Morgunblaðið - 05.03.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MARZ 1977
3
Margrét Hauksdóttir,
Réttarholtsskóla
Steinunn Guðjónsdóttir,
Réttarholtsskóla
grunnskólanna á Höfuðborgar-
svæðinu á fund ráðuneytis-
stjóra menntamálaráðuneytis
og afhenti honum bréf er
hljóðaði svo:
Herra menntamálaráðherra!
Þessi ganga okkar til yðar ! dag.
er farin til þess að undirstrika
óánægju okkar með Iramkvæmd
samræmdra prófa, sem fram fóru I
síðustu viku.
Við teljum okkur hafa stuðning
megin hluta kennara og skólastjóra
flestra gagnfræðaskóla landsins
Sem dæmi um óréttlætið viljum við
benda á það. að jafnvel þó allir
nemendur næðu A einkunn, gætu
aðeins 280 þeirra hlotið hana af
þessum 4000, sem tóku prófið Auk
þess teljum við tilhögun prófanna
mjög ábótavant. Við hefðum t d.
gjarnan viljað sjá úrlausnir okkar til
að læra af okkar eigin místökum.
Þess vegna óskum við þess, að áður
nefnd próf verði ekki höfð til við-
miðunar á vorprófi.
Undirbúningsnefnd.
Fyrir utan Menntamálaráðu-
neytiö tókum við nokkra mót-
mælendur tali og spurðum þá
hvað þeim fyndist helzt að
fyrirkomulagi samræmdu próf-
anna og einkunnagjöfinni varð-
andi þau. Þeir Guðmundur V.
Valdimarsson, Sigurður
Erlingsson og Stefán Svavars-
son úr Langholtsskólanum
sögðust ekki geta fellt sig við
það að fyrirfram skyldi vera
ákveðið um dreifingu einkunna
meðal nemenda. Þá sögðust
þeir einnig vera á móti
prófunum þar sem sumir
fengju verkefni að leysa sem
Þar fer ekkert á milli mála hverjum þær Kolbrún Sigurðardóttir og
Ingibjörg Jóhannesdóttir úr Vfghólaskóla halda þarna á lofti.
Þótt 4000 nemendur nœðu
A-einkunn leyfir „kerfið”
aðeins að 280 fái hana...
NEMENDUR 9. bekkjar grunn-
skólanna á Höfuðborgarsvæð-
inu fóru I gær I kröfugöngu til
að mótmæla fyrirkomulagi
samræmdu prófanna og fram-
kvæmd einkunnagjafarinnar
sem þeim er samfara. Gengið
var undir vfgorðasöng sem leið
liggur frá Hlemmi, niður
Laugaveg, Bankastræti og
Hafnarstræti að menntamála-
ráðuneytinu, en þar var
ætlunin að hitta menntamála-
ráðherra, Vilhjálm Hjálmars-
son.
Þegar f Ijós kom að ráðherra
var ekki á skrifstofu sinni,
hann hafði skroppið úr bænum,
hófust köll og söngur þar sem
samræmdu prófunum og
einkunnagjöfinni sem þeim er
tengd, var úthúðað. Einnig
fékk ráðherra „að heyra það“,
eins og einn mótmælenda
komst að orði við blaðamann.
Fljótt eftir að gangan náði til
ráðuneytisins gekk nefnd
skipuð fulltrúum 9. bekkjar
aldrei hefðu verið kennd í
skólanum. Þá sögðust þeir ekki
skilja hvers vegna kerfi sem
þætti mislukkað í öðrum
löndum væri tekið upp hér-
lendis. Steinunn Guðjónsdðttir
úr Réttarhótsskólanum sagðist
ekki geta unað því að fólk fengi
ekki sfnar eigin einkunnir,
heldur einhverjar einkunnir
sem einhver tölva hefói ákveðið
þeim fyrirfram. „Þá vil ég að
við fáum að sjá úrlausnir okkar
svo við getum lært af mistökun-
um,“ sagði Steinunn ennfrem-
ur. Stalla Steinunnar úr Réttar-
holtsskólanum, Margrét Hauks-
dóttir, sagði að þeir nemendur
vildu koma því á framfæri að
þau vildu ekki lenda i því að fá
verkefni til úrlausnar sem þau
könnuðust alls ekki við, og
Margrét sagðist heldur ekki
geta fellt sig við kerfi þar sem
mönnum væri ákvörðuð
einkunn fyrirfram.
