Morgunblaðið - 05.03.1977, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR.5- MARZ 1977
13
i
Selsvarardalirnir og
Pétur H. Salómonsson
Hinn 25. febrúar slöastliöinn varö Selsvarar-
kappinn Pétur H. Salómonsson áttræður. Á
þeim tfmamótum heiðraði Myntsafnarafélag
íslands Pétur. Á fundinum á laugardaginn var,
afhenti formaður Myntsafnarafélagsins Pétri
skrautritað heiðursskjai og tilkynnti honum um
leið, að hann hefði verið gjörður að fyrsta
heiðursfélaga Myntsafnarafélagsins. Er Pétur
vel að þessum vegsauka kominn, þvf hann hefir
nú fengizt við myntverzlun og myntfræði f mörg
ár. Hefir Pétur getið sér gott orð í viðskiptum og
þykir fróður um alls kyns peninga. Pétur hefir
sótt ágætlega fundi Myntsafnarafélagsins allt
frá stofnun þess. Sagt á stundum það sem segja
þurfti þar, og oft og einatt sagt frá sinni reynslu
um leiö. Oftast verið skemmtilegur, aldrei
leiðinlegur. Til þess er tekið hve kjarngott
fslenzkt mál Pétur talar, hann er stálminnugur á
menn og atburði og kann vel frá öllu að segja.
Hann vísar oft í fornsögurnar og fornkvæði er
hann kann utanbókar f bálkum og tilvitnanir
þar f hefir Pétur á hraðbergi. Meðal myntsafn-
ara er Pétur þekktastur af peningum þeim,
Selsvarardölunum, er hann lét slá á árunum
1962 — 1968. Bárður Jóhannesson, gullsmiður,
sló peningana og hannaði þá. Á framhlið þeirra
er mynd er Bárður gerði af Pétri, en á bakhlið-
inni er skjaldarmerki Péturs. Ber þar mest á
bryntröllinu, vopni Mýramanna, forfeðra
Péturs, og Kveldúlfur notaði f orrustu. Stærð
peninganna er crown-stærð, sama stærð og 1000
króna silfurpeningurinn frá 1974, dollara-
peningar eða gömlu spesíurnar, svo dæmi séu
tekin. Á framhliðina er letrað 1 selsvarardalur
og er það efst á peningnum. Neðst er svo fanga-
mark myntmeistarans BJ f spegilskrift, en þar
rétt fyrir ofan er skrifað Pétur H. Salómonsson
með hendi hans sjálfs.
Á bakhliðina er ritað Stóru Selsvör og ártölin
1942 — 1960 en stafirnir BJ koma enn í spegil-
mynd og nú nærri miðju mótívi myndarinnar.
Pétur segir mér að tilgangurinn með útgáfu
þessara peninga hafi verið að gefa fólki kost á
eftir RAGNAR
BORG
að festa fé f hlutum, sem stigi með verðbólg-
unni, en ekki þurfi heldur að kosta í upphafi
eins og heil fbúð. Upprunalegt söluverð pen-
inganna var 25 krónur eirpeningurinn, 125
krónur silfur og 2500 — 3000 krónur gullið.
Pétur hefir ennfremur sagt mér að upplag pen-
inganna hafi verið sem næst:
Eirpeningar 22 grömm 1104 stk.
Silfurpeningar 25 gr. 925s 746 stk.
Gullpeningar 32 gr. 14—K. 34 stk.
Emaljeraðir kopar og silfur peningar, 50 stk.
af hvorri gerð, voru slegnir.
Af hálfri þykkt eru til 74 silfurmerki með
myndinni af bryntröllinu. Voru notuð á bíllykla-
kippur. Ennfremur 20 — 30 merki úr kopar til
svipaðra nota.
Mótin og allt þeim tilheyrandi hefir Pétur
afhent Minjasafni Reykjavfkurborgar. Það er
eins og þeir sem eiga Selsvarardalina haldi fast f
þá þvf það var seinast hinn 19. október 1974 að
silfurpeningur var seldur á uppboði hjá Mynt-
safnarafélaginu og var þá sleginn á 2600 krónur.
Sfðan hafa þessir peningar ekki sést.
Stefan Jónsson alþingismaður hefir ritað ævi-
sögu Péturs og heitir bókin „Þér að segja“.
Pétur segist enn luma á nokkrum eintökum
bókarinnar, sem eru föl á 2000 krónur hjá
honum. Ég eignaðist bók þessa fyrir nokkrum
árum og hefi oft haft gaman af að grípa f hana
sfðan ég las hana fyrst. Margar eru frásagnir þar
með ólfkindum en Pétur þótti frábær stýrimað-
ur á seglskipum — ekki bara einungis að hans
sögn — enda vandist hann við seglbáta f upp-
vexti við Breiðafjörð. Skipsfélagar Péturs þótt-
ust öruggari með Pétur við stýrið ef hætta var á
ferðum f roki og sjógangi. Það var Ifka ágætt að
Ólafur Tómasson, sem var með Pétri í Dana-
slagnum fræga, er Pétur henti fleiri manns
gangstéttanna á milli yfir götuna, sagði frá
þessum slagsmálum í ævisögu sinni er kom út
fyrir seinustu jól. Ber frásögn hans með sér, að
frásögn Péturs er dagsönn. Ég hvet myntsafnara
og aðra þá, sem kynnzt hafa Pétri, til að verða
sér úti um bók hans og helzt að fá hann til að
árita hana. Bókin og Selsvarardalirnir eru ágæt-
ar minjar um fyrsta heióursfélaga Myntsafnara-
félag Islands — Pétur H. Salómonsson — því
orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur.
