Morgunblaðið - 05.04.1977, Side 46

Morgunblaðið - 05.04.1977, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRlL 1977 Tvær allóvenjulegar flugvélar lentu á Reykjavlkurflugvelli I gærdag, en þær komu frá Dublin og eru á leið til Goose Bay f Kanada. Um er að ræða herflugvélar af gerðinni Douglas Skyrider, en þessar flugvélar voru smfðaðar I lok strfðsins eða 1944. Hreyflarnir eru sams konar og notaðir voru ( DC-7 og voru miklir benslnhákar. —Ljósm.: RAX — Spassky — Aflinn á vetrarvertíðinni Sjómanns saknað í Eyjum SJÓMANNS er saknað í Vest- mannaeyjum frá því á laugar- dagskvöld, er hann hvarf. Mjög víða hefur verið spurzt fyrir um manninn I Eyjum, en hann fór upp úr bát sínum I höfninni skömmu fyrir miðnætti á laugar- dag, ætlaði sér þá I ákveðið hús, en þangað kom hann aldrei. 1 gær var slætt I höfninni, ef vera skyldi að hann hefði fallið I sjóinn. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar I Eyjum verður leit að manninum haldið áfram í dag. Ný símaskrá eftir páska AFHENDING nýrrar sfmaskrár hefst þriðjudaginn 12. aprfl næst komandi og tekur hún gildi frá og með 1. maf næstkomandi. Frá þessu er skýrt f fréttatilkynn- ingu, sem Morgunblaðinu barst f gær, en jafnframt er f henni vfsað á auglýsingar, sem birtast munu f blaðinu næstu daga um afhend- ingu skrárinnar. Upplag sfmaskrárinnar er nú um 94 þúsund eintök og er brot hennar óbreytt frá sfmaskrá 1976. Hins vegar hefur blaðsfðutal skrárinnar aukizt um 32 sfður. Skrá yfir neyðar- og öryggissíma, sem birt er á forsfðu kápunnar innanverðri er einnig á baksfðu hennar. Þegar er farið að senda sfmaskrána út um land til dreif- ingar. Sovét: Handtekinn á bænasamkomu Mwkvu —4. aprfl Reutcr 23 ára gamall sjúkraiiði, Alexander Podrabinek að nafni, var handtekinn við bænasam- komu Babtistasafnaðar f Moskvu f gær að þvf er málsvarar andófs- manna skýrðu frá f dag. Podrabinek starfar f nefnd, sem hefur það verkefni að kanna meðferð á pólitfskum föngum í geðveikrahælum f Sovét- rfkjunum, og sótti hann bæna- samkomuna til að grennslast um afdrif babtistaeins.sem taliðer að hafi verið flttur í geðveikrahæli f sfðustu viku. í fyrra mánuði gerðu óein- kennisklæddir lögreglumenn hús- rannsókn heima hjá Podrabinek, og gerðu þá upptækt handrit að bók, sem hann var að semja um meinta misbeitingu geðlækninga í Sovétríkjunum. Þá hefur rithöfundurinn Lev Kopelev, sem mjög hefur beitt sér fyrir mannréttindum í landinu, verið rekinn úr hinu opinbera rithöfundasambandi I Sovét- ríkjunum, og er enginn vafi talinn á þvi að ástæðan sé stuðningur hans við andófsmenn. Kopalev er 64 ára að aldri. í fyrra komu út eftir hann á Vesturlöndum endurminningar úr heimsstyrjöldinni síðari. Kopalev hefur sent rithöfunda- sambandinu bréf, þar sem hann tekur fram, að hann muni ekki áfrýja brottrekstrinum, þar sem hann hafi hagað sér f samræmi samvizku sína og það, sem hann telji vera borgaralega skyldu. — Flugslys Framhald af bls. 1. var á leið til Atlanta og báðir hreyflarnir virðast hafa bilað. Slysið varð skammt frá skóla, en börnin voru nýfarin. Þotan rakst á verzlun og kirkju. Flugmaðurinn virðist hafa reynt að komast til Dobb- ins-flugstöðvarinnar 24 km i burtu til að nauðlenda. — Svíar Framhald af bls. 1. vestur-þýzka sendiráðið fyrir tveimur árum. Lögreglan gerði leit í mörgum öðrum íbúðum, en ekki er vitað til þess að nokkuð markvert hafi fundizt. Sænska