Morgunblaðið - 21.06.1977, Blaðsíða 17
MORG UNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JUNÍ 1977
17
DR WERNHER von
Braun, sem lézt í Banda-
ríkjunum sl. fimmtudag
65 ára að aldri, var einna
fremstur í flokki þeirra
sem fást við eldflaugar
og geimvísindi. Carter
Bandaríkjaforseti lýsti
von Braun sem manni
djarfra drauma og sagði,
að allt mannkyn nyti um
ókomna tíma góðs af
störfum hans.
von Braun fæddist i Wirsitz I
A-Prússlandi, sem nú er hluti
af Póllandi, 23. marz 1912, son-
ur prússnesks hefðarmanns,
sem síðar varð landbúnaðarráð-
herra i Weimarstjórninni. Von
Braun sagði sjálfur að foreldr-
ar hans hefðu komið fyrstu
geimferðahugmyndinni inn i
sig, er þau gáfu honum stjörnu-
kíki í fermingargjöf í stað hins
Maður
djarfra
drauma
Wemher von Braun látinn
hefðbundna armbandsúrs.
Hann ákvað þá að gera geim-
ferðir að sinu lífsmarkmiði og
gerði sér grein fyrir, að hann
yrði að verða mikill stærðfræð-
ingur þótt honum hefði leiðzt
það fag. Hann lauk prófi frá
Tækniháskóla Berlínar 1932 og
varði doktorsritgerð sína i eðlis-
fræði frá Berlínarháskóla
tveimur árum síðar.
Hann hafði þá þegar helgað
sig eldflaugasmiðum, sem var
föður hans ekki mjög að skapi,
hann hafði vonazt til að sonur-
inn tæki við hefðbundnum
skyldum prússnesks landeig-
anda. Hann var aðeins 18 ára er
hann byrjaði fyrstu eldflauga-
tilraunir sínar ásamt nokkrum
áhugasömun vinum sinum
skammt fyrir utan Berlín. 1932
komu dag nokkurn í heimsókn
til þessara ungu áhugamanna
þrir áhrifamenn innan v-þýzka
hersins og þegar þeir fóru
höfðu þeir fengið samþykki
Von Brauns og samstarfsmanna
hans fyrir að þeir héldu til-
raunum sinum áfram á vegum
hersins og á kostnað hersins.
Von Braun sagði síðar að hann
gefði ekki hugsað neitt um
hugsanlega misbeitingu eld-
flauganna í striði, hann hefði
aðeins haft áhuga á geimferð-
um. 1942 var svo fyrstu V-2
eldflauginni skotið á loft, en
hún átti eftir á valda miklu
tjóni og skelfingu í Bretlandi.
Von Braun var 1844 hneppt-
ur í fangelsi i tvær vikur eftir
að hann hafði neitað að verða
við óskum Himmlers um að
Gestapo fengi yfirráð yfir eld-
flaugatilraununum og tilrauna-
stöðinni í Peenemude. Var von
Braun ekki sleppt fyrr en Dorn-
berger hershöfðingi hafði sann-
fært Hitler um að V-2 áætlunin
myndi hrynja án von Brauns.
Snemma árs 1945 gerði von
Braun sér grein fyrir á hjá
hruni Þýzkalands yrði ekki
komizt og hann ákvað að gefa
sig fram við bandariska herinn
ásamt 118 sérfræðingum sin-
um. Fóru þeir allir með tölu til
Bandaríkjanna eftir að banda-
rísku hershöfðingjarnir höfðu
gert sér grein fyrir að þessi
unglingahópur var í raun og
veru heilinn bak við V-2
áætlunina.
Næstu árum varði von Braun
til tiirauna með nýjar gerðir
árásareldflauga, en hann missti
aldrei sjónir á geimferðamark-
miði sínu. 1952 spáði hann því
að geimstöðvar yrðu komnar á
braut umhverfis jörðu
1962—1965. 1954 lagði hann
fyrir ráðamenn í Washington
áætlun um að skjóta litlum
gervihnetti á braut umhverfis
jörðu, en þeir sögðu honum að
hann skyldi ekki hugsa meira
um geimferðir. Olli þetta hon-
um miklum vonbrigðum, sem
mögnuðust enn, er hann hafði
fullkomnað Jupitereldflaugina
i septernber 1956, en hún gat
auðveldlega flutt gervihnött út
i geiminn. Ef von Braun hefði
fengiö að ráða hefði hann getað
skotið gervihnetti upp einu ári
á undan Sovétmönnum, sem
skutu fyrsta Sputnikinum 4.
október 1957. Þegar fregnir um
Sputnik bárust skýrði von
Braun bandarískum ráðamönn-
um frá því að hann gæti skotið
upp gervihnetti innan 60 daga
og þáð gerði hann er hann loks
fékk leyfi og Explorer var skot-
ið á loft 13. janúar 1958. Það
var sá gervihnöttur, sem gerói
fyrstu vísindalegu stóruppgötv-
unina, sem var Van Allen
geislabeltið umhverfis jörðu.
