Morgunblaðið - 05.03.1977, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.03.1977, Blaðsíða 4
4 MORGÚNBLAÐI0, LaUGÁRDAGUR S MARZ 1977 ' LOFTLEIDIR SwBÍLALF ^ <g BÍLALEIGAN 51EYSIR LAUGAVEGI 66 CAR RENTAL 24460 28810 Kirkjukaffi í Breiðholti Aö lokinni guðsþjónustu á æskulýðsdaginn, h, 6. mars, efnir Kvenfélag Breiðholts til kaffisölu í anddyri Breiðholtsskóla. Þetta er gert til stuðnings við byggingarsjóð Breiðholtskirkju. Undirbúningur að kirkjubygg- ingu hefur staðið nokkurn tima nú og ekki iátið mikið yfir sér, en þó hefur verið unnið mikið og sleitulaust. Húsnæðisskortur er safnaðarstarfinu fjötur um fót og markmið okkar þvf, að kirkjan geti risið sem allra fyrst. Undir vorið sést væntanlega, hvernig sú bygging á að verða, og sú er von okkar, að hægt verði að vinna að byggingunni þegar á næsta sumri. Þetta mun takast með Guðs hjálp, þegar allir eru með einum huga. Bygging safnaðarkirkju er mikilvæg. Bygging safnaðar er þó tilgangurinn, sem húsið á að þjóna. Þess vegna vil ég þakka Kvenfélagnu skerf þess — og þó enn meira hug þeirra kvenna, sem unna þessu málefni og stuöla að framgangi þess. Þess vegna hvet ég lfka Breið- holtsbúa og aðra velunnara kirkj- unnar til að leggja þörfu máli lið með því að kaupa sér og fjölskyld- unni kaffisopa á sunnudaginn kemur. Það hressir, kirkjukaffið. Það safnast, þegar saman kemur. Það eykur ánægjuna að leggja góðum málstað lið. Kaffisalan heldur áfram fram undir kvöld. Verið velkomin. Lárus Halldórsson. Pólsk mynd- list í Lista- r safni Is- lands í dag Um þessar mundir eru að hefj- ast að nýju sýningar á fræðslu- myndum um myndlist í Listasafni íslands. Fyrirhugað er að tvær sýningar verði f mánuði hverjum fyrst um sinn, og i dag verða sýndar tvær myndir frá Póllandi. Hin fyrri ber titilinn „Um pólskar tréristur", en hin síðari „Fjórir pólskir myndlistarmenn á 20. öld“. Myndirnar eru fengnar hjá pólska sendiráðinu. Að sögn Ólafs Kvarans, starfs- manns listasafnsins, hafa kvik- myndasýningar f safninu mælzt vel fyrir, og hefur aðsókn verið góð. Flestar þær myndir, sem safnið hefur fengið til sýningar, eru hingað komnar fyrir atbeina sendiráða. Nokkrar eru úr Fræðslumyndasafni íslands, sem á ágætt safn fræðslumynda um myndlist, að þvf er Ólafur sagði. Kvikmyndasýningin hefst kl. 15 I dag, og er aðgangur ókeypis og öllum heimill. Útvarp Reykjavík L4UG4RD4GUR 5. marz MORGUNNINN 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 8.50. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.00: Guðni Kolbeinsson les söguna af „Briggskipinu Blá- lilju" eftir Olle Mattson (22). Tilkynningar kl. 9.00. Létt lög milli atriða. Óskalög sjúklinga kl. 9.15: Dóra Ingvadóttir kynnir. Barnatfmi kl. 11.10: Hilda Torfadóttir og Haukur Ágústsson sjá um tfmann. Spjallað er við Ómar Bagnarsson, sem einnig syngur nokkur lög við eigin Ijóð. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. SÍÐDEGIÐ_____________________ 13.10 Á prjónunum. Bessf Jóhannsdóttir stjórnar þættinum. Inn f hann verður felld lýsing Jóns Ásgeirsson- ar á handknattleikskeppni f Austurrfki, þar sem Islend- ingar keppa f annarri umferð B-hluta heimsmeistara- keppninnar. 15.00 1 tónsmiðjunni. Atli Heimir Sveinsson sér um þáttinn. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. Islenzkt mál. Ásgeir Blöndal Magnússon cand. mag. talar. 16.35 Létt tónlist. 