stjórnín hefur enn til athugunar að vísa úr landi þrem- ur Suður-Ameríkumönnum og Breta úr hópi hryðjuverkamann- anna sem voru handteknir og bíður eftir skýrslu frá lögregl- unni um þá. Tveir Vestur- Þjóðverjar, sem munu vera úr samtökunum Baader-Meinhof, hafa þegar verið framseldir Vestur-Þjóðverjum og sendir til Karlsruhe. — Sadat Framhald af bls. 1. austurlöndum þegar hann tók á móti Sadat en kvaðst reíðubúinn að verja öllum nauðsynlegum tima til að stuðla að þvi að áfram miðaði á þessu ári í átt til réttlátr- ar og varanlegrar lausnar. Sadat forseti er fyrsti Arabaleiðtoginn sem kemur til Washington síðan Carter tók við embætti i janúar. Viðræður Carters við Sadat eru liður í til- raunum hans til að fá þjóðarleið- toga sem hann hyggst ræða við á næstunni til að samþykkja að Genfarráðstefnan frá 1973 verði aftur kölluð saman. Sadat minnti á að Carter hefði nýlega minnzt á nauðsyn þess að Palestínumenn fengju sitt eigið ríki og lagði einnig áherzlu á kröfu Egypta um brottflutning ísraelsmanna frá öllum arabískum svæðum sem þeir her- tóku í stríðinu 1967. — Svartir kassar Framhald af bls. 1. og hvort Pan Am-þotan var rétt staðsett á flugvellinum. Sænsk yfirvöld munu fá skýrslu um bandarísku rannsóknina eftir tvær til þrjár vikur og síðan er það Spánverja að ákveða hvort upplýsingarnar skuli birtar opin- berlega. Formaður NTSB Webster Todd, sagði að flugmenn frá Pan Am og KLM yrðu fengnir til að hlusta á samtölin þannig að takast mætti að bera kennsl á raddirnar. Hann sagði, að ráðið mundi ekki birta skýrslu sína um slysið fyrr en eftir 12 til 18 mánuði. I Dover-flugstöðinni i Delware reyna læknar og tannlæknar enn að að bera kennsl á lík 329 Banda- ríkjamanna sem fórust í slysinu. Líkin voru flutt þangað í gær. — Skák Framhald af bls. 47 Petrosjans lauk með jafntefli í 12. skákinni, en þá hafði sigur- vegarinn sex og hálfan vinning og Petrosjan fimm og hálfan. Að annarri skák Polugajevskis og Meckings undanskilinni lauk öllum skák- um þeirra með jafntefli, þannig að einvíginu lauk með því að Polugajevski hafði sex og hálf- an vinning, og Mecking fimm og hálfan. Þegar úrslitin í einvígi Korchnois og Petrosjans lágu fyrir sagðist sigurvegarinn hafa haft betri stöðu í lokaskák- inni og hefði jafnteflið fært sér sigurinn, en Petrosjan kvaðst óánægður með frammistöðu sina í einvíginu. Hann sagðist auk þess hafa verið óheppinn, sérstaklega i áttundu skákinni þar sem hann hefði gert tvær meiriháttar skyssur. Sjá grein Margeirs Péturs- sonar á bls. 20. Líkfundur FYRIR skömmu fannst lík rekið í vík fyrir neðan bæinn á Rauða- nesi í Borgarhreppi á Mýrum. Reyndist þetta vera lík Jóns Vals Magnúsaonar, tvltugs Akur- nesings, sem drukknaði í Borgar- firði 19. október í fyrra, en hann vann við brúarsmiði yfir fjörðinn. Útför Jóns Vals hefur farið fram. FYamhald af bls. 2. tefldar þar. Aftur á móti verður teflt á Hótel Loftleiðum, ef ein- vígið heldur eitthvað áfram. Teflt verður í aðalsal Mennta- skólans, en hann nefnist Mikli- garður, en skákskýringar verða í hliðarsölum. Þarna geta rúm- ast mun fleiri áhorfendur en á Hótel Loftleiðum eða 1500 — 2000 manns, þar af geta 400 manns setið í sjálfum skáksaln- um. Er unnið að því að koma fyrir sjónvarpskerfi í skólanum til hagræðis fyrir áhorfendur. Þess skal getið, að heilmiðar að einviginu gilda einnig að auka- einvígjunum. — Norðurlanda- ráð