosi sem yljar hverjum þeim um hjartarætur, erþví mætir. Hvað skyldum við heilsa mörgum um ævina? Hversu mörg handtökin munum við og hvers vegna? Að sækja Þorlák heim var eins og að fá róandi meðal við ys og þys um- hverfisins. Handtak þétt og hlýtt, góðlátlegt, innilegt bros, geislandi augu er sögðu við mann: mikið er gaman að þú komst. Ekkert fals, engin hræsni. Þannig tók hann á móti hverjum og einum og þannig kvaddi hann hvern og einn. Frá honum fór maður með frið í huga, hvíld. Ég átti þvi miður ekki því láni að fagna að kynnast Þorláki fyrr en hann var kominn á efri aldur. Okkar kynni tel ég samt, að hafi komið mér og minum að ómetan- legu gagni. Ef ég ætti að lýsa honum sem manni, þá mundi ég sennilega segja: Hann var þeirri náðargáfu gæddur að geta lesið skoðanir manna með skilningi, ljúfmennskan var einstök, aldrei heyrði ég hann tala illa um nokk- urn mann, honum veittist auðvelt að koma hugsunum sinum i góðan búning og undirbúningslaust. Greind hans var skörp, skilningur á mönnum og málefnum ljós. Orðalagið hnittið og augað glöggt á skringihiðarnar. Þorlákur Guðbrandsson er fæddur 16. april 1893 að Birgisvik á Ströndum. Foreldrar hans voru Guðbrandur Guðbrandsson, lengi hreppstjóri i Árneshreppi, og Kristín Magnúsdóttir frá Reykja- firði. Var Þorlákur yngstur af 7 systkinum. 9 ára gamall flyst Þor- lákur svo i Veiðileysu og þar á hann búsetu alveg fram til 1960, er hann flyst til Djúpavíkur en þaðan flyst hann svo aftur 1966 til Hafnarfjarðar og bjó þar til dauðadags. Kvæntur var Þorlákur Ólöfu Sveinsdóttur frá Kirkjubóli í Staðardal, Strandasýslu, en hún lést 7. april 1952. Þorláki var margt til lista lagt. Hann var hagleiksmaður á tré, vann mikið við húsbyggingar svo og aðrar smiðar og var oft leitað til hans I þvi skyni. Liðtækur þótti hann og við ýmiss konar sjúkrastörf og eru þau ófá börnin er hann hefur tekið á móti, aleinn eða með hjálp eiginkonu sinnar. Frægt varð það fyrir vestan, er saga varð í sundur mjaðmargrind konu einnar, er var I barnsnauð, og var Þorlákur fenginn til að- stoðar. Smiðaði hann ásamt bróð- ur sinum í því tilviki boga er notaður var til að styðja við mjaðmargrindina eftir barns- burðinn. Má telja vist, að þarna hefði illa farið, ef hans hefði ekki notið við. félag skipasmiða Hafliða J. Haf- liðasyni og vottar konu hans og dætrum samúð sína. Annars var fjárbúskapur aðal- atvinna Þorláks. Var hann fjall- kóngur I sveit sinni svo árum skipti, enda vel kunnugur öllum landsháttum á þessum slóðum, ihugull og áreiðanlegar. Sjóróðra stundaði hann og til að afla viður- væris I búið, sem stundum var all mannmargt. Var algengt að um og yfir 20 manns væru i heimili i Veiðileysu hjá Þorláki yfir sum- artimann, svo margir voru munn- arnir sem seðja þurfti. Er börn hans uxu úr grasi, gift- ust þau og fluttust á burt, þá þurftu þau aldrei að hafa áhyggjur út af því, hvað gera skyldi við hálfstálpuð börn sín yfir sumartimann. Hann Þorlákur afi tók við þeim. Þar var þeim vel borgið og þaðan komu þau sem hæfari einstaklingar að lokinni sumardvöl. Er Djúpavík átti sinn uppgangs- tíma, tók Þorlákur þátt í þvi sfld- arævintýri er þar átti sér stað. Lagði hann þar gjörva hönd á margt, alls staðar umsetinn varð- andi vinnu, enda reglusamur með afbrigðum, neytti hvorki vins né tóbaks og gerði aldrei. Eftir að hann fluttist á Djúpuvfk 1960 þá hélt hann áfram búskap sínum í smáum stil en stundaði grá- sleppuveiðar af miklum dugnaði, er vertíðin stóð yfir. „Allar leiðir liggja til Rómar," var sagt hér áður fyrr og við segj- um