Morgunblaðið - 21.06.1977, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JUNI 1977
31
Jens Runólfsson
— Minningarorð
F. 27. okt 1895.
D. 9. mal 1977
Miðvikudaginn 18. mai s.l. var
til moldar borinn í Hafnarfirði
Jens Runólfsson, fyrrum umsjón-
armaður Barnaskóla Hafnarfjarð-
ar (nú Lækjarskóla), en andlát
hans hafði borið brátt 'að rúmri
viku áður, 9. mai.
Jens fæddist á Teigagerðis-
klöpp i Reyðarfirði, Suður-
Múlasýslu, 27. okt. 1895. Foreldr-
ar hans voru Runólfur Jónsson af
Maríubakkaætt í Fljótshverfi og
Jónina Einarsdóttir frá Fjallseli í
Fellum á Fljótsdalshéraði.
Bernskuárin (frá 4 ára aldri)
ólst Jens upp hjá séra Magnúsi
Bjarnasyni, prófasti á Prestbakka
á Siðu, allt til fermingaraldurs.
Vandist hann fljótt, eins og al-
gengt um var um drengi i sveit á
þeim timum, allri sveitavinnu.
Nokkru eftir fermingu fluttist
Jens með móður sinni til Seyðis-
fjarðar. Átti hann þar heima um
árabil og stundaði þá sjómennsku
og verkamannavinnu jöfnum
höndum. Þótti hann þá og ávallt
síðan góður liðsmaður að hverju
sem hann gekk.
Jens átti þvi láni að fagna að
eiga sér góðan lifsförunaut. Árið
1924, 2. nóvember, gekk hann að
eiga eftirlifandi konu sína,
Björgu Einarsdóttur Borgfjörðs
bókbindara á Merki í Fáskrúðs-
firði, Sigurðssonar. Var Sigurður
Vestfirðingur að ætt, m.a. kominn
af Rauðamýrarætt í Isafjarðar-
djúpi. Kona Einars Borgfjörðs og
móðir Bjargar var Vilhelmína
Árnadóttir á Merki, Árnasonar,
austfirzk að ætt. Vilhelmína dó i
Hafnarfirði hjá Arnfriði döttur
sinni (konu Valdimars Long
kaupmanns). Arnfriður var, eins
og Björg systir hennar, mikil
vildiskona.
Árið 1931 fluttust þau Björg og
Jens til Hafnarfjarðar ásamt 4
börnum sinum, en eitt höfðu þau
misst, er það var í bráðri bernsku.
Fimm árum eftir komuna til
Hafnarfjarðar, árið 1936, lét Jens
af sjómennsku og réðst sem um-
sjónarmaður við Barnaskóla
Hafnarfjarðar. Þegar hann tók
við umsjónarstarfi þessu, hafði
hann svo til óslitið frá 1915 stund-
að sjómennsku á ýmsum fiski-
skipum, m.a. á Hafnarfjarðartog-
aranum „Mai“, sem hinn kunni
skipstjóri og aflamaður, Benedikt
Ögmundson, stýrði þá. Var Jens
samtals 5 vertiðir á „Maí“ og var
þær vertíðir veitt i salt, en fiskað-
gerð á togara, sem veiddi í salt,
var af sjómönnum, sem til
þekktu, talin erfiðari og vanda-
samari en önnur sjóvinna.
Eftir að Jens var kominn í land
gafst honum betra tóm til að
sinna hugðarefnum sinum. Hag
verkafólks bar hann mjög fyrir
brjósti og lét málefni þess til sín
taka. Hann var jafnaðarmaður,
demókrat, á norræna vísu og
hafði ímugust á öfgum hvort sem
þær lágu til hægri eða vinstri, en
áður fyrr höfðu þessi „hægri" og
„vinstri" orð hreinni og skarpari
merkingu i vitund tslendinga en
nú i dag. Alþýðuflokkurinn átti
góðan hauk í horni þar sem Jens
var. Þjóðmál af hvaða tagi sem
var voru honum alvörumál. Gæf-
lyndi hans og meðfædd trú-
mennska voru svo sterkir þættir í
eðlisfari hans að sárasjaldan lenti
hann í pólitisku karpi. Hann var
fráhverfur allri þrætu, en þó
hafði hann það ríkt geð að hann
gat brugðist hart við og orðið
skjótur til andsvara, ef honum
fannst ómaklega á flokk sinn hall-
að og á þá menn, sem þar voru i
forsvari.
