Morgunblaðið - 31.03.1977, Qupperneq 38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1977
38
FRÁ LEIÐBEININGASTOD HÚSM/EBRA
Þurrkarar
Á þurrum sumardegi þornar
þvotturinn úti á snúru fljótt og
vel. En hér á landi er ekki ætíö
sól og sumar og þar meö kemur
víða til álykta hvort tímabært
sé að fá sér þurrkara. Að vísu
er viða í kjallaraherbergjum og
þvottahúsum eitthvert þurrk-
pláss fyrir hendi en það er ekki
ætíð nægilega stórt fyrir allan
þann þvott sem þurrka þarf.
Þurrkarar eru í útliti eins og
sjálfvirk þvottavél. Blauti
þvotturinn er látinn inn í vél-
ina gegnum lúgu að framan-
verðu. Að innanverðu er tunna
sem snýst, þegar vélin er í
gangi. Við það hreyfist þvottur-
inn og flíkurnar réttast úr brot-
unum. Samtímis er heitu lofti
biásið í þvottinn. Loftið fer síð-
an út úr þurrkaranum gegnum
lósíu þar sem ló úr þvottinum
safnast fyrir. Sumir álíta að
þurrkarar slíti mikið þvottinum
þar sem allmikla ló er að finna í
lósíunni eftir hvern þvotta-
skammt sem þurrkaður er. í
„Rád og Resultater" sem
Statens Husholdningsrád í Dan-
mörku gefur út segir að rann-
sóknir hafi leitt í ljós að fatn-
aður léttist ekki nema nokkur
mg fyrir hvert kg þ.e.a.s. að
unnt sé að þurrka fatnaðinn i
24.000—240.000 skipti áður en
hann er útslitinn. Slit við notk-
un og við þvott er mun meira.
Gert er ráð fyrir að venjulega
skyrtu megi þvo, þurrka og
nota á milli þvotta í um 100
skipti áður en hún er útslitin og
að lak megi þvo í allt að 500
skipti. Að sjálfsögðu þarf að
hreinsa lósiuna æði oft til að
tryggja að loftið komist út með
auðveldu móti.
í þeim þurrkurun sem taka
um 60x60 cm gólfrými er rúm-
mál tunnunnar um 100 — 115 1.
Slikir þurrkarar geta þurrkað
um 3 kg af þvotti í senn eða
sama magn og flestar þvottavél-
ar taka. Einnig eru á markaðn-
um mjög litlir þurrkarar sem
taka einungis tæplega 2 kg. af
þvotti í senn enda er tunnu-
rúmmálið þá ekki nema um 60
1. Tunnan getur verið úr ryð-
traustu stáli, glerjuðu stáli eða
úr plasti. Það viðist ekki skipta
megnimáli úr hvaða efnum hún
er gerð. Aðalatriðið er að yfir-
borð hennar sé slétt, þá slítur
hún þvottinum minnst. 1
sumum tilvikum er unnt að
setja þurrkarann ofan á þvotta-
vélina og spara gólfplássið en
það þykir mörgum mikill kost-
ur.
Sá sem ætlar að kaupa þurrk-
ara verður að vera við því
búinn að leysa þurfi vandamál
varðandi loftræstingu þar sem
þurrkarinn er staðsettur. Yfir-
leitt þarf að leiða raka loftið frá
þurrkaranum út fyrir íbúðina,
enda má setja barka á flesta
þurrkara sem leitt getur raka
loftið út gegnum glugga eða út
gegnum gat í vegg. Það fylgir
þvi nbkkur kostnaður að bora
slíkt gat og smiða i það pípu
sem tengist við barkann.
En ef rakt loft er leitt úr i
lítið og kalt herbergi þar sem
lítil loftræsting er, getur raki
safnast fyrir og valdið talsverð-
um skemmdum á ibúðinni.