1320 MW kjarnorkuver. t Svfþjóð er hluti orkunnar oft notaður til hitaveitu.
Að vísu eru allir flokkar sam-
mála um að fyllsti öryggisbún-
aður sé forsenda þess að leyft
verði að hefjast handa, en hins-
vegar virðist mörgum óljóst f
hverju slíkur búnaður sé fólg-
inn, og jafnvel hvort hann sé til
í dag eða næstu daga.
Jafnaðarmenn og Hægri virð-
ast sammála um að hefjast
handa árið 1978, en Jafnaðar-
menn tefla fram rfkisfyrirtæk-
inu Statoil til forystu, en Hægri
vilja gera hlutafélögunum
Norsk Hydro og Saga Petrole-
um jafn hátt undir höfði, og
jafnvel leyfa erlendum olfu-
félögum þátttöku. Kristilegi
Þjóðflokkurinn, Miðflokkurinn
og Vinstri vilja að tfmaákvörð-
un verði slegið á frest, en Sós.
Vinstri eru einna ákveðnastir
gegn borun að sinni.
Það er því fjarri þvf að ein-
hugur rfki í Noregi um ágæti
þess að ná fljótfengnum olfu-
gróða.
Bretar röskir
til framkvæmda?
Oft er álitið að Bretar séu
mörgum góðum kostum búnir,
umfram það að vera röskir til
framkvæmda. Þó er það ekki
einhlítt, og hér er dæmi:
Við 140 MW. raforkuver í
Suðaustur-Bretlandi þurfti að
byggja 70 metra háan reykháf,
til þess að forðast reykmengun
nágrennisins og þá óhollustu
sem af þvf stafaði.
Byrjað var á verkinu kl. 8 á
mánudagsmorgni, en næsta
laugardag kl. 8 að kvöldi var
þvf að fullu lokið. Hér voru
tfmamörk sett — og staðið við
þau.
Ósjálfrátt reikar hugurinn til
Hafnarfjarðar með kæfandi
reykmekki frá ál- og fisk-
vinnslu. Þar sjást engin tíma-
mörk, og því engirí áætlun við
að standa.
Olfuvinnsla f Norðursjónum.
iiiiifoiinitmiiimiiifi
Brldge
Umsjón ARNÓR
RAGNARSSON
BR-spilararnir
ofarlega á blaði
í undankeppninni
SL. MIÐVIKUDAG hófst
undankeppni fyrir tslandsmót-
ið f tvfmenning f Reykjavfk.
Spilað er um 18 sæti f fslands-
mótinu og mættu 48 pör til
leiks.
Röð efstu para varð þessi:
Stefán Guðjohnsen —
Símon Sfmonarson 275
Guðmundur Eiríksson —
Þórður Sigfússon 269
Guðmundur Péturssop —
Sverrir Ármannsson 265
Tryggvi Bjarnason —•
Vigfús Pálsson 252
Óskar Friðfinnsson —
Reynir Jónsson 252
Ásmundur Pálsson—
Hjaiti Elfasson 250
Skafti Jónsson —
Skúli Einarsson 244
Gunnar Traustason —
Sverrir Harðarson 243
Benedikt Jóhannsson —
Hannes Jónsson 242
Hrólfur Hjaltason —
Oddur Hjaltason 236
Guðmundur Arnarsson —
Jón Baldursson 235
Kristján Jónasson —
Þórhallur Þorsteinss. 233
Magnús Halldórsson —
Magnús Oddsson 230
Sveinbjörn Guðmundsson —
ViðarJónsson 229
Guðjón Sigurðsson —
Ólafur Tryggvason 226
Gunnlaugur Óskarsson —
Sigurður Steingrímss. 226
Meðalskor var 210.
Mót þetta stendur yfir f þrjú
kvöld og verður næst raðað
þversum í riðlana.
Seinni umferðirnar verða
spilaðar 15. og 16. marz og fer
keppnin fram f Domus Medica.
Hraðsveitarkeppni
hjá Breiðhyltingum
1. marz hófst þriggja kvölda
hraðsveitakeppni Bridgefélags
Breiðholts.
Staðan eftir fyrsta kvöldið er
þessi:
stig
Sveit Pálma Péturssonar 496
Sveit Sigurðar Erlendss. 464
Sveit Baldurs Bjartmarss. 439
— 0 —
Að lokum vill þátturinn svo
minna á nýjung TBK að spila á
iaugardögum tvímenning. Spil-
að er f matsal stúdenta.
Barðstrendinga-
félagið
Barðstrendingafélagið f
Reykjavfk, 5 kvölda tvf-
menningur. 8 efstu í 1 umferð.
Nöfn stig.
1. Kristinn — Einar ....257
2. Helgi — Sigurbjörn ..253
3. Þórarinn — Finnbogi .... 241
4. Ágústa — Ólafur .....229
5. Guðlaugur — Agnar ...223
6. Gunnlaugur — Stefán .... 223
7. Guðrún—Jón ..........221
8. Vikar — Ólafur ......219
iimrimmijiiiiiimmiiiiiiniimii
miiiiiiiiinmiini
11 ii i