Morgunblaðið - 10.07.1977, Page 48
-4___
\n;KVSlN(;.\SIMIN\ KR:
22480
JttorfliuibTnöiíi
AUÍÍLYSINÍÍASÍMINN ER:
22480
Bl»r0unMnt>ií>
SUNNUDAGUR 10. J(ULl 1977
Fíkniefnadómstóllinn:
Hefur haft afskipti
af liðlegalOOO ís-
lenzkum ungmeimum
Ffkniefnadómstóllinn
hefur frá árinu 1973 fram
til þessa dags haft afskipti
af liðlega 1000 íslenzkum
ungmennum vegna fíkni-
efnamála. A þessum árum
hefur verið upplýstur inn-
flutningur á 120—130 kíló-
um af kannabisefnum,
hassi og marihuana, þar af
60 kíló í fyrra. Af þessu
magni hefur fjórðungur
verið gerður upptækur.
Þetta kemur m.a. fram í
viðtali Mbl. við tvo starfs-
menn Fíkniefnadómstóls-
ins, þá Ásgeir Friðjónsson
sakadómara og Arnar Guð-
mundsson fulltrúa, sem
birt er á bls. 20 og 21 í
biaðinu í dag.
1 viðtalinu kemur einnig fram,
að Fíkniefnadómstóllinn hefur
frá miðju ári 1974 fram til þessa
dags afgreitt 573 mál, og mál 200
einstaklinga bíða afgreiðslu. A
þessu ári hafa 15 aðilar verið
dæmdir, þar af 10 í fangelsi, frá 2
einstaklinga hafa verið afgreidd
með sektum frá nokkrum þúsund-
um króna upp í tæpa hálfa millj-
ón.
Þá kemur fram í viðtalinu, að
í seinni tíð hafa nokkrir aðilar
stundað fíkniefnasmygl af
hreinní hagnaðarvon. Þeir Ásgeir
og Arnar segja i viðtalinu að tölu-
vert mörg ungmenni séu það
langt leidd, að telja megi þau
sibrotafólk í meðhöndlun fíkni-
efna og margir hafi nú þegar
glögglega beðið líkamlegt og/eða
andlegt tjón á heilsu sinni.
Frá undirritun sjómannasamninganna f gær f húsakynnum sáttasemjara rfkisins í
Tollstöðinni. — Ljósm.: RAX.
Sjómenn og útvegsmenn sömdu 1 gær:
Megininntak samninganna
mánaðarlegt tryggingatímabil
Fiskverðshækkun ákveðin 20% í gær
SJOMENN og útvegsmenn undir-
rituðu nýja kjarasamninga f gær.
mánuðum til 4 ára og mál 120 I Að sögn fulltrúa sjómanna, sem
Þorskstofninn:
Friðunartíllögumar fyr-
ir ríkisstjóm á fimmtudag
„A MEÐAN friðungartillögurnar
hafa ekki verið lagðar fyrir rfkis-
stjórn og staðfestar þar, get ég
ekki sagt hvernig þær eru. Til-
Alexander Haig.
lögurnar verða lagðar fyrir rfkis-
stjórnarfund f næstu viku, Ifklega
á fimmtudag, og ef þær verða
samþykktar þá, verður strax gef-
in út reglugerð, sem ætti að taka
gildi fljótlega upp úr næstu
helgi,“ sagði Matthfas Bjarnason
sjávarútvegsráðherra f viðtali við
Morgunblaðið f gær, er hann var
spurður um fyrirhugaðar aðgerð-
ir til friðunar á þorskstofninum f
þá átt að heildarveiði þorsks fari
ekki fram úr 275 þús. lestum á
þessu ári.
Sjávarútvegsráðherra hefur
þegar kynnt hugmyndir sínar
fiskifræðingum og fulltrúum út-
gerðarmanna og sjómanna og
samkvæmt því, sem Morgunblað-
ið hefur fregnað, verður ekki far-
ið út í kvótaskiptingu á hvért
skip, heldur gripið til annarra að-
gerða.
