Morgunblaðið - 23.07.1977, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JULI 1977
Hið nýja frystiskip Jökla h.f, Hofsjökul! var í Vest-
mannaeyjum f gær og lestaði þar frystan fisk. Mynd-
ina af skipinu í Vestmannaeyjahöfn tók Guðlaugur
Sigurgeirsson.
Fyrsti plasttrillubát-
urinn sjósettur í dag
Forsetahjónin
medal gesta
við Úlfljótsvatn
„ÞETTA var dálítið erfitt hjá
okkur vegna veðurs sfðari hluta
næturinnar og fram eftir deg-
inum, en engum varð meint
af“, sagði Arnfinnur Jónsson,
mótsstjóri við Úlfljótsvatn, er
Mbl. leitaði hjá honum frétta
af skátamótinu í gær. „t dag
heimsóttu okkur forsetahjónin,
borgarstjórahjónin og fleiri
góðir gestir“, sagði Arnfinnur
„og sýndu veðurguðirnir þá til-
iitssemi að halda uppstyttu
meðan gestirnir stöldruðu við“.
Arnfinnur sagði, að i fyrri-
nótt hefðu þrjú tjöld farið um
og eitthvað slitnað af stöngum,
en vandræðalaust hefði gengið
að laga allt saman. „Og þetta er
duglegt fólk“, sagði Arnfinnur.
„I dag áttu skátahópar að fara í
svokallaðar markferðir, sem
taka 8 klukkustundir, og þrátt
fyrir veðrið í morgun lagði um
helmingur hópanna upp og þeir
eru svona að skila sér aftur
núna. Fæ ég ekki betur séð, en
allir komi hressir og glaðir,
þrátt fyrir rigninguna, og dag-
skráin hefur haldið áfram, þótt
þátttakan sé ef til vill örlitið
minni.“
I dag verður almennur heim-
sóknardagur með frjálsri dag-
skrá, sem lýkur með stórum
varðeldi i kvöld, en mótinu
verður svo formlega slitið und-
ir hádegið í dag.
Farmannadeilan:
Hásetar og matsveinar
boða verkfall 1. ágúst
FYRIRTÆKIÐ Mótun h.f.
í Hafnarfirði er nú að
leggja síðustu hönd á
fyrsta plastfiskibátinn,
sem það framleiðir og fer
hann til Vestmannaeyja en
alls hafa verið pantaðir 10
slíkir bátar hjá fyrirtæk-
inu.
Mótun hóf starfsemi um
miðjan maí s.l. og er þegar
búið að steypa þrjá báta.
Þessir fiskibátar eru trill-
ur 7.30 metrar að lengd og
2—3 tonn að stærð. Þær
eru hannaðar upp úr fær-
eyska trillubátaslaginu,
sem löngu er orðið þekkt á
tslandi.
Reginn Grimsson hjá Mótun h.f.
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að trillurnar væru framleidd-
ar samkvæmt samningi vió fær-
eyska fyrirtækið Marineplast,
sem framleitt hefur þessa báta
siðustu 3 árin og í Færeyjum
hefðu þessir bátar reynzt sérstak-
lega vel.
i ÞAÍ> ER VúaT PETtA
SEM HEITIR AÐ VERA
I-ÞRÖH6RI STÖPU"
Kvað Reginn Siglingamála-
stofnunina hafa viðurkennt þessa
báta þegar, enda fullt samráð haft
við hana er framleiðsla hófst. Bát-
unum hefði litillega verið breytt
frá því sem er í Færeyjum til að
gera þá sterkari meðal annars
væri þykkari botn i þeim.
Þá sagði hann, að þeir reyndu
að hafa fjöldaframleiðslufyrir-
komulag á smíðinni, m.a. með þvi
að nota sömu vélartegund í þá,
Volvo Penta, en kaupendur gætu
þó ef þeir vildu tekið aðra vélar-
gerð. Sagði Reginn að með öllum
útbúnaði kostuðu trillubátarnir
2.5 milljónir króna, en ef menn
keyptu aðeins skrokkinn steyptan
með húsi væri verðið 90Ö þúsund
krónur.
„KRÖFLUNEFND er ekki
komin fram úr þeirri fjár-
veitingu, sem hún fékk á
þessu ári, en það er ljóst,
að ef haldið verður áfram
með sama hraða, þá fer
þetta úr böndunum. Þess
vegoa höfum við svona gef-
ið aðvörunarljós", sagði
Gísli Blöndal, hagsýslu-
stjóri, í samtali við Mbl. í
Siglufjörður:
Loðnudæling
gengur vel
Siglufirði 22. júli.
LOÐNUDÆLINGIN gengur vel
enda þótt dæla verði upp á band,
þar sem barkana vantar ennþá.
