Morgunblaðið - 23.07.1977, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 23.07.1977, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JULl 1977 15 Zaire — Hin botnlausa risaáma Afríku „AÐ framlengja þeim lánum, sem Zaire hefur verið veitt," segir bankastjórinn þungbúinn á svip og horfir um leið út um gluggann á hinni loftkældu skrifstofu sinni á hið skollita Zaire-fljót, þar sem það liður þungt og hægt, „hefur svipaðan tilgang, eins og ef þjónarnir hefðu raðað legustólunum upp á ný á Titanic i siðustu ferð- inni.“ Það er nákvæmlega þetta, sem hinir vestrænu lánadrottn- ar reyndu að gera á skuldaráð- stefnu í París i lok siðasta árs. Þvi að þetta stóra Afrikuríki er gjaldþrota. Erlendar TSkuldir Zaires eru taldar nema þremur milljörðum dollara. Aðeins þýzkum bönkum skuldar landið 750 milljónir marka, og það er orðið langt síðan hætt var að standa skil á vöxtum hvað þá öðru. „Á hinum tólf valdaárum sínum hefur ríkisleiðtoginn Mobuto með skírskotun til auð- æfa lands síns lifað um efni fram, og með þvi hefði eigin- lega átt að vera búið að glata öllu lánstrausti", segir banka- stjórinn, en afhjúpar um leið klípu síns eigin fyrirtækis: „En e við veitum ekki Zaire stuðn- ing eigi að síður, getum við endanlega afskrifað lánsfé okkar.“ Þess vegna safnar Zaire enn skuldum: tröllsleg aðstoðarlán frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum, smágreiðar I tilefni heimsóknar Mobutos til BrUssel frá fyrrver- andi nýlenduveldinu Belgíu, 32 milljónif dollara á þessu ári úr þróunarsjóði Bandaríkjanna, tvihliða fjármagnsaðstoð frá Evrópu — allt er þegið. Og þá getur flokkur Franz Josefs Strauss, sem af óskiljanlegum ástæðum virðist vera í góðu vin- fengi við Mobuto, ekki staðið aðgerðarlaus. Þegar Strauss var síðast i heimsókn i Kinshasa, var um það samið, að Hans-Seidel-stofnunin myndi nú einnig láta þróunaraðstoð við Zaire til sín taka. „í Zaire er hægt að gera göð viðskipti“, segir einnig hinn nýi forsætisráðherra brosandi, „Það þarf aðeins fjármagn." Og Mobuto bendir sjálfur hiklaust á það, að eftir þróun mála í Angóla verði Vesturveldin að treysta sambönd sín við Zaire til að koma í veg fyrir pólitiska þverbeygju, sem óhjákvæmi- lega yrði tekin, ef lánaveitingar væru stöðvaðar nú til hins stór- skulduga lands. Bíða eftir endurgreiðslu Sá efnahagslegi vitahringur, sem mikill hluti Þriðja heims- ins er staddur i, er vart i nokkru landi í Afríku eins aug- ljós eins og í Zaire. Þegar ætti Zaire að verða að greiða um þriðjung allra tekna sinna af utanrikisviðskiptum i vexti og afborganir af gömlum lánum. Aðeins ný aðstoðarlán og prent- un nýrra peninga i seðlabank- anum gátu bjargað rikis- búskapnum á síðastliðnu ári. Hvernig hefur Zaire, sem að mati allra Afríku-sérfræðinga hefur einna mesta möguleika til að blómgast efnahagslega allra landa í álfunni, lent í þess- ari aðstöðu, sem virðist nær vonlaus? Einvaldurinn Mobuto boðaói fyrir sex árum með for- setatilskipun stórmannlega iðn- væðingaráætlun fyrir land sitt. En í stað þess að fjármagna landbúnaðinn til þess að gera þetta mikla land sjálfu sér nógt að sem mestu leyti á sviði mat- væla, var meira en milljarði dollara varið til eflingar kopar- iðnaðinum. Mikinn hluta þess fjár, sem til þess þurfti, aflaði Zaire sér á frjálsum lánsfjármarkaði með venjulegum