Morgunblaðið - 10.07.1977, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JULI 1977
31
— Minning
Aðalsteinn
Framhald af bls. 38
vængi með hinni nýju löggjöf, og
vel er það. Ég hygg, að þeir, sem
vilja geti haft nokkurn stuðning
af ritum Aðalsteins um hin
frjálsu vinnubrögð í skólum.
Aðalsteinn var mikill áhuga-
maður um norræna samvinnu og
ferðaðist um Norðurlönd, heim-
sótti m.a. skáldkonuna frægu,
Selmu Lagerlöf. Hann fékk leyfi
hennar til þess að þýða Nils sögu
Holgerssonar, sem hann og gerði.
En því miður, kom aldrei út nema
fyrra bindið af ágætri þýðingu
hans. Oftast kom A.S. til Færeyja,
kynntist þjóðinni vel og tók ást-
fóstri við hana og þýddi bækur
eftir helstu rithöfunda þeirra t.d.
Heinesen (Nóatún), Jörgen Fr.
Jakobsen (Barbara o.fl.) og
Hedin Brú (Feðgar á ferð). En
mesta afrek Aðalsteins var á þeim
tima, þegar hann fór með
drengjabekk (8A) úr Austur-
bæjarskólanum til Færeyja vorið
1933. Það . voru 23 drengir,
fullnaðarprófsbörn. Þeir
ferðuðust víða um eyjarnar,
kynntust mörgum og voru landi
og þjóð til sóma. Þeir rituðu bók
um ferðina, þegar heim kom, sem
ber nafnið Til Færeyja. Ég hygg
að barnakennarar nútimans gætu
lesið þá bók sér til fróðleiks og
sálubóta. — Rikard Lang, gagn-
fræðaskólakennari, undirbjó
þessa ferð af hálfu Færeyinga,
ásamt Simoni av Skarði, lýðhá-
skólastjóra, og Foroya Kennara-
félagi. Drengirnir dvöldu á
heimilum gagnfræðaskóla-
nemenda meðan þeir dvöldu I
Þórshöfn.
Ég átti þess kost að vera að-
stoðarmaður Aðalsteins í för
þessari, en harma það alla tíð, að
ástæður mínar leyfðu mér ekki
þann munað á þeim tima. 1 minn
stað fór Stefán Jónsson, kennari,
er tekið hafði kennarapróf þá um
vorið, siðar þjóðkunnur rithöf-
undur.
Árið eftir gafst þessum Fær-
eyjaförum kostur á að endur-
gjalda gestrisni Færeyinga. Þá
kom Rikard Long hingað með
deild úr gagnfræðaskólanum í
Þórshöfn, sem dvöldu á heimilum
drengjanna úr 8A og ferðuðust
með þeim um ísland. Má af þessu
sjá, að hér hefir verið um veru-
lega landkynningu að ræða. Að
sjálfsögðu stjórnaði A.S. móttöku
hópsins og naut aðstoðar margra
góðra manna til þess, svo og til
Færeyjafararinnar. Það var þvi
engin furða, þótt við, vinir hans,
nefndum hann oft sendiherra
Færeyja hér á landi! Víst er, að
oft var til hans leitað á þessum
árum, þegar einhvern vantaði
upplýsingar um þjóð og land I
Færeyjum. Nú er, góðu heilli,
orðið meira og betra samband
milli þessara bræðraþjóða en þá
var. En ég veit að margir Fær-
eyingar minnast A.S. alltaf með
virðingu og þökk fyrir góð kynni.
Af þvi, sem hér er skráð, er
auðsætt að Aðalsteinn Sigmunds-
son var sérstæður á marga lund.
Hann var gáfaður maður og vilja-
sterkur, skapríkur og nokkuð ein-
þykkur. Han var seintekinn og
gat stundum virst þurrlegur í við-
móti, en var hverjum manni
skemmtilegri I vinahópi. Og
enginn sem heyrði hann tala við
„gömlu frænku“, Steinunni
móðursytur sína, gat efast um að
hann átti hlýtt hjarta.
Við störfuðum saman 9 ár, við
barnaskóla Eyrarbakka,
1920—1929, ásamt frú Jakobinu
Jakobsdóttur. Við vorum ólik á
ýmsa lund, en sveigðum til eftir
ástæðum, svo að samkomulagið
varð ágætt og ógleymanlegt. Ég
tel þau hiklaust meðal bestu og
kærustu vina minna, enda bæði
trygg og vinföst. Auk þess störf-
uðum við Aðalsteinn að félags-
málum kennara hér i Rvík og að
málefnum U.M.F.l. — Ég ræði
það ekki nánar hér. En hiklaust
segi ég, að hugsjónir ungmenna-
félaganna voru Aðalsteini kærar,
enda var hann einn hinn fremsti
æskulýðsleiðtogi Islands á sinni
tíð.
