Morgunblaðið - 10.07.1977, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JULÍ 1977
Jarðarför fósturbróður míns.
THEODÓRSA.GUÐMUNDSSONAR
frá Geirakoti,
Fróðárhreppi
sem lézt 3 júlí fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 11 júli kl
10 30
Lýður Jónsson.
Faðir minn,
KJARTAN SVEINSSON.
skjalavörSur
Ásvallagótu 69,
Reykjavík.
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni kl 1 5.00, þriðjúdaginn 1 2 júli.
Sveinn Kjartansson.
Maðurinn minn. +
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON.
fyrrverandi innheimtumaður.
Hringbraut 101,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 13 júlí kl 1:30.
Guðrún Magnúsdóttir.
+
Útför eiginmanns míns og föður okkar,
LÚÐVÍKS GUÐMUNDSSONAR,
Arnarhrauni 26, HafnarfirSi.
fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 1 2 þ m. kl 2 e h
Bára Marsveinsdóttir og börn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð og
vináttu við andlát og jarðarför sonar okkar, bróður og dóttursonar,
SVEINBJARNAR EINARSSONAR
Ystaskála.
Vigdís Pálsdóttir, Einar Sveinbjarnarson,
Páll Vilhjálmur Einarsson,
Sigríður Anna Einarsdóttir,
Guðlaugur Sigurður Einarsson,
Sigurjón Eyþór Einarsson,
Þorbjörg og Páll H. Wium.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginmanns míns og föður okkar.
HRAFNKELS GUOGEIRSSONAR
ViSigrund 21, Kópavogi.
Agnes Jóhannsdóttir og dætur.
+
Þökkum inntlega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginmanns míns og föður,
STEINGRÍMS MAGNÚSSONAR
BólstaðarhliS 26.
Ingunn Sveinsdóttir,
Sigurborg Steingrímsdóttir,
Júlfana Svana Steingrímsdóttir.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför
DANIELS ELLERTS PÉTURSSONAR
frá Hlíð i Álftafirði
Sérstakar þakkir faerum við vinum og starfsfólki Hrafnistu.
Unnur Danielsdóttir,
Kolbrún Danielsdóttir, Óskar Líndal,
Gunnlaugur Danielsson, Edda Axelsdóttir,
Friðgerður Danielsdóttir. Finnbogi Finnbogason,
Órn Danielsson, Margrát Ingimarsdóttir,
Helga Danielsdóttir, Mortan Hólm,
Pétur Danielsson, Guðrún Pálsdóttir,
Málfriður Danielsdóttir, Magnús Jónsson,
Vigdis Danielsdóttir, Björn St. Ólsen,
Einar Danielsson, Karitas Halldórsdóttir
og barnabörn.
Minning vinar:
Aðalsteinn Sig-
mundsson kennari
F. lO.júIf 1897 '
D. 16. mars 1943
Það bar til hér um daginn á
norrænu fulltrúaþingi, að fær-
eyski fulltrúinn — sem er yfir-
læknir á sjúkrahúsi í Þórshöfn —
var spurður hvort hann myndi
eftir Aðalsteini Sigmundssyni,
kennara. Já, hann hélt nú það.
Allir Færeyingar, miðaldra og
eldri, myndu þann mann.
Þegar ég sting nú niður penna
til þess að minnast vinar mins,
Aðalsteins Sigmundssonar, spyr
ég sjálfan mig, hve margir Is-
lendingar á nefndum aldri skyldu
nú muna hann. Ég læt því ósvar-
að, en hitt veit ég, að menn eru
fljótir að gleymast, þegar þeir
hverfa úr lífsbaráttunni. En
minningin lifir meðal góðvina og
málefnin, sem þeir helguðu líf
sitt og starf, hugsjónirnar, lifa
alltaf — þær eru eilífrar ættar.
Mér er engin launung á því, að
Aðalsteinn var kær vinur minn og
samherji um aldarfjórðungsskeið
og jafnframt heimilisvinur, sem
börnum mínum þótti mjög vænt
um og gleyma aldrei. Og enn eru á
lífi piargir vinir hans og samherj-
ar, sem minnast hans í dag á
áttræðisafmælinu, enda þótt nú
séu liðnir röskir þrír áratugir frá
láti hans. Við munum einnig
minnast helstu hugðarefna hans
áhugamála. 1 þeim tilgangi er
grein þessi skrifuð.
Ég ætla ekki að skrifa ævisögu
Aðalsteins hér, að öðru leyti en
því að minna á nokkur atriði.
Hann var þingeyskur bónda-
sonur, hálfbróðir skáldbóndans
þjóðkunna, Steingríms Baldvins-
sonar í Nesi, sem nú er látinn.
Enn eru á lífi tvö systkini Aðal-
steins, Arnór, fv. bóndi i Arbót,
og Jóhanna, fv. húsfreyja I Ytri-
Skál, merkismenn bæði tvö. Aðal-
steinn var bæði lærður prentari
og kennari, tók kennarapróf 1919
og siðan varð barnakennslan aðal-
ævistarf hans. Fyrst var hann
skólastjóri barnaskólans á Eyrar-
bakka I 10 ár en síðan kennari
Austurbæjarbarnaskólans I
Reykjavík 1931—1942, en svo var
hann skipaður námsstjóri Vest-
fjarða. Og hann var á ferðalagi I
embættiserindum þegar hann
fórst af slysförum vorið 1943. Þá
var hann einnig formaður Sam-
bands ísl. barnakennara og hafði
verið I stjórn þess tæpan áratug.
