Morgunblaðið - 01.09.1977, Síða 1
40 SIÐUR
193. tbl. 64. árg.
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Orðrómur um frek-
ari gengisfellingar
— finnska markið lækkað um 3%
Helsinki, 31. ágúst. —
Reuter — AP
EFTIR að gengi finnska marksins
var fellt um þrjá af hundraði í
dag, varð vart við vaxandi áhyggj-
ur á alþjóðagjaldeyrismarkaði
af þróun gjaldeyrismála í Skandi-
navíu. Gjaldmiðili Svía, Norð-
manna og Dana hélt áfram að síga
í dag en ýmsir telja að ástæðan
fyrir þvf sé sú, að eftir gengisfell-
inguna vilji menn fara varlega í
sakirnar.
Þrálátur orðrómur er nú á
kreiki um að önnur ríki kunni að
fara að dæmi Norðurlandanna og
lækka gengi sitt á næstunni.
Það hefur vakið athygli að i því
umróti, sem gengisbreytingarnar
hafa valdið undanfarna daga, hef-
ur brezka sterlingspundið styrkt
stöðu sína verulega, og var það í
dag skráð jafnvirði 1.75 banda-
ríkjadals. Þá hækkuðu verðbréf í
Lundúnum í verði í dag og gull-
forðinn hefur aukizt. Ástæðan
fyrir batnandi horfum í brezku
efnahagslífi mun ekki sizt eiga
rætur sínar að rekja til bjartsýni
vegna olíuvinnslunnar í Norður-
sjó, en einnig hafa bætt vaxtakjör
í Bretlandi gert það að verkum að
erlendir aðilar hafa í vaxandi
mæli f járfest þar að undanförnu.
Sómalíuforseti
ræðir „sam-
eiginleg hags-
munamál” i
Sovétrikjunum
Moskvu, 31. ágúst — AP
TILKYNNT var í Moskvu f dag,
að forseti Sómalfu, Mohammed
Siad Barre, væri f borginni og
hefði rætt þar við háttsetta leið-
toga frá því á mánudaginn var. 1
frásögn Tassfréttastofunnar af
viðræðunum kom m.a. fram, að
Siad Barre hefði hitt að máli
Andrei Gromyko utanrfkisráð-
herra og Mikhail Suslov, sem er
helzti hugmyndafræðingur
kommúnistaflokksins f Sovétríkj-
unum, og hefði á fundum þeirra
verið skipzt á skoðunum um sam-
Framhald ábls. 22
Frá því i gær hefur sænska
krónan sigið á gjaldeyrismark-
aðnum í Frankfurt þannig, að fyr-
ir 100 krónur fást nú 47.84 mörk í
stað 47.99 í gær, — fyrir 100 krón-
ur norskar fást 42.47 mörk í stað
42.62, og fyrir 100 danskar krónur
fást nú 37.47 mörk í stað 37.60 í
gær.
Jafnhliða gengislækkuninni í
dag tilkynnti finnska stjórnin að
Framhald á bls. 22
Nixon
allsber
í Hvíta
húsinu
New York, 31. ágúst
Reuter.
NEW YORK blaðið Daily
News skýrði frá því í dag að
það hefði áreiðanlegar heim-
ildir fyrir því að H.R. Halde-
man, fyrrum ráðgjafi Nixons
forseta, sem nú afplánar fang-
elsisvist fyrir aðild sfna að
Watergatemálinu, skýrði frá
þvf í bók, sem kemur út í janú-
ar nk. að Nixon hefði dag
nokkurn komið inn í skrif-
stofu sína í Hvíta húsinu,
klætt sig úr öllum fötum, setzt
nakinn við skrifhorð sitt og
spurt „hvað liggur nú fyrir“?
Framhald á bls. 22
Ian Smith skilar atkvæðisseðlinum í upphafi kjörfund-
ar í gærmorgun, en fljótlega varð ljóst að kjörsókn
yrði óvenjumikil.
(AP-simamynd)
EBE:
Giscard
lýsir stuðn-
ingi við að-
ild Spánar
Parfs, 31. ágúst.
— Reuter
GISCARD d'Estaing Frakklands-
forseti lýsti því yfir í dag, að hann
væri hlynntur inngöngu Spánar í
Efnahagsbandalagið, en tók fram
um leið að franska stjórnin hefði
ekki í hyggju að láta það verða á
kostnað landhúnaðarins f Frakk-
landi.