17.30 Framhaldsleikrit barna og unglinga: „Kötturinn Kolfinnur“ eftir Barböru Sleigh (áður útv. 1957 — 1958) Þýðandi: Hulda Valtýsdóttir. Leik- stjóri: Helga Valtýsdóttir. Persónur og leikendur f fimmta þætti: Rósa Marfa/ Kristfn Anna Þórarinsdóttir, Kolfinnur/ Helgi Skúlason, Jonni/ Baldvin Halldórsson, Frú Elfn/ Guðrún Stephen- sen, Silfri/ Jóhann Pálsson. KVÖLDIÐ 18.00 Söngvar f léttum dúr. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Ekki beinlfnis. Sigrfður Þorvaldsdóttir leik- kona rabbar við Helga Sæmundsson ritstjóra, Kar- vel Pálmason alþingismann og Þóru Jónsdóttur kennara um heima og geima, svo og f sfma við Sigurð Ó. Pálsson skólastjóra á Eiðum. 20.15 Harmonikulög. Hubert Deuringer og félagar leika. 20.30 Skáldsaga fáránleikans. Þorsteinn Antonsson rithöf- undur flytur þriðja og sfð- asta erindi sitt. 21.05 Hljómskálatónlist frá útvarpinu f Köln. Guðmundur Gilsson kynnir. 21.35 „Dermuche**, smásaga eftir Marcel Aymé. Ásmundur Jónsson þýddi. Geirlaug Þorvaldsdóttir leik- kona les. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passfusálma (24). 22.25 Danslög. 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. LAUGARDAGUR 5. mars Í977 17.00 Holl er hreyfing Léttar Ifkamsæfingar einkum ætiaðar rosknu fólki. Þýðandi og þulur Sigrún Stefánsdóttir. (Nordvision — Norska sjón- varpið) 17.15 fþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.35 Emil C Kattholti Sænskur myndaflokkur. Gyltan er Ifka óð Þýðandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. Sögumaður Ragnhciður Steindórsdóttir. 19.00 iþróttir Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Hótel Tindastóll Brezkur gamanmyndaflokk- ur. Þýðandi Stefán Jökulsson. 21.00 Ureinufannað Umsjónarmenn Berglind Ásgeirsdóttir og Björn VigM- ir Sigurpálsson. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. 22.00 Sumardansinn (Hon dansade en sommar) Sænsk bfómynd frá árinu 1951. Leikstjóri Arne Mattson. Aðalhlutverk Folke Sundquist og Ulia Jacobs- son. Aðalpersóna myndarinnar er ungur piltur sem fer til frænda sfns uppi i sveit til sumardvalar að ioknu stúdentsprófi. Þar kynnist hann 14 ára gamalli stúlku og hrffst mjög að hcnni. Fullorðna fólkið er mjög mótfallið ástarsambandi unglinganna og rcynir að stfa þeim sundur. Þýðandi Dóra llafsteinsdótt- ir. Klukkan 22.00: Sumardansinn, sænsk bíómynd frá árinu 1951 Á DAGSKRÁ sjónvarps- ins í kvöld er sænsk bíómynd frá árinu 1951, sem heitir á frummálinu „Hon dansade en sommar“ eða í íslenzkri þýðingu Sumardansinn. Leikstjóri myndar þess- arar er Arne Mattson. í aðalhlutverkum eru Ulla Jacobsson og Folke Sund- quist. Aðalpersóna myndar- innar er ungur piltur sem fer til frænda síns uppi i sveit til sumardval- ar að loknu stúdents- prófi. Þar kynnist hann fjórtán ára gamalli stúlku og hrífst mjög af henni. Fullorðna fólkið er mjög mótfallið ástar- sambandi unglinganna Tvö atriði úr Samardans- A inum eða „Hon dansade A en sommar“. og reynir að stía þeim sundur. Þýðandi myndarinnar er Dóra Hafsteinsdóttir. Leikstjórinn Arne Mattson er fæddur í Uppsölum í Svíþjóð árið 1919. Hann hefur oft ver- ið kallaður Hitchcock Svíþjóðar og þykir yfir- leitt hafa gert spennandi myndir. Mattson hóf feril sinn sem aðstoðarmaður hjá leikstjóranum Per Lindberg, en varð fyrst þekktur fyrir myndina ,,Og allar þessar konur“ árið 1944. Hann leik- stýrði „Sölku Völku“ árið 1954. Ein af hans síðari myndum er „Anna og Eva“ gerð árið 1970.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.