Hann var einnig starfsmaður
U.M.F.I. 1929—’31 og sambands-
stjóri röskan áratug. Ritstjóri
Skinfaxa var hann 1930 — ’40 og
skógarvörður i Þrastarskógi mörg
ár. Hann var mikill félagshyggju-
maður, stofnaði og stjórnaði
skátafélagi á Eyrarbakka og ritaði
Skátabókina að miklu leyti, stofn-
aði Umf. Eyrarbakka og var mörg
ár I stjórn þess. Hann var og
góður stuðningsmaður góðtempl-
arareglunnar, en fyrst og fremst
var hann áhugasamur ungmenna-
félagi frá barnæsku og unni hug-
sjónum þess félagsskapar öðru
fremur. Hann var fulltrúi
U.M.F.I. I milliþinganefnd þeirri
er samdi íþróttalögin 1938—1940
og svo fulltrúi þeirra I iþrótta-
nefnd ríkisins frá 1940 til dauða-
dags.
Sjá má af þessu yfirliti, að Aðal-
steinn hefir komið víða við sögu
góðra málefna og orðið nokkuð
ágengt. Ónefnt er þó enn, að hann
var mikill unnandi góðra bók-
mennta, hagyrðingur góður og
prýðilega ritfær, enda fékkst
hann rnikið við ritstörf alla ævi
slna.
Hérna í bókaskáp minum eru
a.m.k. rúmlega 20 bindi bóka, sem
nafn Aðalsteins er tengt við.
Margar eru þýddar, nokkrar
frumsamdar, sumar hefir hann
gefið út, einn eða með öðrum.
Ritstjóri Skinfaxa var hann, sem
fyrr er nefnt og einnig barnatíma-
ritsins Sunnu, er þeir Gunnar M.
Magnúss gáfu út. Auk þess ritaði
Aðalsteinn fjölda greina í blöð og
tímarit, innlend og erlend.
Hér verður ekki meira skráð
um þetta en um ævi og störf A.S.
er mikið skrifað I 1. h. Skinfaxa
1943 svo og I Kennaratali og dag-
blöðum frá 1943.
Sumir segja, ef til vill, að það
sem A. S. og aðrir skrifuðu fyrir
3—4 áratugum og ætluðu æskulýð
til lesturs, sé nú úrelt. En það eru
ekki nema nokkrir dagar síðan ég
talaði við einn skátaforingja, sem
alltaf sagðist nota drengjasögur
A.S. með góðum árangri. —
Margar þeirra eru sígildar.
Ég geri ráð fyrir að barnakenn-
arar nútimans, sem vilja gera
kennslu sína skemmtilega og
frjálslega, samkvæmt anda hinna
nýju grunnskólalaga, geti haft
nokkurt gagn af leiðbeiningum I
vinnubókagerð eftir A.S. og
Guðm. Guðjónsson, ásamt ýmsu
sem á þeim tima var skrifað um
frjáls vinnubrögð I skólum. Aðal-
steinn var frumkvöðull á landi
hér i slíkum vinnubrögðum á
fjórða áratugi þessarar aldar.
Hann fór víða um land og leið-
beindi i þeim fræðum og einnig
fór hann tvivegis til Færeyja í
sömu erindum. Fjöldi kennara
tók þessari nýbreytni fegins
hendi. Ég hygg að skólasýning
S.I.B. 1939 beri þessu glögg vitni
og geta menn lesið um hana í
blöðum þess tíma. En svo komu
ófriðarárin og settu allt úr skorð-
um. Þó reyndum við margir
kennarar að klóra i bakkann og
mér skilst að hugsjónin um frjáls
vinnubrögð I skólum hafi aldrei
orðið aldauða á landi hér. Nú
i virðist hún aftur fá byr undir
Framhald á bls. 31
Klassískar hljómplötur
Úrvalsverd
Eine kleine nachtmusik
Preludiur
Brandenburgarkonsertar 1 —3
Brandenburgarkonsertar 4—6
Overtures
L’arliennes suites
Sinf. no. 9 Nýi heimurinn
Romeo og Júlia
Sinfonía n. 1
Sinfonía no. 9
Sinfonia no. 5
Sinfonía no. 6
Valsar
Also spragh Sarathustra
Sinfonía no. 2
Coppelia, Sylvia
Myndir á sýningu
Tannhauser o.fl.
Sinfonía no. 5
Piano quintet (Trout)
Sinf. no. 36 og 39
Fiðlukonsert
Sinf. no. 40
Sinf. no 4 & 5
Sinf. no 9 (great)
Á aðeins 1.100,- 1.100,-
Sendum í póstkröfu
heimilistœki sf
Hljómplötudeild Hafnarstrœti 3-20455
Sœtúni 8-15655
Mozart
Chopin
Bach
Bach
Bethoven
Bizet
Dvorak
Tchaikovsky
Brahms
^ethoven
Bethoven
Tchaikovpky
Johann Strauss
Richard Strauss
Sibelius
Delibes
Moussorsky
Wagner
Shostakowich
Shubert
Mozart
Brahms
Brahms
Mendelsohn
Shubert