Morgunblaðið - 24.02.1977, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1977
41
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
ny ujiWnFK'aa'u tf
drykkjufólk og er það vel. Það
hefði mátt gera það fyrr. Því
teljum við rétt að þetta ákvíeði sé
sett strax og væri leyfið til fram-
leiðslu áfengs bjórs háð þessu
skilyrði. Gætum við jafnel trúað
að yrði það gert þá færi nú að fara
ljóminn af bjórfrumvarpinu og
þegar hagnaðarvonin væri ekki
eins mikil yrði hreinlega hætt að
bera að fram, og þá væri vel.
Andmælendur bjórfrumvarps-
ins.“
Bjórinn á sér líka nokkra for-
mælendur og í næsta bréfi kemur
fram sjónarmið þeira gagnvart
bjórnum:
% Þróaðri
vínmenning
Haraldur Einarsson, sem bú-
settur er í V-Þýzkalandi, hafði
samband við blaðið og sagðist
vilja mótmæla upplýsingum, sem
hefðu komið fram fra Áfengis-
varnaráði um bjórneyzlu i V-
Þýzkalandi og Finnlandi. Sagði
Haraldur að vínmenning í báðum
þessum löndum væri mun þró-
aðri, en hér á landi og gætum við
mikið Iært af þessum þjóðum.
— Drykkjuskapur á Islandi
eykst hér á landi með hverju ár-
inu og ástæðan er einfaldlega sú
að bjór er ekki leyfður hér á
landi, sagði Haraldur. — Ég
stend fyllilega með Jóni Sólnes og
s’tyð bjórfrumvarpið hans heils-
hugar. P'yrir löngu er tími til kom-
inn að stöðva alla þá hræsni og
þær lygar, sem eru í kringum
áfengismál hér á landi og upplýs-
ingar, sem sagðar eru um bjór- og
vínmenningu í öðrum löndum.
— Sjálfur tala ég af reynslu t.d.
um V-Þýzkaland. Þar er fólki á
vinnustöðum leyft að drekka einn
bjor á dag og bjórinn veldur ekki
minnstu erfiðleikum þar í landi,
hvorki á vinnustöðum né í um-
ferðinni. í Finnlandi er leyft
milliöl og ég tel það í rauninni
ekki áfengt þar sem það nær ekki
6% að styrkleika. 1 Svíþjóð er
mér sagt að neyzla sterkra
drykkja hafi minnkað mjög eftir
að bjórinn var leyfður og bjórinn
hafi verið mjög til bóta. Það er
ekki hægt endalaust að bera þessa
endemis vitleysu á borð fyrir fólk
um skaðsemi bjórsins af hálfu
andstæðinga hans. Sízt af öllu fyr-
ir fullorðið fólk, sem þekkir þessa
hluti, sagði Haraldur Einarsson
að lokum.
í»essir hringdu . . .
• Nýting
hrognanna
Kona grásleppukarls:
— Það var einhver atvinnurek-
andi furðu lostinn yfir því um
daginn í blaðinu hvað íslendingar
notuðu lítið hrogn, gráskleppu-
Tirogn í matinn hérlendis. Ég er
aftur á móti furðu lostinn yfir því
að ekki skuli vera hægt að fá
neins staðar leiðbeiningar eða
uppskriftir um notkun grásleppu-
hrognanna. Það er alls ekki sama
hvernig þau eru matreidd og það
hlýtur að vera hægt að fá ein-
hvers staðar vitneskju um hvern-
ig bezt sé að nýta þau. Minn mað-
ur er nefnilega grásleppukarl og
ég vil endilega nota hrognin eitt-
hvað. Ég hef leitað fyrir mér hjá
ýmsum aðilum en ekki fengið
neitt út úr því og vil ég gjarnan
vekja á þessu athygli ef einhver
skyldi vita betur. —
% óskalaga-
þáttur barnanna
S.H. 11 ára:
— Ég vilendilega fá að vita það
hvers vegna óskalagaþáttur barn-
anna er á þessum tíma sem hann
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á heimsmeistaramóti unglinga
1976 sem haldið var I Groningen i
Hollandi um síðastliðin áramót
kom þessi staða upp í skák
Rayners frá Wales og Kouatlys
frá Líbanon, sem hafði svart og
átti leik.
37.. .Hxd5!, 38. Hxd5 — Rf3, (Nú
hótar svartur máti á h2 og hvftur
verður að fórna hrók til að
sleppa). 39. H5d2 — Hxd2, 40.
Hxd2 — Rxd2, 41. b5 — Rc4 og
svartur gafst upp. Heimsmeistari
unglinga 1976 varð Mark Diesen,
Bandarfkjunum, en fast á hæla
hans fylgdi tékkinn Ftacnik.
er núna, það eru mjög margir i
skóla á þessum tíma, á eftirmið-
dögunum svo maður missir oftast
af þessum þætti — ég er i skólan-
um á þessum tíma og svo er um
marga fleiri sem ég þekki. Það
mætti líka lengja hann — þessar
mínútur eru fljótar að líða og mér
finnst líka að lögin mættu vera
betri. —
Þessum ábendingum hins unga
manns er komið á framfæri en um
lagavalið i þáttinn, sem hann seg-
ir að sé ekki nógu gott — hlýtur
það ekki bara að fara eftir þeim
sem biðja um lög?
0 Má aka eftir
bjórdrykkju?
Þannig spurði einn sem
hringdi og vildi fá að vita hvort
það væri leyfilegt að aka bifreið
eftir að hafa drukkið eina flösku
af 8% bjór, eins og hann orðaði
það, ef svo færi að leyft yrði að
framleiða bjór hérlendis.
HÖGNI HREKKVÍSI
Hefur hann áhrif á ákvörðunartökur yðar?
Erum fluttir með starfsemi okkar í
Síðumúla 13, Reykjavík.
Löggildingastofan,
simi 81122.
Afturrúðuhitari
Þurrkar móðu, bræðir
snjó og hrím
Auðveld
ísetning
NOTIÐ
ÞAÐ BESTA
13LOSSI
H
r
Skipholti 35 • Simar
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
HALLARMÚLA 2 - SÍMI 38402
Þér i&etui §tólad
rmuM
ao
Virðingarsæti
I langan tima hafa Eddu stólarnir auðveldað
mönnum vinnu sína og gert daginn ánægjulegan.
Verð:
EDI leður kr. 92.400.00
EDItau kr. 58.080.00
EDIIIeður kr. 84.480.00
EDIItau kr. 50 886.00
Skrifstofuhusg.deild okkar hefur einnig á boð-
stólnum úrval skrifborða, stóla, skjalaskápa, vél-
ritunarborða, teikniborða, teiknivéla auk rit- og
reiknivéla.