Einnig skal á það bent að ef
þurrkarinn tekur inn á sig rakt
loft frá umhverfinu þá eyðir
hann meira rafmagni en ella.
Flest allann fatnað má
þurrka í þurrkara. Nærfatn-
aður og frottéhandklæði verða
mjúk og þægileg viðkomu.
Prjónaefni hlaupa meir i
þurrkara en séu þeu þurrkuð á
snúru en þenjast út aftur við
notkun. Þeir sem þurrka þvott-
inn í þurrkara að staðaldri
skulu kaupa nærfatnað i rífara
lagi. Ullarfatnað skal ekki láta í
þurrkara, þar sem ullin þófnar
við að vera á hreyfingu i röku
lofti. Borðdúkar úr líni verða
linir séu þeir þurrkaðir i þurrk-
ara og erfitt er að ganga frá
þeim. Hafi líndúkur óvart
slæðst i þurrkarann lagast
hann aftur ef hann er þveginn
og hengdur til þerris á snúru.
Á sumum þurrkurum er unnt
að stilla hitann á blæstrinum.
Þá verður að gæta þess að
þurrka akrylefni, pvcefni o.þ.h.
við lágan hita. 1 þeim þurrk-
urun sem engan hitastilli hafa
er loftið yfirleitt ekki heitara
en um 40 gráður C a.m.k. þegar
um nýlegan þurrkara er að
ræða. Erfitt er að segja hve
lengi þvotturinn þarf að vera í
þurrkaranum. Það getur verið
misjafnt í hinum ýmsum gerð-
um en tíminn fer eftir því hve
miklu lofti er blásið í þvottinn
og hve heitt það er og að sjálf-
sögðu eftir þv hve þvotturinn
er blautur. Ef þurrkarinn tekur
jafn mikinn þvott og þvotta-
vélin má gera ráð fyrir að hann
sé yfirleitt búinn að þurrka
þvottinn þegar næsti skammtur
er tilbúinn úr þvottavélinni.
Á flestum þurrkurun má
stilla timann sem áætlaður er
til að þurrka þvottinn. Þurrkar-
inn slekkur á sig þegar sá tími
er liðinn. Gera má ráð fyrir um
20 mínútna þurrktíma fyrir
hvert kg af þvotti. Á sumum
þurrkurun er „rakastillir"
þ.e.a.s að þurrkarinn slekkur á
sig þegar þvotturinn er hæfi-
lega þurr eða eins þurr og ósk-
að er eftir. Þá verður helst að
þurrka samtímis þvott sem er
lengi að þorna eins og t.d. öll
frottéhandklæði eða þvott sem
er fljótur að þorna eins og t.d.
allar skyrtur úr gerviefnum. Að
öðrum kosti er ekki mikið gagn
af „rakastillinum."
1 öllum þurrkurun er köldu
lofti blásið í þvottinn a.m.k. síð-
ustu 10 mínútur þurrktímans
til þess að kæla þvottinn. Þar
með er síður hætt við að hann
kruklist þótt hann liggi í þurrk-
aranum i dálítinn tima. Góð
regla er þó að taka þvottinn úr
úr þurrkaranum um leið og
hann stansar, ekki síst flíkur úr
gervefnum sem ekki þarf að
slétta.
Þurrkarar eru dýrir í rekstri,
þeir eyða um einni KWH fyrir
hvert kg af þvotti sem þurrkað
er, en hver KWH kostar nú
tæplega 14 kr„ þegar söluskatt-
ur og verðjöfnunargjald er
meðtalið. Þar að auki verður að
gera ráð fyrir einhverjum við-
gerðarkostnaði. Hann er yfir-
leitt smávægilegur fyrstu 5 árin
en ef taka þarf þurrkarann al-
veg í sundur getur kostnaður-
inn verið allmikill. 1 því dæmi
sem hér er sett fram er áætlað
að viðgerðakostnaðurinn sé að
jafnaði 3.000 kr. á ári.