Framhald af bls.47 hinum Norðurlöndunum fjórum. Islendingar áttu sex þingkjörna fulltrúa á þinginu, þau Jón Skaftason, Ragnhildi Helga- dóttur, Sverri Hermannsson, Halldór Ásgrímsson, Gylfa Þ. Gislason og Gils Guðmundsson. Þá voru fjórir íslenzkir ráðherrar á þinginu, þeir Geir Hallgrims- son, Vilhjálmur Hjálmarsson, Matthías Á. Mathiesen og Einar Ágústsson. Auk þeirra voru þar nokkrir embættismenn, full- truáar ungpólitiskra samtaka og nokkrir fréttamenn. — Kröfugerð Framhald af bls. 48 17% i þeim efsta. Haraldur kvað þetta hafa í för með sér að mis- munur hæstu og lægstu launa yrðu mun minni á eftir, en síðan væri aftur á móti gert ráð fyrir fullri visitölu á öll laun, og væri það byggt á þeirri röksemd að dýrtíðin ætti ekki að ráða því hver launamunur væri hér á landi. Haraldur sagði, að ekkert væri afráðið með viðræður við rikis- valdið en gert væri ráð fyrir að rikið gengi frá endanlegri skipun samninganefndar sinnar næstu daga en af háifu BSRB væri teflt fram til þessara samninga 60 manna samninganefnd og hefði hún verið fullskipuð um sl. ára- mót og siðan unnið að mótun framangreindrar kröfugerðar. Haraldur sagði ennfremur, að ætlunin væri aó hafa þann hátt á að prenta kröfugerðina í blaði bandalagsins Ásgarði í 15 þúsund eintökum og senda öllum félags- mönnum en auk þess væri stefnt að því að halda fundi úti um allt land á tímabilinu frá 25. april til 7. maí og kynna þar kröfurnar. Væri áformað að halda slíka fundi á yfir 20 stöðum utan höfuð- borgarsvæðisins. Þetta væri nýj- ung í starfi bandalagsins en nauð- synleg þar sem í nýjum lögum um kjarasamninga hins opinbera væri gert ráð fyrir allsherjarat- kvæða greiðslu um samninga, hvort heldur um væri að ræða sáttatillögu eða samkomulag og þvi brýnt að allir félagsmenn vissu gjörla hváð fælist í kröfu- gerðinni sjálfri. Framhald af bls. 48 sinni, þá fóru bátarnir alls f 275 róðra og lönduðu 1872 lestum. Aflahæstur Ölafsvíkurbáta er nú Garðar SH með 426,6 lest- ir, en hann hefur róið með net og linu. Þá kemur Matthildur með 394,8 lestir og Steinunn með 385,7 lestir Þorlákshöfn Um mánaðamót var heildar- aflinn í Þorlákshöfn orðinn 8.633 lestir I 1087 sjóferðum, en á sama tima í fyrra var aflinn 6.288 lestir. Höfrungur 3. er hæsti bátur í Þorlákshöfn með 691 lest, þá kemur Jón á Hofi með 574 lestir og Friðrik Sig- urðsson með 58 lestir. Keflavfk Frá áramótum til 31. marz s.l. nam heildarafli Keflavikurbáta 4.101 lest I 832 sjóferðum en í frra var aflinn 4.014 lestir í 750 sjóferðum. Alls róa 30 bátar frá Keflavík og eru nokkrir á hand- færum. Hæsti báturinn um mánaðamótin var Hafborg með 277 lestir, og annar f röðinni var Boði með 275 lestir. Sandgerði Um mánaðamótin var búið að landa meiri afla í Sandgerði en alla siðustu vertíð. Hinn 31. marz höfðu 9.100 lestir borizt á land þar en á sama tíma í fyrra 4.668 lestir. Sjóferðir eru nú 2.137, en voru í fyrra 796. Þess má geta að heildaraflinn ía síðustu vertið varð 8.388 lestir. Jón Júlíusson vigtarmaður I Sandgerði og fréttaritari Mbl. þar sagði í samtali að elztu menn myndu ekki vertíð sem þessa, vart hefði verið hægt að tala um úrtök hjá bátunum og því róið upp á hvern dag. Sagði hann að gífurlegir erfiðleikar væru i höfninni í Sandgerði, enda bátafjöldinn, sem rær þaðan, orðinn álíka mikill og i Grindavík og Vestmannaeyjum. Hins vegar er viðleguplássið í Sandgerði aðeins 250 metrar en í Grindavík og Vestmanna- eyjum yfir 1 kílómetri. 