vaxtakjörum. Al- þjóðleg bankasamtök í Banda- ríkjunum og Evrópu, sem þótti Zaire .efnilegt viðskiptaland, tóku lánbeiðnunum vel. Hin rikisrekna koparnáma, Gecamines, ein fékk þrjú lán til stækkunar og eflingar námu- rekstrinum alls að upphæð 220 milljónir dollara. Nöfn þeirra banka, sem biða eftir endur- greiðslum í Zaire, er langur og virðulegur listi: Þar er hinn frægi „Chase Manhattan Bank“, Fjárfestingarbanki Evrópu, ameriski Export- Import-Bank og þýzkar, japanskar, belgiskar og franskar lánastofnanir. „Það mætti kannski benda á það“, segir hinn þekkti hag- fræðingur John Kenneth Galbraith, „að hinar alþjóðlegu lánastofnanir dylja yfirleitt kjarna málsins, en hann er sú staðreynd að skuldunauturinn getur ekki borgað, og að lán- veitandinn hefur gert sig sekan um stórkostlega skyssu að veita lán yfirleitt við þessar að- stæður — sem er andstætt öll- um reglum um lánveitingar. Þetta er þó i rauninni hættu- laust fyrir þróunarlöndin, þvi að þegar skuldir eru ekki greiddar, er það aðeins einn, sem líður fyrir það — nefnilega sá, sem lét féð af hendi.“ Sú hringrás, sem hófst með stjórnlausri dælingu milljarða- upphæða, stöóvaðist á því augnabliki, sem heimsmarkaðs- verð á kopar tók að lækka á kreppuárinu 1973. (Upp- hæðirnar runnu að hluta til kopariðnaðarins, en einnig til matvælainnflutnings og kaupa á ýmsum lúxusvörum, sviss- neskum gullúrum o.fl.) Á árinu 1975 voru tekjur Zaires af koparútflutningi 40% minni en árið áður. Stórfelldar áætlanir, sem kynntar höfðu verið með lúðrablæstri, fóru úr skorðum. Raflina, sem átti að flytja raf- magn um 2000 kílómetra vega- lengd frá Zaire-fljóti til kopar- héraðsins, sem áður hét Katanga, (kostnaðarverð 500 milljónir dollara), er langt á eftir stórhuga áætlunum. Auk þess mun hið mikla stolt Zaires, Inga-virkjunin, geta framleitt miklu meira rafmagn en landið þarfnast um fyrirsjáanlega framtið. Jafnvel áhugi ríkisstjórnar- innar sjálfrar á koparslegnum útþensluáætlunum, sem krefj- ast hundraða milljóna dollara lánsfjár, hefur dvinað, þvi að hið lága heimsmarkaðsverð og löngu flutningaleiðir frá Shaba um Ródesiu til hafna I Suður Afríku gera útflutninginn að hreinum taprekstri. Óhemju fjárhæðir þyrfti til að ljúka hinum ýmsu áætlunum, sem byrjað hefur verið að fram- kvæma, og jafnvel hinar gömlu námur eru nú reknar með minnkandi afköstum. Á svip- aðan hátt og hin evrópsku „smjörfjöir I birgðageymslum iðnaðarþjóðanna hlaðast nú upp „koparfjöll" I Zaire. Mobuto hefur farið þá leið, sem hlaut að enda I blindgötu. Hann var liðsforingi I nýlendu- her Belgiu og var gjörsneyddur allri reynslu og þekkingu á efnahagsmálum, er hann varð einvaldur. Frá 1973 hefur hann af þjóðlegum hvötum þjóðnýtt nær öll einkafyrirtæki án þess aó neinir þjálfaðir menn væru hafðir tilbúnir til að taka við rekstrinum. Þýzkur kaupmaður hefur lýzt því, hvað gerðist á næstu árum: „Einkaverzlanirnar voru fyrst afhentar zairískum einstakl- ingum. Þeir seldu allar vöru- birgóirnar, sem vegna reynslu- leysir gátu þeir ekki séð sér fyrir nýju lánsfé og urðu því gjaldþrota eftir útsöluna. Þá voru búðirnar faldar I umsjá ríkisstarfsmanna, sem tóku til við að höndla, en hugsuðu yfir- leitt fyrst og fremst um að bæta laun sin.