Morgunblaðið - 21.06.1977, Page 24
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JUNI 1977
raðauglýsingar — raóauglýsingar — raðauglýsingar
húsnæöi i boói |
Einbýlishús til sölu
74 fm, 2 herb. í risi. Möguleikar að
byggja ofan á. Fagurt útsýni.
Uppl. í síma 93-71 62 Borgarnesi.
Einbýlishús til leigu
Til leigu 125 fm einbýlishús ásamt stór-
um bílskúr á góðum stað í Hafnarfirði.
Leigutími í 1 —2 ár. Tilboðum sé skilað á
afgr. Mbl. fyrir 28. júní merkt: „Hafnar-
fjörður — 2397".
húsnæöi öskast
Verslunarhúsnæði óskast
til leigu. — Helst við Laugaveg eða
nágrenni. Tilboð með upplýsingum um
stærð og annað sem máli skiptir leggist
inn á afgr. auglýsingadeildar Mbl. fyrir
24. júní. verkt Verslun — 2402.
Bátur óskast
á leigu strax 1 5—20 tonn. Upplýsingar í
síma 40835 og 3711 5.
Mótorknúin rafsuðuvél
óskast strax ný eða notuð. Uppl. í síma
28022.
Nauðungaruppboð. — annað og slðasta — sem auglýst var I
69.. 71 og 73. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1976á Hafnar-
braut 6. þinglýstri eign Hjalls hf, fer fram á eigninni sjálfri
miðvikudaginn 29. júnl 1 977 kl. 16
Bæjarfógetinn I Kópavogi.
Nauðungaruppboð. 2. og siðasta á fasteigninni Holtsgata 8. I
Sandgerði, þinglesin eign Gunnhalls Antonssonar, fer fram á
eigninni sjálfri fimmtudaginn 23. júnf 1 977 kl. 1 6.
Sýslumaðurinn I Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð, 2. og slðasta á fasteigninni Hólagata 29.
efri hæð I Njarðvlk. þinglesin eign Svanbergs Þórðarsonar. fer
fram að kröfu ýmissa lögmanna á eigninni sjálfri miðvikudag
inn 22. júnl 1 977 kl. 15.
Bæjarfógetinn I Njarðvlk.
Nauðungaruppboð. sem auglýst var 19.. 1 1. og 13. tbl.
Lögbirtingablaðsins 1977 á fasteigninni Heimavellir 17 I
Keflavlk, þinglesin eign Viðlagasjóðs en talin eign Jóns
Sigurðssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Garðars
Garðarssonar hdl. fimmtudaginn 23. júni 1977kl. 14.
Bæjarfógetinn I Keflavlk
Nauðungaruppboð, 2. og slðasta á m/b Ölver SH 40, talin
eign Hallgrlms Jóhannessonar, fer fram við bátinn sjálfan I
Skipasmlðastöð Njarðvlkur I Njarðvlk fimmtudaginn 23 júnl
1 977 kl. 13.
Bæjarfógetinn I Njarðvfk.
Nauðungaruppboð. sem auglýst var I 1., 4 og 6 tbl.
Lögbirtingablaðsins 1977 á fasteigninni Heiðargarður 6 I
Keflavfk, þinglesin eign Steinars Ragnarssonar, fer fram á
eigninni sjálfri að kröfu Vilhjálms Þórhallssonar hrl. og fleiri,
fimmtudaginn 23. júnl 1977 kl. 15.
Bæjarfógetinn I Keflavlk
Aðalfundur
Akurs h.f., verður haldinn I efri sal sjálfstæðishússins á
Akureyri laugardaginn 2. júli n.k. kl. 16.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Málfundafélagið Óðinn
Skógræktarferð verður farin I Heiðmörk á vegum félagsins
miðvikudaginn 22. júni. Lagt verður af stað kl. 19.30 frá
Valhöll, Bolholti 7.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin
ORÐ í EYRA
Jóhann Guðmundsson:
Eiturlyfin
„Lærið af mistökum okkar“
Rætt við eiturlyf janeytanda:
„Hleypið mér héðan út“.