Jens átti sæti i stjórn verka-
mannafélagsins í 12 ár samtals,
fyrst sem varaformaður 1935 og
síðan árið 1943 til 1953 að bááum
árum meðtöldum, varaformaður 2
siðustu árin en hin gjaldkeri eða
fjármálaritari. Um skeið var hann
fulltrúi Hlífar á Álþýðusameands-
þingi og átti þá sæti i fulltrúaráði
verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði
og var formaður þess 1950—52. —
I minningargrein í Alþýðublað-
inu nýlega segir greinarhöfund-
ur, Ólafur Þ. Kristjánsson, þetta
ma. um þessi félagsmálastörf
Jens Runólfssonar: „Þótti.hann
þar traustur maður og tillögugóð-
ur i hvivetna." Þeir, sem þekktu
Jens, hvar i flokki sem þeir
standa, vita að þetta eru sann-
mæli, því að væri honum falið að
leysa verk af hendi, lagði hann
við það rækt og vann það af alúð
og samvizkusfemi.
Jens Runólfsson var umsjónar-
maður Barnaskóla Hafnarfjarðar
um 30 ára skeið. Umsjónarstarf
við stóran skóla og fjölmennan er
erilsamt og veitir fáar næðis-
stundir. Lengi framan af umsjón-
armannstíð Jens, var skólinn
kyntur með kolum. Þurfti hann
þá að vera uppi fyrir allar aldir og
ganga seint til náða til þess að
halda húsinu hlýju og notalegu.
Átti enginn við skólann á þessum
árum lengri vinnudag en umsjón-
armaðurinn. — Þótt ný tækni
kæmi til sögunnar og þægindi yk-
ust við það að olíukynt miðstöð
leysti kol'akyndingu af hólmi, hélt
Jens samt þeim hætti sinum að
vera fyrstur manna í skólann að
morgni og ganga seinastur frá
honum að kvöldi. Hann var með
afbrigðum samvizkusamur starfs-
maður. Eftirlit hans með skólan-
um og umsjón var með þeim hætti
að ekki varð að fundið og þótt
hann gerði sömu köfu til annara
um samvizkusemi í störfum og
sjálfs sfn, fannst hreingerning-
arkonum skólans, en þær voru að
jafnaði 8—10 talsins, gott að
vinna undir hans stjórn
Eiginkona Jens Runólfssonar,
Björg Einarsdóttir, var manni sin-
um mikill styrkur, stóð dyggilega
við hlið hans og sló hvergi slöku
við. Og þegar syrti i álinn, einkum
hin siðari ár, þegar maður hennar
varð fyrir þungum veikindaáföll-
um, hopaði hún hvergi fyrir erfið-
leikunum og reyndist honum mik-
il stoð og stytta, þótt sjálf gengi
hún sjaldnast heil til skógar. Þar
er ómegð þeirra hjóna var mikil
og fyrir mörgum munnum að sjá
þurftu bæði að leggja hart að sér
til þess að sjá heimilinu farborða.
Björg starfaði með manni sinum í
skólanum og vann þar að hrein-
gerningum um langt árabil. Var
hún oft hin síðari ár sárlasin í
vinnunni, en dró ekki af sér og
kvartaði ekki. Þrátt fyrir þetta
tókst henni að búa manni sínum
og börnum fagurt og notalegt
heimili, sem vinum og vanda-
mönnum þótti gott heim að sækja.
Þegar Jens féll frá höfðu þau
hjón búið saman og deilt sköpum
1 meira en hálfa öld, oft.við erfið
og kröpp kjör. En sæl og glöð
máttu þau samt líta yfir farinn
veg, þegar þau höfðu komið upp
stórum og myndarlegum barna-
hópi. Börn þeirra hjóna sjö, sem
upp komust eru þessi:
Guðný, gift Tomas Brennan,
býr í Pennsylvaniu, á 2 börn og
kjörbarn, Helga, gift Öskari Hall-
dórssyni (forstjóra Dúnu), búa i
Garðabæ, eiga 6 börn, Rafn Ing-
ólfur, verkfræðingur í Reykjavik,
kvæntur Lúísu Bjarnadóttur, eiga
2 börn, Einar Vilhelm, vélvirki á
Höfn í Hornafiröi, kvæntur Eddu
Einarsdóttur Hjaltested, eiga 8
börn, Sigurður, vélstjóri í Reykja-
vík, ókvæntur og barnlaus, Guð-
björn Níels, bifreiðarstjóri í
Reykjavik, kvæntur Guðrúnu
Pálsdóttur, eiga 4 börn, Valfríður,
húsfrú í Virginíu i Bandarikjun-
um, á 3 börn af fyrra hjónabandi,
missti mann sinn, Róbert
Gremisey, sem dó mánuði á und-
an J ens tengdaföður sinum.