Von Braun var skipaöur einn
af yfirmönnum bandarísku
geimferðastofnunarinnar er
hún var sett á laggirnar 1958 og
1962 var honum og samstarfs-
mönnum hans falið að smíða
Saturnuseldflaugina fyrir
Apollogeimferðaáætlunina. Sú
eldflaug var 200 sinnum stærri
en V-2 flaugin fræga. Allt i
sambandi við Saturnusflaugina
var stórkostlegt í sniðum. Elds-
neytisdælurnar dældu 700 lest-
um á mínútu til að knýja áfram
flaugina, sem var rúmlega 120
metrar á hæð. Appolloáætlunin
var fullkominn sigur fyrir von
Braun og menn hans og 13 slik-
ar flaugar fóru út í geiminn án
minnsta óhapps og fluttu m.a. 9
áhafnir geimfara, og 6 þeirra
lentu á tunglinu.
1972 sagði von Braun starfi
sínu hjá NASA lausu er hann
sá að stuöningur almennings og
Bandarikjaþings við geimferða
áætlunina fór þverrandi. Hann
starfaði siðustu árin hjá Fair-
ehild lndustries sem yfirmaður
verkfræði- og þróunarmála.
Hann var kvæntur og þriggja
l)arna faðir.
Jorge Montes skipt
fyrir 11 þýzka fanga
Bonn 20. júní AP — Reuter.
KOMMÚNISTALEIÐTOG-
INN Jorge Montes frá
Chile dvelst nú í A-
Þýzkalandi, en þangað kom
hann í gær í skiptum fyrir
11 þýzka pólitíska fanga.
Montes, sem var einn helzti
leiðtogi kommúnista í
Chile hefur verið í fangelsi
í 3 ár. Hann kom til Frank-
furt í gær, þar sem honum
var fengið Chilevegabréf
og honum síðan flogið með
þyrlu til a-þýzku landa-
mæranna þar sem fanga-
skiptin fóru fram.
Tveir af þýzku föngunum, sem
sleppt var, afplánuðu lifstíðar-
fangelsi og höfðu setið inni i 20
ár. Hinir 9 afplánuðu 7—15 ára
fangelsisdóma fyrir ýmis pólitísk
afbrot að þvi er sendiráð Chile i
Bonn skýrði frá.
Egon Franke, ráðherra Bonn-
stjórnarinnar i málum A- og V-
Þýzkalands, staðfesti að þessi
skipti hefðu farið fram, en sagði
að nánari upplýsingar yrðu ekki
gefnar af mannúðarástæðum og
til að koma í veg fyrir að frekari
samningum um slík skipti yrði
stofnað i hættu. Heimildir í Bonn
hermdu að v-þýzka stjórnin hefði
Geimskutlan
Edwards-flugherstöðinni, Kalifornfu 20.
júnf.
GEIMSKUTLAN Enter-
prise fór í fyrsta reynslu-
flug sitt á sunnudag með
tvo geimfara um borð og
eru visindamenn mjög
ánægðir með árangurinn.
verið reið Chilestjórn fyrir að
gera mikið úr skiptunum, V-
Þjóðverjar hefðu um árabil staðið
fyrir fangaskiptum, en gert eins
litið úr þeim opinberlega og unnt
var. Sendiherra Chile í Bonn neit-
aði að Chilestjórn hefði gert mik-
ið úr málinu, hún hefði aðeins
viljað að fólk vissi að Montes væri
laus úr haldi og að hann væri
síðasti fanginn, sem i haldi hefði
verið skv. neyðarástandslögunum
í Chile.
reyndist vel
Skutlan var föst ofan á Boeing
747 þotu, en geimfararnir tveir,
Fred Haise og Gordon Fullerton,
fóru í gegnum 54 mínútna
reynsluaefingu með hemla og
vængbörð skutlunnar. í næsta
mánuði verður svo skutlunni
sleppt í fyrsta sinn og geimfararn-
ir látnir lenda henni.
í VERKSMIÐJU OKKAR í DUGGUVOGI framleiðum við
allar helstu tegundir málningar og fúavarnarefna,
bæði fyrir skipastól landsmanna og byggingariðnaðinn.
Plastmétfa
Gæði vörunnar byggjast á áratuga reynslu,
rannsóknum og gæðaeftirliti.
Hempel’s Mtretex Cuprinol
málning og lökk plastmálning fúavamarefni
á tré og jám utan húss og innan