Fyrirsagnir greina í Mbl.
25.5.’77. Vandamálið færist
nær, þrýstir á, krefst aðgerða.
Ég hef mikið hugleitt hvernig
við því eigi að bregðast. Hvern-
ig á að meðhöndla þá, sem
einskis svífast í þvt að auðgast á
því að brjóta niður líf og heilsu
ungs fólks, sem ekki er að varð-
bergi.
Flest það ógæfufólk, sem
stendur að sölu og útbreiðslu
fíkniefna og eiturlyfja hefur
fengið væga dóma miðað við
brot sín. Dómsættir og skilyrð-
isbundnir dómar er refsingin i
langflestum þessara mála.
Þessu er ég samþykkur. EN
komi fyrir eins og skeð hefur,
að sami aðili sé aftur bendlaður
við sölu og útbreiðslu fíkni- og.
eiturefna hvað á þá að gera?
Hver á dómurinn þá að vera?
Mín tillaga er sú, að „sannist
á sama aðila meðhöndlun eða
sala á fíkniefnum eða eiturlyfj-
um þá skuli til koma auk eðli-
legrar refsingar við annað brot
nafnbirting og þriðja brot nafn
og myndbirting."
Ég hef þá trú, að hver sá, sem
á yfir höfði sér slíka refsingu
hugsi sig um tvisvar áður en
hann gefur sig að slíkri iðju
aftur. Geri hann það, getur
hann engum um kennt nema
sjálfum sér.
Auðvitað yrði það sárt fyrir
aðstandendur þess, sem kom-
inn er á vald eiturlyfjann, að
horfa á barnið sitt í ormagryfj-
unni. Ég skora á þau yfirvöld,
sem þetta heyrir undir, að
athuga þessa tillögu mina. Allir
landsmenn verða að vera á
varðbergi og þrýsta á að þeir,
sem að þessum málum vinna,
geri skyldu sina, veiti þann að-
búnað og fjármuni, sem til
þarf, reynslu og þekkingu til
þess að halda uppi ákveðinni,
kröftugri og hnitmiðaðri bar-
áttu við þessa hræðilegu
ófreskju, sem er nú að ná fót-
festu hér á landi.
Framundan eru átök, ef
sprona á við að þróun þessara
mála verði til þess að fleira af
ungu fólki leiðist á glapstigu.
Sláum skjaldborg um æsku
íslands með öllum tiltækum
ráðum henni til heilla.
Nóbels-
skáld
til
umræðu
Ég var í miðri súpunni þegar
Sjonni vinur minn hlammaði
sér niður andspænis mér og
lagði spanjóluna sína kyrfilega
yfir brauðdiskinn.
—Það er ég viss um að þú
hefur séð úrvölin á dögunum,
sagði hann. Þó þú sért annars
bölvaður skýjaglópur og þykist
yfir það hafinn að fylgjast með
knattspyrnunni.
—Ég sá kattaúrvalið á Loft-
leiðum hjá henni Guðrúnu A,
svaraði ég. Og aldrei hef ég séð
jafnsyfjað úrvalslið.
—Mér er sama hvað hvur
segir, mælti Sjonni og muldi
brauðið oní súpuna. Ég veðja á
Skagann. Þeir eru sko allir í
vörninni. Fyrst nokkur þrumu-
sk#t, eitt mark eða tvö, og svo
allir í vörnina.
—Skagamenn lögðú menn-
ingunni til steinar sigurjóns-
son og þótti flestum kappnóg,
sagði ég og skipti fimlega um
disk.
Sjonni leit spyrjandi á mig:
—Lék hann ekki eilífa sóló
ef ég man rétt?.
—Gott ef ekki var. Að
minnsta kosti var hann ekki í
Skagakvartettinum.
Sjonni skeiðaði súpuna og
það varð þögn.
—Annars er það sko kúlan
sem spennan er kringum núna,
sagði hann stundarhátt.
Hreinn á eftir að bæta sig
skaltu sann.