Þurrkarar kosta 60.000 —
100.000 kr. 1 dæminu hér hefur
verið gert ráð fyrir að þurrkar-
inn hafi fengist fyrir 85.000 kr.
Innifalið í verðinu er kostnaður
við tengingu við rafleiðslu og
við loftræstingu (Barki kostar
700 — 800 kr. pr. m)
Þurrkarinn í dæminu er af-
skrifaður á 10 árum og enn-
fremur er gert ráð fyrir vaxta-
tapi sem að jafnaði nemur 13%
(bankavextir) af helmingi
kostnaðarverðs.
Árlegur kostnaður nemur:
Afskrift (10% af
kostnaðarverði) 8.500 kr.
Vextir (13%
af 42.500 kr.) 5.525 kr.
Viðgerðarkostnaður 3.000 kr.
Rafmagnskostnaður fyrir
600 kg af þvotti 8.400 kr.
samtals 25.425 kr.
©
1 Danmörku og víðar hafa verið gerðar skýringarmyndir
varðandi þurrkun á þvotti til að festa i fatnað og birtast þær
því hér með, ef einhver skyldi sjá
sípum.
Þurrka má flfkina i þurrkara við háan hita þ.e.a.s. að
loftið I þurrkaranum má vera mest 80 gráður C.
Þurrka má flfkina f þurrkara við meðalhita þ.e.a.s. að
loftið f þurrkaranum má vera mest 60 gráður C.
Þurrka má flfkina f þurrkara við fágt hitastig þ.e.a.s að
loftið f þurrkaranum má vera mest 40 gráður C.
□ Flfkina má hengja tif þerris á snúru eða f þurrkskáp
(hitastig mest 60 gráður C.
Hengið flfkina rennblauta til þerris.
Leggið flfkina til þerris.
D3
Útför sonar míns og bróður okkar
JÓNS VALS MAGNASONAR,
sem lést af slysförum 19 október s I var gerð frá Akraneskirkju 25
marz Innilegar þakkir til Slysavarnarfélags íslands og allra þeirra er
sýnt hafa okkur hjálpsemi og samúð
Steinunn Jónsdóttir,
Inga Birna Magnadóttir,
Steinn Bragi Magnason,
Magni Már Magnason,
Sunna Björk Þórarinsdóttir.
t Eigmmaður minn
JÓN BJÓRGVIN SIGURÐSSON
Njálsgötu 26
lézt þann 26 þ.m Jarðarförin auglýst síðar Fyrir hönd vandamanna Margrét Helgadóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför systur minnar
KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR,
Leifsgötu 5.
Fyrir hönd systkinanna
Sigrfður Jónsdóttir.
t
Þökkum innilega öllum þeim fjölmörgu sem vottuðu okkur hluttekn-
ingu við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa
ÞORLÁKS GUÐBRANDSSONAR
frá Veiðileysu
Guðlaug Þorláksdóttir
Bjarni Þorláksson
Annes Þorláksson Gréta Böðvarsdóttir
Guðbrandur Þorláksson Ásta Jónasdóttir
Marteinn Þorláksson Halldóra Jónsdóttir
Borghildur Þorláksdóttir Sveinbjörn Ólafsson
Þórir Þorláksson Þórunn Þorgeirsdóttir
Þórdfs Þorláksdóttir. Steindór Arason
Kristján Þorláksson Guðrún Grfmsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
Júlíana Rannveig
Magnúsdóttir
Hinn 17. desember á liðnu ári
kvaddi þennan heim í Landakots-
spítala í Reykjavík, tengdamóðir
min kær, Júliana Rannveig
Magnúsdóttir, sem fædd var 14.
júlí 1894, að Geitagili í Örlygs-
höfn, Rauðasandshreppi.
Foreldrar hennar voru Magnús
Einarsson bóndi og kona hans
Bergljót Gunnlaugsdóttir, sem
þar bjuggu. Var Júlíana yngst
barna þeirra fimm og lifði hún
þau öll.