Þessi yfirlýsing kom í þann
mund, sem Adolfo Suarez, forsæt-
isráðherra Spánar, var að ljúka
opinberri heimsókn sinni til
Frakklands, og við brottförina
sagði hann að hann væri mjög
ánægður með árangurinn af við-
ræðufundunum i Frakklandi.
Suarez ferðast um þessar mundir
milli höfuðborga Efnahagsbanda-
lagsríkjanna i því skyni að afla
stuðnings við umsókn Spánverja
um inngöngu í bandalagið.
Vitað er að Giscard hefur verið
þvi fylgjandi að Spánn sameínað:
ist bandalaginu, en forsetinn á við
ramman reip að draga þar sem
eru franskir bændur, sem óttast
mjög að aukin samkeppni í sölu
víns, olífuolíu og annarra land-
búnaðarafurða á markaði banda-
lagsins rýri hag þeirra til muna.
Rhodesía:
Smith vann yfirburða-
sigur í kosningunum
Salisbury, 31. ágúst. — Keuter.
ÞEGAR talning atkvæða í
kosningunum í Rhódesíu
var nokkuð á veg komin í
gærkvöldi var ljóst, að
Rhódesíu-fylkingin, flokk-
ur Ian Smiths forsætisráð-
herra, hafði unnið yfir-
burðasigur, og var fullvíst
talið að hann hefði fengið
umboð 2/3 hluta þeirra
sem kosningarétt hafa í
landinu, til að hrinda í
framkvæmd hugmvndum
sínum um breytingar á
stjórnarskránni þannig að
Stórfelld námavinnsla á
tunglinu um næstu aldamót
— segir einn forstöðumanna NASA
Melbourne, 31. ágúst. —
Reuter.
ARIÐ 2000 veröa menn farnir
að stunda námavinnslu á tungl-
inu, sagði Wilson Hunter, einn
yfirmanna bandarfsku geimvís-
indastofnunarinnar (NASA) i
dag. Hunter sagði, að um alda-
mótin mætti búast við þvi að
allt að 10 þúsund manns hefðu
aðsetur um borð í geimvísinda-
stöðvum í sambandi við náma-
vinnsluna á tunglinu, og yrði
hægt að búa þeint mjög eðlilegt
umhverfi, þar sem meðal ann-
ars yrði að finna tré og læki.
,,Á síðustu 10 árum haf-a
geimvisindi tekið stökkbreyt-
ingum“, sagði Hunter á fjöl-
sóttri ráðstefnu visindamanna
hvaðanæva að úr heiminum,
sem um þessar mundir er hald-
in í Melbourne, ,,en framfarirn-
ar verða enn stórstigari á þeim
áratug, sem nú fer í hönd“.
Þá spáði Iiunter þvi i erindi
sínu að þegar fram liðu stundir
yrðu smástirni dregin inn i loft-
rúm það, sem umlykur Jörðina,
og unnir úr þeim ntálmar og
önnur verðmæt efni. Hann
skýrði frá því að Rússar og
Geimvisindastofnun Evrópu
hefðú sýnt áætlunum Banda-
rikjamanna i þessu efni áhuga
og hefði þegar verið hafið sam-
starf milli þessara aðila um vis-
indarannsóknir áþessu sviði.
mvnda megi stjórn meö
þátttöku hvítra manna og
hörundsdökkra á breiðum
grundvelli. Samkvæmt
fvrirætlunum Smiths
mundi slík stjórn síðan
leggja fram frumvarp að
annarri stjórnarskrá um
meirihlutastjórn, en það
frumvarp yrði þá lagt fyrir
kjósendur, sem enn yrðu
að miklum meirihluta
hvítir.
Skömmu eftir að kjörfundur
hófst í morgun varð ljóst að kjör-
sóknin yrði mikil. 50þúsund kjös-
endur voru á kjörskrá og eftir því
sem nær hefur liðið kosningunum
hefur þeirri skoðun aukizt fylgi
að Rhódesiu-fylkingin, flokkur
Smiths, ynni umtalsverðan
kosningasigur og þar með urnboð
tveggja þriðju hluta kjósenda til
að ráða til lykta aðsteðjandi
vandamál - varðandi réttindi
blökkumanna í landinu.
Eftir að Ian Smith hafði greitt
atkvæði í gærmorgun tjáði hann
fréttamönnum, að hann byggist
við þvi að þeir Andrew Young,
sendiherra Bandarikjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum og David
Owen, utanríkisráðherra Breta,
sem þessa dagana eru á stöðugum
Framhald á bls. 22