70 bátar lögðu afla á land í Sandgerði í marzmánuði. Aflahæsti báturinn, sem rær frá Sandgerði er eins og oft áður Bergþór með 542 lestir, þá kemur Víðir 2. með 470 lestir og þriðji báturinn í röðinni er Arney með 462 lestir. Akranes Niu bátar hafa róið frá Akra- nesi i vetur og hefur afli þeirra verið yfirleitt mjög tregur. Hæsti bátur þaðan eGrótta með um 400 lestir, þá kemur Haraldur með 373 lestir. Að sögn vigtarmannsins á Akranesi hefði verið lítið að gera í frystihúsunum á Akranesi ef togaranna nyti ekki við til að afla frystihuæs- unum hráefnis, og á þessu ári og því næsta bætzt tveir togarar við, annar er byggður á Akur- eyri en hinn í Kristiansund í Noregi. Vestmanna eyjar Þorsteinn Ingólfsson, fulltrúi Fiskifélags lslands i Vest- mannaeyjum, sagði að heildar- aflinn þar væri orðinn 10.146 lestir á móti 9.188 lestum á sama tíma i fyrra. Netabátar frá Eyjum eru nú 33, en troll- bátar 43. Af netabátum er Þórunn Sveinsdóttir hæst með 442 lestir, Árni í Görðum er með 369 lestir og ölduljón með 336 lestir. Af trollbátum er Sigurbára hæst með 256 lestir, síðan kemur Frár með 186 lestir. — Sérhópa- viðræður Framhald af bls. 2. hvort honum þætti þetta ekki góðs viti og kæmi heim við láglaunastefnu ASÍ og hvort þetta táknaði ekki að VSÍ væri opið fyrir kjarabótum til hinna lægst launuðu. Björn sagði: ,,Já, en þess hefur nú ekki séð stað i neinum raunhæfum tillögum enn og það sem þeir kunna að vera að hugsa um þar, hefur ekki komið fram. Því hafa raunverulega engin viðbrögð komið á borði frá þeirra hálfu. Því miður hefur það oft viljað við brenna að tillögur komi ekki fram, fyrr en komið er í óefni.“ — Sjálfgert Framhald af bls. 2. Halldór, ..en til sliks hafði ég aldrei fundið, enda þótt ég hefði áður unnið á trésmiðaverkstæði, þar sem loftið var nú ekki alltaf sem hreinast. Ég leitaði til læknis út af þessu, en það kom ekkert i Ijós, Siðan fór ég í rannsókn á Vifilsstöðum, en hún leiddi ekkert sérstakt í Ijós, enga sjúkdóma, eða slikt." ,.Það var það sama með strákinn," segir Hólmfriður „Hann virtist fá einhver andþrengsli af og til, var oft kvefaður og svo fékk hann óeðlilega oft hita, sem ekki var samfara nein- um sjúkdómi. sem læknar gátu fundið Sjálf varð ég hins vegar aldrei vör við neitt " .,En hins vegar fórum við einu sinni út á land og dvöldum þar í hálfan mánuð," segir Halldór „Og okkur fannst það vera allt annað líf. Við fundum strax breytingu til hins, betra Og sama er að segja núna, þótt ekki sé langt síðan við fórum frá Straumi Og nú er strákurinn alveg stálsleginn." — Var þetta eitthvað, sem þið funduð greinileg, eitthvað áþreifan- legt? „Nei, ekkert slikt. Það voru bara þessir kvillar. sem komu fram I okk- ur," segir Halldór „Hins vegar verðum við áþreifan- lega vör við loðnufýluna hérna," segir Hólmfríður og hlær við. „Það er ekki hægt að opna glugga fyrir þessum ófögnuði." — Nú eruð þið fyrsta fólkið hér á landi, sem verðið að flytja búferlum vegna mengunarhættu Hvaða álit hafið þið á fyrirtækjum eins og álverinu? „Við fordæmum slik fyrirtæki ekki alfarið, þrátt fyrir þessa reynslu okk- ar," segir Halldór." En það er hins vegar forkastanlegt að ekki skuli vera komið í veg fyrir að slikur atvinnurekstur sé hættulegur fólki, gróðri og skepnum i næsta nágrenni "

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.