Morgunblaðið ræddi við f gær,
eru þessir kjarasamningar að
meginstofni til um breytingu á
kauptryggingatfmabili, sem nú
verður einn mánuður á báta-
flotanum, og einnig mun hver
veiðiferð togara teljast sérstakt
kauptryggingatfmabil. Engar
breytingar voru gerðar á skipta-
prósentu. Fulltrúar sjómanna
sögðu að þessir kjarasamningar
færðu sjómönnum mjög merkan
áfanga, sem væri breytt tfmabil
og mánaðarlegt uppgjör. Ingólfur
Ingólfsson, formaður Vélstjóra-
félags Islands, kvaðst telja að
þessir samningar væru hinir
merkustu samningar fyrir báta-
sjómenn, sem náðst hefðu sfðan
1961, en þá voru tekin upp brúttó-
skipti. Kristján Ragnarsson, for-
maður Landssambands fslenzkra
útvegsmanna, kvað hið breytta
skipulag mundu auka áhættu f
útgerðarrekstri, en hann fagnaði
að náðst hefðu samningar átaka-
laust. Þá var fiskverðshækkun
ákveðin f gær að loknum samn-
ingafundum og hækkar fiskverð
um 20%.
Öskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambands íslands, kvað
erfitt að gera sér nákvæma grein
fyrir útkomu samninganna, en
við fyrstu yfirsýn sagði hann að
þeir hefðu tekizt vonum framar.
„Ég segi eins og forveri minn, að
ég er aldrei ánægður, þegar upp
er staðið frá samningum, en hér
hefur þó náðst merkur áfangi f
kjaramálum sjómanna." Helzti
áfangi samninganna kvað Öskar
vera breytt kauptryggingatfma-
bil. Hann kvað samninganefnd
sjómanna hafa metið þann áfanga
svo mikils, að ákveðið hafi verið
að hreyfa ekki skiptaprósentum
að sinni. „Hún er þó geymd, en
ekki gleymd,“ sagði Öskar Vigfús-
son og bætti við um breytt kaup-
tryggingatímabil, að sú kerfis-
breyting, sem með samningunum
hefði náðst, hefði fellt úr gildi 30
ára gamalt kerfi. Nýja kerfið
tekur gildi hinn 1. ágúst næst-
komandi.
önnur atriði kjarasamninganna
eru, að fastakaup togarasjómanna
hækkar um 24% og nokkur hækk-
un fékkst á aflaverðlaunum, sem
voru 0,64% en verða nú 0,66%
hjá hásetum og hækkar hjá yfir-
mönnum eins og bátsmanni og
matsveini í 0,68%, en áður höfðu
þeir sama hlut og háseti.
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands fslenzkra útvegs-
Framhald á bls. 46
Y firhershöf ðingi
NATO á í slandi
YFIRHERSHÖFÐINGI
Atlantshafsbandalagsins,
Alexander Haig, kom til
fslands f gær og mun dvelj-
ast hérlendis, m.a. við lax-
veiðar, fram á mánudag.
Með honum er kona hans
Patricia. Haig er hér f
einkaheimsókn, en þó f
boði utanrfkisráðuneytis-
ins. Hann mun hitta að
máli sendiherra Banda-
rfkjanna á Islandi og for-
sætisráðherra, Geir
Hallgrfmsson.
Alexander Haig kom með
einkaflugvél til Keflavíkurflug-
vallar síðdegis f gær. Hann var í
stjórnartíð Richards Nixons,
Bandarikjaforseta, einn helzti að-
stoðarmaður Henry Kissingers,
utanríkisráðherra, og síðan varð
hann helzti aðstoðarmaður for-
setans á siðustu valdamánuðum
hans f Hvíta húsinu. Sagt er að
Haig hafi leikið lykilhlutverk í
sambandi við afsögn Nixons.
Eftir að Gerald Ford tók við
stjórnartaumum í Hvíta húsinu
var Alexander Haig gerður að
yfirhershöfðingja alls herafla
Atlantshafsbandalagsins. Sú skip-
un var á sínum tfma mjög um-
deild, þar sem álitið var að aðrir
menn stæðu nær þeirri stöðu en
Haig.
HREINN ÞENUR NIKKUNA
Hreini Halldórssyni er fleira til lista lagt en að kasta kúlu, hann er
vel liðtækur harmonikkuspilari og hafði f eina tfð mikla ánægju af
gömlu dönsunum. A blaðsíðum 14 og 15 er spjallað við Hrein um
heima og geima. (Llósmvnd Emilla).