Barn að árum missti hún föður
sinn og kornung stúlka móður
sína, sem lést aðeins 52 ára gömul
úr sama sjúkdómi og Júlíana, inn-
vortis krabbameini.
Barnaskóm sinum sleit Júliana
á heimili Jóhönnu og Ólafs
Thorlacius, sem bjuggu á höfuð-
bólinu Saurbæ, ætíð nefndur Bær
á Rauðasandi, og minntist hún
jafnan með miklum hlýhug þeirra
merku hjóna.
Stutt eftir lát móður sinnar lá
leið Júlíönu til Reykjavíkur, þar
sem heimili hennar stóð meðan
aldur entist.
Árið 1921 giftist hún Guðmundi
Axel Björnssyni vélsmið, vel látn-
um og kunnum manni í sinni
grein, — persónuleiki, sem ekki
gleymist þeim er kynntust. Hann
lést 20. janúar 1963. Börn þeirra
eru Bergljót, Þórunn, Björn,
Gunnlaug og Einar, öll búsett í
Reykjavík og Kópavogi nema
Gunnlaug, kona mín, búsett í
Canada. Barnabörn þeirra urðu
16 og barnabarnabörn 14.
Hag alls síns fólks, og ekki síst
tengdabarna bar hún mjög fyrir
brjósti svo lengi sem kraftur og
hugur orkaði, og naut nærgætni
og kærleika á móti í hvívetna. Bað
hún þeim öllum Guðsblessunar.
Júlíana var innilega trúuð kona
— gekk ætið í Guðshús með lotn-
ingu.
Það var á dögum stríðs og
hörmunga úti í heimi, sem
fundum okkar bar fyrst saman
hér á Islandi. Tungumál okkar
voru ólík og á þann veg skildum
við ekki hvort annað án aðstoðar.
En til er mál augnanna — og
þar fann ég engan vafa um skiln-
ing. Ekki leyndi sér heldur hlýjan
í handtaki hennar. — Af þessu
tvennu vissi ég að hún hafði gefið
samþykki sitt og treyst mér fyrir
yngstu dóttur sinni að fara með til
f jarlægs lands.
Árin liðu — við heimsóttum
hana og hún okkur, — fyrst til
Englands er við bjuggum þar og
síðar til Canada, þá orðin roskin
knna. Með trega fann ég enn til
þess að geta ekki átt orðaskifti við
hana og tjáð minni góðu tengda-
móður hug minn, en hlýjan í
fallegu brosi hennar og augum
var enn sú sama og áður var og
sagði mér e.t.v. meira en mörg orð
hefðu gert.
t
Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir
INGÓLFURJÓNSSON
fyrrverandi verzlunarstjóri
Akranesi
andaðist þann 29 marz Svava Finsen
Inga Svava Ingólfsdóttir
Jón Ólafsson
Nú er hún horfin á fund Drott-
ins síns, hvíldinni fegin eftir
langa vegferð, og þegar við hitt-
umst aftur handan allra landa-
mæra er ég þess fullviss að öllum
hindrunum hefir verið rutt frá og
mér fært að votta henni ást mína
og þökk á tungumáli, sem við
bæði skiljum.
Það er trúa mín, að grund-
völluðust samskipti þjóða með
ólika tungu og siði, á sama skiln-
ingi og tengdamóðir mín sýndi I
samskiptum við mig, þyrfti
heimurinn ekki að óttast stríð.
Er ég nú blessa minningu Júli-
önu Magnúsdóttur, skal efni þess-
arar visu vera hinsta kveðja min.
Þú réttir mér ilmvönd af íslenskum reyr,
ég atburðinn geymi.
Því lengra sem Ifður ég ann honum meir,
þó öðru ég gleymi.
(ók. höf.)
Winnipeg 5. marz 1977.
Ernest Reginald Baldwin.