—Nú hvað með það, svaraði
ég. Eru ekki allir alltaf að
bæta sig. Nema Hann Kiljan
Okkar. Hann er búinn að vera
svo góður lengi að hann þarf
ekki að bæta sig. Enda allt með
sama snilldarbragðinu sem frá
honum kemur. Það er sko ekk-
ert slor. Hann er nefnilega
staðreyndin í lífi okkar. Og
honum verður ekki breytt.
Fremur en til að mynda Heklu.
Að visu hefur hann alltaf verið
furðu natinn við að koma sér
upp svokölluðum steinbörn-
um. Einkum þó og sérflagi ef
faðernið er þýskt með gyðing-
legu ívafi. Nú seinast hefur
hann komist í tæri við þann
undarlega barnaskap sem
efnarannsóknastöðvar þýskra
bruggara borga margföld fjár-
lög íslenska ríkisins fyrir að
koma á framfæri við fólk og
leggja við nafn doktora eins og
mikill plagsiður er i Þjóðverja-
landi. Steinbarnið fræga frá
réttarhöldunum gersku ól
snillingurinn við brjóst sér i
tuttugu ár. Kannski nægja
honum tíu til að losna við þetta
enda sannleikurinn í þessu
efni orðinn barnalærdómur
við Fýrisá, en....
Sjonni vinur minn stóð upp
frá gúllassinu óétnu.
Fréttatilkynn-
ing vegna
auglýsinga
um garðúðun
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning:
Reykjavfk 7. júnl 1977
VEGNA auglýsingar frá Félagi
skrúðgarðyrkjumeistara, er lesin
var þrfvegis { hádegisútvarpinu í
dag, þess efnis að félagið vari
garðeitendur við að láta úða garða
sina nema við 12—15 stiga hita,
vilja forsvarsmenn ofangreindra
fyrirtækja taka fram.
1. Við höfum mörg undanfarin
ár úðað garða við lægra hitastig
og hefur hún nær undantekninga-
laust borið fullan árangur.
2. Almennt er viðurkennt að
úðun við iægra hitastig en 12 stig
hafi full áhrif.
3. Sérstaklega skal áréttað, að
bæði fyrirtækin framkvæma
endurúðun án gjalds hafi fyrri
úðun fyrir éinhverra hluta sakir
mistekist.
4. Við lýsum fullri ábyrgð á
hendur Félagi skrúðgarðyrkju-
meistara vegna þess tjóns sem
umrædd tilkynning þeirra hefur
þegar haft í för með sér á starf-
semi okkar og kann að hafa.
5. Við lýsum vanþóknum okkar
áþvf að umrædd auglýsing, sem er
með öllu órökstudd og hvorki í
samræmi við reynslu okkar né
annarra, skuli vera lesin í hljóð-
varpi. Hlýtur hér að vera um ský-
laust brot á hlutleysisreglum út-
varpsins.
Fyrir hönd Uða s.f.
Brandur Gfslason garðyrkju-
maður
Þórður Gfslason garðyrkjumaður.
Fyrir hönd Garðaprýði
Guðmundur Gfslason
skrúðgarðyrkjumeistari.
Sögusinfónían
fær góða dóma
Í SÍOASTA hefti tlmaritsins Record
and Recording er fjallað um Sögusin-
fónlu Jóns Leifs og fter hún þar gó8a
dóma.
Segir þar, að þessi vel unna plata
veiti mönnum áhrifamikla innsýn I
hinn sérkennilega og stórbrotna stll
Jóns, verkið sé hlaðið spennu og mjög
myndrænt Eftir nákvæma lýsingu á
uppbyggingu sinfónfunnar er farið
nokkrum orðum um notkun Jóns á
ásláttarhljóðfærum Segir þar að and-
stætt þvl, sem gerist hjá Khachaturian
séu ásláttarhljóðfærin aðeins látin und-
irstrika ákveðna þætti I tónlistinni en
ekki notuð til þess að bera hana uppi.
Að lokum segir I greininni að Sögusin-
fónlan tákni að vlsu ekki neina nýja
stefnu I tónlist. en að hlusta á hana sé I
senn skemmtileg og athyglisverð
reynsla