Þegar eftir lát Aðalsteins stofn-
aði U.M.F.l. sjóð til minningar um
hann, með 10 þús. krónum. Mark-
mið sjóðsins skyldi vera ,,að
styrkja til náms efnilega en
fátæka unglinga er sýnt hafa
þroska og hæfni til starfa innan
U.M.F.l." Nú er sjóður þessi
rúmar 200 þús. krónur, en höfuð-
stóll bundinn að miklu leyti i
Söfnunarsjóði Islands, svo sem
venja var um slíka sjóði. Þó mætti
veita nokkra tugi þúsunda úr
sjóðnum í umræddu skyni, en nú
er gildi peninga svo rýrt, að sú
upphæð nær skammt sem náms-
styrkur. Þess vegna samþykkti
stjórn sjóðsins á fundi sinum í vor
að hvetja ungmennafélaga og
aðra, sem unna A.S. að styrkja nú
minningarsjóðinn með gjöfum
svo að hann næði sem fyrst hinum
sigilda tilgangi sinum. Og enn eru
hugsjónir ungmennafélaganna
um ræktun lýðs og lands i fullu
gildi, hvað sem breytingum
nútímans liður. Formenn ung-
mennafélaga um land allt og
skrifstofa Ungmennafélags
Islands á Klapparstíg 16, hér i
borg, taka á móti gjöfum í
sjóðinn.
Aðalsteinn var alla tíð ókvænt-
ur og barnlaus. En nemendur
hans voru börnin hans. Hann var
glöggskyggn á eðli þeirra, kom
auga á góða hæfileika þeirra og
studdi þá marga til frekara náms
með ráðum og dáð, en engin nöfn
nefni ég hér.
Við Aðalsteinn ræddum oft um
það á samvinnuárum okkar, að
heimsækja æskustöðvar okkar
saman. Aðalsteinn kom með mér
að Meiragarði i Dyrafirði sumarið
1942. Þá var tekin mynd af okkur
og nokkrum frændsystkinum
mínum, i trjálundi, sem vaxinn er
á rústum bæjarins, sem ég
fæddist i. Sú mynd fylgir hér
með. Seint í april 1943 fylgdi ég
jarðneskum leifum Aðalsteins að
Nesi í Aðaldal og mælti þar
nokkur kveðjuorð yfir kistu hans.
— Það var þungbær stund. Mér
var ljóst, að ég hafði kvatt trygg-
an vin, en jafnframt kennara og
æskulýðsleiðtoga, hvers nafn lifa
mun um aldir á blöðum
menningarsögu Islands.
Ingimar H. Jóhannesson.
Hestaþing Sleipnis og Smára
verður haldið að Murneyri sunnudaginn 1 7. júlí
og hefst kl. 14. Keppt verður í eftirtöldum
greinum:
1. Gæðingakeppni A flokkur
2. Gæðingakeppni B-flokkur.
3. 250 m skeið
4. 300 m stökk
5. 250 m unghrossahlaup
6. 800 m stökk
7. Unglingakeppni
8. íþróttakeppni
Á móti skráningu er tekið af Aðalsteini Stein-
þórssyni Hæli (sími um Ása) og í síma 99-
1801, frá kl. 4 — 6 til þriðjudagskvölds 12.
júlí. Forkeppni í B-flokki gæðinga og íþrótta-
keppni fer fram síðdegis á laugardag og í
A-flokki gæðinga og unglingakeppni á
sunnudag kl. 1 0 fyrir hádegi.
Mótsnefnd.
vörubifreióastjórar
4.29-07
verólækkun
á 'ttcuutm hjólbörðum - ótrúlegt tilboö,
sem enginn ætti aó hafna - pantið strax
Framhjólamynstur
1100 x 20/16 - 56.300
1000 x 20/14 - 52.600
900 x 20/14 - 47. 700
825 x 20/12 -36.600
JÖFUR HF
Afturhjólamynstur
1100 x 20/16 - 57.800
1000 x 20/14 - 54.500
900 x 20/14 - 49.200
825 x 20/14 - 39.600
AUÐBREKKU 44-46 - KÓPAVOGI - SIMI 42600