“ í byrjun árs i fyrra lofaði svo Mobuto þvi að af- henda fyrri eigendum aftur 40% af fyrirtækjunum. En menn eru að sjálfsögðu hikandi við að leggja fé I fyrir- tæki — sitt eigið fé — þegar aðstæður eru jafnóvissar og þarna. „Fjárfesting er vissu- lega og einmitt mál, er varðar traust — og traustið hefur ver- ið eyðilagt," segir verzlunar- maður. Rlkisleiðtogi Zaires, Sese Seco Mobuto (til hægri) gerði hnefaleika- keppnina I oktðber 1974, sem Muhammed Ali bar kostnaðinn af, I Kinshasa að hátfð fyrir sjálfan sig. Ævintýralegt óhóf Þegar hernaðarleg stjórn er við völd, leynist ávallt sú hætta, að hinum fyrri uppreisnar- mönnum verði velt úr sessi á sama hátt og þeir náðu völdum. Þess vegna kosta helztu herfor- ingjarnir kapps um það — og þá fyrst og fremst Mobuto — að tryggja sér ellilffeyri. Spilling og frændsemisstjórn stendur öllum framförum mjög fyrir Framhald á bls. 25 Meerkatze (Reykjavlkuthöfn. Ljósm Mbl. RAX. „Þorskastríðið var erfiður tími” — segir skipstjórinn á Meerkatze sem nú hefur kvatt íslandsmið fyrir fullt og allt ÞÝZKA eftirlitsskipið Meerkatze kvaddi íslandsmið í síðasta sinn á miðvikudagsmorgun, en það verður selt á næstunni og í stað þess kemur nýtt og stærra Meerkatze sem nú er i smíðum i Þýzkalandi. Upphaflega hét Meerkatze, Andorn Dhorn og var byggt sem rannsóknar- skip og togari. Var skipið fyrsti tveggja þilfara siðutogarinn í heiminum, byggt árið 1955, en Þjóðverjar gerðu þá miklar athuganir á því hvort hentaði betur, tveggja þilfara togarar með skut- rennu eða venjulegu síðutrolli, en eins um borð i skipið, bæði frá Reykjavíkur- höfn og ekki sízt skipherrum Landhelg- isgæzlunnar ásamt forstjóra í samtali við Morgunblaðið sagði Harald Paetow skipstjóri, sem er 36 ára gamall, að þetta væri sin fyrsta og um leið siðast ferð sem skipherra. þar sem hann tæki nú við stöðu hafnar- stjóra í H.mborg Kvaðst hann hafa verið á sjó frá árinu 1956 og nú nokkuð lengi á Meerkatze, eða í 3’/2 ár, en um borð væri 32 manna áhöfn. ,,Ég hef alla tíð kunnað vel við mig á íslandsmiðum, nema hvað í þorska- Á aðalþilfari Meerkatze var hlaðið veizluborð og meðal gesta var Guðmundur Kjærnested skipherra og kona hans, Margrét S. Kjæmested. og allir vita varð skutrennan fyrir val- inu. Sem rannsóknarskip kom Andorn Dhorn oft á íslandsmið og var þá við fiskirannsóknir Meðal annars fann skipið hinn fræga Dhornbanda vestur af Vestfjörðum Það kom síðan að því að nýtt rannsóknarskip var byggt sem fékk nafnið Andorn Dhorn og gamla skipið var þá gert að eftirlitsskipi og fékk þá nafnið Meerkatze, og fyrir nokkrum árum voru 2 teknir af nafn- inu, er nýtt Meerkatze 2 var byggt Áður en Meerkatze lét úr höfn í Reykjavik var nokkrum gestum boðið striðinu leið mér aldrei vel og þá gát- um við aldrei leitað hafnar, það var erfiður timi Hins vegar held ég að lífið hafi þá verið miklu erfiðara hjá fiski- mönnunum Þá — og nú segi ég sem betur fer, — var okkur fyrirskipað af þýzkum stjórnvöldum að aðstoða ekki togarana þegar islenzku varðskipin voru að ergja þá." Um borð i Meerkatze hélt Paetow ávarp þar sem hann þakkaði öllum sem veitt hefði bæði skipshöfn Meerkatze og þýzkum sjómönnum almennt að- stoð á undangengum árum, siðan af- henti hann allmörgum myndir af Meerkatze til minningar um skipið. Einar Thoroddsen yfirhafnsögumaður tekur við mynd af Moorkatze úr hondi Paetow skipherra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.