Þær Kolbrún Sigurðardóttir
og Ingibjörg Jóhannesdóttir úr
Krakkarnir virtust öll vera á sama máli hvaða einkunn ipennta-
málaráðherra skyldi hljóta fyrir að koma samræmdu prófunum á
(Ljósmyndir allar á sfðunni tók ágás)
Vfghólaskóla f Kópavogi báru
sín á milli spjald sem skreytt
var mynd af sjálfum mennta-
málaráðherra. Þær sögðust
vera mikið á móti þvi að það
væri ákveðið fyrirfram að 280
nemendur af þeim sem þessi
samræmdu próf þreyttu skyldu
falla, þó svo að þeir sýndu
raunverulega nógu góðan
árangur til að ná prófum upp á
gamla móðinn. „Þessi aðferð er
alls ekki manneskjuleg. Þá var
stærðfræðiprófið þannig að
menn jafnvel könnuðust ekki
við mörg verkefnin sem lögð
voru fyrir og hafa sennilega
margir farið illa út úr þeim.
Enskuprófið var líka það sér-
kennilegt að kennari okkar
skildi ekki fyrstu spurninguna,
svo að vart er hægt að búast þá
við að við náum því,“ sögðu þær
stöllur úr Kópavogi.
Þær Birna Birgisdóttir og
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir
voru meðal þeirra sem afhentu
ráðuneytisstjóra bréf nemenda
9. bekkjar grunnskólans. Þær
sögðust telja prófin hafa verið
allt of þung, og framkvæmd
þeirra hefði ekki verið eðlileg.
„Við fengum verkefni til úr-
lausnar sem tilheyrðu allt öðru
námsefni en við höfðum lært.
Þá var enskuprófið nánast
óskiljanlegt vegna þess að það
var lesið i gegnum útvarp. Við
erum einnig á móti fyrirkomu-
lagi einkunnanna. Það á að gefa
mönnum þær einkunnir sem
menn raunverulega ná, en ekki
einhverjar einkunnir sem ein-
hver „kúrfa“ ákveður mönnum
fyrirfram," sögðu þær stöllur,
og voru hvassyrtar.
Eftir mótmælafundinn við
menntamálaráðuneytið komu
nokkrir nemendur úr Lang-
holtsskóla niður á ritstjórn, og
vildu árétta sinn málstað, sem
þeir töldu að hefði ekki komið
nógu vel fram í mótmælunum
við ráðuneytið. Þetta voru þau
Elsa Jóhannesdóttir, Fríða
Björk Ólafsdóttir, Birna Katrfn
Sigurðardóttir, Svavar Gisiason
og Ingibergur Helgason. „Við
erum hingað komin fyrst og
fremst til að mótmæla kröfu
krakkanna sem fóru með bréfið
um að öll próf yróu felld niður.
Við viljum hafa próf og
einhverjar lágmarkseinkunnir
til að ,komast inn i fram-
haldsskólana. Án prófa gætu
menn skráð sig í skóla og svo
leikið sér. Það þarf að vera ein-
hver mælikvarði á fólkið. Við
erum ekki viss um að okkar
raunverulegi málstaður hafi
komið svo vel fram með þessum
mótmælum. Það sem við vorum
fyrst og fremst að mótmæla er
fyrirkomulag einkunnagjafar-
innar. Með þvi fyrirkomulagi
sem notað var fær fólk alls ekki
sína eiginlegu einkunn, heldur
einhverja einkunn sem búið er
að ákveða mönnum fyrirfram.
Þetta kemur sér sérstaklega
illa fyrir þá sem eru um og við
meðallag. Það sem er verst er
að það er búið að ákveða fyrir-
fram að um 280 nemendur eiga
að falla á þessum prófum, þó
svo að þeir geri það kannski
ekki í raunveruleikanum. Nú
Framhald á bls. 24.
Stefán Svavarsson, Sigurður Erlingsson og
Guðmundur V. Valdimarsson úr Langholtsskóla.
Birna Birgísdóttir (t.v.) og Ingibjörg Gunnlaugsdóttir
úr Réttarholtsskóla kváðust vilja sfnar eigin
einkunnir.
Fimmmenningarnir sem litu við á ritstjórninni (f.v.):
Elsa Jóhannesdóttir, Frfða Ólafsdóttir, Birna Sig-
urðardóttir, Svavar Gfslason og Ingibergur Helgason.
Nemendur mótmæla samræmdu prófunum