Morgunblaðið - 23.07.1977, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.07.1977, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JULl 1977 11 Það var fylgzt með af mikilli innlifun, en yngsta fólkið varð a8 standa við sviSiS vegna þess hve bekkurinn var þétt setinn. Kærleikurinn tekinn fyrir I upphafi dansleiks. i sumarskapi. Nauðsynlegt að nýta sólarorkuna Spjallað við Oft hafa menn velt þeirri spurningu fyrir sér á hvern hátt nýta megi sólarorkuna, ekki sfzt nú hin slðari ár, er augu þeirra hafa verid aó opn- ast fyrir þvf að einhvern tfma þrjóti orkulindir jarðarinnar. Að undanförnu hefur' verið staddur hérlendis þýzkur mað- ur, Hans Rau að nafni, og hefur hann nýlega skrifað bók um nýtingu sólarorkunnar. Hans Rau er verkfræðingur og hefur skrifað bækur, starfað sem blaðamaður og þýðandi og sfð- ustu ár hefur hann verið á ferð vfða um heim og m.a. safnað efni f bók sína um sólarorkuna. Hann fer fyrst nokkrum orðum um efni bókarinnar: —Bókin heitir „Heliotechnik — Sonnenenergie in praktisch- er Anwendung" eða „Sólar- tækni — hagnýting sólarork- unnar" og fjallað um reynslu frá 40 löndum'um hvernig tek- izt hefur að nýta þessa orkulind okkar, sólina, sem skin 10—12 tíma á dag og jafnvel lengur og ég þori að fullyrða að þetta er merkileg bók, segir Hans Rau. Hvað kom til að þú skrifar um þetta efni? —Árið 1956 var bandariski sendiherrann i Bonn, prófessor Conant, vel þekktur visinda- maður og benti hann á á ráð- stefnu sem haldin var að sólar- orkan yrði æ þýðingarmeiri fyr- ir okkur og fáum mánuðum seinna var gefin út eftir mig bók, sú fyrsta um þetta efni, og hét hún einfaldlega sólarorkan og var hún jafnframt þýzku út- gáfunni gefin út i Bandarikjun- um með sama tiltli. —En 1975 skrifaði ég aðra bók og er hún nú komin út í þriðja sinn hjá þýzka forlaginu Udo Pfriemer í MUnchen. í bókinni er, eins og ég nefndi áðan, greint frá reynslu i yfir 40 löndum viða um heim og eru 135 ljósmyndir og teikningar i bókinni og rætt er um nýjustu uppgötvanir til hagnýtingar sól- arork7nnar. Hefur bókin komið út í fleiri löndum? Hans Rau Já, henni hefur verið nokkuð vel tekið þó ég segi sjálfur frá og hún þykir fremur aðgengi- leg og auðveld aflestrar og þar er lika að finna mikið af hag- nýtum upplýsingum, en ég hef ferðazt og skrifað viða til að fá upplýsingar og það hefur nátt- úrlega gengið misjafnlega. Bók- in hefur þegar komið út í Dan- mörku, en þeirri útgáfu hef ég nýlokið við að ganga frá og i september kemur út sænsk þýð- ing, sem ég geng sjálfur frá, því ég tala einnig nokkuð i sænsku siðan ég dvaldi í Malmö um tima, og siðar eru væntanlegar útgáfur á spönsku, hollenzku, itölsku og grísku. Og maður sem ég hitti á ráðstefnu í Kairó sagði að þessa bók yrði að þýða strax á arabisku. Það kemur á daginn að fyrir utan sólarorkuskrif sín hefur Hans Rau lagt stund á málanám og talar nú um 10 tungumál, m.a. itölsku, hollenzku, frönsku, ensku, portúgölsku og sænsku, sem áður er getið um. Hans Rau sagði að uppi væri í Þýzkalandi sterk hreyfing um nýtingu sólar- og vindorkunnar, samtök, sem i væru nú um 3.800 félagar. Stæðu þau fyrir allt að fjórum ráðstefnum á ári sem um 3.000 manns sætu, en aðal- markmið samtakanna væri að benda á nauðsyn þess að nýta þessar orkulindir. Sagði Hans Rau að þróun í þessum málum í Þýzkalandi væri hröð, árangur sæist jafnvel í hverjum mánuði sem kæmi sér án efa vel fyrir allt mannkyn. Hér er sól- arorkan nýtt til að hita mat, en myndin er tekin á Ind- landi. jatlantis! í 11 lítra fötum Nú seljum viö framvegis á sama verði og framleiðandinn, þ.e verksmiðjuverði. — Kvarz og úti spred. I Byggingavöruverzlunin Virknih.f. Ármúia 38, sími 85466 og 85471

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.