Morgunblaðið - 05.03.1977, Síða 20

Morgunblaðið - 05.03.1977, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MARZ 1977 Eftirmenntunarnámskeið fyrir viðskiptafræðinga PRÓFESSOR Jacob Hautaluoma, skipulagssálfræðingur frá ríkis- háskólanum f Colorado, dvelst f márzmánuði sem Fulbright- gestur hjá Viðskiptadeild Há- skóla tslands. Mun hann stjórna sérstöku eftirmenntunarnám- skeiði fyrir útskrifaða viðskipta- fræðinga um atferli og stjórnun innan skipulagsheilda. Verður þar fjallað um efni eins og stjórnun eftir markmiðum, þátttökustjórnun og skipulags- breytingar. Námskeiðið er haldið f samvinnu við Félag viðskipta- fræðinga og hagfræðinga og skal tilkynna þátttöku til skrifstofu háskólans í síðasta lagi fimmtu- daginn 10. marz en þar fást einnig nánari upplýsingar. (Fréttatilk. frá H.í.) Sýningu Einars Þorláks- sonar lýkur um helgina SVNING á pastelmyndum Einars Þorlákssonar listmálara, sem verið hefur undanfarnar vikur f Gallerf Sólon íslandus f Aðalstræti 8, lýkur um helgina og er sfðasti sýningardagur sunnudagurinn. Þá hyggst Einar hafa opið til klukkan 24, en f dag er opið til klukkan 22. Aðsókn að sýningu Einars hefur verið góð og nokkrar myndir hafa selzt. Myndirnar eru alls 32 að tölu, allt pastelmyndir. Þetta er fimmta einkasýning Einars Þorlákssonar, en hann hefur einnig tekið þátt f fjölda samsýninga, m.a. hjá Félagi fslenzkra myndlistarmanna. Skagfirðinffar með hlutaveltu og flóamarkað SKAGFIRÐINGAFÉLAGIÐ í Reykjavfk efnir til hlutaveltu og flóamarkaðar 1 félagsheimili sfnu að Sfðumúla 35 sunnudaginn 6. marz n.k. kl. 2. Sýning til ágóða fyrir Sóroptimista- klúbb Reykjavíkur NÝLOKIÐ er fimm vikna nám- skeiði á vegum Vefnaðar- og lista- skóla Sigrúnar Jónsdóttur og fór þar fram kennsla í keramikvinnu, postulínsmálun og glerskreyt- ingu. Kennari við skólann auk Sigrúnar var Birgit Lund frá Öllum ágóða verður varið til að fullgera félagsheimilið. Skag- firðingafélagið hélt nú nýverið upp á 40 ára afmæli sitt og er það því mikið kappsmál á þessu afmælisári að geta komið heim- ilinu í það horf að hægt sé að taka það í notkun, þar sem það yrði mikil lyftistöng fyrir félagið og deildir þess. Svíþjóð. Munir sem nemendur hafa gert verða til sýnis í Stof- unni fyrir ofan Verzlunina Kirkjumuni f Kirkjustræti 10 frá 5. til 10 marz og opnar hún kl. 17 þann 5. marz. Allur aðgangseyrir rennur til Styrktarsjóðs Sóroptimistaklúbbs Reykjavfkur en sá sjóður hefur það verkefni að veita námslán eða styrki til ungmenna sem farið hafa halloka f lífinu. Nótt ástmeyjanna í síð- asta sinn á sunnudag LEIKRIT P.O. Enquists, Nótt ást- meyjanna, sem sýnt hefur verið f þjóðleikhúsinu við góðar undir- tektir síðan f nóvember, verður sýnt f síðasta sinn n.k. sunnudags- kvöld og er það 25. sýning verks- ins. Var leikritið upphaflega fum- sýnt á litla sviðinu en vegna mik- illar aðsóknar var það flutt upp á stóra sviðið. Fjallar það um sænska leikritaskáldið Ágúst Strindberg og hjónaband hans og Siri von Essen. Erlingur Gíslason leikur Strindberg, Helga Bach- mann Siri von Essen, Kristbjörg Kjeld vinkonu hennar, Marie David, og Sigmundur Örn Arngrímsson Viggo Schiwe. Leik- stjóri er Helgi Skúlason. Helga Bachmann, Erlingur Gfslason og Kristbjörg Kjeld. 1 þennan eðla hóp vantar bara Spassky fyrrum heimsmeistara, frá vinstri: Smyslov og eiginkona hans, Marina Spassky, Einar S. Einarsson, forseti Skáksambandsins, og Högni Torfason varaforseti. Skyldu þeir ekki hafa feng- ið hiksta? Hort arkar af vettvangi eftir tapskákina á fimmtudaginn. SENNILEGA eigum við íslending- ar fleiri snillinga f skákfþróttinni en aðrar þjóBir — að minnsta kosti sé miðað við höfðatölu. Annað verður f það minnsta ekki skilið reki maður nefið inn fyrir dyrá Hótel Loftleiðum þessa dag- ana. Spekingarnir sitja þar hver um annan þveran og láta speki sfna f Ijós og ekki vantar hástemmd lýsingarorð um getu eða getuleysi aumingja stór- meistaranna tveggja Horts og Spasskys. sem sitja afgirtir og geta ekki leitað ráða hjá spekingunum. En skyldu þeirekki oft hafa fengið hiksta sfðustu daga þegar okkar heimatilbúnu stórmeistarar formæla bölvaðri vitleysunni f þeim. Vasatöflin eru vinsæl mjög og spáð er i stöðuna fram og aftur. Eftir að Spassky tókst að snúa skemmtilega á Hort! skákinni á fimmtudaginn eru þeir margir sem spá honum öruggum sigri f þessu einvígi — og vissulega getur það Haraldur Blöndal lögfræðingur, Björgvin Vlglundsson Ólympíufari 1 skák frá sfðasta hausti og Bragi Halldórsson, sem varð hraðskák- mciþtari Norðurlanda 1971 — og er enn þar sem ekki hefur síðan verið teflt um titilinn, hafa öruggiega eitthvað tii málanna að leggja. Gylfi Þórðarson I Sjávarútvegsráðuneytinu og stjórnarmaður í Knattspyrnusambandinu og Kristján Jónsson, fyrrum formaður 1 Sjómannafélagi Hafnarfjarðar, greinilega fullir undrunar. gerzt. Hort á þó sfna dyggu stuðn- ingsmenn og enginn skyldi af- skrifa „tékkneska bangsann" sem gefur örugglega ekkert eftir f viðureign sinni við „rússneska björninn með Ijónsmakkann". Friðþjófur Ijósmyndari brá myndavélunum hressilega á loft á Loftleiðahótelinu á fimmtudaginn og festi nokkra ágæta skákunn- endurá filmu. Á morgun kiukkan 14 setjast Hort og Spassky að fjórðu einvigisskákinni og hefst hún klukkan 14. Hort stýrir hvitu mönnunum f skákinni og mun örugglega gera allt hvað hann getur til að jafna stöðuna, en Spassky leiðir nú 2:1. — áij. Arni Njálsson fyrrum lands- liðsfyrirliði f knattspyrnu, Ólafur Magnússon tslands- meistari f skák 1970 og 1974 grúfa sig yfir ferðataflið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.