að allar Ieiðir liggi til Reykja- vikur. Strandamaðurinn, er sá börn sin fljúga á braut, leita nýrri miða og flestra á Reykjavikur- svæðinu, varð að lokum að taka sig upp og flytjast I ys borgar- svæðisins, til að vera nærri börn- um sínum og barnabörnum. Og eins og áður er sagt, þá fluttist hann til Hafnarfjarðar 1966. Mað- ur skyldi nú ætla að hann hefði sest í helgan stein og notað ávaxta sins erfiðis. Það var öðru nær. Við sem höfum kynnst kjörum Is- lenskra athafnamanna, eigum ekki svo erfitt með að skilja þetta. Þeir geta bókstaflega ekki hætt sinu starfi. Einhvers staðar stend- ur: „Verið ekki sneykir við að nálgast upptekna manninn, því hann er upptekinn, vegna þess að hann vill vera það.“ Þannig var um Þorlák. Hann setti á stofn hænsnabú I Hafnarfirði sem hann annaðist allt til dauðadags ásamt Guðlaugu og Bjarna, sem lenst hafa búið með föður sinum, að ógleymdum Þóri, sem var tiltölu- lega nýfluttur að heiman. Þar að auki var Þorlákur maðurinn er fjölskyldan sótti til I vandræðum sinum, enda vænlegasti maðurinn til að gef a holl og velmeint ráð. Síðustu 2 árin hafði Þorlákur átt við allmikla vanheilsu að striða, en þó lét hann aldrei bil- bug á sér finna og gekk að vinnu sinni, hvað sem á gekk. Er hann að lokum var lagður inn á spítala og hann sjálfur vissi að hverju dró, þá brá hann ekki venju sinni. Einlægnin skein út úr honum og maður fann hlýjuna er streymdi frá honum. Orð voru óþörf, augun t Útför eiginmanns míns og föður okkar KRISTINS HLÍÐAR Suðurgötu 110 Akranesi Verður gerð frá Akraneskirkju laugardaginn 26 febrúar kl. 1 3.30 Þeir sem vildu minnast hans eru beðnir að láta Sjálfsbjörg njóta þess Eiginkona og börn t Eiginmaður minn, faðir okkar. tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR EIRÍKSSON gullsmíðameistari, verður jarðsunginn frá Hallgrimskirkju föstudagmn 25 febrúar kl 1 5 Amalía Þorleifsdóttir Ingveldur og Birgir Berndsen Elin og Robert Staneck *■ og barnabörn t Útför fósturföður mins SIGURÐAR SIGURÐSSONAR. frá Helgafelli í Svarvaðardal, fer fram frá Dalvíkurkirkju laugardagmn 26 2. kl 2. e.h. Jarðsett verður að Tjörn Fyrir hönd dætra, tengdasona, syskina og barnabarna, Ingunn Klemenzdóttir. t Faðir okkar og fósturfaðir SIGUROUR SIGBJÖRNSSON frá Ekkjufelli, lést 1 8 febrúar í Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað Jarðarförin fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju föstudaginn 25 febrúar kl. 2 Sölvi Sigurðsson, Guðný Sigurðardóttir, Margrét Sigurðardóttir, Erlingur Sigurðsson, Sigrfður Ósk Beck, Sigurður Ármannsson. t Jarðarför VILHJÁLMS HANNESSONAR, frá Tandraseli, Borgarnesi, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 25 þessa mánaðar kl 3 Fyrir hönd vandamanna, Ragna Ólafsdóttir. t GUÐLAUGUR M. EINARSSON. hæstaréttarlögmaður, sem (ést 17 þ.m. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 25. febrúarkl 13 30 Jafnframt fer fram minningarathöfn um bróður hans, KRISTJÁN INGA EINARSSON. húsasmíðameistara, sem lést í Californlu 3. þ m. Aðstandendur. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför JAKOBÍNU INGIBJARGAR FLÓVENZ. Laugarnesvegi 86. Fyrir hönd vandamanna Gunnar Flóvenz. t Flugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför MAGNÚSAR RICHARDSONAR Eirfksgötu 1 5, Reykjavík. Hrafnhildur og Gunnar Richardson Jóhanna og Benedikt Gunnlaugsson María og Þór Magnússon Erla og Þórir S. Gröndal börn og barnabörn. Helgi Arnlaugsson, formaður. Þorlákur Guöbrands- son — Minningarorð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.