Nást 150—60 tonna afköst á
klukkustund og eru menn ánægð-
ir með það. t dag kom Harpa með
200 tonn af loðnu, Vörður 70, og
Loftur Baldvinsson er á leiðinni
með 60—70 tonn.
Dagný er að landa 140—150
tonnum af bolfiski. Hér er nú
atvinnuástandið þannig, að allir
hafa nóg að gera og er ekki hægt
að fá menn í steypuvinnu nema í
næturvinnu. Þá er hér saltskip og
hefur ekki fengizt mannskapur til
að vinna i þvi, nema um nætur-
vinnu sé að ræóa.
mj.
FÍB selur í
Bifrastarskip
SAMNINGAR hafa verið undir-
ritaðir milli Félags fslenzkra bif-
reiðaeigenda og Bifrastar h.f. um
að FlB taki að sér sölu á flutningi
einkabifreiða ferðamanna til og
frá Islandi með skipum Bifrastar
h;f.
Félagsmenn FlB geta einnig
keypt hlutabréf í Bifröst h.f., en
þeim fylgir afsláttarréttur á bíla-
flutningum.
gær. Ekki vildi Gísli nefna
neinar tölur í þessu sam-
bandi, en vísaði á iðnaðar-
ráðuneytið.
Páll Flygenring, ráðuneytis-
stjóri, staðfesti, að segja mætti að
útgjöld Kröflunefndar væru í
endurskoðun, en hann kvaðst
engar tölur geta nefnt. „Kröflu-
nefnd hefur sem kunnugt er ekk-
ert bókhald sjálf, heldur er allt
sent til rikisbókhaldsins", sagði
Páll.
HASETAR og matsveinar á kaup-
skipaflotanum hafa nú boðað
verkfall frá og með 1. ágúst nk. en
hins vegar hafa yfirmenn ekki
boðað verkfall enn sem komið er,
enda munu samningar þeirra
hvað lengst komnir. Fundur með
yfirmönnum og hásetum hjá
ríkissáttasemjara hófst kl. 2 (
gær, en aðilar höfðu daginn áður
setið á fundi fram til kl. 5 aðfara-
nótt gærdagsins.
Að sögn Jóns Þorsteinssonar,
sáttanefndarmanns, er að mestu
búið að fara i gegnum sérkröfur
yfirmanna og nú tekið til við að
ræða sjálft kaupið en Jón kvað þó
of fljótt að segja að sérkröfuhlið-
in væri algjörlega frá, þvi að at-
riði af því tagi gætu ávallt skotið
upp kollinum í samningaumleit-
unum. Mál hásetanna eru litið eitt
skemmra á veg komin, en samn-
ingar matsveina eiga þó lengst í
land. Fulltrúar þeirra hafa ekki
verið boðaðir á sáttafund undan-
farið, þar sem ekki er talið unnt
að leggja meira á viðsemjendur
þessara hópa, forsvarsmenn
Framhald á bls 22.
„Ekki viss um að sjómenn vildu
fara á sjó á þessum döllum**
Rœtt við Valtý Pétursson, listmálara, sem
sýnir „blóm- og skipamyndir** í Þrastalundi
„MYNDIRNAR sem ég sýni
þarna f Þrastalundi eru aðal-
lega skipamyndir og blóma-
myndir, svona á mfna vfsu.“
sagði Valtýr Pétursson list-
málari f viðtali við Morgun-
blaðið um framangreinda
sýningu hans, sem staðið hefur
nú um tíma í Þrastalundi og
verður áfram fram yfir
mánaðamót.
Valtýr er einn af boðberum
geometriunnar og afstraktlist-
arinnar hér á landi og um langt
skeið einn af dyggustu formæl-
endum þeirrar liststefnu, bæði
í verki og með skrifum sínum
sem listgagnrýnandi. Framan-
greind ummæli vöktu því grun-
semdir um að maðurinn hefði
tekið sinnaskiptum. „Nei, það
er af og frá,“ sagði Valtýr. „Ég
er trúr geometriunni áfram en
hins vegar má ekki gleyma þvi,
að það eru figúratif form allt í
kringum mann, svo að ekki fer
hjá því að maður verði þar fyrir
Framhald á bls, 25
Fyrsti plasttrillubáturinn frá Mótun verður sjósettur f Hafnarfirði f
dag, og eins og sjá má er báturinn með hinu gamla færeyska trillulagi,
sem allsstaðar hefur reynzt vel. Húsið á bátnum er mjög rúmt, og þar
eru tvær kojur. Ljósm Mbl. Emil(a
Útgöld Kröflunefnd-
ar endurskoðuð