J^ns Runólfsson var hlýr maður
í viðmóti en samt þéttur í lund.
Gat verið snöggur upp á lagið, ef
því var að skipta, en skjótur til
sátta. Hann var ekki allra, en
trölltryggur, þar sem hann tók
því. Þeir, sem einu sinni i eignuð-
ust hann að vini, áttu vináttu
hans heila og óskipta æ siðan.
Hann var þvi óvenju vinfastur
maður og heillyndur. Þetta fundu
vinir hans glöggt og báru til hans
verðskuldað traust. Og þannig var
hann í öllum störfum sínum trúr
og traustur. — Með slikum manni
sem Jens var gott að hafa átt
samleió um stund á stuttri veg-
ferð þessa jarðlífs.
Þorgeir Ibsen.
t
Eiginmaður minn,
JÓHANN BRAGI EYJÓLFSSON
Rauðalæk 51,
er látinn.
Fyrir hönd aðstandenda.
Guðlaug Marteinsdóttir.
t
Faðir okkar og tengdafaðir,
HARALDURJÓHANNSSON
Stangarholti 28,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 23. júnf kl.
1 0.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað.
Böm og tengdaböm.
S. Melgason hf. STEINIÖJA
ílnholtl 4 Slmar H47J og 14254
t
SÉRA JAKOB EINARSSON
fyrrverandi prófastur,
Hofi Vopnafirði,
andaðist hinn 1 6 júnf að elliheiniilinu Grund
Vigfús Jakobsson,
Inga og Allan Black,
Kristin Black,
Thomas Black.
t
Faðir okkar tengdafaðir, afi og langafi
HJÖRTUR BJARNASON
fri Akranesi
lézt fimmtudaginn 1 6. júni að Hrafnistu. Jarðarförin fer fram fimmtu-
daginn 23. júní kl. 1 3.30 frá Fossvogskirkju.
Böm, barnaböm og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
EINAR PÁLSSON
Álftamýri 58
lést af slysförum 1 8 þ m Matthildur Haraldsdóttir
Einar Örn Einarsson
Margrét Heidi Einarsdóttir Grube
Stefán Einarsson
Sigrún Einarsdóttir
t
Faðir okkar. tengdafaðir, afi og langafi
DANÍEL ELLERT PÉTURSSON
frá HlfS I ÁlftafirBi.
sem andaðist að Hrafnistu 14. júnf. verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 22. júnl kl. 1 30
Börn, tengdaböm. barnabörn og barnabarnaböm.
t
Eiginkona mln, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
RAGNHEIOUR GUÐRÚN HJALTALÍN GUNNARSDÓTTIR,
Hagamel 32
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudag 22 júnl kl 10.30
Tryggvi GuBmannsson,
Hilmar Jónsson, Ásdis Þorsteinsdóttir,
Gunnar Jónsson, FrfBa Ólafsdóttir,
Ragnar Þór Jónsson, og barnaböm.
t Eiginmaður minn KJARTANJÓHANNSSON. Túngötu 5. Sandgerði, lést að heimili slnu 1 9. júnl. Fyrir hönd móður og barna okkar Nfna Sveinsdóttir.
t Eiginmaður minn ODDUR ÓLAFSSON. Hraunteig 3. andaðist fimmtudaginn 16 þ.m. Guðný Oddsdóttir.
t
Móðir mln,
ÞÓRLAUG GUNNLAUGSDÓTTIR
Gaukshólum 2.
áður Aðalstræti 14. Akureyri.
andaðist á heimili slnu fimmtudaginn 1 6 júnl.
Fyrir hönd, barna, tengdabarna og barnabarna,
Erla Hjálmarsdóttir.
t
Maðurinn minn,
SVEINN SV. BJÖRNSSON.
tannlæknir,
andaðist á sjúkrahúsi 1 9. júnl.
Útförin verður gerð föstudaginn 24 júnl.
Maj Lis Bjömsson.
Pinjehöj 21 2960. Rungsted Kyst. Denmörku.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar
STEINGRÍMUR MAGNÚSSON,
Bólstaðarhlfð 26,
andaðist 1 7. júnl.
Ingunn Sveinsdóttir og dætur.